Morgunblaðið - 13.01.1989, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989
fclk í
fréttum
í
*
i
í
Sveinbjörg Ásgeirsdóttir á vélaverkstæðinu.
STÚLKUR HJÁ ÍSAL
„Ekkert karlmannlegt
við að bora í vegg“
eim fjölgfar stúlkunum sem
fara inn á hefðbundin starfs-
svið karla. í haust auglýsti íslenska
álfélagið (ísal) eftir nemum og var
tekið fram að ekki væri síður óskað
eftir stúlkum en piltum á náms-
samning í hinum ýmsu fögum.
Tvær stúlkur voru meðal umsækj-
enda sem komust að. Önnur þeirra,
Sveinbjörg Ásgeirsdóttir, er í vél-
virkjanámi en hin, Erla Rúna Guð-
mundsdóttir, hóf nám í rafvirkjun.
Á báðum þessum sviðum hafa örfá-
ar konur þegar haslað sér völl.
„Ég byijaði í menntaskóla en
leist ekkert á námið þar,“ segir
Sveinbjörg sem er tvítug að aldri.
„Þá ákvað ég að fara í Iðnskólann
og sá svo auglýsinguna frá Álfélag-
inu. Mér fannst það vera eitthvað
fýrir mig. Nú er ég að klára
reynslutímann sem eru þrír mánuð-
ir og þá fer ég á samning. Það tek-
ur flögur ár að læra vélvirkjun, tvö
ár í skóla og tvö ár í því verklega.
Maður er lengi að komast inn í
þetta og ennþá hef ég lítið vit á
þessu. Jú það er auðvitað öðruvísi
að vinna innan um alla þessa karl-
menn. En ég var hissa á því hvað
allir eru almennilegir. Ég bjóst al-
veg eins við einhvetjum karlremb-
um en þeir vilja allt fyrir mann
gera. Auðvitað gætir aflsmunar en
þegar þarf að nota kraftana leið-
beina þeir mér og benda á hentugar
leiðir. Ég vil ekki að mér sé hlíft
við neinu þó að ég sé kvenmaður
en ég er heldur ekkert að reyna að
vera eins og karlmaður. Ef mann
langar að læra eitthvað sérstakt
þá á það ekki að hindra mann þótt
það heiti hefðbundin karla- eða
kvennastörf."
Erla Rúna er nítján ára gömui.
Hún segir það hafa verið tilviljun
að hún fór í þetta nám. Hún var
að skipta um starf þegar hún rak
augun í auglýsinguna. „Ég hefði
aldrei sótt um nema bara af því að
það var auglýst og tekið sérstaklega
fram að óskað væri eftir stúlkum.
Fyrir mig var það mikil hvatning.
Ég er ekki farin að fikta svo mikið
við rafmagnið enn. Það er best að
fara í skólann sem fyrst svo maður
átti sig á rafmagni og hvemig það
virkar. Rafmagnsfræði er heill
heimur út af fyrir sig. Strákamir
hjá ísal em góðir og yndislegir og
passa mann vel. Ég var nú ekkert
skrafhreifín fyrst innan um alla
Morgunblaðið/Bjami
Erla Rúna Guðmundsdóttir,
rafvirkjanemi.
þessa karlmenn en feimnin fer af
manni. Ég er á því að karlar og
konur geti unnið sömu störf, hvað
sem þau em kölluð. Það er svosem
ekkert karlmannlegt við það að
bora í vegg,“ segir Erla að lokum.
Hún tók það sérstaklega fram að
allur aðbúnaður hjá ísal væri til
fyrirmyndar.
SYNGJANDI BOND
Roger Moore hefur
upp raust sína
Breski leikarinn Roger Moore,
sem leikið hefur Ieyniþjónustu-
manninn James Bond í ótal kvik-
myndum, mun syngja eitt af aðal-
hlutverkunum í söngleik eftir
Andrew Lloyd Webber, sem færður
verður upp 1 Lundúnum i aprílmán-
uði. Roger Moore hefur aldrei áður
sungið opinberlega svo vitað sé en
fréttir herma að Webber hafi grátið
af hrifningu og gleði er hann heyrði
ljúfa baritón-rödd leikarans og ráð-
ið hann á staðnum.
Söngleikurinn nefnist á enskri
tungu „Aspects of love“ (Kraft-
birtingarform kærleikans) og fjallar
um ástir ungs Englendings og blás-
nauðrar franskrar leikkonu. Moore,
sem er 61 árs að aldri, mun hafa
hlutverk Sir George Dillinghams
með höndum en hann er sagður
minna á James Bond um margt og
mun þannig þeytast á milli ást-
kvenna sinna í París og Róm. Fyrsta
sýningin verður 10. apríl og mun
allur ágóði af henni renna til Iíknar-
mála. Elísabet Bretadrottning verð-
ur viðstödd ásamt öðru stórmenni
og skal áhugasömum bent á að
aðgöngumiðum fer ört fækkandi.
Með forsöngvurum á bamaballinu.
Ljósmynd/Silli
BARNABALLIÐ
Linda Pétursdóttir
sækir Húsvíkinga heim
Húsavik. Frá fréttaritara Morgunblaðsins.
Heiðursgestur á bamaballi
Kvenfélags Húsavíkur var
ungfrú alheimur, Linda Pétursdótt-
ir. Hún man sitt fyrsta bamaball
sem var á Húsavík og segist eiga
margar ljúfar minningar frá þeim
tíma sem hún var bam á Húsavík.
Kvenfélagið hefur gengist fyrir
bamaböllum síðan um aldamót.
Margir eiga góðar minningar frá
þeim, ekki síst þeir sem famir eru
að eldast, því í bamæsku þeirra var
lítið sem ekkert um bamaskemmt-
anir svo bamaballið var einstæður
atburður hvers árs. Nú mun bama-
ballsins á Húsavík verða minnst
sérstaklega vegna nærveru Lindu,
sem gaf sér góðan tíma til að ræða
við bömin, gefa eiginhandaráritanir
og láta mynda sig með þeim. Eftir
að bamaballinu lauk sátu ættingjar
fegurðardrottningarinnar með
henni kvöldverð, en hún á marga
að hér á Húsavík.
PÓLLAND
Walesa
til Noregs
Frá því hefur verið skýrt að Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu í Pól-
landi, hafí þegið boð um að koma til Noregs núna í vor. Gera
Norðmenn sér vonir um að Walesa fái fararleyfi hjá pólskum yfirvöld-
um. Það er Kjell Magne Bondevik, formaður Kristilega þjóðarflokksins
í Noregi, sem fór til Gdansk nú í byijun janúar, ræddi við Walesa og
bauð honum til Noregs. Hér sjást þeir á gangi í Gdansk, Walesa og
Bondevik.
COSPER
Konan mín krafðist þess að fá að r&ða skrifstofustúlkumar.