Morgunblaðið - 28.01.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989
19
Tel lagaheimild fyrir
sameiningu BI og
Samvinnutrygginga
- segir Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
„ÉG TEL lag-aheimild fyrir sameiningu Samvinnutrygginga og Bruna-
bótafélags íslands fyllilega fyrir hendi. Þarf ekki neina lagabreytingu
til þess að svona félag sé stofiiað með aðild BÍ, þar sem skuldbinding-
um og hlutverki þess gagnvart sveitarfélögunum til dæmis verður
haldið áfiram. Sameiningin er ekki formlega firágengin enn. Ég bíð
eftir umsögn frá Tryggingaeftirlitinu en er hlynntur sameiningunni.
Hún er skref í rétta átt til hagræðingar og styrktar tryggingastarfsemi
í landinu. Formlegt leyfi ráðuneytisins kemur þó ekki fyrr en að feng-
inni umsögn Tryggingaefitirlitsins," sagði Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðis- og tyrggingamálráðherra, í samtali við Morgunblaðið.
„Þama er ekki verið að tala um
sameiningu tryggingafélaganna,
heldur samstarf og nýjan samstarfs-
vettvang, sem yrði með nýju trygg-
ingafélagi. Félögin bæði hafa áfram
skyldum að gegna við þau bæjarfé-
lög, sem þau hafa samið við um
bmnatryggingar fasteigna. Það er
að sjálfsgöðu áfram hlutverk BÍ að
annast þær tryggingar áfram. Það
samningstímabil, sem nú er í gildi,
rennur ekki út fyrr en í október 1990.
Brunabótafélagið er áfram starfandi
sem slíkt og getur það gert samn-
inga við sveitarfélög að nýju eftir
sem áður, óski þau eftir tiyggingum
hjá félaginu frekar en einhveiju öðm
tryggingafélagi.
Lagaheimildina til slíks samstarfs
teljum við að sé að fínna í lögnunum
um BI þar sem sagt er að hægt sé
að fela félaginu ákveðinn rekstur og
Guðmundur Bjarnason
heilbrigðisráðherra
starfsemi og það geti sem slíkt leitað
samstarfs við önnur tryggingafélög,
hvort sem er með nýjum deildum um
einstaka þætti eða þátttöku í sérstök-
um félögun," sagði Guðmundur
Bjamason.
Sameining Brunabótafélags og Samvinnutrygginga:
Efasemdir um lagalegar forsendur
lagsins með formlegum hætti, sagði
Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri í
Stykkishólmi, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Þetta mái kom okkur
sveitarstjómarmönnum mjög á óvart
og ekki hefur unnizt tími til að kanna
lagalegar forsendur fyrir afgreiðslu
málsins, eins og hún hefur átt sér
stað. Ég hef þó efasemdir um að þær
séu nægilegar traustar.
Fulltrúaráð Brunabótafélagsins er
skipað fulltrúum sveitarfélaga, sem
eru í viðskiptum við það, sem og
fulltrúum sýslunefnda, nú héraðs-
nefnda, ef hréppar innan þeirra
svæðis eru í viðskiptum við félagið.
Bmnabótafélagið hefur verið mikil-
vægur bakhjari sveitarfélaganna,
sagði Sturla, og þau hafa litið á fé-
lagið sem sína eign. Sveitarfélögin
hafa og lengst af notið góðrar fyrir-
greiðslu hjá Bmnabót, þótt sigið
hafa á hina verri hliðina seinni árin.
Ég sé ekki að í lögum um Bmna-
bótafélagið nr. 9 frá 1955 felizt
heimild til annarra umsvifa en þeirra,
er félagið hefur annast til þessa.
Hinsvegar er nauðsynlegt að sveitar-
stjómunum gefíst tími til að kanna,
hvort þessi útvíkkun á starfseminni
sem að er stent, samræmist lögum
félagsins og hagsmunum sveitarfé-
laganna.
Fulitrúaráðsfundur hefur verið
boðaður á morgun (laugardag). Þar
verður málið kynnt. Ég trúi því ekki
að til þess sé ætlast að tekin verði
endanleg afstaða til málsins á fyrsta
kynningarfundi málsins, þó það
kunni að hafa fengið einhveija um-
ræðu í stjóm félagsins. Það hefur
ekki unnizt tími til að fjalla um
málið í sveitarstjómum almennt, sem
væri eðilegur gangur málsins.
segir Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri
Sameining Brunabótafélagsins og Samvinnutrygginga kemur til
umræðu á ftindi fulltrúaráðs Brunabótafélagsins í dag, en hefiir ekki
verið rædd á þeim vettvangi áður. Fulltrúaráðið er skipað fulltrúum
sveitarstjórna og héraðsnefnda, sem hafa samning við Brunabót um
brunatryggingu fasteigna. Sveitarstjómarmenn velta nú fyrir sér laga-
legum forsendum fyrir þessari sameiningu sem og hvera veg hún
kemur við hagsmuni sveitarfélaganna og íbúa þeirra, eins og fram
kemur í stuttu viðtali við Sturlu Böðvarsson, bæjarstjóra í Stykkishólmi.
