Morgunblaðið - 18.12.1988, Síða 17

Morgunblaðið - 18.12.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1988 ----------i-1-------------------------—--- >1*7 VERKAMANNABÚSTAÐIR í REYKJAVÍK SUÐURLANDSBRAUT 30,108 REYKJAVÍK Stjóm verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um kaup á íbúð- um sem áætlað er að komi til afhendingar frá miðju ári 1989 til jafnlengdar 1990. Um er að ræða bæði nýjar og notaðar íbúðir. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara íbúða gilda lög númer 60/1984. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu VB Suðurlandsbraut 30 og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar. Skrifstofan er opin mánudaga til föstudaga kl. 9.00-12.00 og 13.00-16.00. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 10. febrúar 1989. Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík. og segir í Nonnabókinni, til náms hefur samt ugglaust verið sá að ala þá upp og laða þá til að stunda prestsnám. Þótt augljóst væri að ekki þýddi að þvinga unga menn til þess og haldið væri áfram að styrkja þá sem ekki féll sú leið, þá hefur sjálfsagt búið að baki vonin um að fá' unga gáfaða pilta til trú- boðs fyrir kaþólsku kirkjuna og jes- úitaregluna. Og Nonni hefur alla tíð verið opinn fyrir því og valdi þá leið skref fyrir skref. Og Manni bróðir hans líka, eftir að hann kom til Amiens, sendur með Fyllu til Englands og síðan gegn um Dun- kerque með ensku skipi og í fylgd nunnu með lest til Amiens. í grein sinni aftan við Nonnabókina skrifar Haraldur: „Þeim bræðrum vegnaði vel í menntaskólanum í Amiens, enda voru þeir báðir vel gefnir og góðir námsmenn. Manni var mjög gefinn fyrir náttúrufræðileg efni, en var jafnframt óvenju listhneigð- ur. Hann var drátthagur og skreytti bréf til móður sinnar með fallegum myndum sem nokkrar hafa varð- veist. Þegar nemendur skólans efndu til leiksýninga þótti hann sjálfsagður í aðalhlutverk. Má af því ráða hversu góðum tökum hann hefur náð á franskri tungu þá þeg- ar. Orð var gert á tónlistarhæfileik- um hans og fagurri söngrödd. Var hann oft fenginn til að syngja hjá hefðarfólki." Menntaskólinn í Amiens var með- al stærstu slíkra skóla í Frakk- landi. Þar stunduðu nám synir tig- inna manna og aðalsmanna. Og við það var allt miðað. Þar var ekkert til sparáð, allt ríkulegt og stór- mannlegt og fínt, skrifaði séra Jón Sveinsson um komuna til Frakk- lands. Þarna voru mörg hús og og fagrar byggingar, sem garðar fylgdu, en auk þess margir nem- endabústaðir. Af skólaskýrslunum má sjá að þarna hefur verið strang- ur agi. Og getur maður ímyndað sér viðbrigðin fyrir drenginn sem kom úr frelsinu í íslenskri sveit, eins og hann lýsir því í Nonnabók- unum, að koma í svo stranga lífshætti. Farið eldsnemma á fætur á morgnana og reglusemi og nám allan daginn. Ekki var þó þarna harðræði, eins og var í mörgum ensku heimavistarskólunum. Og mjög góð menntun. Nonni undraðist í fyrstu að hann var ekki sendur áfram til Avignon, en að ráðum skólastjórans féllst hann á að vera þarna kyrr. Hann varð stúdent 1878. En brátt fluttist hann yfir í skólann sem nefndur var École Apostolique í Acheul þama rétt hjá og var fyrir duglegustu nemend- urna sem höfðu tekið ákvörðun um að verða prestar. Og þar vistaðist Manni líka. Gamla skólahúsið frá tímum Nonna og Manna brann, en skólinn er þar enn. Nú er í Amiens 400 nemenda skóli og allur skólinn tekur um 2000 nemendur. Eftir stúdentpróf gekk Jón Sveinsson í jesúítaregluna og hélt síðan til Loewen í Belgiu og tók þaðan heim- spekipróf 1883, en prestsvíslu í jes- úítaregluna tók. hann 1890 eftir framhaldsnám í Bretlandi. „Árið 1894 var séra Jón sendur til íslands að líkindum til að kanna möguleika á endurreisn kaþólska trúboðsins, sem legið hafði niðri síðan Boudou- in, franski presturinn, hvarf úr landi árið 1876,“ skrifar Haraldur Hann- esson í greininni um hann