Morgunblaðið - 28.01.1989, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.01.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989 15 Vörubíll hlaðinn „tolkovaja“ Biblíum frá Finnlandi við Danilov- klaustur. Þrenningarkirkjan í baksýn. Piterim metropolitani, sem fer með útgáflimál rússnesku kirkjunn- ar, í kapellu aðseturs síns. Dreifíng „tolkovaja“ Biblíunnar Það líður að athöfninni í dóm- kirkju heilagrar þrenningar í Dan- ilov-klaustrinu. Klukkur kalla til hennar, lærðir og leikir streyma að, fulltrúar ýmissa kirkjudeilda eru hingað komnir, sumir langt að úr hinum víðlendu Sovétríkjum, m.a. lúterskur prestur frá Eistlandi og biskupar armensku og georgisku kirkjunnar og leiðtogar smærri kirkjudeilda og trúfélaga sem eiga ásamt rússnesk-orþodoxu-kirkjunni að njóta góðs af þeirri biblíugjöf, sem gestgjafar okkar norrænu full- trúanna ætla að veita viðtöku við guðsþjónustuna og helga gjöfina’ Guði. Eftir athöfnina gefst okkur færi á að ræða við þessa kristnu bræður um framkvæmd dreifingar „tolkovaja" Biblíunnar og hvernig þeim ábata, sem kirkjunni kann að verða af sölu bókanna, skuli varið. Er bundið fastmælum, að helming- ur þess fjár sem inn komi skuli standa straum af prentun og útgáfu nýrrar Biblíu og biblíubóka, en af- ganginum megi veija til annarra kirkjulegra þarfa og uppbyggingar- starfs. Það hafði vafist fyrir sumum norrænu fulltrúanna að rússneska kirkjan skuli í sumum tilvikum, e.t.v. mörgum, fá greiðslu fyrir þessar Biblíur, sem norrænu biblíu- félögin gefa. En fyrir því eru ýmsar ástæður og eðlilegar. Ein er sú að það kostar sitt að dreifa bókinni, önnur gróin hefð að kirkjur og trú- félög þiggi þakkargjafír fyrir Biblí- ur, sem einstaklingar fá afhentar og er þiggjendum í sjálfs vald sett hvað þeir láta af hendi rakna í þakk- arskyni. Leiðtogar rússnesku kirkjunnar kváðu „tolkovaja" Biblíunni dreift endurgjaldslaust til presta og prestsnema, í klaustur og til ann- arra starfsmanna kirkjunnar. Það sem umfram er er stundum boðið falt og margir um boðið. Heyrst hefur að ótrúlegar upphæðir séu oft greiddar fyrir venjulegar Biblíur á svörtum markaði, svo mikill er biblíuskorturinn og biblíuhungrið átakanlegt. En þó flestir okkar nor- rænu félaga hefðu vísast kosið að allt það fé, sem rússnesku kirkjunni kann að áskotnast fyrir „tolkovaja" Biblíumar, væri notað til að leitast við að seðja það hungur með frek- ari útgáfu Biblíunnar vomm við flestir ef ekki allir sannfærðir um að ekki væri óeðlilegt að hluti fjár- ins rynni til að flýta fyrir opnun og endurbótum á guðshúsum sem kirkjan hefur nú fengið til afnota að nýju og er vart eða ekki fær um að nýta vegna fjárskorts. Svo ríkja þær aðstæður í Rússlandi að guðs- þjónustan og helgidómurinn, guðs- húsið, er lífæð og ijörcgg trúar og boðunar jafnvel í enn ríkari mæli en á Norðurlöndum, þar sem allt önnur og fleiri tök em á að koma fagnaðarerindinu á framfæri en í Sovétríkjunum. Eystra þar er boð- unin bundin við kirkjuhúsið, guðs- þjónustuna, prestum óheimilt að hafa sig í frammi utan kirkjuveggja og eftir byltingu kommúnista var kirkjan rúin bamaheimilum, skól- um, elliheimilum og sjúkrahúsum sem hún rak. Nú hillir undir breyt- ingar þar á. Kartsjov ráðherra skýrði okkur frá því á umræðufundi, að unnið væri að fmmvarpi að nýrr löggjöf um málefni trúar og kirkju. Þær breytingar, sem það fmmvarp boð- ar, mæta enn sterkri andstöðu íhaldssamra harðlínumanna, en málsvarar fmmvarpsins kveða það í anda glasnost og perestrojku Gor- batjovs og verði frumvarpið að lög- um endurheimtir kirkjan fyrri