Morgunblaðið - 13.01.1989, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 13.01.1989, Qupperneq 43
foém FOLK ■ NAPÓLÍ og Inter Mílanó leiða saman gæðinga sína í ítölsku deildarkeppninni um komandi helgi og verður sjálfsagt hart barist, enda er aðeins þriggja stiga munur á lið- unum og skipa þau fyrsta og þriðjja sætið. Diego Maradona mun leika með félögum sínum þótt hann eigi við meiðsli að stríða. Slæmir bak- verkir hrjá hann og þarf að gefa honum stífan skammt af cortisoni __ fyrir leikinn. ■ ANNAR leikur í ítölsku deild- inni er forvitnilegur, Juventus sem er í þriðja sæti heimsækir Fiorent- ina sem hefur sótt verulega í sig veðrið að undanfömu. Allesandro Altobelli leikur líklega ekki með Juventus vegna meiðsla og munu því allir þrír útlendingar liðsins leika, Michael Laudrup, Lui Bar- ros og Alexander Zavarov. ■ MIKID hefur gustað um Ron Atkinson, knattspymufram- kvæmdastjórann litríka eftir að hann gerðist stjóri hjá spænska lið- inu Atletico Madrid fyrir yfir- standandi keppnistímabil. Liðinu hefur gengið upp og ofan, en veritMH heldur í sókn. Atkinson er þó ekki sérlega vinsæll meðal forráða- manna og leikmanna liðsins, eink- um þó vegna þess að hann er linur að læra spænskuna og vill endilega lesa yfir sínum mönnum á ensku. ■ ALLS hafa nú 31 leikmaður og þjálfarar belgíska knattspymu- liðsins Ghent verið formlega ákærðir fyrir skattsvik á árunum 1981 til 1983, en um þær mundir var félagið að fara á hausinn og falla í 2. deild. Meðal þeirra ser^—. ákærðir em má nefna kunna kappa eins og Sören Busk, danski lands- liðsmaðurinn, Hollendingurinn Ce- es Schapendonk og belgíski lands- liðsmaðurinn Michael De Wolf. ■ MICHELA Figini gerði sér lítið fyrir og sigraði í brunkeppni HM-mótanna í brani kvenna. Hún er þvf búin sýna heldur betur hvers hún er megnug, en þetta var 12. sigur hennar í heimsbikarbrani. Beatrice Gafiaer varð önnur, en óvænt í þriðja sætinu hafnaði Ca- role Merie frá Frakklandi, en hún náði sínum besta tíma fyrr og síðar. Púttkeppni Amorgun verður opin pútt- keppni haldin í Golfskólanum, Bíldshöfða 16. Keppni hefst kl. 11 og lýkur kl. 16. Skráning fer fram í Golfskóla Johns Drammonds. Hvað sögðu þeir? „Off mikið áiag“ - sagði Héð'mn Gilsson Héðinn Gilsson var á allra vör- um eftir frábæra frammistöðu gegn Dönum í fyrrakvöld, en hann náði sér ekki á strik gegn Búlgör- um. „Ég var hreinlega búinn eftir leikinn gegn Dönum. Við höfum nú leikið þijá leiki á þremur dögum og það er of mikið álag fyrir mig. Ég er hreinlega ekki í nógu góðri æfingu fyrir svona mikil átök, en þá er bara að bæta úr því. Liðið hefur oft leikið betur en gegn Búl- göram, en samt var munurinn fímm mörk og því óttast ég þá ekki í B-keppninni í Frakklandi." Einar Þorvaröarson „Búlgarir era seigir og vara- samir. Þeir hanga á boltanum og við megum alls ekki vanmeta þá. Skyttumar okkar vora greinilega þreyttar og því skutu þær oft beint í fangið á markverðinum, en við eram komnir í gang og ég er bjart- sýnn á nánustu framtíð." Jón Hjaltalín Magnússon „Strákamir hafa staðið sig vel í þessari ferð, en gegn Búlgöram sást að aldrei má slaka á, því þá er voðinn vís. Við læram af mistök- unum og ég er viss um að liðið gerir betur gegn Austur-Þjóðverj- um í Laugardalshöll um helgina. Þá fá íslendingar að sjá góða leiki og búast má við mikilli baráttu eins og ávallt, er þessi lið mætast." Vesslin Penchev, þfálfarl Búlgara „íslenska Jiðið. er gott, en var óheppið á Ólympíuleikunum. Það þarf hins vegar að leika betur í B-keppninni en gegn okkur, ef það ætlar að komast í hóp hinna bestu á ný, þar sem það á samt heima. Við eigum hins vegar langt í land, en reynum okkar besta. Ég var vonsvikinn er íslendingar þáðu ekki boð um að koma til Búlgaríu, en boðið stendur eftir B-keppnina og mitt lið er mjög gott til að æfa sig á.