Morgunblaðið - 28.01.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1989
13
Ný íslensk verk á orgeltónleikum í Fríkirkjunni:
Hörður Askelsson leik-
ur til styrktar orgel-
sjóði Hallgrímskirkju
HÖRÐUR Áskelsson organisti í Hallgrímskirkju heldur næstkom-
andi sunnudag klukkan 17 orgeltónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík
á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Leikur hann verk eftir
íslensk og erlend tónskáld: Jón Nordal, Þorkel Sigurbjörnsson,
Áskel Másson, César Franck og Léon Boellmann. Tónleikar þessir
áttu upphaflega að vera í Kristskirkju en vegna viðgerðar á orgeli
kirkjunnar varð að xáði að fera þá i Fríkirkjuna. Aðgangseyrir
tónleikanna rennur i orgelsjóð Hallgrímskirkju en vonir standa til
að nýtt 70 radda orgel verði tekið í notkun þar innan þriggja ára.
— Orgel Fríkirkjunnar ffr
stærsta orgel í Reylqavík eftir að
það var stækkað og gert upp fyrir
nokkrum árum, segir Hörður
Áskelsson. Það hefur 38 raddir og
er hið næst stærsta á landinu eftir
orgeli Akureyrarkirkju. Orgelið
hentar mjög vel fyrir þessa efnis-
skrá með rómantískri tónlist vegna
hinna mjúku litbrigða grunnradd-
anna. Þá hentar það einnig vel til
flutnings á nútímatónlist vegna
hins nýja rafstýrða forvals radda.
Merkilegt orgel
Hörður segir að orgel Fríkirkj-
unnar sé sögulega eitt merkileg-
asta orgel landsins, fyrsta stóra
orgel landsins af gerðinni Sauer
og smíðað fyrir Pál ísólfsson eftir
fyrirmynd Reger-orgelsins í Tóm-
asarkirkjunni í Leipzig.
— Þegar orgel Fríkirkjunnar
var smíðað árið 1926 hafði Sauer
verið sameinað orgelfyrirtækinu
Walcker - en orgelið var samt
smíðað algjörlega í stíl Sauers.
Upp frá þessum tíma varð hinn
rómantíski orgelstíll að víkja, eink-
um vegna áhrifa svonefndrar org-
elhreyfíngar þar sem Albert
Schweitzer var í fararbroddi. Ró-
mantíska orgelið var úthrópað og
héldu fylgismenn hreyfingarinnar
því fram að ekki hefðu verið
smíðuð almennileg orgel eftir árið
1750. Þessi skoðun þeirra leiddi
til þess að fjöldi orgela á borð við
Sauer var í Þýskalandi látinn víkja
fyrir nýbarokkhljóðfærum sem oft
voru smíðuð af vanefnum. í síðari
heimsstyijöldinni var Sauer orgel-
unum næstum því útrýmt og fá
voru eftir í upprunalegri mynd.
Eitt þeirra er einmitt orgel
Fríkirkjunnar sem Sigurður Isólfs-
son hafði haldið við og umgengist
í áratugi af varfærni og hagleik.
Viðhorfín í orgelheiminum hafa
síðan breyst og nú er rómantíkin
aftur á uppleið. Menn hafa aftur
komið auga á kosti rómantískra
orgela og nauðsyn þess að viðhalda
orgelum í sem upprunalegastri
mynd. Organistar skipuleggja
gjaman tónleikaskrár sínar út frá
því hljóðfæri sem þeir leika á þann-
ig að barokkverk eru leikin á bar-
okkorgel og rómantísk verk á þau
rómantísku. Það eru í raun aðeins
stærstu orgelin sem smíðuð hafa
verið á síðustu áratugum sem búa
yfír þeim eiginleikum að á þau sé
hægt að leika flestar tegundir org-
eltónlistar.
Ný íslensk verk
Hörður segir vel hafa tekist með
breytingu Fríkirkjuorgelsins og
telur það fullkomnara hljóðfæri en
áður var. Nýjar raddir styrki og
auki hljóminn og rafstýringin gefí
fljótari svörun og mikla möguleika
í forvali radda. En hvað er að segja
um efnisskrá tónleikanna á sunnu-
dag?
