Morgunblaðið - 28.01.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.01.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989 Blaðamenn fangelsaðir fyrir stuðning við Palestínumenn Aformað að draga úr skattheimtu á herteknu svæðunum Jerúsalem. Reuter. FJÓRIR israelskir blaðamenn voru á miðvikudag dæmdir í fangelsi á þeim forsendum að þeir væru félagar í palestinskum „hryðjuverka- samtökum." Blaðamennirnir störfuðu allir við dagblað eitt, sem gefið var út á hebresku og arabísku en stjórnvöld í ísrael bönnuðu útgáfu þess í april á siðasta ári. 1 niðurstöðum dómsins, sem kveð- inn var upp í Jerúsalem, sagði að samtök róttækra Palestínumanna, „Lýðræðisfylkingin til frelsunar Palestínu", hefði flármagnað útgáf- una. Sakbomingamir kváðust sekir og fengu vægari dóma fyrir bragð- ið. Vom þeir dæmdir til 9 til 30 mánaða vistar innan fangelsismúra en talsmenn lögregluyfirvalda kváðust á síðasta ári búast við því að blaðamennimir yrðu dæmdir í allt að 40 ára fangelsi fyrir njósnir. Tvö alvarlegustu ákæruatriðin gegn Qórmenningunum vora hins vegar felld niður. FVam til þessa höfðu blaðamenn- imir flórir ævinlega haldið fram sakleysi sínu. Þeir kváðust hafa sætt pyntingum er þeir vora yfir- heyrðir og sögðu framgöngu stjóm- valda líkjast galdraofsóknum þar eð blaðið, sem á arabísku nefnist Tariq a-Sharal en Derech Hanitzoz á hebresku, hefði það eitt sér til óhelgi unnið að skýra skilmerkilega frá öfgastefnu stjómvalda gagnvart Palestínumönnum á hemámssvæð- unum. Fjórir skandinavískir stjómmála- menn, þeir Svend Auken, leiðtogi danskra jafnaðarmanna, Thorvald Stoltenberg, utanríkisráðherra Nor- egs og Svíamir Evert Svensson og Karl-Erik Svartberg, báðir úr sænska jafnaðarmannaflokknum, hitta Yasser Arafat að máli í Túnis um helgina. Svíar áttu stærstan þátt í því að koma á beinum viðræð- um milli PLO-manna og Banda- ríkjamanna. Embættismenn innan ísraelska vamarmálaráðuneytisins virðast nú gera sér æ gleggri grein fyrir því að uppreisn Palestínumanna á her- teknu svæðunum verður ekki kæfð með herstyrk. í viðleitni til að milda reiði Palestínumanna og stöðva uppreisnina tilkynntu foringjar hemámsliðs ísraela leiðtogum Pa- lestínumanna að þeir hefðu í hyggju að opna á ný íslamskan háskóla og draga úr skattheimtu á herteknu svæðunum, að sögn palestínskra heimildarmanna. ísraelsk stjómvöld hafa fordæmt viðræður utanríkisráðherra Evrópu- bandalagsríkja og Yassers Arafats, leiðtoga FYelsishreyfingar Pa- lestínumanna (PLO). Arafat ræddi við utanríkisráðherra Spánar, Frakklands og Grikklands í Madríd í gær. Bandaríkin: Kúbverskur sendi- maður biðst hælis Washington. Reuter. Kúbverskur stjómarerindreki bað um pólitískt hæli I Bandaríkjun- um í október sl. og hefiir veitt stjóravöldum þar mjög mikilvægar upplýsingar. Talsmaður bandaríska utanrikisráðuneytisins skýrði frá þessu á fimmtudag. Kúbveijinn heitir Hector Aguil- illa og sagði þegar hann bað um hæli, að hann væri búinn að fá sig fullsaddan á kommúnismanum. „Þegar