“ Jafntefli í hörkuleik SVÍAR og Danir skildu jafnir, 19:19, í lokaleik Eyrarsunds- mótsins í handknattleík og nœgði það Svíum til sigurs á mótinu. Leikurinn var sá besti á mótinu, hraður og spennandi fram á síðustu sekúndu og Danir voru í raun óheppnir að fara ekki með sigur af hólmi eins og leikurinn þróaðist í seinni hálfleik. Hafa þeir sýnt mikinn stíganda í leikjum sínum á mótinu og virðast vera að ná á ný gömlum styrkleika. Það var jafnt á flestum tölum leikinn á enda, en í hálfleik leiddu Svíar 9:8. í fyrri hálfleik hélt Mats Olson í marki Svía liði mgmi sínu á floti með stór- Frá kostlegri mark- Grími vörslu, varði eigi Friðgeirssyni sjaldnar en tíu sinn- iDanmorKu um gkot ^ dauða_ færam. í seinni hálfleik vora það Danir sem vora yfirleitt fyrri til að skora, en undir lokin var það „Faxi", eða Staffan Olson, sem bjargaði andliti Svía. Hann reif sig upp, ógnaði gífurlega, en læddi svo knettinum hvað eftir annað á línuna og úr því komu mörk. Markhæstir Dana vora Kim Jak- obsen 5, Bjame Simonsen 3 og Michael Fenger 3, en markhæstir Svía vora Magnus Cato 6, Ola Lind- gren 4 og Bjöm Jilsen 3/3. MORGUNBLAÐŒ) ÍÞROTTIR FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989 Elnar Þorvarðarson var jafnbest maður íslands á Eyrarsundsmótinu og stóð sig vel gegn Búlgöram. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD Mótmæla vinnubrögðum HSÍ „SAMTÖK1. deildarfólaga karla í handknattleik mót- mœlt harðlega þeim ógeð- felldu vinnubrögðum sem við- höfð hafa verið af fram- kvæmdastjórn H.S.Í. og landsliðsnefnd A-liðs karla í sambandi viðfrestun 13. umferðar á íslandsmóti 1. deildar karla." Þannig hljóðar símskeyti, sem samtök 1. deildarfélaganna sendu Mótanefnd og framkvæmda- stjórn HSÍ á miðvikudags- kvöldið, eftir fund samtak- anna þar sem f ulltrúar átta af tíu 1. deildarfólögunum voru mættir. Afréttamannafundi samtak- anna í gær kom fram að stjómarmenn HSÍ hafa beitt ýms- um brögðum til að fá fram frestun á 13. umferðinni. Stjómarmenn HSÍ tóku menn út í hom á leikjum 8. janúar og þeim tilkynnt að þeir væru einir eftir til að sam- þykkja frestun. Þann dag vora skrifaðar tvær beiðnir um frestun. Frá einu félaginnu var beiðni um frestun skrifuð aftan á boðsmiða frá' landsleik íslands og Dan- merkur á dögunum. Vinnubrögð HSÍ-manna gengu svo langt, að formaður HSI hafði samband við Margréti Kristjáns- dóttur, formann handknattleiks- deildar Gróttu og sagði að aðeins tvö félög væra eftir að samþykkja frestun. „Ég sagði þá við Jón Hjaltalín að við Gróttumenn, sem væram á móti frestun umferðar- innar, yrðum þá að beygja okkur fyrir ósk meirihlutans. Nú hefur það komið á daginn að Jón Hjaltalín sagði ekki rétt og satt frá. Þá eins og áður var meiri- hluti 1. deildarfélaganna á móti frestun," sagði Margrét. „Vinnubrögðin sem stjómar- menn HSÍ hafa beitt era hreint furðuieg," sagði Sigurður Hjalta- son, formaður handknattleiks- deildar Breiðabliks og Kristján Öm Ingibergsson, formaður handknattleiksdeildar KR, tók í sama strang og sagði að vinnu- brögð HSÍ væra óþolandi. HSÍ- menn hafi endalaust boðað til funda, þrátt fyrir að þeir vissu að meirihluti væri á móti frestun 13. umferðar, hrært upp í mönn- um og flækt málið endalaust. „Það er kominn tími til að stöðva yfirgang HSÍ-forystunnar, sem tekur ekkert mark á óskum 1. deildarliðanna. Það er ekki nóg að HSÍ-menn hafí endalaust farið inn á fjáröflunarleiðir félaganna, heldur