Morgunblaðið - 13.01.1989, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 13.01.1989, Qupperneq 5
MORGUNBLABIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989 15 Erlendu fisk- markaðarnir: Mikiðfram- boð og lágt verð á þorski Enn hátt verð fyrir karfa, ufea, ýsu og grálúðu ENN er hátt verð á karfa, ufea og ýsu á fiskmörkuðunum er- lendis. í gær fékk Haukur GK að meðaltali 111 krónur fyrir karfakilóið í Bremerhaven, 100 fyrir ýsu og 75 fyrir ufeann. Verð á ýsu hefiir farið allt upp í tæpar 180 krónur í Bretlandi í þessari viku. Á miðvikudag fékk Ólafur Jónsson GK 160 krónur fyrir ýsuna og í gær fékk Bjartur NK 122 krónur. Verð á þorski er hins vegar mjög lágt og stafar það meðal annars af mildu firamboði í Bretlandi. Á miðvikudag seldi Klakkur VE 143.4 tonn í Bremerhaven, mest þorsk og ufsa. Heildarverð var 10.4 milljónir króna, meðalverð 72,31. Lágt verð var á þorski, 66 krónur að meðaltali. Fyrir karfa fengust 113 krónur og 101 fyrir grálúðu. í gær seidi Haukur GK 125 tonn í Bremerhaven, mest karfa. Heildarverð var 12,8 milljónir króna, meðalverð 102,36. Meðal- verð í mörkum var 3,80, það hæsta á þessu ári. Karfínn fór á 111, ýsan á 100, ufsinn á 75 og þorsk- urinn á 72. Á fímmtudag seldi Stapavík SI 122,2 tonn, mest þorsk í Grimsby. Heildarverð var 9 milljónir króna, meðalverð 74,13. Ýsan fór á 154 krónur, grálúða á 98 en verð á öðrum tegundum var lágt. Ólafur Jónsson GK seldi í Hull á miðvikudag og fímmtudag 152,8 tonn. Heildarverð var 12,6 milljón- ir króna, meðalverð 82,51. Ýsan fór á 159 og grálúðan á 116. Loks seldi Bjartur NK 131,5 tonn í Grimsby í gær. Heildarverð var 10,6 milljónir króna, meðal- verð 80,35. Ýsa fór á góðu verði, en aðrar tegundir á fremur lágu. ÞRUflLDUR POmiR! r* Nú er til mikils að vinna í íslenskum Getraunum. Á síðustu tveimur vikum hefur engin röð komið fram með 12 réttum. Þess vegna er þrefaldur pottur - og þreföld ástæða til að vera með! Láttu nú ekkert stöðva þig. / Getraunaseðillinn er líka fyrir þig. j Ríkið tekur 700 milljón- ir af telgum Vegagerðar „Vont fordæmi og dapurlegt,“ segir aðstoðarvegamálastjóri Samkvæmt ákvæði lánsfjár- laga verða markaðar tekjur Vegagerðarinnar skertar um 680 milljónir króna eða 17,5% á þessu ári. Þetta er í fyrsta skipti síðan Vegagerðin fékk ein- göngu tekjur af mörkuðum tek- justofiium að formleg skerðing kemur til. Vegagerðinni eru ætlaðar 3.215 miiyónir kr. á árinu, en miðað við bensín- hækkunina um áramótin og hækkun þungaskatts hefðu tekjurnar átt að vera 3.895 millj.kr. Helgi Hallgrímsson að- stoðarvegamálastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að vegagerðarmenn væru mjög daprir yfir þessari framvindu mála en langalvarlegast væri að mörkuðum tekjum Vega- gerðarinnar væri að verulegu leyti ráðstafað annað. Eftir bensínhækkunina um ára- mótin gefur bensíngjaldið 2.830 milljónir á árinu, ökumælahluti þungaskattsins 800 millj.kr. og ársgjaldið 265 millj.kr., alls 3.895 millj.kr. sem lánsfjárlögin gera ráð fyrir að verði skert um 680 millj. kr. Af 3.215 milljónum er gert ráð fyrir 1.345 millj. kr. til nýrrafram- kvæmda en þeim hluta hefur ekki verið skipt ennþá og liggja ýmsir endar lausir þar. Bæði er að um- talsverðar lántökur voru vegna framkvæmda á síðasta ári og ekki er búið að tryggja fjármagn í Ól- afsfjarðarmúlann, að sögn Helga, en til þess verkefnis er þörf á 320 milljónum kr. á þessu ári. Fram- kvæmdafjármagnið á þessu ári er svipað og í fyrra en aðstoðar Vega- málastjóri sagði mjög erfítt að koma framkvæmdinni við Ólafs- fjarðarmúla fyrir innan svipaðrar tölu og í fyrra, því þama væri um eitt mjög stórt verkefni að ræða auk þess að mjög erfítt væri um vik þegar ekki kæmi til viðbótar- fjármagn vegna lántöku frá fyrra ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.