Morgunblaðið - 08.10.1988, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 08.10.1988, Qupperneq 27
27 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 að tryggja persónulega valdastöðu sína og ímyndaða félagslega hags- muni, sem eru raunverulega hags- munir þröngra hópa, er standa að baki þeim sjálfum, ef Samband íslenskra samvinnufélaga er undan- skilið. Þetta veit fólkið í landinu. Það kemur engum á óvart, að Steingrímur Hermannsson skuli vilja færa til fjármuni frá einstakl- ingum og 'einkafyrirtælq'um yfir í taprekstur SÍS. Þetta hafa verið ær og_ kýr framsóknarmanna í ára- tugi. Ólafur Ragnar er sama sinnis, enda rekur hann pólitískan uppruna sinn til Framsóknarflokksins. Hins vegar ber að harma það, að verka- lýðsforysta Alþýðubandalagsins, sem hefur haft sæmilega hreinan skjöld í ýmsu er varðar verkalýðs- hreyfinguna, skuli kaupa ríkis- stjómarsæti svo dýru verði. Vonandi heldur Ásmundur Stef- ánsson, forseti ASÍ, vöku sinni og dregur ákveðna línu milli hagsmuna verkalýðsins annars vegar og Al- þýðubandalagsins hins vegar. Að framkalla ranglæti Alþýðubandalagsmenn grafa sína eigin gröf í þessari ríkisstjóm og hugsanlega annarra, þ.e. Al- þýðuflokksins, ef svo heldur áfram sem nú horfir í atvinnu- og efna- hagsmálum. Millifærsla ríkisstjóm- ar Steingríms Hermannssonar leys- ir ekki vandann. Millifærsla er gálgafrestur fyrir útflutnings- atvinnuvegina og felur í sér mikla hagsmuni gangvart hinum ýmsu atvinnugreinum. Millifærslan eykur á erfiðleika iðnaðar, verslunar, veit- inga- og hótelrekstrar og alls konar þjónustu. Millifærslan íþyngir einkarekstri, en styrkir félagslegan rekstur sem millifærslunni nemur. Skiptir það milljörðum samkvæmt stjómarsáttmála. Millifærslan skekkir rekstrargrundvöll atvinnu- lífsins og mun enda með skelfíngu. Hún er spor áratugi aftur í tímann og mun skaða íslendinga. Allt er þetta gert til að þjóna valdalöngun örfárra manna. Póli- tískra spekúlanta, sem hafa það fyrir aðalstarf að slá um sig á fund- um og mannamótum með yfirlæti hins stæriláta valdamanns. Stefna núverandi ríkisstjómar leysir ekki vanda útflutningsat- vinnuveganna, heldur frestar upp- Jón Sigurðsson „Samanburður á vöxt- um af ríkisskuldabréf- um hér á landi og í öðr- um löndum ætti því að vera öruggasti saman- burður á vöxtum milli landa.“ Samanburður á raunvöxtum ríkis- skuldabréfa gefur mikilvæga vísbendingu um hverju munar á vöxtum milli landa. Þetta stafar einfaldlega af því að ríkissjóðir hinna ýmsu landa eru yfirleitt traustustu lántakendur á fjár- magnsmarkaði þannig að lán þeirra bera lægstu vexti í viðkomandi landi. Með öðrum orðum vextir af ríkisskuldabréfum em jafnan botn- inn á vaxtarófinu í hveiju landi. Guðmundur H. Garðarsson „Fólkið í landinu mun snúast til varnar, þegar það sér í gegnum blekk- ingavefinn og hefia sókn fyrir uppbygg- ingu frjáls þjóðfélags þar sem drengskapur og heiðarleiki í sam- skiptum manna er í heiðri haldinn“ gjörinu og gerir dæmið enn verra fyrir mörg fyrirtæki. Rangfrerslum svarað 1. Að gera mönnum rangt til. Jón Baldvin segir að tillaga sjálfstæðismanna um lækkun söluskatts á matvælum úr 25% í 10% hafí verið rýtingsstunga í bakið á honum. Hið sanna er að Jón Baldvin vissi að margir sjálfstæðismenn vom óánægðir með þennan skatt. Ýmsir vildu engan skatt á matvæli og aðrir lægri. Nokkr- ir þingmenn Sjálfstæðisflokksins áskildu sér allan rétt varðandi virðisaukaskattslögin um það að koma með fmmvarp til laga á þinginu í haust um lægri pró- sentu á matvæli heldur en al- menna prósentan er, en hún er sem kunnugt er 22%. Þó