Morgunblaðið - 08.10.1988, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988
41
Minning:
Hálfdán ÁgústJóhann-
esson, verksmiðjusljórí
Fæddur 4. maí 1921
Dáinn 3. október 1988
Hinn 3. október sl. andaðist á
heimili sínu í Mosfellsbæ Hálfdán
Jóhannesson, verksmiðjustjóri, eftir
mikla baráttu við erfíðan sjúkdóm.
Hálfdán var sonur hjónanna Inge-
borg og Ágúst Jóhannessonar verk-
smiðjustjóra kexverksmiðjunnar
Fróns hf.. Hálfdán ólst upp í Dan-
mörku og að nokkru leyti hér á
landi, en stundaði skólagöngu og
verknám í Danmörku. Eftir að hafa
lokið námi og prófum í jámsmíði
og pípulögnum, stundaði hann
vinnu við þessar iðngreinar um
nokkum tíma, en hingað til lands
fluttist hann aikominn að heims-
stytjöldinni lokinni. Skömmu eftir
heimkomuna setti hann á stofn
verkstæði í félagi við annan fag-
mann, er annaðist sandblástur og
málmhúðun, en slíkt var fátítt að
sérhæfa sig á þessu sviði á þeim
tímum. Starfsemi þessi blessaðist
ekki betur en svo þeir slitu félaginu
eftir stuttan tíma.
Eftir þetta tímabil hóf Hálfdán
störf hjá kexverksmiðjunni Frón
hf., en á þeim vinnustað starfaði
hann svo í hartnær íjörutíu ár, eða
þar til yfír lauk.
Faðir hans, Ágúst Jóhannesson,
var eins og fyrr segir verksmiðju-
stjóri í kexverksmiðjunni Frón hf.
og hjá honum hóf hann störf á ár-
inu 1949. Við verksmiðjustjóm tók
hann svo þegar aldur færðist yfír
föður hans. Þessi störf fórast hon-
um einkar vel úr hendi, enda lagði
hann sig mjög fram við að kjmna
sér allt sem að rekstri slíkrar verk-
smiðju laut. Eitt var það í fari
Hálfdáns sem ég skildi aldrei, en
jafnframt dáðist mjög að, en það
var hvemig hann fylgdist með ásig-
komulagi véla verksmiðjunnar. Það
var hrein undantekning að nokkuð
bilaði, því það virtist sem hann
skynjaði hvar veikur hlekkur var
eða að bilun .var í nánd og þá var
nóttin notuð til þess að lagfæra það
sem var að bila, og næsta dag var
allt klappað og klárt og starfsemin
gat haldið áfram viðstöðulaust.
Maður getur séð í hendi sér það
tjón sem verður þegar slík fram-
leiðsla stansar með tugi manna í
vinnu og framleiðslu uppá hundruð
tonna af kexi á ári.
Hálfdán Jóhannesson var kvænt-
ur Salome Þorsteinsdóttur og
bjuggu þau síðustu árin að Stóra-
teig 11, Mosfellsbæ. Þau eignuðust
tvo syni, Ágúst og Kristján. Báðir
eru þeir tæknifræðingar að mennt
og vinnu, Ágúst hjá glerverksmiðj-
unni Esju hf. í Mosfellsbæ en Krist-
ján starfar við verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen í Reykjavík.
Kona Ágústs er Benta Jensen
og eiga þau tvo drengi. Kona Krist-
jáns er Margrét Jónsdóttir og eiga
þau einn sön
Bamabömin era því þijú en á
þeim hafði Hálfdán miklar mætur.
Nú þegar að kveðjustund kemur,
koma margar minningar fram í
hugann og þakklæti fyrir margan
greiðann, sem hann gerði mér. Ég
er ekki viss um að öllum fínnist það
sjálfsagður hlutur að bjóðast til að
lána vinnufélaga sínum, sem ekki
átti bíl, einkabfl sinn til afnota í
sumarfríinu, en það þótti Hálfdáni
sjálfsagður hlutur. Á þeim tíma bjó
Hálfdán þó í Kópavogi, svo nokkuð
langt var fyrir hann að sælqa á
vinnustað.
Ég vil svo að síðustu bera fram
þakklæti frá mér og samstarfsfólki
mínu fyrir áratuga gott samstarf
og vináttu.