Samþætting Brunabótafélags ís- ekki verið kynnt fulltrúum sveitar-
lands og Samvinnutrygginga hefur stjóma í fulltrúaráði Brunabótafé-
Stúdentaráð HÍ;
Röskva lýsir málefna-
samning viö Vöku ógildan
Vanvirtu hann hvort sem var,
segir formaður SHI
RÖSKVA, samtök félagshyggjufólks í Háskóla Islands, hafa lýst þvi
yfir að þau telji úr gildi fallinn málefiiasamning þann, sem Röskva og
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, hafa hafit með sér um störf
Stúdentaráðs HÍ. Ástæðuraar segja Röskvumenn vera þær, að stúdenta-
ráðsliðar Vöku hafi þverbrotið samninginn. Röskva lagði fram van-
trauststillögu á stjóra SHÍ á fundi ráðsins á fimmtudagskvöld, en hún
féll á jöfhum atkvæðum, 15 gegn 15.
Á blaðamannafundi, sem Röskva
hélt í gær, sögðu forráðamenn félags-
ins að afstaða Vöku í lánamálum
námsmanna réði megtu um van-
trauststillöguna. Á stúdentaráðs-
fundinum á fímmtudag hefðu Vöku-
menn reynt að hindra að bráða-
birgðaálit starfshóps menntamála-
ráðherra um námslán næði fram að
ganga. Vökumenn lögðu fram á fund-
inum tillögu til ályktunar, þar sem
hækkun framfærslugrundvallar lána,
sem gert er ráð fyrir í álitinu, er
fagnað, en hækkun tekjutillits úr 35%
í 50% hins vegar haftiað nema full
leiðrétting skerðingar námslána frá
1985 komi til. Lögðu Vökumenn
siðan fram dagskrártillögu um að
bráðabirgðaálitið yrði tekið á dagskrá
fundarins, rætt í einstökum liðum og
þeir bomir upp til atkvæða. Sögðu
þeir til að stúdentaráðsliði Röskvu,
Finnur Sveinsson, sem einnig á sæti
í starfshópi ráðherra, legði fram álit-
ið. Finnur neitaði því hins vegar á
þeim forsendum að álitið væri til
umræðu í samstarfsnefnd náms-
mannahreyfínga og ef Vökumenn
vildu að SHÍ ijallaði um það, ættu
þeir sjálfir að leggja fram ályktunar-
tillögu um efni álitsins í heild.
Sveinn Andri Sveinsson, formaður
SHÍ, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að lítið mark væri takandi á
ásökunum Röskvu um samningsbrot
Vökumanna. Röskva hefði sjálf
margbrotið málefnasamninginn, en
Vaka ekki. „Málefnasamningurinn
sem slíkur hefur verið ónýtt plagg
hvað Röskvumenn varðar undanfarin
misseri, og þessar yfírlýsingar eru
því ekkert annað en formleg stað-
festing á afstöðu þeirra í vetur,“ sagði
Sveinn Andri.
Hann sagði að yfirlýsing Röskvu
myndi því ekki koma niður á störfum
SHÍ. „Þessi 15-15 staða í ráðinu í
vetur hefur auðvitað verið mjög sér-
stök. Stjórnin hefur þó starfað af
krafti að sínum málum og auðvitað
reynt að fá samstöðu stjómarand-
stöðunnar. Það hefur gengið afar illa,
en við höfum ekki látið það stöðva
okkur. Störf okkar I vetur sýna bezt
hvað vantrauststillagan er furðuleg.
Við höfum stóreflt starfsemi SHI.
Tilraun Röskvu til að gera lítið úr
störfum okkar sýnir auðvitað aðeins
að það er kominn kosningaskjálfti í
vinstri menn og þeir sjá fram á áfram-
haldandi fylgistap," sagði Sveinn
Andri.
©
INNLENT
Orðsending frá
Félag íslenzkra snyrtifrœðinga
Member of: Comité International d’ Esthétique dc Cosmétologie
Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að
enginn hefur leyfi til að reka snyrtistofu,
halda námskeið í snyrtingu eða stunda
annan rekstur, sem heyrir undir snyrti-
fræði, nema þeir sem hafa til þess rétt-
indi, sveins eða meistara í snyrtifræði.
