Morgunblaðið - 28.01.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 19'89
11
Vissu þeir ekki hvað
þeir voru að samþykkja?
- Guðmundi G. Þórarinssyni svarað
eftir Geir H. Haarde
í þremur greinum um skattamál
í síðustu viku rakti ég ítarlega hin-
ar gríðarlegu skattahækkanir ríkis-
stjómarinnar og margháttuð áhrif
þeirra.
Eitt af því sem ég vakti athygli
á er sú ótrúlega háa krafa sem
óbeint er gerð til ávöxtunar eigna
eftir hinar gríðarlegu hækkanir
stjómarliðsins á eignarsköttum.
Nú hefur Guðmundur G. Þórar-
insson alþm. beint til mín fyrir-
spum í Morgunblaðinu og óskað
nánari skýringa á „athyglisverðum
arðsemisútreikningum" mínum.
Hér gætir að vísu ónákvæmni hjá
fyrirspyijanda því ég hef ekki gert
neina „arðsemisútreikninga" og
hvergi minnst á arðsemi í þessu
sambandi.
Eg hef hins vegar leyft mér að
draga fram nokkrar staðreyndir um
hve tekjur af eignum þurfa að vera
miklar til að eignarskattur verði
ekki þyngri en tekjuskattur. Slík
viðmiðum er ekki óeðlileg því eign-
arskattar greiðast vitanlega af
þeim tekjum sem eignir gefa af sér
eða öðrum tekjum eiganda. En það
er misskilningur að blanda upplýs-
ingum af þessu tagi saman við
útreikning á arðsemi eins og Guð-
mundur G. Þórarinsson gerir.
Hvemig er ávöxt-
unarkrafan fundin?
Ég bendi m.a. á að til að greiða
2,95% eignarskatt þarf eignin að
ávaxtast um 7,8% á ári sé miðað
við álagningarhlutfall tekjuskatts
og útsvars, 37,74%. Það er einfald-
lega vegna þess að 2,95 er 37,74%
af 7,8.
Tökum dæmi af einnar milljón
króna eign eða eignarhluta sem
lendir í 2,95% eignarskatti og sem
því þarf að greiða af 29.500 króna
eignarskatt skv. nýju lögunum. (Sú
fjárhæð hefði verið 12.000 að
óbreyttum lögum).
Augljóst er að þessi eign verður
að skila eiganda 2,95% raunvöxtum
eða 29.500 krónum til þess eins
að unnt sé að greiða eignarskatt-
inn. Ef tekjumqr eru ekki meiri
fara þær allar í að greiða hann og
jafngildir hann þá 100% tekju-
skatti. Sé aftur á móti miðað við
að eignarskattar leggist ekki
þyngra á fólk en tekjuskattur og
útsvar verður eignin að gefa af sér
Geir H. Haarde
„Ég bendi m.a. á að til
að greiða 2,95% eignar-
skatt þarf eignin að
ávaxtast um 7,8% á ári
sé miðað við álagning-
arhlutfall tekjuskatts
og útsvars, 37,74%. Það
er einfaldlega vegna
þess að 2,95 er 37,74%
af 7,8.“
78.166 krónur í tekjur eða rúmlega
7,8% af eigin verðmæti. Af þeirri
fjárhæð greiðast þá 29.500 eða
37,74% í eignarskattinn.
Ávöxtunarkrafan eða þeir raun-
vextir sem eignin verður að gefa
af sér í hlutfalli við eigið verðmæti
er því rúmlega 7,8%. Með 'þessu
móti má einnig komast að því að
eign sem á leggjast 6,4% eignar-
skattar verður að skila tæplega
17% ávöxtun. Séu eignartekjumar
einnig tekjuskattsskyldar verður
eignin að gefa enn meira af sér.
Fór fleira fram hjá þeim?
Guðmundur G. Þórarinsson er
ekki sá stjómarþingmanna sem
lengst hefur viljað ganga í að
hækka skatta á almenningi. E.t.v.
réði andstaða hans úrslitum um að
fjármálaráðherra og félögum tókst
21150- 21370
LARUS Þ. VALDIMARSSOIM framkvæmd'astjori
LÁRUS BJARNASOM HDL. LOGG. FASTEIGNASALI
Til sýnis og sölu meöal annarra eigna:
Á útsýnisstað í Garðabæ
Nýlegt steinhús rúmir 300 fm nettó. Stór hornlóð - skrúðgarður.
Neðrí haeð 2 góð forstofuherb. Sérsnyrting. Saunabað og hvfldarherb.
Góð geymsla. Tvöf. bílsk. með vinnuplássi.
Efrí hæð 5 herb. mjög stór íb. Úrvals frágangur á öllu. Ákv. sala.
Glæsileg íbúð í lyftuhúsi
Vlð Þangbakka 2ja herb. íb. á 2. hæð 62 fm nettó. Rúmgóöar svalir.
Ágæt sameign. Einn af vinsælustu stöðum borgarinnar. Akv. sala.
4ra herb. íbúðir
f Heimunum á 4. hæð 107,4 fm. Nokkuð endurn. Herb. í kj.
í Laugameshverfi á 3. hæö í fjórbýli um 100 fm. Nýtt gler. Sólsvalir.
Geymsluris. Góð lán.
3ja herb. íbúðir við
Skeggjagötu efri hæð. Ekki stór. Nýtt eldh. Nýtt gler. Þríb.
Barónsstíg góð rishæð. Nýl. gluggar, kvistir og svalir. Gott verð.
