Morgunblaðið - 18.12.1988, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 18.12.1988, Qupperneq 27
MORGUNBIÍAÐIÐ SUNNUDAGUR 18,'DESEMBÉR Í988 '27 „Whisky, palisander og BMW til javnaðin" Saga úr færeyskri kosningabaráttu OFT þykir íslenzkum Iesendum fjölmiðlar hundleiðinlegir fyrir kosningar, þegar blöðin eru full af lofgreinum um þá frambjóð- endur, sem þeim eru þóknanleg- ir og löngum loforðarullum flokkanna. Færi allt eftir sem þar stendur, myndi Paradís sennilega blikna miðað við hag- sældina, sem oss skal falla í skaut. Það gerist reyndar ekki og kemur víst engum á óvart Iengur. Áður var baráttan óvægnari og vógu menn þá and- stæðinga sína á báða bóga á síðum fjölmiðla og opnum fund- um. Sá siður ríkir enn hjá frænd- um vorum Færeyingum, þar sem fáu virðist eirt. Fólkaflokkurinn færeyski, sem er hægri flokkur, er ótvíræður sigurvegari nýafstaðinna sveitar- stjórnarkosninga svo og kosninga til Lögþingsins fyrir skömmu. Einn umdeildastí stjómmálamaður Fær- eyinga er Óli Breckmann, ritstjóri Dagblaðsins í Færeyjum. Hann þykir mjög hægri sinnaður og er meðal annars þekktur fyrir heim- sóknir til ísraels og Suður-Afríku og fyrir að stuðla að fiskveiðisam- vinnu Færeyinga og Namibíu, þrátt fyrir alþjóðlegt viðskiptabann. Meðal annars vegna þess, ákvað grænlenzka landsstjómin að veita Færeyingum ekki fiskveiðiheimildir í grænlenzkri lögsögu. Þetta mál olli miklum deilum í Lögþingskosn- ingunum og birti Dagblaðið meðal annars skopmyndir af Atla Dam, fráfarandi lögmanni, þar sem sam- steypustjóm hans var líkt við þann fræga bófaflokk „Bjöme-banden“, sem reynir án afláts að ræna auðæfum Jóakims frænda. Jónatan Moztsfelt, formaður grænlenzku landstjórnarinnar, verður einnig fyrir barðinu á blaðinu með þessum hætti. „Bitte machen Sie mir diese Dienst“ Daginn fyrir sveitarstjómar- kosningarnar birti Dagblaðið telexskeyti frá framámönnum jafnaðarmanna á Tvöroyri til skip- stjórans á Suðringi, sem var að selja físk í Þýzkalandi. Skeytið hefst á orðunum „Bitte machen Sie mir diese Dienst." Þar panta þeir sér ýmsan varning, áfengi, segulband og vökvastýringu í BMW. Dagblaðið leggur sérstaka áherzlu á að pantað hafi verið rautt vodka og Whisky (Red La- bel) og þykir það við hæfi. Sér- staklega er bent á fyrir Atla Dam, lögmann, hafi verið pantaðir tveir kassar af Johnny Walker Red Label. í nákvæmri frásögn blaðs- ins af þessu skeyti kemur reymdar fram örlítið misræmi við fyrir- sögn, þar sem talað er um Whi- sky, palisander og BMW. Pali- sanderinn átti aðeins að vera á framhlið segulbandsins og ekki átti að kaupa bíl, heldur vökva- stýringu. Kjósendur eru varaðir við þessum mönnum og ekki virð- ist laust við, að blaðið hlakki yfír því, hvemig viðskiptum þessum Iauk. Þeir vom nefnilega teknir fyrir smygl og sökinni skellt á einhvem, sem hlaut fyrir vikið verulega sekt: „í morgin skulu tvörafólk so velja nýtt býráð. Tey kunnu um- hugsa, hvussu stuttligt tað var, tá Atli, Signar og Heri ráddu öllu í býnum, meðan Mortan sigldi inn og út av fjörðinum (tá hann ikki fór uttanlands at landa). Hvort þessi saga hefur haft einhver áhrif á úrslit kosninganna skal ósagt látið, en kaup á áfengi koma víðar við sögu en hér. Líklega hefði frásögn sem þessi dregið einhvem dilk á eftir sér hér á landi. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Kveikt var á jólatré á Blönduósi á sunnudaginn. Blönduós: Ljósin tendruð ájóla- trénu Biönduósi. KVEIKT VAR á jólatré Blöndu- ósinga á kirkjuhólnum sl. sunnu- dag að viðstöddu Qölmenni. Jóla- tréð er gjöf frá vinabæ Blöndu- óss, Moss í Noregi. Kirkjukórinn söng jólasálma og jólasveinar komu í heimsókn. Það var fulltrúi norræna félags- ins á Biönduósi, Aðalbjörg Ingvars- dóttir, sem afhenti tréð fyrir hönd íbúa Moss, en Ófeigur Gestsson bæjarstjóri veitti trénu viðtöku. Kirkjukórinn söng jólasálma undir stjóm Sigurðar Daníelssonar. Böm- in urðu ekki fyrir vonbrigðum með jólasveinana því sjaldan hafa jóla- sveinamir í Langadalsfjalli verið lífsglaðari en einmitt fyrir þessi jól. Fóm jólasveinamir í marga hringi í kringum jólatréð og leiddu sér við hlið unga sem aldna en aldrei töp- uðu þeir áttum. Jón Sig. V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! GARÐALUNDI, Garðabæ, sunnudaginn 18. desember kl. 17.00- 19.30 Á fjórða sunnudegi aðventu, þegar jólahátíð er að ganga í garð, bjóðum við upp á stórkostlega fjölskylduhátíð. Á Stjörnujólum verður glæsileg dagskrá, meðal annars K jBfjB * Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar ★ Halli og Laddi ★ Eiríkur Fjalar, Skúli rafvirki og fl. ★ Kynnir: Hermann Gunnarsson og hver veit nema Eisa Lund verði á svæðinu. v-M ★ Jólasveinar. ■«.' Æ ★ Helga Möller syngur jólalög. Jm ★ Dansað í kringum jólatréð meðjólasveinum. , .«) ★ Jólasveinar aíhendajólasælgætispoka. ÍR Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar. Helga Möller. Skúli rafvirki Hemmi og Eisa Verð aðgöngumiða kr. 400. Sama verð og í fyrra. Miðinn gildir sem happdrættismiði hljómtækja - og plötuvinningar. Fríir miðar fyrir 2ja ára og yngri. . ÞESSI FYRIRTÆKI STYRKJA STJÖRNUNA: SJÓVfl SUÐURlANDSBRAUT 4 SIMI 82500 BiB GÍSLI J. JOHNSEN /ÁjiijNAöMiiLtNkl Nybylavegi 16. Simi 641222. \[\j ÍSI ANI)S íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar U.M.F. Stjarnan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.