Morgunblaðið - 18.12.1988, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 18.12.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1988 7 Breiðholtsútibú Félags- málastofiiunar: Stefnir í að þjónustan lamist upp úr áramótum - segiryfirfé- lagsráðgjafí útibúsins „ÞAÐ STEFNIR í að þjónusta Breiðholtsútibús Félagsmála- sto&iunar Reykjavíkurborgar lamist upp úr áramótum. Starfs- fólkið hefúr fengið sig fullsatt af lágum launum og miklu álagi og sumir hafa sagt upp störfúm sinum,“ sagði Gunnar Klængur Gunnarsson, yfirfélagsráðgjafi útibúsins, í samtali við Morgun- blaðið. „Tveir félagsráðgjafar sem starfa í meðferðarhópi úti- búsins sögðu til dæmis upp störf- um um síðustu mánaðamót en þeir hafa þriggja mánaða upp- sagnarfrest. I þessum hópi eru 3,5 stöðugildi félagsráðgjafa. Þá hef ég fengið sjálfan mig fluttan í ellimáladeild Félagsmálastofn- unar,“ sagði Gunnar Klængur. „Við höfum reynt að fá leiðrétt- ingu á launum okkar síðan í vor. Mánaðarlaun félagsráðgjafanna eru um 45 þúsund krónur og þeir eru með tveggja til fjögurra launa- flokka lægri laun en félagsráðgjafar á Borgarspítalanum. Sjálfur er ég með 78 þúsund króna mánaðar- laun,“ sagði Gunnar Klængur. í ályktun, sem félagsráðgjafar Félagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar samþykktu á fundi sínum á föstudaginn, segir meðal annars að þeir sinni erfiðustu bamaverndar- málum og málefnum þeirra fjöl- skyldna og einstaklinga sem við verst kjör búi í samfélaginu. Stofn- unin sé alvarlega undirmönnuð og vinnuálag því allt of mikið á ein- stökum starfsmönnum. Ástandið versni stöðugt með vax- andi atvinnuleysi og æ erfíðara reynist að manna lausar stöður fé- lagsráðgjafa við stofnunina. Fé- lagsráðgjafamir lýsa fullri ábyrgð á hendur borgaryfirvöldum á þessu ástandi þar sem þau hafí ekki horfst í augu við þennan vanda og engin breyting virðist ætla að verða á því. V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! SCAMDÍimm VATNSRÚM MÁL: 1 83x 213 cm. MEÐ hitara og öryggisdúk. 65% öldubrjótur. 5ÁRA ábyrgð á dýnu. Exellence KRÓMRÚM i MÁL:160x200og180x200cm. VERÐ:52.100,-st.gr. 53.600,- st.gr. Vatn Toppyfirbreiðs la meórennitás Hitarí Klætt meó stungnum bómullardúk K E F L A V I K TJARNARGATA 2 S: 92- 1 3377 SENDUM AÐ KOSTNAÐARLAUSU Á REYKJAVÍKURSVÆÐIÐ OGÁ VÖRUAFGREIÐSLUR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.