Morgunblaðið - 08.10.1988, Qupperneq 31
} T.1T;a Mí •' IA f W V;v f fi fc *s *{ MMf
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988
31
„Mitt líf — Ég vel“:
Efling heilbrigðs líf-
ernis meðal æskufólks
Um þessar mundir er að hefl-
ast sérstakt átak til að efla heil-
brigt líferni og veliíðan meðal
íslenskra unglinga. Herferðin er
á vegum ne&idar um heilbrigða
Vetrarstarf
hjá Vörn
Vetrarstarf sjálfetæðiskvenna-
félagsins Varnar á Akureyri er
að hefjast þessa dagana. Eins og
í fyrra heldur Vðm áfram upp-
teknum hætti með svokðiluðum
hádegisverðarfundum, sem mæld-
ust mjög vel fyrir þá, að sögn
Bjargar Þórðardóttur formanns
Vamar.
Hádegisverðarfundimir verða
haldnir mánaðarlega, ávallt fyrsta
laugardag hvers mánaðar á Hótel
KEA, og hefjast þeir kl. 12.00. Gest-
ur mætir á hvem fund fyrir sig og
verður tekið á þeim málum, sem
helst em í brennidepli hveiju sinni.
Á fyrsta hádegisverðarfundinum,
sem haldinn verður í dag, mætir
Tómas Ingi Olrich og þar er ætlunin
að ræða stöðu sjálfetæðisflokksins.
lifehætti æskufólks, sem skipuð
var af heilbrigðisráöherra fyrr
á þessu ári. Guðmundur Bjarna-
son heilbrigðisráðherra dreifði
veggspjðldum, barmmerkjum og
límmiðum tíl nemenda Glerár-
skóla i gærmorgun af því tílefhi.
Fyrstu skref átaksins em tekin
undir slagorðinu „Mitt líf - Ég
vel“. Veggspjaldi, barmmerki og
límmiða er dreift til allra skólanem-
enda á aldrinum 11 til 16 ára, alls
um 21.000 manns. Sérstök áhersla
er lögð á að unglingamir taki sjálf-
ir ábyrgð á sínu lífi, en það mótast
af ýmsum ákvörðunum sem teknar
em mörgum sinnum á dag, alla
daga ársins. Vakin er athygli á
sjálfstæðum ákvörðunum um ýmsar
lífsvenjur svo sem mataræði, hreyf-
ingu, kynlíf, vímuefni, vináttu og
ótal fleiri atriðum sem unglingar
velja sjálfir og ráða miklu um líðan
þeirra í nútíð og framtíð.
í neftid um heilbrigða lífshætti
æskufóiks sitja fulltrúar frá heil-
brigðisráðuneyti, íþróttasambandi
íslands, Landlæknisembættinu,
Ungmennafélagi íslands og Æsku-
lýðsráði ríkisins.
Morgnnblaðið/Rúnar Þór
Guðmundur Bjamason heilbrigðisráðherra dreifir véggspjðldum tíl
nemenda Glerárskóla í gærmorgun, en áður hafði hann heimsótt
skóla á höfuðborgarsvæðinu.
Uppskeruhátíð
knattspyrnu-
manna:
Ahöfii Akureyr-
arinnar gefiir
verðlaunagripi
ÁRLEG uppskeruhátíð Knatt-
spymuráðs Akureyrar fer franf
í Dynheimum á morgun, laugar-
dag, klukkan 14.00. Þá verður
kjörinn Knattspyraumaður Ak-
ureyrar 1988, tílkynnt um
Markakóng Akureyrar 1988 og
Sporthúsbikarinn veittur þv! liði,
sem unnið hefur fleiri leiki á
nýliðnu keppnistímabili og stend-
ur þá valið eingöngu á milli KA
eða Þórs.
Áhöfnin á Akureyrinni EA styður
verðlaunaafhendinguna með þvf að
greiða fyrir alla verðlaunagripi, en
alls verða veittir ellefu bikarar og
260 verðlaunapeningar, sem fara
til allra flokka karla og kvenna í
knattspyrnu. Eins og kunnugt er
hefur áhöfnin á Akureyrinni EA
aflað vel á árinu og nemur aflaverð-
mæti frystitogarans 312 milljónum
króna á þeim mánuðum sem liðnir
eru af árinu. Þess má geta að á
öllu síðasta ári fiskaði Akureyrin
EA fyrir 306 milljónir kr.
r
Ráðstefiia norðlenskra hjúkrunarfræðinga:
Ahersla verði lögð á
ankið forvarnarstarf
- segir Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Norðlenskir hjúkrunarfræðingar skoða sýningu í tengslum við þingið.