að Jón Baldvin telji sig Þá einfaldar það samanburð á raun- vöxtum af ríkisskuldabréfum hér á landi og erlendis að vaxtatekjur af ríkisskuldabréfum em yfírleitt ekki skattlagðar. Því má halda fram að sú hækkun raunvaxta í bankakerfinu sem varð hér á landi eftir að ákvörðun vaxta- var flutt frá Seðlabankanum til banka og sparisjóða 1. nóvember 1986 hafí að stómm hluta orðið til þess að leiðrétta það að vextir banka og sparisjóða vom stundum lægstu raunvextir á fjármagns- markaðnum meðan þeir vom ákveðnir af Seðlabankanum. Á þessari þverstæðu hlaut auðvitað að verða breyting þannig að raun- vextir í bankakerfínu hækkuðu í samanburði við vexti á ríkisskulda- bréfum við það að ákvörðun vaxta var flutt til bankanna sjálfra. Vaxtarófíð er því nú með eðlilegri hætti en það var áður. Saman- burður á vöxtum af ríkisskuldabréf- um hér á landi og í öðmm löndum ætti því að vera ömggasti saman- burður á vöxtum milli landa. Samanburður á raunvöxtum ríkisskuldabréfa milli landa Meðfylgjandi tafla sýnir saman- burð á raunvöxtum ríkisskuldabréfa hér á landi og í nokkrum löndum síðastliðin þijú ár. Árið 1986 vom raunvextir af spariskírteinum ríkis- sjóðs Iengst af 8V2—9% en vom lækkaðir í 6*/2% síðla árs sem olli því að sala spariskírteinanna því sem næst stöðvaðist. Eftir að ríkis- stjóm Sjálfstæðisflokks, Framsókn- arflokks og Alþýðuflokks tók við völdum sumarið 1987 vom raun- vextir af spariskírteinum hækkaðir í 7—8V2% til að greiða fyrir sölu þeirra. Þessir vextir héldust óbreyttir þar til í ágústmánuði sl. rétt borinn til valda hefur hann enn ekki öðlast þau völd að hann geti meinað fólki að hafa aðrar skoðanir en hann sjálfur. Það er nefnilega lýðræðislegur réttur manna að mega hafa aðrar skoð- anir en valdhafamir. En hugsanlega hyggst Jón Baldvin neyta aðstöðu seinnar sem valdamaður til að beija nið- ur skoðanir annarra í skjóli stjómmálavalds og þess óbeina valds, sem felst í aðstöðumun hvað varðar aðgang að íjölmiðl- um. I þeim efnum er formaður Alþýðuflokksins persónulega mjög vel settur. Hinn venjulegi maður, fólk almennt, hefur mun takmarkaðri möguleika til að láta ljós sitt skína, t.d. í sjón- varpi. Þar virðist Jón Baldvin hafa ótakmarkaðan aðgang með órökstuddar fullyrðingar, dylgj- ur og rangfærslur. — Allt í skjóli pólitískrar aðstöðu og valds. 2. Að sjálfstæðismenn hafi hafn- að tillögum um niðurskurð á væntanlegu frum varpi til Qár- laga. Skoðum þessa fullyrðingu formanns Alþýðuflokksins. Höf- undur þessarar greinar á sæti í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Áður en Jón Baldvin og Steingrímur Hermannsson felldu fráfarandi ríkisstjóm lá ekki fyrir ein einasta tillaga frá fyrrverandi fjármálaráðherra, Jóni Baldvini, um markvissan, ákveðinn niðurskurð. Hins vegar var í byijun september lagt fram nokkurs konar yfírlitsplagg, útlínur um helztu tekju- og út- gjaldaliði fjárlaga 1989. En böggull fylgdi skammrifí. Þessu plaggi fylgdu m.a. hugmyndir um aukna skattheimtu á sjávar- útveginum, þ.e. auðlindaskattur upp á um 700 milljónir króna, orkuskattur, sem hefði bitnað harðast á Reykvíkingum og íbú- um Stór-Reykjavíkursvæðisins, upp á um kr. 400 milljónir, og fleiri hugmyndir um aukna skattheimtu. Ég minnist þess ekki að Sjálf- stæðisflokkurinn hafí boðað í síðustu kosningum, að hann ætlaði að auka skattbyrðina. Þvert á móti. Við lofuðum að minnka hana og einnig að draga úr ríkisrekstrinum. Tillögur Jóns að þáverandi Ijármálaráðherra náði samkomulagi við lánastofnanir um milligöngu þeirra á sölu á spa- riskírteinum ríkissjóðs. Þetta sam- komulag fól meðal annars