Morgunblaðið - 27.11.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.11.1988, Blaðsíða 38
38 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 QLÆSIBÆ ÁLFHEOMJU74. SÍMI686220. \ I' KVÖLD: Gömlu dansarnir með hljómsveit JÓNS SIGURÐS- SONAR ásamt söngkonunni HJÖRDÍSIGEIRS. Opiö frá kl. 21-01. Snyrtilegur klæðnaður - Rúllugjald kr. 600,- - Staður hlnna dansglððu - Að bregða lit á grámann Jóhann Hjálmarsson Sigrún Ragnarsdóttir: 90° MYKT. Myndir: Sigurður Þórir, Ingiberg Magnússon. Blekbytt- an 1988. Ljóð Sigrúnar Ragnarsdóttur eru kvenleg og mjúk, einlæg og búin ríkum tilfinningum. I Hvunndagsflótta er ort um að „bregða lit á grámann" eftir að hafa laumast í höll „skreytta orðum/ óljósrar merkingar". Morgunsár leiðir aftur í ljós að veruleiki dagsins er samur við sig: Dimmblá gluggatjöld næturinnar frádregin gulum örmum morgunsins vorhlátrar bamanna hljóma hiýðum vopngráum drápsrauðum morgunfregnum. Sum ljóðanna flaila á nokkuð óvæginn hátt um sambúð karls og konu og einnig er ort napurlega um vináttu. Dauðinn er gestur, fetar skínandi hvítur í frostkaldan garð, „hljóðlaust ■ nemur/ son minn á brott“. Lesandinn finnur að sárs- auki ljóðanna er engin uppgerð. Þetta eru lifuð ljóð. Farið er sparlega með orð, setn- ingar hnitmiðaðar. Engu að síður er stundum djarfmannlega talað eins og ljóðin Lífshlaup og ...í hnot- skum eru til vitnis um. Ljóð Sigrúnar Ragnarsdóttur eru að mestu laus við ýmis byijendaein- kenni, en þau eru mistjöfn eins og gengur. Myndir og líkingar eru stundum gamalkunnar, samanber bls. 50 þar sem vetur réttir hendur mót vori og einnig er gripið til sands og stundaglass. Náttúrulýsingar eru stöku sinnum of venjulegar, eitthvað vantar í þær eins og til að mynda á bls. 53. Þannig mætti halda áfram að fínna að ljóðunum, en fleira er í þeim lofsvert en ámæl- isvert. Tveir myndlistarmenn, Sigurður Þórir og Ingiberg Magnússon, hafa skreytt bókina. Þeir eiga sinn þátt í að þetta er einkar geðfelld bók og vönduð að frágangi. G E G N BUBBI - HORÐUR - MEGAS essemm/siA 23.04 TONLEIKAR í HÁSKÓLABÍÓI MIÐVIKUDAGINN 30. NÓVEMBER KL. 22.00 Tónlistarmennirnir koma fram endurgjaldslaust Allur ágóði af tónleikunum rennur til Samtaka áhugafólks um alnæmi sem stofnuö veröa mánudagskvöldið 5. desember og nýttur til styrktar þeim Æá sem hafa smitast eöa sýkst af alnæmi. Miðaverð: 1000 kr Landsnefnd um alnæmisvarnir List orðs o g mynda Ólafur Skúlason Vart munu margar þjóðir boða nærveru jólanna með jafnmik- illi bókaútgáfu eins og sú íslenzka. Hafði útlendingur orð á því við mig fyrir skömmu, að sér þætti þetta bera vott um elsku Islendinga á bókum og virðingu fyrir sögulegri hefð. Kann svo vel að vera, enda þótt líka spili inn í, að lengi hefur það þótt vel við hæfi að setja bók í jólapakkann. Var það oft af nauðsyn á árum áður, þegar fátt fékkst til gjafa, en hefur haldizt áfram, þótt fullar verzlanir bjóði margvíslegan vaming. Ein er sú bók, sem mig langar til þess að benda á og nú er nýkomin út. Tel ég hana ekki aðeins vel fallna til gjafa á jólum, og þá frekar held- ur en margar aðrar, sem eiga að nýtast til slíks, heldur er hún einnig frábær heimild um kirkjur, bygging- ar þeirra og muni. Bókin heitir „Gengið í Guðshús" og er útgefin af Almenna bókafélaginu, en undir- búin af Iceland Review. Höfundur er dr. Gunnar Kristjánsson á Reyni- völlum og hefur hann unnið frábært starf. Sést kirkjulist gömul og ný í þeim kirkjum, sem hann hefur valið til kynningar og lýsingar, og texti hans er bæði fróðlegur, svo að stað- reyndir komast vel til skila, og einn- ig settur fram á listilegan hátt, svo að unun er að lesa. Er því hið bezta samræmi í milli texta og mynda, sem Páll Stefánsson hefur tekið, og eru frábær listaverk auk þess að vera hinar beztu heimildir. Veit ég, að þeir sem unna kirkjum og byggirigarsögu þeirra, munu finna í þessari bók margt það, sem ekki aðeins gleður við lestur, heldur verður stöðugt íhugunarefni og oft tekið fram til að glöggva sig betur á kirkjulist og sögu á Islandi og er því um að ræða dýrmæta heimild. Gunnar Kristjánsson En samhliða íslenzku útgáfunni, er komin sama bók á ensku og ber heitið Churches in Iceland. Er ástæða þessara orða minna ekki sízt sú, að mig langar til að benda þeim, sem senda gjafir til vina erlendis á það, að hér er bók, sem hæfir þeim tilgangi einstaklega vel. Bækur koma út í mörgum löndum um kirkju og kirkjulist, en hefur skort hér hjá okkur. Mun mörgum útlendingi þykja fengur að því að -geta látið bók frá íslandi koma upp að hlið þeirra bóka, sem prýða marga bóka- skápa og eru handhægar til upplýs- inga og fróðleiks. Enda þykir það eðlilegt, þegar fjallað er um sögu þjóðar, að kirkjunnar sé vel getið og þeirra húsa, sem reist hafa verið vegna tilbeiðslu og þjónustu. Eg vil þakka aðstandendum þess- arar bókar um íslenzkar kirkjur fyr- ir áhuga þeirra og skilning á merk- um þætti í sögu þjóðarinnar og óska höfundum til hamingju með sérstak- iega vel unnið verk. Höfundur er dómprófastur. Heiti potturinn Jazztónleikar Hvert sunnudagskvöld kl. 22.00. Aögangseyrir kr. 500. Sunnudagur27.nóv. Hljómsveit Vilhjálms Guðjónssonar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.