Guðmundur Bjamason heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra gerir sér vonir um að geta
iagt nýja heilbrigðisáætlun fyrir
Alþingi nú á haustdögum og má
í henni búast við að aukin áhersla
verði lögð á forvaraarstarf. „Nýj-
ar áherslur, sem ég vil leggja á
þetta forvarnarstarf, er að tá ein-
staklinginn til að viðurkenna eigin
ábyrgð á heilsu sinni, að velja og
hafha, hegða sér rétt og ef þörf
krefur breyta um lífestíl. Við allt
þetta er mikilvægt að hjúkruna-
rfræðin sem starfe- og fræðigrein
hjálpi tíl,“ sagði ráðherra m.a. á
ráðstefnu Norðurlandsdeildar
eystri innan Hjjúkrunarfélags ís-
lands sem hófet á Akureyri í gær.
Deildin er nú 25 ára og af því til-
efni var efnt til ráðstefnu, sem ber
yfirskriftina „Hjúkrun sem fræði-
grein og starfsgrein". Um 70 hjúk-
runarfræðingar sitja ráðstefnuna.
Hún hófst eftir hádegið í gær með
setningu Þóru G. Sigurðardóttur
formanns deildarinnar og síðan flutti
Guðmundur Bjarnason heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra ræðu.
Fjölmörg erindi voru flutt eftir ræðu
hans.
Guðmundur sagði að við flestallar
stofnanir, sem féllu undir heilbrigðis-
geirann, störfuðu hjúkrunarfræðing-
ar ýmist sem stjómendur við sérhæf
störf eða hjúkrun. „Með aukinni
menntun og aukinni þörf í þjóðfélag-
inu hafa hjúkrunarfræðingar fært
út starfesvið sitt. Þeir sinna meira
og meira heilsugæslu og fræðslu-
starfsemi ýmiskonar. Þá hafa stjóm-
unarstörf verið mjög vaxandi og
fleiri og fleiri hjúkrunarfræðingar
eru starfandi á því sviði. Nýjar grein-
ar innan læknisfræðinnar krefjast
einnig meiri þekkingar þeirra hjúk-
runarfræðinga er vinna á sérdeildum
og hjúkmn aldraðra krefet æ meiri
tíma hjúkrunarfræðinganna. Allt
hefur þetta breytt mjög áherslum og
störfum þeim er hjúkrunarfræðingar
sinna í dag samanborið við starfið
áður fyrr. Nú eru liðin um 15 ár frá
því að námsbraut í hjúkrunarfræði
var stofnuð við Háskóla íslands. Þá
var skortur mikill á kennurum til að
kenna hjúkranarfræði og einnig
mjög erfitt að fá hjúkranarfræðinga
til að taka að sér stjómunarstöður.
Árangurinn af aukinni menntun
hjúkranarfræðinga er augljós hvað
þessum þætti varðar. Þvf miður er
enn skortur á hjúkranarfræðingum
til starfa við almenna hjúkran og
veldur það okkur allmiklum áhyggj-
um.“ Samkvæmt skýrslu sam-
vinnunefndar sjúkrahúsa er talið að
fjölga þurfí hjúkranarfræðingum um
að minnsta kosti eitt hundrað á ári
á nokkram næstu áram. „Efnis-
hyggja hverskonar hefur verið mjög
ríkjandi f þjóðfélaginu á undanförn-
um áram,“ sagði ráðherra. „Ungt
fólk hefur laðast áð störfum á sviði
viðskipta og fjármála meira heldur
en á þeim sviðum sem varða hjúkran
og umönnun. Þó virðist mér nú að
einhver hugarfarsbreyting kunni að
vera f vændum. Þá hefur verið reynt
að gera átak varðandi nám í hjúkrun-
arfræði og virðist það hafa borið
nokkum ávöxt ef dæma má innritun
í hjúkrunarfræði í HÍ nú í haust, en
þar era nú innritaðir um 100 nem-
endur. Samstarfehópur um hjúk-
runarmál, sem er hópur hjúkruna-
rfræðinga í stjómunarstöðum, hefur
lagt mikið af mörkum á þessu ári
til að efla áhuga á hjúkranamámi
og hjúkranarstörfum. Hann hefur
gefið út bækling með upplýsingum
um nám og störf hjúkrunarfræðinga,
hann er að láta gera myndband um
sama efni og um miðjan október mun
verða haldin ráðstefna á hans vegum
til kynningar á námi f hjúkranar-
fræðum. Þessa starfsemi alla hefur
ráðuneytið styrkt verulega með fjár-
stuðningi."