Snyrtifræði er löggild iðn og brot á 15.
grein iðnlaga varðar sektum.
Ingi R. Helgason:
Forræðið hjá for-
stjóra og sljórn
Eins og fram kemur I fréttaviðtali við Sturlu Böðvarsson, bæjar-
stjóra, í Morgunblaðinu í dag, hefiur fiulltrúaráð Brunabótafélagsins,'
sem skipað er fulltrúum sveitarstjórna og héraðsnefiida, ekki enn
fjallað um sameiningu Brunabótafélagsins og Samvinnutrygginga.
Sumir sveitarstjórnarmenn hafa efasemdir um lagalegar forsendur
þessarar samþættingur og þýðingu hennar fyrir hagsmuni sveitarfé-
laganna, sem skipt hafa við Brunabót. Ingi R. Helgason, forstjóri
Brunabótafélagsins, er á öðru máli, eins og fram kemur í viðtali
við hann hér á eftir.
Það eru stjórnendur fyrirtækj-
anna, Brunabótafélagsins og Sam-.
vinnutrygginga, sem hafa forræðið,
mjög svipað og hjá Almennum og
Sjóvá, sagði Ingi R. Helgason, for-
stjóri Brunabótafélagsins. Stjóm
fyrirtækisins, sem kjörin er af
ftilltúaráði þess, og forstjóri þess í
umboði ráðherra, hafa þetta for-
ræði á hendi. Hjá þessum aðilum
liggur ákvörðunarvaldið í þessu
máli. Fulltrúaráðið fjallar hinsvegar
um málið og ályktar um það fyrir
sitt leyti.
Ingi R. sagði Brunabótafélagið
starfa samkvæmt lögum nr. 9 frá
1955. Hann sagði félagið gagn-
kvæmt ábyrgðarfélag vátryggenda,
samkvæmt lagabókstafnum. Ef að
nokkur á félagið, sagði hann, þá
em það þeir sem skipta við það og
falla undir þennan hóp. Hinsvegar
hefur þessi hópur ekki beina aðild
að stjóm félagsins með öðmm hætti
en að framan greinir.
Félagið er sett á fót með lögum.
Það fékk mjög ríkar lögheimildir í
upphafí 1915. Það vom allir skyld-
ugir til að tryggja hjá því. Þessi
einkaréttur var síðan felldur niður
1955. Þá fyrst kemur stjórn í félag-
ið. Stjómin er valin af fulltrúaráði,
sem fyrr segir, en það er skfpað
fulltrúum sveitarstjóma, sem hafa
samning við Bmnabótafélagið um
bmnatryggingar fasteigna, og
sýslunefnda - nú héraðsnefnda - ef
a.m.k. einn hreppur í sýslunni hefur
samning við okkur. Allar héraðs-
nefndir og allir kaupstaðir, utan
Reykjavík og Hafnarfjörður, eiga
hér hlut að máli.
Þessi aðild sveitarfélaga verður
söm og áður. Við emm ekki að
leggja Bmnabótafélagið niður. Það
er reginn misskilningur. Það verður
hinsvegar eignaraðili með Sam-
vinnutiyggingum að nýju og stóm
og voldungu vátryggingarfélagi.
Aðspurður að því, hvort Bmna-
bótafélagið hafi lagalegar forsend-
ur til starfsemi af því tagi sem sam-
eining við Savinnutryggingar felui*
í sér, sagði forstjórinn: Bmnabóta-
félagið hefur haft leyfi til þess að
ráðstafa fjármunum sínum til
kaupa á hlutabréfum í öðmm félög-
um og hefur gert það. Við stofnuð-
um t.d. Lýsingu hf. Það er fjármög-
unarfyrirtæki sem er I eigu Sjóvá,
Bmnabótafélagsins, Landsbankans
og Búnaðarbankans.
ÞAKLEKA - LEKA-
VANDAMÁL
Gerum við öll flöt þök.
Þéttum svalir og svalagólf.
Skiptum um gler í gluggum.
Leggjum flotsteypu í gólf.
I- xi
<1
ÞÉTTING HF. Alhliða viðhaldsþjónusta fyrir húseigendur.
Dagsími 651710 - Bílas. 985-23838. Fagmenn vinna verkin.
'/A
f?i
•V*
'ré
if> ■
f/'i
n
*ré
i*>v
^4
‘-.V'
^>v
'r>
k ?
v ► r>
&
'kr
EPAL
RÉTTARHOLTSVEGUR
þegar þú vilt vandaöa vöru.
FAXAFEN 5, SlMI: 68 56 80
V>TvVl4vVi