í sér lækkun raunvaxta af spariskírtein- unum um V2% og eru þeir nú á bilinu 7—8% eftir lánstíma. Sam- komulagið um sölu spariskírteina markar tímamót og er vonandi upp- haf á markvissri beitingu á afli ríkissjóðs á lánamarkaði til þess að hafa áhrif á vexti og þróun peninga- mála. Það sem af er þessu ári virðist sem raunvextir af ríkisskuldabréf- um erlendis hafí heldur farið lækk- andi. Á fyrri helmingi ársins voru þeir að meðaltali 3V2—4V2% í nokkrum af helstu viðskiptalöndum íslendinga. Árið 1986 voru þeir hins Baldvins gengu í þveröfuga átt. Þetta voru ósættanleg sjónar- mið. I öðru orðinu segist formaður Alþýðuflokks ætla að skera nið- ur, en í hinu boðar hann milli- færslu, fleiri milljarða króna, frá sparifjáreigendum til ákveðinna aðila. í því felst stórfelld skatt- heimta. Hvers konar hringlanda- háttur er þetta? Hvað hefur eig- inlega gerst? Jú. Jón Baldvin sjálfur er orðinn utanríkisráð- herra í ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar. Hann er kom- inn í skjól. Það sem var gott í gær hentar ekki í dag. Dreng- skapur, orðheldni, heiður. Hvað er það? Svona gerast kaupin á eyrinni hjá pólitískum valda- spekúlöntum. 3. Áð borgarsljóri hafi spillt fyr- ir. Hvaðan formanni Alþýðu- flokksins kemur þessi speki er hulin ráðgáta. Undanfarið hefur höfundur þessarar greinar setið marga fundi í Sjálfstæðisflokkn- um með Davíð Oddssyni og var þess aldrei var að hann legði neikvætt til málanna varðandi hugsanlegar efnahagsaðgerðir. Davíð Oddsson leyfði sér hins vegar, eins og fleiri á þessum fundum, að gæta hagsmuna og réttar Reykvíkinga. Það gerum við sjálfstæðismenn ætíð. Hið sama er ekki hægt að segja um formann Alþýðuflokks- ins. 4. Að vera óheiðarlegur. Jón Baldvin, formaður Al- þýðuflokksins, boðaði fijálslyndi og nútíma markaðshyggju, sam- bærilegt við það sem jafnaðar- menn í Vestur-Evrópu ástunda. Fjöldi manns trúði orðum hans. Allt þetta hefur vikið fyrir völd- in með Steingrími og Ólafí Ragnari. Nú skal vegið að stöðu einstaklingsins í nafni félags- hyggju. Það er að vísu öfug- mæli, þvi ekki standa öflugustu félagshreyfingar þessa lands, ASÍ og BSRB, að baki þessari ríkisstjóm, heldur fámennar valdaklíkur innan þessara flokka. 5. Að lækkun söluskatts leiði ekki til lækkunar á matvæl- um. í Alþýðublaðinu 1. okt. sl. vegar að jafnaði 5—6% og 4V2— 5V2% árið 1987. Lækkun raunvaxta af ríkisskuldabréfum erlendis það sém af er þessu ári má að mestu leyti relq'a til þess að aukning hefur orðið á verðbólgu í nokkram lönd- um. Af þessari lýsingu á raunvöxtum af ríkisskuldabréfum hér á landi og í nágrannalöndunum virðist mega draga þá ályktun að hér hafí þeir verið hærri en erlendis undanfarin misseri og að sá munur hafi heldur aukist á þessu ári. Þann fyrirvara verður að gera við þennan saman- burð að það er ekki nóg að líta ein- göngu á tölur um raunvexti heldur verður einnig að taka tillit til ástands efnahagsmála í hveiju landi. Þannig eru raunvextimir hæstir í þeim löndum sem eiga við segir Jón Baldvin orðrétt varð- andi áhrif þess að lækka sölu- skatt á matvælum úr 25% í 10%: „Helstu nauðsynjar heimilanna lækkuðu ekkert. Innfluttar mat- vörur hefðu átt að lækka um 13%. Reyndar er bann við inn- flutningi á matvælum." Um þetta atriði segir í plaggi merkt Hagstofu íslands "17. september 1988: „Áhrif til lækkunar fram- færsluvísitölu vegna lækkunar söluskatts úr 25% í 10%. Lækkun í % Mjöl, gijón, bökunarvörar 12,0 Fiskur og fískvörar 7,1 Grænmeti, ávextir 12,0 Sykur 12,0 Kaffi, te, kakó, súkkulaði 12,0 Aðrar matvörar 12,0“ Síðan hvenær er innflutnings- bann