í máli Guðmundar kom fram að
sú hugmynd hefði verið reifuð hvort
koma eigi upp nýrri hjúkranarstétt,
miili hjúkranarfræðinga og sjúkra-
liða til dæmis eða til hliðar við þess-
ar tvær greinar. Sú hugmynd hefði
þó ekki fallið f góðan jarðveg hjá
þeim stéttum, sem fyrir era. Guð-
mundur sagði að rætt hefði verið um
að auka nám sjúkraliða, þá einkum
framhaldsnám, til að fá þeim í hend-
ur meiri störf og meiri ábyrgð. Nauð-
synlegt væri að efla Sjúkraliðaskóla
íslands og gera honum kleift að
standa fyrir fleiri framhaldsnám-
skeiðum. Til þess þyrfti hann meira
fjármagn. „Sjúkraliðar hafa rætt
þessi mál við mig og eru þau nú til
athugunar. Niðurstöðu verðum við
að ná þannig að báðar starfsstéttirn-
ar megi við una og að þjónusta við
þá sjúku verði meiri og betri."
Ráðherra vék lítillega að stöðu
heilbrigðismála í Norðurlandi eystra
og sagði hann uppbyggingu í heil-
brigðismálum hafa verið mikla í kjör-
dæminu sem og annars staðar úti á
landi allt síðan lög um heilbrigðismál
tóku gildi 1. janúar 1974. Byggðar
hafa verið nýjar heilsugæslustöðvar
í Ólafefírði og á Dalvík, nýtt hús-
næði tekið í notkun í Mývatnssveit,
húsnæði aukið og endurbætt á Akur-
eyri, húsnæði endurbætt á Kópa-
skeri, Raufarhöfn og Grenivík, brátt
verður lokið við smíði nýrrar heilsu-
gæslustöðvar á Þórshöfn og bygging
á nýju húsnæði fyrir heilsugæslustöð
á Húsavík er hafin. Nýleg aðstaða
er fyrir heilsugæslu í skólum á Laugw-
um í Reykjadal og Stóru-Tjömum í
Ljósavatnsskarði. Uppbygging
sjúkraþjónustu í héraðinu heftir lfka
verið mikil og er þá helst að nefna
Fjórðungssjúkrahús Akureyrar. Ný
geðdeild hefur tekið til starfa auk
bæklunarlækningadeildar. Húsnæði
skurðdeildar er eitt fullkomnasta á
landinu og nú þegar nýtt húsnæði
röntgendeildar verður tekið í notkun
innan tfðar verður sú deild líklegast
með bestu starfsaðstöðu á landinu,
að sögn Guðmundar. Þegar nýtt
húsnæði heilsugæslustöðvar á
Húsavík verður tekið í notkun og
starfsemi hennar flyst úr sjúkrahús-
inu, mun sjúkrahúsið fá það húsnæði
til notkunar. í Kristnesi, sem heyrir
undir Ríkisspítalana, era miklaT^
framkvæmdir í gangi. Þörf á fleiri
sjúkrarúmum fyrir aldraða vex með
ári hveiju hér sem og annars staðar
og hafa dvalarheimilin breyst úr að
vera eingöngu dvalar- og vistheimili
í að vera hjúkrunarheimili. „Við ætl-
umst til að hjúkrunarfræðingar séu
vel menntaðir til að takast á við öll
hin þýðingarmiklu verkefni. Ég vona
að við getum orðið sammála um
nauðsyn þess að leggja áherslu á
hjúkran sem bæði fræðigrein og
starfsgrein," sagði ráðherra.
GÍSLI J. JOHNSEN SF
n i
Kynnum rankxerox
Ijósritunarvélar og margskonar skrifstofubúnað
dagana 11.-13. október 1988 á Hótel KEA, Akureyri.
Opnunartímar: 11. október kl. 14.00-22.00
12. októberkl. 14.00-22.00
13. október kl. 10.00-18.00
Sýningin er opin öllum.
Bókabúðin Edda
I Hafnarstræti 100 Akureyri • Sími 243341