Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 4

Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 þann veg að enginn þarf að kvíða því að vinna á stað sem þessum. Til Hornafjarðar Það er komið fram yfir nón, þeg- ar síðari _ áfangastað mínum, ver- búðinni Ásgarði, er náð. Ég kem með þær upplýsingar í farteskinu að Ásgarður sé eins og hótel og það er ekki orðum aukið. Skarkið í íbúunum er helst til mikið af hót- eli að vera eri aðbúftaðurinn er fyrsta flokks. í hverju herbergi er sturta, setustofumar eru vistlegar og á neðri hæð hússins er gufubað. Það búa 82 íbúar á Ásgarði en nokkmm vikum fyrr vom þeir um 100. Þeir em af ellefu þjóðemum svo yfirbragð verbúðarinnar er al- þjóðlegt og minnir helst á farfugla- heimili. Stúlkur era meirihluti íbú- anna og koma margar frá Svíþjóð. Einnig era danskar, írskar, pólskar, kanadískar, ástralskar og nýsjál- enskar stúlkur svo einhveijar séu nefndar. Þá er töluvert af íslenskum sjómönnum. Karlmenn af öðram þjóðemum verða að búa í „Grænu höllinni", húsi sem stendur skammt frá. Enginn kann skýringu á þeirri reglu en hún hefur ergt margan manninn. Gestum er ekki leyft að vera lengur en til 23.30, þá era allir reknir út. Reglunum er fram- fylgt af Snorra húsverði sem einn íbúanna hafði á orði að gegndi einu vandasamasta starfí í öllum bæn- um. Fólkið vinnur í sfld, saltfisk og fískvinnslunni en það hefur verið lítil vinna þennan fóstudag. Þegar mig ber að garði er allt rólegt, sum- ir hafa fengið sér hænublund, aðrir þvo þvott og svo eru þrjár stúlkur sem halda upp á tvítugsafmæli einnar. Þær taka því furðuvel að bláókunnug manneskja setjist upp hjá þeim og bjóða líkjör. Það er hún Anna Henriksson frá Svíþjóð sem á afmæli en landa hennar Ina Eric- son og Linda Hansen, sem er hálfís- lensk, samfagna henni. Anna hefur verið hér á landi frá því I mars. Hún vann í Grindavík áður en hún kom til Hafnar og hugsar sér hreint ekki til hreyfings. Hún ætlar sér að eyða jólunum hérlendis eins og hún hefur áður gert. ViII síst af öllu vera í heimalandi sínu. Hún segir ástæðu þess að svo margir Svíar vinni í fiski hérlendis sé blaða- grein sem birtist í sænsku blaði í vor. Þar var talað við nokkra unga Svfá, m.a. hana, þar sem þau sögðu að hægt væri að vinna sér inn góð- an pening í fiskvinnu. Það sé ekki hægt Iengur en nú sé allt fullt af Svíum. „Ég kom ekki hingað til að hitta Svía,“ segir Ina og það er ekki laust við að henni þyki miður hvflíkur fyöldi sé hérlendis. Þær tala saman á ensku frekar en sænsku ef ein- hver er með þeim, jafnvel þó sá skilji sænskuna ágætlega. Ina hefur verið hér í íjóra mánuði og hefur frestað heimförinni og lokaprófi í jarðfræði fram yfír áramót. „Það er svo gaman héma, fólkið, náttúr- an, bara allt,“ segir hún en upphaf- lega er það jarðfræðin sem hefur dregið hana hingað. Ina er 26 ára og lítur út fyrir að vera mun yngri. En Linda, sem er líklega fullorðins- legust þeirra, er yngst allra í ver- búðinni, 18 ára. Hún er dönsk í Martina í herberginu, sem hún deilir með vinkonu sinni í Norðursíld. Hún er á förum, segist vera búin að fá nóg af fískvinnu. Verbúðin Ásgarður á Höfii I Homafirði er eins og fínasta hótel. föðurættina og hefur verið búsett í Danmörku en á skyldfólk hérlend- is. Hún hefur verið á landinu í fímm vikur og er á leið til ömmu sinnar í Grindavík. Segir að sig hafí lang- að til að prófa eitthvað nýtt og af- hverju ekki að fara til móðurfólks síns? í leit að partii Það er að skilja á stelpurium að mikið sé drukkið í verbúðinni. Virka daga séu alltaf einhveijir sem „sulli" í léttvlni en um helgar sé það sterka vínið sem gildi. Ef gleymist að panta áfengi, sé alltaf einhver sem geti útvegað mönnum sopa. Þær segja enga vandræða- menn búa í verbúðinni en slæðist slíkir menn inn, séu þeir reknir út með harðri hendi. í flestum her- bergjum era áfengisflöskur f glugg- unum og gegna hlutverki kerta- stjaka. Þegar komið er fram yfir kvöld- Anna og Sibba taka til á íslendingaganginum. mat, era íbúarnir farnir að hress- ast. Hróp og köll að ógleymdu