Salóme, Ágústi, Kristjáni og
þeirra fjölskyldum færam við Guð-
rún okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Guðm. Ágústsson
Hálfdán Ágúst Jóhannesson er
látinn eftir langvarandi veikindi.
Hann skipaði ákveðinn sess í hugum
okkar systkinanna og því langaði
okkur til að minnast hans með
nokkram orðum.
Kynni okkar og hans tókust fljót-
lega eftir að hann kvæntist móður-
systur okkar Salóme Þorsteinsdótt-
ur. Þau höfðu kynnst í fyrstu ferð
sem farin var frá Danmörku til ís-
lands, að lokinni seinni heimsstyij-
öldinni. Salóme eða Sallý eins og
hún er alltaf kölluð hafði lokið
hjúkranarnámi í Danmörku en
Hálfdán á leið til íslands eftir langa
vera í Danmörku en faðir hans var
búsettur hér á landi. Þessi ferð
varð til þess að með þeim tókust
kynni sem engan skugga bar á eft-
ir það. Skömmu eftir giftingu þeirra
tóku þau að sér að gæta okkar
þegar foreldrar okkar þurftu að
bregða sér til útlanda, en á þeim
tíma voru utanlandsferðir ekki eins
tíðar og tóku lengri tíma. Þó að við
væram ung böm, og líkast til þess
vegna, tengdumst við þessu yndis-
lega fólki böndum, sem hafa varað
alla tíð síðan. Samverastundimar
með Sallý og Hálfdáni urðu margar
og héldu að sjálfsögðu áfram, þó
fjölgaði á heimili þeirra, en þau
eignuðust fljótt tvo fjörmikla
stráka, sem nú era fullorðnir menn
með fjölskyldur.
Hálfdáni Ágústi var einkar lagið
að umgangast böm. Hann bjó yfir
þeim sjaldgæfa eiginleika að láta
sem við bömin væram stór, og átti
Kransar, krossar
og kistuskreytingar. (v
Sendum um allt land.
GLÆSIBLOMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álfhcimum 74. sími 84200
Minning:
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ÓSKAR STEINDÓRSSON,
Flókagötu S,
lést í Landspítalanum að kvöldi 6. október.
Elfn Áaa Guðmundsóttlr,
Andrea Slgurðardóttlr, Erllngur Thoroddson,
Guðmundur Slgurðsson, Susanne Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
GÍSLI KRISTINN SKÚLASON,
Kársnesbraut 37 A,
Kópavogl,
verður jarðsunginn fró Bústaðakirkju mánudaginn 10. október kl.
15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent ó líknarstofnanir.
Skúli Krlstlnn Gfslason, Kristfn Gunnarsdóttlr,
Guðrún Helga Skúladóttlr,
Gfsll Krlstlnn Skúlason, Slgrún Elfn Vilhjálmsdóttlr,
Skúli Bergmann Skúlason.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og samúð
viö andlét og útför móður okkar og tengdamóður,
GUÐRÚNAR GEIRSDÓTTUR.
Sórstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða
umönnun.
Guðrún G. Johnson,
Walter Gunnlaugsson,
Ólafur Ó. Johnson,
Anna Lfsa Ásgeirsdóttlr.
Asta Magnúsdóttir
alltaf nægan tíma til að gefa okk-
ar, þrátt fyrir að hann hefði margt
fyrir stafni. Minnisstæðar era veiði-
ferðirnar við Suðurá þar sem silung-
ur vakti í sefínu og okkur var kennt
að fara hljóðlega, og síðan að fara
með silungastöng. Hálfdán var mik-
ill náttúraunnandi og hafði unun
af ferðalögum á öræfum. Margar
ferðir vora farnar með foreldram
okkar, stundum erfíðar, en alltaf
var hann fremstur í flokki, hvort
sem var að vaða erfiðar ár, eða
ganga á fjöll. Hann kenndi okkur
að umgangast náttúrana með varúð
og spilla ekki því sem viðkvæmt var.
Hálfdán og Sallý byggðu sér hús
á Hávegi 15 í Kópavogi. Þangað
var gaman að koma og þar bar
allt vitni um vandvirkni og natni
húsbændanna. Um langt árabil var
komið saman á Háveginum á gaml-
árskvöld, skotið upp flugeldum og
leikið sér, svo sem siður er á því
kvöldi. Það var gott að vera með
þá, og þær samverastundir líða
seint úr minni.