telja þeir að þeir ráði einn- ig yfir leikmönnum félaganna. Það hefur endalaust verið komið aftan að forráðamönnum 1. deild- arfélaganna. Jafnvel logið - til að ná sínu fram. Þá þróun verður að stöðva," sagði Kristján Öm. Forráðamenn 1. deildarliðanna segir að búið sé að fresta leikjun- um, þannig að ekkert sé hægt að gera í því. Þeir vildu aðeins mót- mæla vinnubrögðum HSÍ-manna. Þess má geta að 1. deildarkeppn- in hefst aftur 5. mars, þannig að það er tveggja mánaða frí í deild- inni. Nokkuð sem var ekki inn í myndinni, þegar samtök 1. deild- arfélaganna og stjómarmenn HSÍ gerðu breytingar á deildarkeppn- inni í byijun desember, til að landsliðið fengi tíma til að und- irbúa sig fyrir B-keppnina í Frakklandi. Lokastaðan SVÍÞJÓÐ- ÍSLAND......... DANMÖRK- BÚLGARÍA....... ÍSLAND- DANMÖRK......... BÚLGARÍA- SVÍÞJÓÐ....... ÍSLAND- BÚLGARÍA........ SVÍÞJÓÐ - DANMÖRK ...... ......25: 24 ......28: 20 ......24: 22 ......21:27 ......22:17 Fj.leik a U J T Mörk Stlg SVÍÞJÓÐ 3 ÍSLAND 3 DANMÖRK 3 BÚLGARÍA 3 2 1 0 71:64 5 2 0 1 70:64 4 1 1 1 69:63 3 0 0 3 58:77 0 Búlgarar engin hindrun „ÉG er ánægöur meö sigurinn, en úrslitin gefa ekki rótta mynd af getu liöanna, því íslenska • liöiö er mun betra og átti aö . sigra með mikið meiri mun,“ sagði Gunnar Kjartansson, gjaldkeri HSÍ, við Morgunblað- ið eftir 22:17 sigur íslands gegn Búlgaríu í Eyrarsunds- mótinu í gærkvöldi. Óhætt er að taka undir þessi orð, þvf lið Búlgara á langt í land og með eðlilegum leik hefði sigur ís- lands orðið mun meiri. Leikur íslenska liðsins bar þess greinileg merki að sumir leik- mennirnir vora þreyttir eftir tvo erfiða leiki. Mistökin vora því meiri en eðlilegt getur tal- ist en engu að síður lék liðið mjög vel á köflum, brást ekki er mest á reyndi og sigurinn var aldrei í hættu. Meðan Frá Grími Fríðgeirssyni i Danmörku Ísland-Búlgaría 22 : 17 Helsingerhallen í Helsingar, Eyrar- sundsmótið f handknattleik, fimmtu- daginn 12. janúar 1989. Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 2:2, 6:2, 5:5, 8:5, 8:6, 9:6, 10:6, 10:9, 11:9, 11:10, 12:10, 12:11, 14:11, 14:12, 15:12, 16:13, 18:13, 18:16, 21:16, 21:17, 22:17. tsland: Kristján Arason 5, Sigurður Sveinsson 6/4, Guðmundur Guðmunds- son 4, Þorgils Óttar Mathiesen 3, Valdi- mar Grímsson 2, Birgir Sigurðsson 1, Sigurður Gunnarsson 1, Júlfus Jónas- son 1, Páll Ólafsson, Héðinn Gilsson. Varin skot: Einar Þorvarðarson 8/1, Hrafn Margeirsson. Utan vallar: Átta mfnútur. Búlgaria: Barrovski 3, Daviskov 2, Bodourov 2, Marinov 2, Nikolov 2, Mashev 2, Vassilev 2, Atanassov 1, Matev 1. Varin skot: Machkov 10. Utan vallar: Pjórar mfnútur og ein útilokun. Áhorfendur: Um 300. Dómarar: Niels Knudsen og Henrik Mortensen frá Danmörku dæmdu ágætlega. krafturinn var í lagi vora móther- jamir í litlum aukahlutverkum og eftir að hafa gloprað boltanum horfðu þeir á árangursrík hrað- aupphlaup íslendinga. En íslenska liðið fór líka oft illa að ráði sínu, einkum í sókninni. Versti kaflinn var í byijun seinni hálfleiks, en lið- ið náði sér upp úr öldudalnum og lauk leiknum með sóma. Það er alltaf erfitt að spila gegn mun lakari mótherjum og það hafði einnig sín áhrif. Búlgarar spila gamaldags handbolta, virðast ekki vera með nein leikkerfi en hanga lengi á boltanum og reyna síðan að hnoða sér í gegn. Einar Þorvarðarson var góður í markinu, Kristján Arason stóð sig vel í sínum 200. landsleik og Sigurð- ur Gunnarsson stjómaði spilinu af röggsemi. Lið Búlgara var jafnt, en mark- vörðurinn bjargaði þvi frá enn stærra tani. HANDKNATTLEIKUR / EYRARSUNDSKEPPNIN GOLF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.