Morgunblaðið - 18.12.1988, Page 8

Morgunblaðið - 18.12.1988, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1988 T A er sunnudagur 18. desember, 4. sd. í jólaföstu. 1 UA.V3T 353. dagur ársins 1988. Árdegisflóð í Reylqavík kl. 1.41 og síðdegisflóð kl. 14.08. Sólarupprás í Rvík kl. 11.20 ogsólarlagkl. 15.29. Myrkurkl. 16.48. Sólin erí hádegisstað í Rvík kl. 13.25 og tunglið er í suðri kl. 21.30. (Almanak Háskóla íslands.) En þér eruð ekki holdsins menn heldur andans menn þar sem andi Guðs býr í yður. En hafi einhver ekki anda Krists, þá er sá ekki hans. (Róm. 8,9-10.) ÁRNAÐ HEILLA rj ára afinæli. Á morg- I ÍJ un, mánudaginn 19. desember, er 75 ára Svan- borg Sæmundsdóttir, vefii- aðarkennari, Furugrund 34, Kópavogi. Hún ætlar að taka á móti gestum á heimili sínu á afmælisdaginn milli kl. 16 og 19. A A ára afinæli. Á morg- 0\/ un, mánudaginn 19. þ.m., er sextug Kristín Björg Jóhannesdóttir í Hraunbæ í Hveragerði. Hún ætlar að taka á móti gestum í dag, sunnudag, á Hótel Örk þar í bænum eftir kl. 15. MANNAMÓT SAMVERKAMENN Móður Teresu halda mánað- arlegan fund sinn annað kvöld, mánudag 19. þ.m., í safnaðarheimilinu Hávalla- götu 16 kl. 20.30. FÉL. eldri borgara. í dag, sunnudag, er opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, kl. 14 og verður þá frjálst spil og tafl. Þá myndasýning á fyni hluta myndarinnar sem tekin var í Færeyjaferð. Dansað verður kl. 20. Lokað verður í Goðheimum fram til 8. janúar og í Tónabæ til 7. janúar en þá hefst þar danskennsla. Nánari uppl. í skrifstofusíma félagsins 28812. MORGUNBLAÐIÐ FYR- 1R 50 ÁRUM___________ Hvernig er það, spurði Morgunblaðið, einn af mat- vörukaupmönnum bæjarins í gær: Koma ekki neinir jólaávextir að þessu sinni? Það verður lítið sem hver fær ef skipta á jafht á milli bæjarbúa, svaraði kaup- maðurinn að bragði. Leyfi var veitt fyrir innflutningi á jólaávöxtum, alls kr. 12.500 kr. Mestmegnis munu það verða epli. Eitt- hvað verður keypt af rúsín- um og sveskjum sem verið hafa ófáanlegar lengi. Epl- in koma með Gullfossi kringum 20. desember. Mér virðist, sagði matvörukaup- maðurinn, að kaupmenn verði að fela ávextina til að geta miðlað einhveiju til sinna föstu viðskiptavina. En þurrkaðir ávextir, fást þeir? Nei, var svarið. SKIPIN_____________ REYKJAVÍKURHÖFN: í gær lagði Árfell af stað til útlanda og í dag, sunnudag, er Fjallfoss væntanlegur frá útlöndum. Tvö olíuskip eru væntanleg í dag. LÁRÉTT: — 1 svala, 5 LÓÐRÉTT: — 2 sár, 3 skinnið, 8 til baka, 9 baldinn, dæld, 4 fiskaði, 5 leikföngin, 11 hangir, 14 kraftur, 15 6 heiður, 7 fæði, 9 óhæfa, barlómurinn, 16 reiðan, 17 10 taldir, 12 baðst um, 13 greinir, 19 ró, 21 einkenni, reikar, 18 þrenging, 20 grein- 22 starfinu, 25 leðja, 26 ir, 21 flan, 23 samþykki, 24 hvíldi, 27 magur. frumefni. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: — 1 fregn, 5 rosti, 8 eirir, 9 hatts, 11 smala, 14 Týs, 15 nomi, 16 aflar, 17 sár, 19 uxar, 21 ótíð, 22 nefnist, 25 tía, 26 ein, 27 aur. LÓÐRÉTT: -1 róa, 2 get, 4 nistis, 5 rissar, 6 orm, 7 tól, 9 hentugt, 10 tarfana, 12 aflétta, 13 afræður, 18 ánni, 20 RE, 21 ós, 23 Fe, 24 in. Ekki er nú alveg víst að nýja virkjunin verði eins þjóðhagslega hagkvæm og bjórunnendur vilja vera láta... ÞETTA GERÐIST ERLENDIS gerðist þetta á þessum degi, 18. desember: 1644: Stjómarár Kristínar drottningar í Svíþjóð hefjast. 1745: Orrustan við Clifton Morr. 1777: Veturseta byltingar- hers George Washingtons hefst í Valley Forge. 1792: Réttarhöld í Bretlandi yfir Thomas Paine vegna út- gáfu „The Richts of Man“. 1799: Útför George Was- hington fór fram í Mount Vemon. 1865: Þrælahald endanleg afnumið í Bandaríkjunum. 1890: Frederick Luggard leggur Uganda undir breska Austur-Aftíku-félagið. 1903: Bandaríkin fá Panama til eilífðar gegn árlegu leigu- gjaldi samkvæmt Panama- sáttmálanum. 