rétt- indi í vemlegum mæli. Kankvís tók ráðherrann okkur vara fyrir því að ætla að framlagning þessa fmm- varps benti til trúarlegrar vakning- ar stjórnvalda. Nei, ástæðan væri einfaldlega hið nýja raunsæi „per- estrojka." Það væri í anda þess að gangast við fyrri yfirsjónum, svo sem þeim að kreppa að kirkjunni og reyna að eyða þeim áhrifum. „Perastrojka" væri að reyna að leið- rétta slík mistök og eða misrétti og stuðla að eðlilegum samskiptum stjórnvalda og kirkju, enda brýn nauðsyn að virkja alla þegna og ekki síst kirkjunnar menn til ein- huga uppbyggingarstarfs og sið- bótar í Sovétríkjunum. Hið fengna frelsi kirkjunnar og væntanleg aukning þess er útrétt sáttahönd. Afhendingin I kór Þrenningarkirkjunnar í Danilov-klaustri hefur verið komið fyrir þrettán eintökum af „tolkovaja" Biblíunni, merktum patriarka og metropolitönum rússn- esk-orþodoxu- kirkjunnar. Verða þau afhent þeim eða fulltrúum þeirra til tákns um dreifingu bókar- innar um öll biskupsdæmi. Einn fulltrúi frá hvetju Norðurlanda gengur síðan með eintak bókarinn- ar upp í kór kirkjunnar við upphaf guðsþjónustunnar auk Biblíunnar á sinni þjóðtungu. Kór munka syngur lofgjörðarsálm og Helge Bratt- gaard, sænskur biskup, flytur bæn á sænsku og er mál hans og ann- arra jafnharðan túlkað. Þá syngur kórinn sálm, tignarlegan söng og ekki í fyrsta eða eina sinn í þessari för, sem maður verður agndofa yfir þeirri auðlegð sem rússnesk þjóð og kirkja á í undursamlegum söng- röddum. Filaret metropolitani Moskvu flytur ræðu og les þakkarávarp Pimens patriarka, sem heilsuleysi vamar þátttöku, og færir kveðju hans og blessunaróskir til kristinna systkina á Norðurlöndum. Að loknu máli hans les finnski biskupinn Nikolainen texta úr Gamla testa- mentinu og Viberg Hróarskeldu- biskup einnig og íslenski fulltrúinn les úr 10. kafla bréfs Páls postula til Rómveija, 8.—17. versið: „Ná- lægt þér er orðið í munni þínum og í hjarta þínu.“ Það er: Orð trúarinn- ar, sem vér prédikum. Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drott- inn — og trúir í hjarta þínu, að Guð hafí uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða. Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munn- inum játað til hjálpræðis. Ritningin segir: „Hver, sem trúir á hann mun ekki til skammar verða.“ Ekki er munur á gyðingi og grískum manni, því að hinn sami er Drottinn allra, fullríkur fyrir alla þá, sem ákalla hann; því að „hver sem ákallar nafn Drottins mun hólpinn verða". En hvernig eiga þeir að ákalla þann, sem þeir trúa ekki á? Og hvemig eiga þeir að trúa á þann, sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvemig eiga þeir að heyra, án þess að ein- hver prédiki? Og hver getur prédik- að nema hann sé sendur? Svo er og ritað: „Hversu fagurt er fótatak þeirra, sem færa fagnaðarboðin góðu.“ En þeir hlýddu ekki allir fagnaðarerindinu. Jesaja segir: „Drottinn, hver trúði því, sem vér boðuðum?" Svo kemur þá trúin af boðuninni, en boðunin byggist á orði Krists. Lislerud, biskup í Borg í Noregi og forseti norska biblíufélagsins, sem jafnframt var formaður nor- rænu sendinefndarinnar, prédikaði. Rakti hanns tuttlega margháttuð fom og ný söguleg tengsl rússn- eskrar og norrænnar menningar og kristni, tengsl sem færri en skyldi em ljós. Lýsti hann einnig sögu og starfi og markmiðum biblíufélag- anna á Norðurlöndum og sagði frá því hve undirtektir almennings í löndum okkar hefðu verið rausnar- legar og góðar við tilmælum um að láta fé af hendi til að efna til þessarar gjafar, sem hér var helguð Guði. Gjöfinni fylgdi heill og hlýr