rokk- inu, heyrast langt að í kvöldkyrrð- inni. Inni era margir á rápi milli herbergja en aðrir era að punta sig fyrir kvöldið. Ungur maður í jakka- fötum og með Davy Crockett-húfu á kollinum, ráfar um í leit að partíi. í stigunum hafa nokkrir hópað sig saman og sumir era orðnir nokkuð drakknir. Það er ball á hótelinu og þangað ætla flestir. Menn þurfa samt að „hita sig upp“ og vilja ólm- ir að gestimir drekki þeim til sam- lætis. Plötur með Sveiri Stormsker og Brace Springsteen era spilaðar svo hátt að ekki heyrist mannsins mál 'en menn láta slíkt ekki á sig fá. Um hálf-tólf leytið fara flestir yfír á hótel enda ekki seinna vænna þar sem Snorri húsvörður er að búa sig undir að koma gestum út og ró á þá sem eftir era. Á ballinu hallar einn og einn úr verbúðinni sér fram á borðið og fær sér blund. Sumir fá sér snúning en afgangurinn fær sér í glas og skim- ar um eftir einhveijum til að tala við og kannski stíga í vænginn við. Eftir ballið fara sumir í partí í heimahúsi en flestir halda heim f verbúð enda vinna daginn eftir. En annað kvöld... ■ '4^*UHSe Bragginn I NorðursQd á Seyðisfirði. T.h. er matsalur á neðri hæð og híbýli Svíanna áþeirri efii. T.v. eru skrifetof- ur á efri hæðinni og herbergi Islendinganna á neðri hæð. í forgrunni er rafvirkinn og íslandsvinurinn Tony Hunt. LÍTIÐ EITT UM VERBUÐIR Síldarvinnan er langt frá því að vera þrifaleg. Vinnugallar Svíanna að loknum vinnudegi. undanförnum árum hefur verbúðum fækkað mjög og yfirbragð þeirra breyst. Er það að mestu sök úflendinga sem leita í síauknum mæli í fiskvinnu hérlendis og minna verbúðirnar fremur á farfuglaheimili en iverustað vinnandi fólks. Utlendingarnir koma víðs vegar að, þó aðallega frá Norðurlöndunum og hafa að sögn Eyjólfs Marteinssonar, framkvæmdastjóra ísfisks í Vestmannaeyjum, reynst fyrirtaks verkafólk. Hann sagði það nærri liðna tíð að vinnusamt sveitafólk sækti í fiskvinnuna, nú væri meira um unglinga i ævintýraleif. Vissulega væri misjafn sauður í mörgu fé en langflestir reyndust vel. Verbúð er bústaður í versföð. Verstöðvar hafa verið til fró öndverðu og eru skilgreindar sem heimver og útver. Heimver voru sameiginleg lending þar sem margbýlt var en fró árinu 1367 er fil skilgreining ó orðinu útver. Þar segir að þeir menn leggist í útver, sem eigi fari heim að kveldi. Alls eru skróðar 326 verstöðvar um land allt frá upphafi, samkvæmt íslenskum sjáyarháttum eftir Lúðvík Kristjánsson. Aður fyrr voru verbúðimar veggir hlaðnir úr torfi og grjóti sem segldúk var tjaldað yfir eða þil negld yfir. Svo var allt fram undir 1950. Þorsteinn Gíslason fiskimólastjóri var í verbúð í Sandgerði á fimmta árafugnum, þar sem bjuggu þrettán manns á lofti sem var innan við 20 fermetrar. Tveir sváfu saman í koju utan skipstjórinn og ráðskonan. Einnig var eldað og matast í herberginu. „Á kvöldin var svo heitt að maður varð helst að fara úr öllu en ef frost var kom fyrir oð rúmfötin sem sneru að veggnum voru frosin. Ekkert salerni var í húsinu og ef lús kom upp var lítið til að hindra útbreiðslu." Að sögn Þorsteíns er ekki hægt að tala um neitt ákveðið blómaskeið verbúðanna þó að viss ævintýraljómi sé ennyfir þeim tímabilum þegar síldin veiddist. Upphaf síldveiða Islendinga var uppúr aldamótum. Þá voru síldarbraggarnir reistir til að hýsa allan þann fjölda af fólki sem vann í síldinni og var að meirihluta konur. Verbúðirnar voru margar og fjölmennar allt fram á skutttogaratimabilið, sem tók við af síldarævinfýrunum, en þá dreifðust togararnir ó fleiri útgerðarstaði. Þeir lönduðu víðar og færri leituðu vinnu utan heimahaganna. Um svipað leyti óx vélvæðing og færri þurfti til að vinna aflann. Þorsteinn segist ekki telja að verbúðalíf leggist niður þó að verbúðunum hafi fækkað. „Komi Norðanlandssíldin aftur reikna ég með að flytja þurfi fólk á staðina norðan og austanlands til að vinna hana. Og hvað síldarstemninguna varðar þá held ég að alls staðor þar sem þróttmikið ungt fólk komi saman, þar skapist viss spenna."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.