1912: Fundur Piltdown- mannsins kunngerður. 1927: Austur í Kína steypti Chiang Kai-shek Kankow- stjóminni af stóli. 1944: Her Japana hrakinn frá Burma. 1961: Innrás Indveija í Portúgals-nýlenduna Góa og vopnahlé SÞ hófst í Katanga í Áfríku. 1962: Kennedy forseti og breski forsætisráðherrann Maxmillan halda fund í Nass- au. 1963: Stúdentar frá Afríku efna til óeirða S Moskvu eftir dauða Ghanamanns sem mót- mælt hafði kynþáttamisrétti. 1965: Níu Afríkuríki slíta stjómmálasambandi við Breta vegna Rhódesíumáls- ins. 1975: Fulltrúar ísraels og 12 annarra ríkja ganga af fundi í UNESCO vegna deilu um síonisma. AFMÆLI erlendis: Carl Maria von Weber, þýskt tón- skáld 1786—1826. Leikrita- höf. Christopher Fry f. 1908. V-þýski stjórnmálamaðurinn Willi Brandt 1913, banda- ríska leikkonan Betty Grable 1916-1973. HÉRLENDIS gerðist þetta m.a. þennan sama dag, 18. desember: 1728: Eldgos við Leirhnjúk. 1871: Leyfi til sölu á sætum í Dómkirkjunni afturkallað. 1893: Landsyfírréttur mildar dóminn yfir Skúla Thorodds- en. 1939: Tónverkið „Sköpun“ eftir Haydn flutt í Reykjavik. 1951: Alþjóðadómstóllinn dæmir Norðmönnum rétt til að ákveða 4ra mílna land- helgi. 1958: Emil Jónssyni Al- þýðuflokksformanni falin stjórnarmyndun. 1979: Tvö flugslys á Mos- fellsheiði. Þennan dag árið 1682 lést Guðrún Símonar- dóttir. MQLAR_________________ • Það voru gyðingar á Langbarðalandi sem settu á stofti fyrsta bankann. Um árið 800 var það. Seinna komu þeir upp bönkum í öðrum löndum. í London er elsta bankastræti stór- borgarinnar Lombard Street. • Dagblaðaútgáfa hófst í Kína árið 912. Það hét Tsching Pao. • Árið 1010 fann Bene- diktsmunkurinn Guido frá Arezzo upp slaghörpuna. Árið 1711 endurbætir Christofori frá Florens hamratæknina. • Stækkunarglerið var fúndið upp árið 1050. Það var arabi, Ahazen að nafiii, en hann hafði þá unnið að ljósfræðilegum rannsókn- um. Þær heita Valgerður Einarsdóttir, Jódís Káradóttir og Halla Björk Einarsdóttir. Þær færðu Eþíópíusöfiiun Rauða kross íslands rúmlega 4.000 krónur en þeir pen- ingar voru ágóði af hlutaveltu sem þær héldu til stuðn- ings þessari fjársöfnun. FRÉTTIR VINNUVIKAN sem nú hefst er hin 51. á þessu ári. LÆKNAR: í tilk. frá heil- brigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu segir að þessir læknar hafi hlotið starfsleyfi hérlendis til að stunda al- mennar lækningar: Cand. med. et chir. Sigurður Ás- geir Kristinsson, cand. med. et chir Steingerður Sigur- björnsdóttir, cand. met. et chir Sigurður Ó. Blöndal. Ennfremur cand. odont. María Elíasdóttir leyfi til að stunda hér tannlækningar. ORÐABÓKIN Að taka þátt Ekki er ég viss um, að menn átti sig almennt á því við hvað er átt með því orða- lagi, sem stendur hér að ofan. Þó hafa menn oftar en einu sinni tekið svo til orða í útvarpi og sjónvarpi nú á þessu hausti, þegar þeir vilja segja að menn hafi tekið þátt í einhveiju. Ekki skal ég segja hversu gamalt þetta er í málinu, en sjálfur hef ég ekki veitt þessu athygli fyrr en nú á síðustu mánuðum. Engin dæmi þessa hef ég heldur getað fundið í prentuðum sem óprentuðum orðabók- um. í DV 9. nóv. 1988, 18, stendur þetta þar sem verið er að segja frá frægasta bekk landsins, en það eru nemendur Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar við Háskóla íslands: „En eftir nokkurt þóf varð úr að nám- skeiðið „Frelsi, lýðræði og ríkisvald" fékkst samþykkt til kennslu og hópur áhuga- samra nemenda tekur þar þátt.“ Ég býst við að mörg- um þyki þetta andkannalegt orðalag, enda brýtur það í bága við hið almenna tungutak. Auðvitað hefði í frásögn DV átt að standa: og hópur áhugasamra nem- enda tekur þátt í því. Ég vænti þess að flestir geti verið sammála mér um þetta. — JAJ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.