Morgunblaðið - 27.11.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
þeirra var Benedikt Þorvaldsson
Gröndal skrifari og skáld. Hann
kvæntist Sigurlaugu Guðmunds-
dóttur og af börnum þeirra hjóna
er líklega kunnastur Sigurður veit-
ingamaður, en af bömum hans má
t.d. nefna Benedikt Gröndal, fyrrum
formann Alþýðuflokksins, Halldór
Gröndal prest í Grensássókn og
Gylfa Gröndal rithöfund.
Briem
Þess finnast fleiri og öruggari
dæmi að ættamöfn eigi sér uppruna'
í staðarnafni, t.d. „Briem“. Gunn-
laugur Guðbrandsson sýslumaður.
(1773-1834) bar fyrstur manna
Briems-nafnið. Gunnlaugur var
ættaður frá Brjánslæk í Vestur-
Barðastrandarsýslu og er Briem
dregið af nafni staðarins. Sennilega
sjá nútímamenn ekki beinan skyíd-
leika milli Briem og Brjánslækjar.
En skýringin er að í eina tíð var
staðarnafnið ritað Briamslækur.
Stafurinn „i“ var iðulega notaður í
stað ,j“. Með hliðsjón af fyrrgreindu
verða tengslin nokkm ljósari.
Petersen
„Petersen" er algengt ættarnafn
í Danaveldi og um norðanvert
Þýskaland. Ekki rekja allir Peter-
senar á íslandi nafn sitt til sama
forföður. Flestir landsmenn tengja
þó nafnið við ljósmynda- og tölvu-
fyrirtækið Hans Petersen hf. Stofn-
andi þess fyrirtækis var Hans Pet-
ersen, sonur Adolfs Nicolais Pete'r-
sens bókhaldara. Hann var afkom-
andi Diðriks Christians Petersens
kaupmanns á Eyrarbakka. Diðrik
kom fyrst til Íslands um 1770 en
hann var ættaður frá Sönderborg
á eyjunni Als á Suður-Jótlandi.
Zoega
„Zoega“ hljómar mjög framand-
lega; ekki einu sinni danskt. Zoega
mun eiga ætt að rekja til Ítalíu.
Hannes Finnsson
biskup í
Skálholti
báðir hétu Þorsteinn Thorsteinsson
og hefur það ruglað marga.
Sagan segir að Þorsteinn Thor-
steinsson (1817-1864) eldri hafi um
tíma verið talinn af og því var yngri
bróðir hans skírður Þorsteinn. Þor-
steinn yngri var kaupmaður á
ísafirði, ekki er kunnugt um að
hann hafi eignast börn.
Þorsteinn Thorsteinsson (1817-
1864) eldri, verslunarstjóri og síðar
bóndi í Æðey, er líklega kunnastur
af sonum Þorsteins Þórðarsonar.
Hann kvæntist Hildi Guðmunds-
dóttir Scheving. Tveir synir þeirra,
Guðmundur og Davíð, urðu kunnir
sem Scheving-Thorsteinsson en sá
með Ólafi stiptamtmanni Stefáns-
syni (1731-1812). Ólafur sást þó
skrifa Stefánsson. Synir hans munu
hafa tekið Stephensens-nafnið al-
gjörlega upp.
Gröndal
Ættamafnið „Gröndal“ er vel
þekkt. í þeirri ætt má finna skáld,
veitingamenn, presta og tónlistar-
menn. Sá fyrsti sem gekk undir
þessu nafni var Benedikt Jónsson
Gröndal skáld (1760-1825). Faðir
hans, séra Jón Þórarinsson, var
prestur í Vogum í Mývatnssveit.
Sú saga hefur heyrst að Benedikt
hafi tekið upp Gröndals-nafnið á
handa námsm 'önnum, vinum
og œttingjum erlendis
íslensk Á/afossvœrðarvoð er góð hugmyndþegar velja ska/ fallega og vandaða
jólagjöf handa œttingjum ogvinum erlendis.
Nota/eg jólakveðja, sem kemur sér vel, hlý, mjúk og endist lengi.
SÖLUSTAÐIR:
Álafossbúðin, Vesturgötu 2.
Islenskur heimilisiðnaður, Hafnarstræti 3.
Rammagerðin hf., Hafnarstræti 19.
Ullarhúsið, Aðalstræti 4.
___________________________________
Hlýleg, íslensk jólagjöf
nágrenni Haag, en þessi bær er
ekki í héraðinu „Zeeland" sem er
nokkm sunnar.
í Sýslumannaæfum segir að Lár-
us Hansson Scheving hafí átt ving-
ott við Þóranni, dóttur Þorleifs
Kortssonar, og giftust þau 1692 eða
fyrr. Þau eignuðust 3 böm, þ.á.m.
Hannes sýslumann. Þórann dó árið
1696 en Láras kvæntist á nýjan
leik árið 1700. Lárus og seinni kona
hans, Sofía Daðadóttir, eignuðust 4
böm.