bænarhugur kristinna bræðra og systra á Norðurlöndum sem fela Guði, sem allan ávöxt gefur, þau blessunarríku fræ, sem bókanna bók, sem er heilög ritning, geymir þeim sem tekur hana og les. Athöfninni í Þrenningarkirkju lauk með því að kórinn söng foman lofgjörðarsálm um Guðs orð og síðan sungum við norrænu félag- arnir versið: Þitt orð er Guð vort erfðafé, þann arf vér bestan fengum. Oss liðnum veit til lofs það sé, að ljós við þess vér gengum. Það hressir hug í neyð, það huggar sál í neyð. Lát böm vor eftir oss það erfa blessað hnoss. 0, gef það glatist engum. Við sungum versið á tungu Gmndtvigs og má vera að fram- burði mínum og annarra hafí í ein- hveiju verið áfátt og auðfundið var að sönginn skorti mikið á fágun og fegurð, einkum samanborið við söng munkanna. En ekkert skorti á einlægni þeirrar lofgjörðar og bænar, sem versið flytur, bænar fyrir þjóðum okkar og bömum þeirra blessuðu þjóða og kirkna, sem þama vom sameinaðar í lof- gjörð og þakkargjörð til Guðs fyrir að fá að gefa og fá að þiggja orð eilífs Guðs, sem er fullríkur fyrir alla og klæddi huga sinn og hjarta í orð og líf og fóm og sigur hins upprisna Jesú Krists. Ég hef að ofan dvalið við fáeinar stundir vikutíma, sem ég dvaldi í Rússlandi, stundir, sem seint munu úr minni líða og seinast alls fádæma hlýtt viðmót gestgjafanna, jaftit iærðra sem leika hvar sem komið var. Su hógláta hlýja á rífan hlut í þeim vorblæ sem í minningunni umlykur þá daga en ekki síður hitt, hvað það var auðfundið hve margur bar í bijósti vorbjarta drauma og vonir um, að freðinn tröllshrammur skrifræðis og skoðanakúgunar, sem þjakað hefur rússneska þjóð og kirkju svo lengi, sé að lina tökin. Guð gefí að sú verði raunin. Höfúndur er sáknarprestur í Áskirkju í Reykjavík. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík: BORGARMÁLARÁDST augardaginn 28. janúarkl. 9.30 í Valhöll, Háaleitisbraut 1 Kl. 9.30 Setning: Baldur Guðlaugsson, formaður full- trúaráðsins. Kl. 9.40 Ávarp - kynnt tildrög og undirbúningur ráðstefnunnar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, form- aður undirbúningsnefndar. Kl. 9.50 Formenn starfshópa gera grein fyrir vinnu og niðurstöðum starfshópa: a. Félags-, mennta- og menningarmál. Hópstjóri: Lára Ragnarsdóttir. b. Skipulags- og umhverfismál. Hópstjóri: Þórhallur Jósepsson. c. íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamál. Hópstjóri: Katrín Gunnarsdóttir. d. Heilbrigðis- og hollustumál og sjúkra- stofnanir Reykjavíkurborgar. Hópstjóri: Grímur Sæmundsen. með sýningu teikninga, módela, mynda, línurita o.fl. Borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins verða á staðnum og svara fyrirspurnum. Kaffiveitingar. Kl. 15.15-17.00 Niðurstöður starfshópa kynntar - umræður. Kl. 17.00 Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjórar: Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, borgarfulltrúi. Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um borgarmál. Davíð Baldur Vilhjálmur Magnús Ragnar Lára Þórhallur Katrín Grímur Gestur e. Umferðar- og bílastæðamál og almenn- ingssamgöngur (SVR). Hópstjóri: Gestur Ólafsson. f. Atvinnumál og nýsköpun atvinnulífs. Hópstjóri: Ragnar Guðmundsson. Kl. 10.30 Ræða borgarstjóra, Davíðs Oddssonar: „Áherslur í borgarmálum og staða Reykjavík- ur í samfélagi sveitarstjóma." Kl. 11.00-14.00 Starfshópar funda (matarhlé kl. 12.00- 12.30). Kl. 14.00-15.15 BORGARMÁLAKYNNING. Kynnt verða helstu viðfangsefni á vettvangi borgarmáia og ýmis verkefni sem framundan eru, m.a.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.