Morgunblaðið - 08.10.1988, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988
25
Þing Evrópuráðsins:
Reynt að aflétta áritun-
arskyldu til Frakklands
Strassborg. Frá Þórunni Þórsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
REYNA átti til þrautar í gærkvöldi að finna iausn á ágreiningi
þeirra aðildarþjóða Evrópuráðsins sem þurfa vegabréfsáritun til
Frakklands og Frakka um áritunarmálið. Ætlaði Louis Jung, for-
seti þings Evrópuráðsins, að hitta Michel Rocard, forsætisráðherra
Frakklands, og ræða málið við hann. Átti þingforseti í gærmorgun
óformlegan fund um málið með fulltrúum Austurrikis, íslands, Nor-
egs og Svíðþjóðar á þingi ráðsins, en áritunarskyldan snertir íbúa
þessara landa.
Haustþing Evrópuráðsins hófst á
mánudag og lýkur í dag. Voru uppi
vonir um það fyrir þingið, að Frakk-
ar myndu breyta um stefnu í áritun-
armálinu. Svo varð ekki og gerði
Ragnhildur Helgadóttir, alþingis-
maður, grein fyrir stöðu þess á
mánudag í framsöguræðu um störf
forsætisnefndar ráðsins í sumar.
Ýmsir þingmenn tóku til máls og
átöldu frönsk stjómvöid fyrir að-
gerðaleysi. Breskur þingmaður
sagði til dæmis í ræðu sinni að ótti
við hryðjuverk væri heldur léleg
afsökun fyrir áritunarskyldunni.
Hann hefði aldrei heyrt um íslenska
eða norska hryðjuverkamenn, þó
væri vegabréfsáritana krafist af
öllum Norðurlandabúum nema Dön-
um. Hins vegar væri vitað um
hryðjuverkamenn frá flestum lönd-
um Evrópubandalagsins, en ekki
þryfti áritanir á vegabréf fólks frá
þeim löndum.
Á hinum óformlega fundi í gær-
morgun með þingforseta Evrópur-
áðsins var ákveðið, að næði þingfor-
setinn ekki samkomulagi við Rocard
forsætisráðherra myndu nokkrir
varaforsetar Evrópuráðsins og
þingforsetinn reyna til þrautar að
leysa áritunarmálið með frönsku
ríkisstjóminni. Louis Jung sagði
ljóst, að frönsk stjómvöld vildu ekki
aflétta áritunarskyldunni alveg. Því
væri rætt um málmiðlunarlausnir
eins og að hleypa ferðamönnum frá
öllum Evrópulöndum inn í Frakk-
land án áritunar, taka up „ævilang-
ar áritanir" fyrir Evrópubúa eða
aflétta áritunarskyldu gagnvart öll-
um Evrópuríkjum til reynslu.
Rætt um UNESCO
í umræðum á þingi Evrópuráðs-
Engisprettufeirald-
ur á leið til Súdan
Allt varnarstarf liggur niðri vegna
loftárása eþíópískra flugvéla
ins að þessu sinni vöktu mesta at-
hygli erindi þeirra Fredricos May-
ors, framkvæmdastjóra UNESCO,
og Jean-Claudes Payes, fram-
kvæmdastjóra OECD. Taldi Mayor
að viðleitni sín til spamaðar hjá
UNESCO hefði ekki tekist sem
skyldi vegna ágreinings við stjóm
stofnunarinnar um ýmis atriði. Þó
stefndi í réttá átt og hefði yfirbygg-
ing stofnunarinnar minnkað tals-
vert. Að loknum allmiklum umræð-
um samþykktu þingmenn einróma
áskomn á Bretland, Bandaríkin og
Singapúr um að ganga að nýju í
UNESCO. Ríkin hættu þátttöku í
stofnuninni 1986 í mótmælaskyni
við M’Bow þáverandi framkvæmda-
stjóra og stjómarhætti hans.
Paye, framkvæmdastjóri OECD,
taldi í ræðu sinni að óþarfa svart-
sýni hefði gætt í efnahagsspám
fyrir þetta ár. Þrátt fyrir október-
hranið á verðbréfamörkuðum hefði
verðbólga í aðildarlöndum OECD
aukist úr 3,5% í 4% að jafnaði, eða
mun minna en óttast var.
