Morgunblaðið - 13.01.1989, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989
Verkfallsmenn, sem starfa hjá Hyundai-fyrirtækinu í Ulsan í suðausturhluta Suður-Kóreu, höfðu
uppi mótmæli fyrir framan lögreglustöð í borginni og kröfðust þess að félagar þeirra, sem hand-
teknir voru í sfðustu viku, yrðu látnir lausir. Talsmenn Hyundai sögðu að skipasmíðastöð fyrirtæk-
isins yrði lokað um óákveðinn tíma vegna stöðugra verkfa.Ua.
Verkfall í Suður-Kóreu
Júgóslavía:
Sex menn tilneftidir í emb-
ætti forsætisráðherra
Slóvenskir menntamenn stoftia stjórnmálaflokk
Belgrað. Reuter.
FORSÆTISRÁÐ Júgóslavíu -til-
nefndi i gær sex menn til að taka
við forsætisráðherraembættinu
sem Branko Mikulic sagði lausu
rétt fyrir áramót. Tiikynnt var
um tilnefiiinguna aðeins degi
eftir að leiðtogar stjómarinnar
í SvartQallalandi sögðu af sér í
kjölfar mótmæla 120.000 manna,
sem sökuðu ráðamenn um van-
stjóra á efiiahagsmálum lýðveld-
isins. í Slóveníu stofiiuðu
menntamenn stjórnarandstöðu-
flokkinn Slóvensku lýðræðis-
fylkinguna á miðvikudag.
Raif Dizdarevic, formaður For-
sætisráðsins, tilkynnti um tilnefn-
ingamar í gær. Að sögn Tanjug-
fréttastofunnar eru leiðtogar
kommúnistaflokka Slóveníu og
Serbíu, þeir Milan Kucan og Slobod-
an Milosevic, meðal þeirra sem
nefndir hafa verið til embættisins.
Aðrir sem forsætisráðið tilnefndi
eru forseti serbneska þingsins, Bo-
risav Jovic, Ante Markovic, sem á
sæti í forsætisráði Króatíu, Dusan
Sinigoj, forsætisráðherra Slóveníu
og Ante Milovic, forsætisráðherra
Króatíu.
Samkvæmt fréttum júgóslavn-
eskra dagblaða er líklegast talið að
Boris Jovic eða Ante Markovic
hreppi það sem dagblöðin hafa
nefnt „óvinsælasta starfið í
landinu". Eftirmaður Brankos Mik-
ulics verður níundi forsætisráðherra
landsins frá lokum síðari heims-
styijaldar.
Að sögn Tanjug verða hin átta
lýðveldi Júgóslavíu að samþykkja
tilnefningamar. Forsætisráðið, sem
er æðsta valdastofnun landsins,
mun síðan leggja fram tillögu fyrir
þingið um næsta forsætisráðherra
Júgóslavíu. Gert er ráð fyrir að hinn
útvaldi taki við embætti í marsmán-
uði.
Á miðvikudagskvöld stofnuðu
nokkrir menntamenn í Slóveníu
stjómarandstöðuflokkinn Sló-
vensku lýðræðisfylkinguna. Sam-
tökin hafa það á stefnuskrá að
koma á fjölflokkakerfi í landinu.
Stofnun samtakanna ber vott um
vaxandi efnahagslegar og stjóm-
málalegar þrengingar í landinu og
þann álitshnekki sem Kommúnista-
flokkurinn hefur beðið í kjölfar
hneykslismála og innanflokks-
deilna.
Mengunarvarnir:
A-Evrópu þjóðir
fái norrænt fé
HeUinld. Frá Tom Kankonen, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter.
NORRÆNI fjárfestingarbankinn getur lánað til umhverfisverndar-
mála annars staðar en innan sjálfra Norðurlandanna. Kom þetta
fram á þriðjudag á fundi umhverfismálaráðherra ríkjanna í Hel-
sinki. Margir hafa áhyggjur af mikilli mengun frá Póllandi, Austur-
Þýskalandi og Kolaskaga.
Mengunin í Austur-Evrópu er
geigvænleg og þaðan kemur mikill
hluti efnamengunarinnar, sem nú
ógnar Eystrasalti. Af þessum sök-
um er það ekki síður í þágu Norður-
landa, að Austur-Evrópuríkin
spymi við fótum. Þau em hins veg-
ar fjárvana og munu því líklega fá
lán frá Norræna fjárfestingarbank-
anum með niðurgreiddum vöxtum.
Ekki er samt búist við, að frá þess-
um málum verði endanlega gengið
fyrr en á fundi Norðurlandaráðs í
Reykjavík á næsta ári.
Finnska utanríkisráðuneytið
skýrði frá því á þriðjudag að Finnar
hygðust fljótlega bjóða öllum Norð-
uriandaríkjum, Sovétríkjunum,
Kanada og Bandaríkjunum til ráð-
stefnu þar sem ræða skuli til hvaða
aðgerða beri þegar í stað að grípa
gegn loft- og sjávarmengun á Norð-
urheimsskautssvæðinu.
NOTAÐAR VÉLAR
Á SÖLUSKRÁ:
TRAKTORSGRÖFUR:
JCB ’81
JCB '82
MF 50 HX ’85
Cat 428 '87
Case 680 ’79
Case 580 F ’82
Case 580 F ’81
Case 580 G ’86
Case 580 G ’87
JARÐÝTA
D.4.D '81
ALLAR UPPLÝSINGAR HJÁ SÖLUMANNI
H
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Simi 695500
JÓLANNA VEGNA!
TVÆR TÖFLUR FYRIR HVERT MÁL
FLÝTIR BRENNSLU
MATARKÚR FYLGIR
TRAUSTOG GÓÐ
MEGRUNARAÐFERÐ
KRISTÍN
SÍMI61-16-59