Mönnum varð fljótlega Schev-
ings-nafnið kært og era þess dæmi
að það hafi erfst frá móður til sona.
T.d. synir Þórannar Hannesdóttur
Scheving og Jóns Vigfússonar
fengu Schevings-nafnið.
Og Gísli Gíslason frá Bitra í Flóa
(1855-1913) kvæntist Valgerði
Lárasdóttur Scheving. í eftirmæl-
um er Gísla minnst sem Schevings.
Thorsteinsson og
Scheving-Thorsteinsson
A.m.k. þrír synir Þorsteins Þórð-
arsonar prests í Gufudal (1791-
1840) skrifuðu sig „Thorsteinsson".
Sölvi (1832- 1913) skipstjóri á
ísafirði og síðar hafnsögumaður
átti nokkur böm. En Þorsteinn
prestur átti einnig tvo syni sem
þriðji, Þorsteinn kaupmaður í
Reylqavík, skrifaði nafn sitt Th.
Thorsteinsson. Þorsteinn Thor-
steinsson eldri átti son utan hjóna-
bands, Pétur Jens Thorsteinsson
kaupmann og útgerðarmann á
Bíldudal.
Sem sagt, frá Þorsteini Thor-
steinsson eldra era bæði nöfnin
Thorsteinsson og Scheving-Thor-
steinsson.
Thorsteinson
Það er álitamál hvort eigi að
skrifa Bjama amtmann á Stapa
(1781-1876) Þorsteinsson eða
„Thorsteinson“. Hann sjálfur undir-
ritaði bréf Thorsteinson og hans
afkomendur geiigu undir nafninu
Thorsteinson (með einu ,,“S-i).
Stephensen
Mörgum hinna kunnari ættar-
nafna bregður fyrst fyrir á átjándu
öld og fyrri hluta þeirrar nítjándu.
Sum vora á latínu t.d. „01avius“
og „Thorkelin" o.s.frv. en önnur era
nokkuð dönsk í sniðum, t.a.m.
„Stephensen". Það nafn byijaði
námsáram sínum í Kaupmannahöfn
og greitt fyrir 50 skildinga.
Líklegt er að Gröndal sé dönsk
útlegging á „Grænidalur“. í bóka-
flokknum Merkir íslendingar, Nýr
flokkur, er greint frá tilgátum um
að Benedikt hafi valið nafnið eftir
grænum lautum eða lágum í Voga-
landi. En þess má einnig geta að
önnur saga er til um upprana nafns-
ins á Ömefnastofnun Þjóðminja-
safns í viðbótum Péturs Jónssonar
í Reynihlíð við örnefnaskrár
Reykjahlíðar frá árinu 1959. Þar
er greint frá ömefninu „Grænalág"
sem sé stór laut „milli Brekkna",
norður við Gijótháls. Er sú tilgáta
sett fram að e.t.v. hafi hinn elsti
Benedikt Gröndal verið þar fæddur
er móðir hans var á grasafjalli.
Greint er frá því að sagnir séu um
að þaðan sé- upprani Gröndals-
nafnsins.
Ekki er hægt að útiloka að þarna
sé upprani nafnsins kominn. En
Helga Tómasdóttir, móðir Bene-
dikts, hefur verið hörð af sér ef hún
hefur orðið léttari í grasaferð í
Grænulág. Staðurinn er fjarri
byggð og Benedikt var fæddur 13.
nóvember.
Benedikt Jónsson Gröndal átti
tvær dætur er upp komust. Ragn-
hildur giftist Stefáni Gunnlaugs-
syni, land- og bæjarfógeta, tveir
synir þeirra komust til þroska en
vora búsettir erlendis og létust þar.
Hin dóttirin, Helga, giftist Svein-
birni Egilssyni rektor. Þeirra sonur
var Benedikt Sveinbjarnarson
Gröndal skáld, 1826-1907. Honum
farast sjálfum svo orð í endurminn-
ingum sínum Dægradvöl: „Ég hef
ekki verið skírður „Gröndal" eins
og sjá má af bóluattestinu, en fólk
hefur alltaf kallað mig svo eftir afa
mínum, svo ég hef orðið að láta það
festast við mig.“
Nafnið erfðist sem sagt í gegnum
móðurlegginn. — Og þess era fleiri
dæmi að Gröndals-nafnið hafi erfst
með þessum hætti. Helga, dóttir
Benedikts, gekk að eiga Þórð Edil-
onson héraðslækni í Hafnarfirði;
þeirra sonur var Benedikt Þórðar-
son Gröndal verkfræðingur (1899-
1984). Ennfremur, Valborg Svein-
bjarnardóttir, systir Benedikts, gift-
ist Sr. Þorvaldi Stefánsyni; sonur
Er Gröndals-ætt
frá Grænulág?