á þessum vöram? Þá áttu kjötvörar að lækka um 3-12%. Hvemig dirfíst Jón Baldvin að halda því fram að lægri skattpró- senta hafí ekki lækkunaráhrif á helstu neysluvörar almennings? Það er hægt að leyfa sér ýmislegt í stjómmálum, en í þessu efni gengur Jón Baldvin of langt. Sjálfstæðis- menn vildu veija stöðu heimilanna með þessari skattalækkun á sama tíma sem staða atvinnuveganna væri styrkt með öðrum aðgerðum. Þessu hafnaði Jón Baldvin og kaus þess í staðinn millifærsluleiðina, gálgafrestinn. Þessir herrar reiða nú öxina til höggs. Nú skal ganga milli bols og höfuðs á formanni Sjálfstæðis- flokksins, Þorsteini Pálssyni, Sjálf- stæðisflokknum, einkarekstri og einstaklingseign. Þetta hefur verið reynt fyrr og mistekist herfilega. Fólkið í landinu mun snúast til vamar, þegar það sér í gegnum blekkingavefínn og hefia sókn fyrir uppbyggingu fíjáls þjóðfélags þar sem drengskapur og heiðarleiki f samskiptum manna er í heiðri hald- inn. íslendingar vilja ekki hrokafulla valdamenn, sem svíkja sig inn á fólk með loforðum og fagurgala. þetta ætti hin drambsama þrenning í ríkisstjóm Steingrims Hermanns- sonar að hafa í huga. Höfundur er einn afþingmönnum Sjálfstædisðokksins í Reykjavík. fjárlaga- og viðskiptahalla að striða og má þar nefna til dæmis Dan: mörku, Noreg og Nýja-Sjáland. í þessum rflq'um er beitt aðhalds- samri peningastjóm til að hemja innlenda eftirspum sem hefur í för með sér háa vexti. Þá verður einnig að taka tillit til þess að ekki era liðin nema tæplega tvö ár frá því vaxtaákvarðanir voru gefnar fíjáls- ar hér á landi þannig að óvissuþátt- urinn í vöxtum kann þess vegna að hafa verið stærri hér en í ríkjum þar sem fijáls fjármagnsmarkaður hefur fengið að þróast lengi. Á móti þessu sjónarmiði gengur að hér á landi er um öragga raun- vexti að ræða, það er ákveðna vexti ofan á verðtryggingu en í öðram löndum er óvissa um áhrif verð- bólgu á raungildi skuldabréfa sem bera nafnvexti. Vextir og skattlagning Qármagnstekna Ríkisstjómin hefur það á stefnu- skrá sinni að taltfi upp skattlagn- ingu. fjármagnstekna. Það gefur auga leið að ný skattiagning vaxta- tekna torveldar lækkun vaxta. Eins og nú er ástatt f íslenskum efna- hagsmálum er það algjört forgangs- verkefni að lækka vexti og draga þannig úr fjármagnskostnaði og færa hann nær því sem gerist í öðrum löndum. Þetta sjónarmið hefur að sjálfsögðu áhrif á það hvemig og hvenær ríkisstjómin hrindir í framkvæmd áformum um skattlagningu fiármagnstekna. Slík skattlagning verður ekki tekin upp nema að undangenginni vandlegri athugun og undirbúningi og kemur alls ekki til framkvæmda fyrr en einhvem tíma á næsta ári. Þá er mikilvægt að benda á að það er Sjá næstu síðu Raunvextir af ríkisskuldabréfum á íslandi og í nokkrum löndum á árunum 1986—1988. 1986 1987 1988 % % % ísiand 6,5-9,0 6,5-8,5 7,0-8,5 Bandaríkin 5,5-6,3 3,6-4,3 3,6-4,0 V—Þýskaland 6,6-7,0 4,5-5,3 3,2-4,1 Frakkland 4,2-4,9 5,3-6,4 4,5-5,9 Bretland 6,0-6,1 5,4-5,5 2,8-3,2 Japan 4,2-5,6 1,5-3,3 2,0-3,7 Kanada 4,7-5,2 4,8-5,5 4,7-5,4 Ítalía 5,3 5,2 6,2 Belgía 7,0 6,5 4,8 Ástralía 4,0 6,5 4,9 Nýja-Sjáland -1,0 5,6 8,4 Danmörk 5,2 6,6 6,3 Noregur 3,3-3,8 5,5-5,9 4,4-4,7 Svíþjóð 6,0-6,4 4,1-6,0 3,1-4,9 Finnland 5,0 4,0 0,4 Heimild: Seðalbankinn. Athugasemdir: Tölur um raunvexti af íslenskum ríkisskuldabréfum eru hæstu og lægstu raunvextir á hveiju ári. Raunvextir af ríkisskuldabréfum erlendis eru reiknaðir miðað við sex mánaða miðsetta verðbólgu. Tölur fyrir árið 1988 ná yfir fjóra til sex fyrstu mánuði ársins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.