í nýju Nonnabókinni. Þessi ferð varð undanfari þess að hann tók að skrifa endurminn- ingar sínar frá bernskuárunum á íslandi, fyrst skemmtilega ferða- sögu sem vakti mikla athygli. Einn- ig fór hann að festa á blað endur- minningar sínar frá Möðruvöllum og Akureyri og úr varð Nonni og Manni. Skrif hans vöktu nokkra athygli meðal danskra og þýskra lesenda. „Eftir að hafa dvalist í Aachen um hríð, settist séra Jón að í Exaten í Hollandi og gat nú helg- að sig ritstörfum af fullum krafti, enda höfðu yfirboðarar hans nú gert sér grein fyrir hvað í honum bjó. En það sem mestu máli skipti var að þeir gerðu sér jafnframt ljóst að til þess að frásagnargáfa hans fengi notið sín, yrði hann að njóta fullkomins frelsis innan þess ramma sem regla hans frekast leyfði,“ skrifar Haraldur í grein sinni í Nonnabókinni. „í Exaten hóf séra Jón að skrifa Nonna, sem út kom hjá Herder-forlaginu árið 1913, sem var upphafið að frægðarför hans víðsvegar um heim. Raunar var hér um að ræða eins konar þýðingu, þvi að hann hafði áður skrifað bók- ina á dönsku. Nonni fékk mjög góða dóma og frábærar móttökur, jafnt hjá ungum sem gömlum, þrátt fyrir allar þær hörmungar sem gengu yfír Evrópu í heimsstyijöld- inni fyrri.“ Og 75 árum síðar er Nonni enn að koma út í Þýska- landi, Sviss, Austurríki og víðar. Og nú gefst íslendingum líka kost- ur á að fá hana í nýrri útgáfu eftir áratuga hlé. Og mun frásögn séra Jóns eflaust enn eiga eftir að heilla lesendur sem fyrr. Sjá næstu síðu Manni var sérlega laghentur og hafði listahæfileika, sem kom fram um leið og hann var kominn í skólann í Frakklandi. Þá teikn- aði hann þessa mynd af kennara sínum á þerripappír í skólanum. Kaþólskt trúboð í bakgrunni í Nonnabókinni kemur fram að aðalsmaðurinn sem bauðst til að ala önn fyrir, setja til náms og veita hið besta uppeldi, bjó í borginni Avignon suður við Miðjarðarhaf. Góður guðhræddur maður og mikils metinn. En þegar Nonni kom frá Kaupmannahöfn til Frakklands var hann settur í góðan heimavistar- skóla jesúíta í Amiens í Norður- Frakklandi, École libre de la Provid- ence, fyrst til bráðabirgða að sagt var vegna þess hve heitt væri fyrir íslenskan dreng í Suður-Frakk- landi, og fór aldrei suður eftir. Svo sem fram kemur í ævisögunni sem Haraldur skoðaði, var de Foresta greifi af ítölskum ættum og var einn af aðalmönnunum í jesúítaregl- unni. Um þetta leyti var uppi átak til að stofna til öflugs kaþólsks trú- boðs á Norðurlöndum og voru fímm Norðurlandapiltar í skólanum þegar Nonni var þar. Var hann mikið með Norðurlandadrengjunum. Þarna var, auk menntaskólans, skóli fyrir þá duglegustu, sem ætluðu að ger- ast trúboðar. Hefur eflaust legið að baki áformum um að bjóða drengjunum tækifæri til náms von- in um að þeir gerðust jesúítar og trúboðar, þótt þeir væru alveg frjálsir ferða sinna. Enda sneri hinn íslenski drengurinn, Gunnar Einars- son, við heim eftir Danmerkurdvöl- ina. En Nonni kaus þegar þar að taka kaþólska trú, hafði raunar meðferðis bréflegt leyfí móður sinnar sem hefur séð fyrir að svo kynni að fara. Það var hann þvi áður en hann kom í skóla jesúíta í Frakklandi. Danski drengurinn Ríkhard, sem var mikill vinur Nonna, hætti prestsnámi í Frakk- landi og fór heim á vegum velgerð- armanna sinna, sem héldu áfram að hlynna að þeim sem ekki fundu köllun til að fara í prestskap og trúboð. Forstöðumaður skólans var séra Barblin, sem Nonni nefnir í einni bóka sinna. Hafði hann mikil áhrif á síðari þroskaferil hans. Bakgrunnurinn að því að setja unga menn,- „heilsugóða, hlýðna og óspillta og af góðum ættum“, eins Manni (fimmti frá hægri í þriðju röð)með félögum sínum í menntaskólanum i Amiens í Frakklandi, þar sem Nonni var líka þegar hann kom út. Myndina fann Haraldur Hannesson ásamt fleiri myndum í Frakklandi í sumar og hefur hún ekki birst áður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.