— Efnisskráin er svipuð þeirri
sem ég flutti á þrennum tónleikum
í Þýskalandi á liðnu hausti. Þama
er um að ræða ný íslensk verk og
frönsk rómantísk verk. í þeim birt-
ast nokkur algengustu form orgel-
tónlistar, tokkata, sálmforleikur,
fantasía, sónata og svíta.
Tokkatan eftir Jón Nordal var
samin fyrir vígslu nýja orgelsins í
Dómkirkjunni árið 1985 og fmm-
flutt af Marteini H. Friðrikssyni.
Verkið er samið í minningu Páls
ísólfssonar. Sálmforleikur Þorkels
Sigurbjömssonar er í flokki sálm-
forleikja sem samdir vom fyrir
Ragnar Björnsson. Sálmalagið sem
liggur til gmndvallar er eftir Fjet-
Morgunblaoið/Bjami
Hörður Áskelsson organisti í Hallgrímkirkju við orgel Fríkirkjunn-
ar í Reykjavík.
ur Guðjónsson. Hljómar það hend-
ingu fyrir hendingu af einni tungu-
rödd orgelsins en millispilin em
unnin úr þrástefjum. Þrír kóralar
eftir César Franck teljast til þekkt-
ustu orgelverka en þeir em eins
konar fantasíur, tilbrigði um sál-
malög sem hann samdi sjálfur.
E-dúr kórallinn hefst á prelúdíu
sem birtir smám saman stef sál-
malagsins áður en það hljómar í
heild sinni. Áframhaldið em til-
brigði við þetta lag sem enda í
hápunkti þegar allar raddir orgels-
ins hljóma saman.
Þá er komið að verki Áskels
Mássonar sem hann samdi árið
1986 með styrk frá Listvinafélagi
Hallgrímskirkju og er hér um
frumflutning verksins að ræða
hérlendis. Þetta er sónata í þremur
þáttum sem byggð er á sama tó-
nefni og þættimir leiknir hver á
fætur öðmm án hlés. Síðasta verk-
ið er gotneska svítan eftir Boell-
mann sem er dæmigerð fyrir
franska orgeltónlist á slðustu öld.
Þetta verk er vinsælt og mikið leik-
ið af organistum og hentar hljómur
Fríkirkjuorgelsins verkinu sérlega
vel.
Nýtt orgel
innan þriggja ára
Sem fyrr segir rennur aðgangs-
eyrir tónleikanna í Fríkirkjunni í
orgelsjóð Hallgrímskirkju. Hörður
er spurður hvað líði samningum
um smíði þess:
— Það má segja að nú eigi að-
eins eftir að ganga frá endanlegum
samningum við þann orgelsmið
sem fyrir valinu varð en við vonum
að innan þriggja ára standi 70
radda orgel frá Klais í Bonn full-
búið í Hallgrímskirkju. Þegar hafa
borist margar veglegar gjafír og
hefur safnast upp í um það bil 20%
af kaupverði þess sem er kringum
ein og hálf milljón þýskra marka.
Við eigum þvi mikið átak fyrir
höndum að fjármagna það sem á
vantar og verður unnið að því
næstu misserin, segir Hörður að
lokum og vill um leið koma á fram-
færi þökkum til allra þeirra er lagt
hafa orgelsjóði lið fram til þessa
og forráðamönnum Fríkirkjunnar
færir hann þakkir frá Listvinafé-
lagi Hallgrímskirkju fyrir að hýsa
tónleikana nú.
Bílvangur og Búnaöardeild Sambandsins fagna snjókomu meö sameiginlegri sýningu í dag aÖ Höfðabakka 9.
Viö sýnum nýjan GMC Jimmy með 4,3 I vél, Isuzu Trooper, Yamaha vélsleöa og fjórhjól
ásamt margvíslegum búnaöi fýrir vélsleða- og jeppaáhugamenn.
Sýningin verður opin f rá kl. 13 till 7
Verið velkomin.___
fANGi
5IMI 687300
aÖ Höfðabalcka 9.