Morgunblaðið - 13.01.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.01.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989 29 HANDAVINNUPOKINN Lítill bótasaumaður (,,applíkeraður“) bangsi Hér kemur fyrsti handavinnupoki ársins, og hann i léttara lagi. Þetta er lítiU „applíkeraður" bangsi, en það heitir vist bótasaum- aður bangsi á réttu máli. Þar sem ekki er vist að allar saumakon- ur skilji islenzka orðið, hef ég dönskuslettuna með. Bangsann er upplagt að nota í vasa eða sauma hann á blússur og aðrar flíkur, og einnig má gjaman nota hann á smekki fyr- ir yngstu kynslóðina. Þið ykkar sem saumið eigið áreiðanlega einhverja afganga sem þið getið notað í bangsann, en ef ekki þá eru það engin stór- útlát að kaupa efnið í hann. Bezt fannst mér að nota fíltefni og þunnt plötuvatt, fékk það síðast í Virku við Hverfísgötu. Og svo þarf bút af strauflíselíni. (mynd nr. 2) Klippið sniðið út. Fram og bakstykki eins. Strauið flíselín aftan á efnið. Klippið „nefið" úr svörtu efni, eða dekkra efni en er í búknum. Trýnið er úr aðeins ljósara efni en nefið, og augun eru höfð dökk. Einnig má nota hnappa í augun. Saumið önnur saumför með þéttu sig-sag spori, en munn og augna- umgerðir í höndum með kontór- sting. Klippið vattið eftir sniðinu. Leggið fram og aftur stykkin saman með vattinu á milli og sig-sag saumið meðfram kantin- um ailt í kring. Þið ykkar sem nennið ættuð bara að prófa bangsann, það er svo gaman að dunda við hann. Svo er hann tilvalinn til að gleðja einhvern af ungu kynslóðinni. (mynd nr. 3) Góða skemmtun, Jórunn. Atriði úr myndinni ”GáskafúIlir grallarar" sem Stjömubíó sýnir um þessar mundir. Stjörnubíó sýnir „Gáskafulla grallara“ STJÖRNUBÍÓ hefúr tekið sýn- ingar myndina „Gáskafúlla grall- ara“. í aðalhlutverkum eru þau Bruce Willis og Mariel Hamingway, en leikstjóri er Blake Edwards. Myndin Á FUNDI sínum nýlega sam- þykkti Samband ungra jafnaðar- manna eftirfarandi ályktun: Stjóm Sambands ungra jafnað- armanna lýsir eindregnum stuðn- ingi við fýrirhugaða fundaherferð formanna Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags um landið í lok þessa mánaðar. Hugsjónir jafnaðarstefnunnar um frelsi, jafnrétti og bræðralag höfða til þorra íslendinga. Jafnað- arstefnan á íslandi hefur hins vegar mátt gjalda fyrir pólitíska sundr- ungu íslenskra jafnaðarmanna und- anfarin ár og áratugi. Forræði borgaralegrar hugmyndafræði og borgaralegra afla í íslenskum stjómmálum hefur varað nógu lengi. Fyrir löngu er orðið tímabært að ræða opinskátt um að sameina íslenska jafnaðarmenn í einum stjómmálaflokki sem gæti orðið leiðandi afl í íslenskum stjómmálum í framtíðinni. Það er vel við hæfi að á tveggja alda afmæli frönsku Lögfræðiað- stoð Orators Lögfræðiaðstoð Orators, fé- lags laganema, hóf störf á nýju ári, í gær, fímmtudaginn 12. jan- úar. Einungis er um aðstoð í formi símaráðgjafar að ræða þar sem laganemar hafa ekki málflutnings- réttindi. Lögfræðiaðstoðin verður opin öll fímmtudagskvöld fram eftir vetri milli kl. 19.30.