Morgunblaðið - 27.11.1988, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
C 9
ið kom hann ásamt sínu fólki á stað-
inn þar sem Sigríður söng og vildi
svo til að í hópnum var maður sem
hafði unnið með henni við sjón-
varpsþátt nokkrum árum áður í
Hollywood. „Ég fór auðvitað að
borðinu til þeirra og í framhaldi af
þessu fórum við nokkrum sinnum
með þeim út að borða. Bob bauð
okkur upp á svítu sína og þegar í
ljós kom að við áttum sama af-
mælisdag vildi hann óður og upp-
vægur kenna mér að steppa og við
steppuðum þarna smá stund. Síðan
fórum við í Caesars-klúbbinn að
dansa. Hann var mjög skemmtileg-
ur og viðfelldinn maður, eiginlega
alveg eins og maður hafði kynnst
honum úr kvikmyndunum.
Um líkt leyti hitti ég líka franska
leikarann Alain Delon af tilviljun.
Ég fór í sundlaugina snemma morg-
uns og þar voru þá engir nema tveir
menn, annar með mjög dökk sól-
gleraugu. Ég hélt að hann væri
baðvörðurinn og bað hann um að
ná í handklæði fyrir mig. Hann
spratt upp, hneigði sig á franska
vísu, kvaðst að vísu ekki vera bað-
vörður þama, en það væri sjálfsagt
að sækja handklæði fyrir mig. Þeg-
ar hann tók ofan gleraugun sá ég
strax að þetta var Alain Delon. Ég
lét hins vegar ekkert á því bera að
ég þekkti hann og þetta endaði með
að þessir herramenn buðu okkur
systrum út að borða. Mér fannst
hann strax svolítið dularfullur og
hálf flóttalegur, en hann sagðist
hafa kcmið þarna til að slappa af
í friði eftir skilnað við konu sína.
Hann hafði ekkert farið út á meðal
fólks og ég tók eftir að hann var
fráhrindandi við annað fóik um
kvöldið, eins og hann vildi ekki
þekkjast. Delon dvaldi þarna
nokkra daga í viðbót og seinna las
ég um það í blöðum að hann hefði
flækst í einhver leiðindamál og
líklega hefur það verið skýringin á
því að hann fór huldu höfði þarna
í Bangkok."
Heimkoman
Hún segir að heimkoman hafi
verið sér að mörgu leyti erfið. „Mér
fannst ég vera komin í fremur óvin-
gjarnlegt umhverfi miðað við það
sem ég átti að venjast. Ég átti að
vísu ágæta vini hér heima, en ég
fann samt fyrir ákveðnum and-
blæstri í minn garð eftir heimkom-
una. Ég held að það loði stundum
við íslendinga viss illkvittni í garð
fólks, sem hefur búið erlendis eða
gert eitthvað annað en þetta venju-
lega. Sem dæmi um þessa illkvittni
get ég nefnt þegar einhver fann
það upp hjá sér að lýsa með okkur
Ólafi Ragnari á dyrum Neskirkj-
unnar.“
Eftir heimkomuna fór Sigríður
að vinna við innflutningsfyrirtæki
föður síns, en árið 1975 giftist hún
Þorkeli Valdimarssyni. Hún er ekki
margorð um það hjónaband en seg-
ir að það hafi orðið mestu von-
brigði lífs síns er hún stóð frammi
fyrir þeirri staðreynd að þetta fyrsta
hjónaband hennar var misheppn-
að.„Við skildum að borði og sæng
eftir eitt ár og ég ákvað þá að hafa
nógu mikið fyrir stafni svo ég hefði
ekki tíma til að hugsa til baka. Ég
innritaði mig því í enskudeild Há-
skólans og lagði hart að mér næstu
árin.“
Sigríður lauk BA-prófi frá Há-
skólanum árið 1981 og kennslurétt-
indum 1982 og fór þá að kenna við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þar
kynntist hún núverandi eiginmanni
sínum, Stefáni Bjarnasyni skipa-
tæknifræðingi. Eftir að þau fluttu
af Suðurnesjum dvöldu þau einn
vetur við kennslu á Laugarvatni þar
sem Sigríður var deildarstjóri í
enskudeild. Nú búa þau í Mosfells-
bæ ásamt syni Stefáns af fyrra
hjónabandi, en Sigríður kennir við-
skiptaensku við Tölvufræðsluna í
Borgartúni. Þess má geta að Stefán
er bróðir Guðrúnar Bjarnadóttur,
sem Sigríður krýndi fegurðar-
drottningu íslands árið 1962, en
Guðrún varð síðar alheimsfegurðar-
drottning og starfaði um árabil við
sýningarstörf erlendis. En það er
önnur saga.
-blöv;! JliM .niblö/d ú -ujfij: rnoji yo
mita
C-2585
MITA DC-2585: Ótrúlega fjölhæf. Gerir
allt sem góö Ijósritunarvél þarf aó gera.
Flokkar hratt og örugglega. 25 eintök á
minútu. Tveggja lita prentun.
FJÖLVAL HF.
Ármúla 23 Simi 688650
ÚRVAL-GÆÐI-ÞJÓNUSTA
SÍÐUMÚLI 32 REYKJAVÍK © 31870
TJARNARGÖTU 12 KEFLAVÍK * 92-12061
-ámjjmsm
SÍOUMULl
CE
Þakstal meo stfl
Plannja Ull þakstál
Aðrir helstu sölu- og þjónustuaðilar:
Blikksmiðjan Funi sf, Kópavogi, sími 78733.
Blikkrás hf, Akureyri, sími 96-26524.
Vélaverkstæði Björns og Kristjáns,
Reyðarfirði, sími 97-41271.
Vélaverkstæðið Þór,
Vestmannaeyjum, sími 98-12111
Hjá okkur færðu allar
nýjustu gerðir hins vinsæla
ogvandaðaþakstáls
frá Plannja. Urval lita
og mynstra, m.a. Plannja
þakstál með mattri litaáferð,
svartri eðatígulrauðri.
Verðið okkar hittir í mark!
ÍSVÖR HR.
AUSTU RSTRÆTI10A
121 REYKJAVÍK, SÍMI623455
íaufii