Traustir kaupendur óska eftir
sórbýli í Mosfellsbæ - raöhúsi eða einbýlishúsi.
3ja-4ra herb. rúmgóðri ib. með sérínng.
Einbýlishúsi á einni hæð um 200 fm í borginni eða nágrenni.
4ra herb. íb. helst í lyftuhúsi viö Fannborg Kóp. Skipti mögul. á góðu
raðh. í Kópavogi með rúmgóðum bílskúr.
Margskonar eignaskipti. Margir bjóða útborgun fyrir rótta eign.
Opið í dag laugardag
kl.10.00tH kl. 16.00.
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
AIMENNA
FASTEIGNASAi t N
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
ekki að leggja happdrættisskatt á
góðgerðarstofnanir, menningar- og
íþróttastarfsemi. En sú spuming
hlýtur að vakna við lestur greinar-
stúfs Guðmundar hvort hann og
aðrir stjómarþingmenn hafi ekki
vitað hvað þeir vom að samþykkja
þegar þeir renndu skattafmmvörp-
unum á mettíma í gegnum Alþingi
fyrir jólin.
Fór það líka framhjá Guðmundi
og flokksbræðmm hans að verið
væri að hækká eignarskatta á þeim
tæplega 50 þúsund gjaldendum
sem greiða um 26,3% umfram 28%
hækkun fasteignamats á íbúðar-
húsnæði? Eða að eftirlifandi maki
í óskiptu búi getur þurft að greiða
meira en tvöfalt hærri eignarskatt
en hjónin til samans áður?
Ég vona að Guðmundur hafí les-
ið um þessi atriði í grein minni af
meiri athygli en það sem varð til-
efni fyrirspumar hans. Mig gmnar
að hann og aðrir sómakærir stjóm-
arþingmenn muni vakna upp við
vondan draum næsta sumar þegar
fólk fær eignarskattsálagningu
sína í hendur.
Höfiindur er alþingismaður fyrir
Sjálistæðisfiokkinn íReykjavík.
Kammersveit
Reykjavíkur
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Kammersveit Reykjavíkur hefur
starfað í fimmtán ár og stóð fyrir
tónleikum í íslensku óperunni sl.
fimmtudag þar sem eingöngu var
flutt frönsk tónlist, svo sem eins
og ráðgert er að gera á öllum tón-
leikum þessa starfsárs.
Að þessu sinni voru flutt verk
eftir Saint-Saéns, Faure, Ravel og
Franck. Tónleikamir hófust á Sept-
ett op. 65 eftir Saint-Saéns, fyrir
trompett, píanó og strengjakvart-
ett. Trompetleikari var Eiríkur Öm
Pálsson, píanóleikari Guðríður S.
Sigurðardóttir, en strengjakvart-
ettinn, sem einnig lék í síðasta
verki tónleikanna, var skipaður Rut
Ingólfsdóttur, systrum hennar Evu
Mjöll og Ingu Rós en á lágfiðlu lék
Sarah Buckley. Septettinn var í
heild ágætlega fluttur, þó að
trompettleikur Eiríks væri nokkuð
langt frá því að vera franskur.
Þijú sönglög, eftir Faure, voru
mjög vel flutt. Þar unnu vel saman
Signý Sæmundsdóttir og Guðríður
S. Sigurðardóttir. Signý flutti einn-
ig „Söngva frá Madagaskar", eftir
Ravel, ásamt Martial Nardeau á
flautu, Ingu Rós á selló og Guðríði
á píanó. I heild var flutningur
söngverkanna vel unninn og söngur
Signýar eftirtektarverður, sérstak-
lega í „Fleur jetée" eftir Faure og
í „Aoua“, sérkennilega mögnuðu
lagi eftir Ravel.
Hápunktur tónleikanna var
flutningur á píanókvinett eftir Cés-
ar Franck en með strengjakvartett-
inum lék Selma Guðmundsdóttir á
píanóið. Kvintett Francks er feikna
erfíð tónsmíð í flutningi, er var á
köflum glæsilegur og ekki á neinn
hallað, þó því sé hér skotið með,
að Selma hafi skilað sínu erfíða
hlutverki sérlega vel.
Eftir um það bil mánuð mun
draga til nokkurra tíðinda í far-
sælu starfi Kammersveitar
Reykjavíkur en þá er ráðgerður
flutningur á „Des Canyons aux
Étoiles" eftir snillinginn Olivier
Messiaen, undir stjóm Paul Zukof-
skys, og mun Anna Guðný Guð-
mundsdóttir annast píanóeinleikinn
í verkinu, ásamt 44 hljóðfæralei-
kurum undir forystu Rutar Ingólfs-
dóttur. Rut hefur í fimmtán ár stað-.
ið fyrir flutningi kammertónlistar
og sannarlega ekki grafið sitt pund
í jörðu, en auðgað íslenska menn-
ingu mörgu því sem munað verður,
sem mun þó vera einu þakkimar
er henni hefa hlotnast, utan „klapp
í lófa", svo sem er vera venja þeg-
ar menningin er annars vegar.
CH
CATERPILLAR
LYFTARAR
þegar mest á reynir
LYFTIGETA 2,5 OG 3 TONN
TIL AFGREIDSLU STRAX
MIÖG HAGSTÆTT VERB
HF
, Laugavegi 170-174 Slmi 695500
Q CATERPILLAR
YFIR 40 ARA FORVSTA Á ÍSLANDI
I