—22.00. (Fréttatílkynnmgf) Sýnir vaxtar- ræktarmyndir JÓHANN A. Kristjánsson opnar ljósmyndasýningu í tækjasal World Class heilsustúdíósins í Skeifúnni 19, sunnudaginn 15. janúar. Á sýningunni verða 34 svart/hvítar ljósmyndir sem teknar eru af keppendum í vaxtarræktar- keppni á Islandi. Elstu myndimar em frá árinu 1983, en þær nýjustu vom teknar á Norðurlandameist- aramótinu, sem haldið var á Hótel íslandi 17. apríl sl. vor. Sýningin verður opin á sama tíma og World Class heilustúdíó þ.e. frá kl. 8.00 til 22.00, alla virka daga, laugardaga frá kl. 12.00 til 16.00, og frá kl. 14.00 til 17.00 á sunnu- dögum. Sýningunni lýkur sunnudaginn 29. janúar. segir frá stórleikaranum Tom Mix og stórskyttunni Wyatt Earp sem ákveða að upplýsa eitt frægasta morð sögunnar í Hollywood. Þeir bijóta flestar reglur og troða mörgum, frægum mönnum um tær og því er líf þeirra í stöðugri hættu. byltingarinnar sameini íslenskir jafíiaðarmenn krafta sína til að koma hér á réttlátu lýðræðisþjóð- félagi. FIB Bensínverð orðið allt ofhátt FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda segir að bensínverð, miðað við ástand vega hér á landi, sé orðið allt of hátt, ekki vegna bensín- gjalds, heldur annarra skatta. Þá sé þungaskattur á minni díselbif- reiðum óeðlilega hár ef miðað sé við þungaskatt stærri díselbif- reiða, þegar tillit sé tekið til þess slits sem þær valdi á vegum. FÍB segir að bensíngjald hafí hækk- að um 32% 1. janúar síðastliðinn og það hafí haft í för með sér um 12% hækkun á bensínverði. Miðað við venjulega bifreiðaeign lands- manna nemi útgjöld af þessum sök- um 10-12 þús. kr. á ári fyrir meðal ijölskyldu, en skattahækkunin öll 500- 700 milljónum króna á ári. Félagið segir að bensíngjald og þungaskattur eigi lögum sam- kvæmt að renna óskipt til vega- mála. Varanleg vegagerð á fjölföm- um leiðum sé arðbærasta fram- kvæmd sem ríkið hafí með höndum • og jafnframt ein hin nauðsynleg- asta. Standist forsendur um notkun bensíngjalds og þungaskatts, og vegafé verði ekki skert á nokkum hátt, sé ekki efni til mótmæla gegn umræddum hækkunum. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, PÁLÍNA STEFÁNSDÓTTIR, Strandarhöffii, Vestur-Landeyjum, lést í sjúkrahúsi Suðurlands 10. janúar. Börn, tengdabörn og barnabörn. Útför eiginmanns míns, sonar, föður, tengdaföður og afa, JÓNS ÁRN ASONAR, Sunnubraut 3, Grindavík, fer fram frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 14. janúar kl. 14.00. Jóna Gunnarsdóttir, Árni Guðmundsson, Margeir Á. Jónsson, Guðlaug R. Jónsdóttir, Ólafur Jónsson, Guðný Elíasdóttir og barnabörn. Útför + RAGNHEIÐAR MAGNÚSDÓTTUR frá Söndum, Akranesi, Laugavegi 98, Reykjavík, fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 16. janúar kl. 15.00. Systkini hinnar látnu. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍSABET GÍSLADÓTTIR frá Hvarfi, Vfðidal, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju mánudaginn 16. janúar kl. 13.30. Unnsteinn Pálsson, Guðriður Haraldsdóttir, Þórdfs Pálsdóttir, Jón Bergsson og barnabörn. + Útför STEINÞÓRU CHRISTENSEN, Gnoðarvogi 70, Reykjavik, verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 17. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Hallfriður Böðvarsdóttir, Sigurlaug Kristjánsdóttir. SUJ styður funda- herferð formanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.