Hálfdán og Sallý reistu sér sum-
arhús á indælum stað við Jónskvísl
í Landbroti. Þar dvöldu þau löngum
sein'ni árin en vora jafnframtdugleg
að ferðast, hvort sem var innan-
lands eða utan.
Fyrir þremur áram fékk Hálfdán
þann sjúkdóm, sem að lokum hafði
yfírhöndina, þrátt fyrir hetjulega
baráttu hans. Með honum er geng-
inn mætur maður og harmur kveð-
inn að ættingjum hans.
Elsku Sallý, Ágúst og Kristján,
við sendum ykkur og fjölskyldum
ykkar innilegustu samúðarkveðju.
Hálfdán, Hjördís og Þorsteinn
Fædd 14. ágúst 1922
Dáin 27. september 1988
Ó Guð, mér anda gefðu þinn,
er græðir kærleik, von og trú,
og veit hann helgi vilja minn,
svo vilji ég það, sem elska þú.
(Páll Jónsson)
Gústa, en svo var hún kölluð af
vinum og ættingjum, er farin yfir
móðuna miklu. Kallið er komið.
Samferðafólk berst burt með
tímans straumi, þannig er lífíð.
Lögmál okkar er að fæðast og
deyja.
Éi má sköpum renna. Ekki voram
við viðhúin hennar snöggu vista-
skiptum, mun það hafa villt okkur
sýn hvað hún var hörð af sér og
þrautseig. Gústa réði sig hjá PWD-
deild vamarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli 5. apríl 1978 og vann þar
upp frá því. Þegar við lítum til baka
streyma minningamar upp í hugi
okkar. Gústa hlaut marga góða
eðliskosti. Hún hafði létta lund, var
félagslynd, hafði gaman af tónlist
og söng mjög vel. Margar góðar
stundir áttum við með Gústu og var
hún oft hrókur alls fagnaðar enda
orðheppin.
Þótt Gústa sé horfin sjónum ást-
vina sinna lifa minningamar í hjört-
um þeirra sem lýsa þeim um
ókomna tíð. Núna, þegar Gústa
hefur lokið hér vistardögum sínum,
kveðjum við hana með trega og
þökkum henni samfylgdina.
Við vottum manni hennar, böm-
um, tengdabörnum, bamabömum,
ættingjum og vinum okkar inni-
legustu samúð.
Fari hún í fríði, drottinn hana
blessi.
Vinnufélagar
t
Útför eiginmanns míns,
JÓNASAR BÖÐVARSSONAR,
Hátelgsvegl 32,
fer fram fró Fossvogskirkju mónudaginn 10. október kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningasjóð Landspítalans.
Hulda Haraldsdóttlr.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og vinar-
hug við andlát og útför
JÓHÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hraunbœ 84.
Sérstakar þakkir til starfsfólks ó öldrunardeild Landspftalans,
Hótúni 10B, fyrir góða umönnun.
Kjartan Pðtursson,
Edda Kjartansdóttlr, Stefanía KJartansdóttlr,
Blrgir Ágústsson
og barnaböm.
t
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför móður okkar og systur,
SVÖVU HALLDÓRSDÓTTUR
frá Hvanneyri,
tll helmllls f Austurbrún 2,
Reykjavik.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans sem annaðist hana.
Halldór Gunnarsson,
Bjarnl Gunnarsson,
Valgerður Halldórsdóttir,
Þórhallur Halldórsson.
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÞÓRDfSAR GISSU RARDÓTTU R,
Bólstaðarhlfð 68.
Ingunn Stefánsdóttlr, Slgurjón Jónsson,
Sigmundur Stefánsson, Hafdfs Slgurgelrsdóttir,
Margrát Stefánsdóttlr, Gelr Ágústsson,
Hannes Stefánsson, Helga Jðhannesdóttlr
og barnabörn.
t
Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim sem auðsýndu okkur
hluttekningu, vinarhug og samúð við andlót og útför fööur, fóstur-
föður, afa og bróður okkar,
JÓNS ÓSKARS EGGERTSSONAR,
Nestúnl 4,
Hvammstanga.
Fyrir hönd systkina og annarra aðstandenda,
Kristfn Marfa Jónsdóttlr og fjölskylda,
Sólvolg Sigurbjörnsdóttlr og fjölskylda
og Anna Eggertsdóttlr.