Samþykkt var á Evrópuráðs-
þinginu að veita San Marínó aðild
að ráðinu og er gert ráð fyrir aðild
Finna næsta vor. Ðómarar frá sex
löndum vora kjömir í Mannrétt-
indadómstól Evrópu og var Þór
Vilhjálmsson, hæstaréttardómari,
endurkjörinn. Af hálfu Alþingis
sátu Evrópuþingið: Guðmundur G.
Þórarinsson, Hreggviður Jónsson,
Kjartan Jóhannsson og Ragnhildur
Helgadóttir.
Reuter
Iskotstöðu
Trjóna Iangdrægrar sovékrar kjamorkuflaugar, SS-11, gægist
upp úr skotbyrgi á miðjum akri í landbúnaðarhéraðinu Ivanovo,
sem er 250 km norðaustur af Moskvu. Á pallinum eru erlendir
blaðamenn, sem boðið var að skoða flaugina á skotstað. Flaugin
er 50 tonn að þyngd og hlaðin kjarnorkusprengju með eins mega-
tonna sprengikraft, en það er 75 sinnum stærri sprengja en varp-
að var á Hiroshima. Henni er miðað á skotmark í austurhluta
Bandaríkjanna, en sovézkur herforingi, sem fylgdi blaðamönnum
á staðinn, neitaði að skýra frá hvaða borg þar væri um að ræða.
Khartúm. Reuter.
SÚDANSKA fréttastofan Suna
skýrði frá þvi á föstudag að hóp-
ur sérfræðinga i Súdan sem berst
gegn engisprettufaraldri við
landamæri Eþíópíu hafi verið
kallaður heim og flugvélar sem
dreifa eitri yfir akra séu aðgerð-
arlausar í kjölfar loftárása
eþíópíska lofthersins.
Suna hafði það eftir Ali Mo-
hamed Ali, forsvarsmanni engi-
sprettuvama í Súdan, að aðgerðir
gegn engisprettufaraldrinum við
landamæri Eþíópíu hefðu stöðvast
í kjölfar árásana. Hann sagði að
orrastuvélar hefðu varpað sprengj-
um á landamærastöðvar í Súdan
og allir þeir sem vinna að engi-
sprettuvömum hefðu verið kallaðir
heim þó vitað væri um nokkra engi-
sprettufaraldra sem væra á leið til
landsins.
Dagblöð í Khartúm greindu frá
því að súdönsk yfirvöld hefðu mót-
mælt árásunum við eþíópísk stjóm-
völd en þjóðimar vinna nú sameig-
inlega að engisprettuvömum. í
síðasta mánuði sáust engisprettu-
faraldrar á leið yfir Khartúm, höf-
uðborg Súdans, í átt að Eþíópíu og
sérfræðingar segja að þetta sé
hugsanlega skæðasti engisprettu-
faraldurinn í 30 ár.
Hungursneyð ríkir í suðurhluta
Súdans og þar hefur geysað borg-
arastyrjöld í fimm ár. Súdanskir
skæraliðar, sem eiga sér griðastað
í Eþíópíu, hafa skotið niður margar
flugvélar undanfarin tvö ár og
þannig komið í veg fyrir matvæla-
flutninga til landsins.
Action Directe:
Rétti frest-
að vegna
kjaradeilu
París. Reuter.
Réttarhöldunum yfir fiórum
leiðtogum frönsku öfgamanna-
samtakanna Action Directe var
frestað í gær vegna launadeilna
fangavarða.
Fresta varð réttarhöldunum þar
sem ekki var hægt að sækja sak-
bomingana í fangelsi þeirra vegna
kjaradeilu fangavarða. Lögmaður
fiórmenninganna sagðist ekki hafa
getað rætt við slqólstæðinga sína í
hálfan mánuð og væri verkfallið til-
ræði við réttarfarið.
Öfgamennimir era sakaðir um að
hafa myrt Georges Besse, forstjóra
Renault-bílaverksmiðjunnar, árið
1986.
Innilegar þakkir færi ég öllum sem sýndu mér
margvíslegan sóma á sjötugs afmceli minu hinn
19. ágúst sl.
GuÖ geymi ykkur öll.
RunólfurJ. Elíasson
fráHeydal.
Sœlla er aÖ gefa en þiggja, þó ekki frá góÖum
vinum. HafiÖ öll hjartans þakkir sem geröuö
70 ára afmœlisdaginn minn aÖ gleöidegi. Ég
þakka af heilum hug.
Pétur Pétursson,
(Pétur i glerinu).
NÚ FÆRÐ ÞÚ
MYNTBAUK
í BÍLINN HJÁ
STOÐUVERÐINUM
f|f Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar
V|S£7RSQ