Morgunblaðið - 27.11.1988, Side 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
Reykjavík —
New York
Sigríður um tvítugt í
Suiidlaugunum í Reykjavík,
skömmu áður en hún tók þátt í
keppninni sem átti eftir að breyta
öllum hennar framtíðaráformum.
Á neðri myndinni er Sigríður með
fjölskyldu sinni og Robert Welts,
sem hún trúlofaðist í New York.
Hann er hér lengst til vinstri, þá
systurnar Anna, Birna og Sigríður
og foreldrarnir Birna Hjaltested og
Geir Stefánsson.
MARLON BRANDO:
Þurfti að hafa mikið
fyrir hlutverkinu.
FERDINAND MARCOS:
Laglegur og aðlaðandi
á þeim árum.
CHAMBERLAIN: ALAIN DELON:
Svolítið stirðbusalegur Dularfullur og fór
í fyrstu en lagaðist huldu höfði.
mikið.
BOB HOPE:
' Skemmtilegur og viðfelldinn og vildi
endilega kenna mér að steppa.
Ljósmyndarar þyrpast að
keppendum að lokinni
krýningunni.
Sirrý er í ljósa kjólnum til
hægri á myndinni.
SRRÝ
GSRS
rijjar upp minningarfrá
T t 77 7 /Ji
Sveinn Guðjónsson skróði
í AMERÍKU notaði hún nafiiið Sirry Steffen, í Svíþjóð hét
hún Sirry Stefansson, hér heima var hún kölluð Sirrý
Geirs og það nafii loðir við hana enn þótt sjálf vilji hún
helst losna við það. „Sirrýar-nafiiið passar ekki við
fimmtuga, gifta kennslukonu," segir hún og brosir þegar
ég spyr hvort ekki sé í lagi að kalla hana bara Sirrý. Fullu
nafiii heitir hún Guðrún Sigríður Geirsdóttir og 17. júní
1959 var hún kjörin fegurðardrottning Islands, þá 21 árs
gömul. í kjölfarið fylgdi þáttaka í keppninni Ungfrú
alheimur á Langasandi þar sem hún náði betri árangri en
nokkur önnur íslensk stúlka hafði náð fram að þeim tíma.
Hún hreppti þriðja sætið og var kjörin besta
ljósmyndafyrirsætan og þar með voru örlög hennar ráðin.
Næstu tólf árin var hún búsett í Bandaríkjunum þar sem
hún starfaði við kvikmyndaleik og fyrirsætustörf. Þótt
baráttan fyrir frama í kvikmyndaheiminum hafi verið
bæði hörð og óvægin segir Sigríður að þetta hafi verið
viðburðarík og skemmtileg ár enda mikil viðbrigði fyrir
unga stúlku norðan af Islandi að koma svona fyrirvaralaust
inn í framandi heim kvikmyndaborgarinnar og kynnast
þar persónulega fólki, sem almenningur þekkti aðeins af
hvíta tjaldinu.
—
í,;
Morgunblaðið/RAX
Sigríður á heimili sínu í Mosfellsbæ.