hann flýði ásamt konu sinni og tveimur bömum í október sl. var hann á leið til Madagascar sem næstæðsti maður kúbversku sendi- nefndarinnar þar,“ sagði Charles Ariane-flaugin: Gervitungli komið á braut Paris. Reuter. ARIANE-2 eldflaug var skotið á loft frá frönsku geimvísindamið- stöðinni í Kourou í frumskógum mun stærri hnetti á braut en forver- ar hennar. Redman, talsmaður bandaríska ut- anríkisráðuneytisins. Redman sagði, að Aguililla, sem er 35 ára gamall, hefði starfað í Sýrlandi frá 1976-84, íran frá 1984-86 og í utanríkisráðuneytinu í Havanna þar til hann var sendur áleiðis til Madagascar. í viðtali, sem Aguililla átti við bandaríska fréttastofu og birt var í fyrradag, segir hann, að Kúbu- stjóm annist þjálfun ýmissa hryðju- verkahópa, til dæmis palestínskra. Kveðst hann oft hafa ekið frá Dam- askus í Sýrlandi og yfir í Bekaa-dal í Líbanon þar sem hann hlóð bílinn vopnum, smíðuðum á Vesturlönd- um, og síðan var farið með þau yfir til Sýrlands. Var aldrei leitað í bílnum vegna þess, að hann veif- aði skilríkjum stjómarerindrekans. Vopnunum var síðan komið til skæraliða í E1 Salvador, Guatemala eða Chile og vestræn urðu þau að vera til að fela tengsl Kúbustjómar við skæraliðana. Sovétríkin: Reuter Walesa á fund stjórnvalda Lech Walesa, leiðtogi Sam- stöðu, hinna bönnuðu verka- lýðssamtaka í PóUandi, átti leynilegar viðræður við Czesiaw Kiszczak, innanrík- isráðherra landsins í gær og ræddu þeir hveraig koma mætti á formlegum viðræð- um samtakanna við pólsku rikisstjórnina um lögleiðingu Samstöðu. Stjórnin vonar að hægt verði að mynda sam- steypustjóra með stjómar- andstöðuöflunum i því skyni að vinna bug á efnahags- kreppunni í Póllandi. Ritstjóri Glasnosts fær Gullna pennann París. Reuter. AlLÞJÓÐASAMTÖK dagblaðaútgefenda (FIEJ) veittu Sergej Grigoij- ants, ritstjóra sovéska timaritsins Glasnosts Gullna pennann svo- nefnda í gær. Gullni penninn er viðurkenning samtakanna sem vilja stuðla að fijálsri fréttamennsku. I úrskurði samtakanna sagði að Grigorjants hefði hlotið viðurkenn- inguna fyrir viðleitni sína til að flytja fréttir frá Sovétríkjunum á tímum opnari stjómarhátta (glasn- ost). „FIEJ hyllir hugrakkan mann sem hefur sætt meðferð er afhjúpar afstöðu sovéskra stjómvalda til fjöl- miðla. Stjómvöld verða að breyta afstöðu sinni ef hin margyfírlýsta glasnost-stefna á ekki að hljóma eins og hvert annað áróðursbragð," sagði í yfirlýsingu samtakanna. I yfirlýsingunni var þess einnig getið að Grigoijants og tímarit hans hefði sætt ofsóknum stjómvalda og að hann hefði verið fangelsaður í tvígang á síðasta ári. Grigoijants hefur afþlánað fímm ára vinnubúðavist vegna stjóm- málaafskipta. Suður-Ameríku í fyrrinótt. Átján mínútum eftir geimskotið kom flaugin Intelsat-V Qarskipta- hnetti á braut um jörðu. IntelsatV hnötturinn er í eigu samnefndr- ar sjálfseignar- W stofnunar 115 |fe ...' 111 ríkja er á og rek- Prl ifl ur 15 sjónvarps- og fjarskipta- hnetti, sem nú ,/ era á braut um " >7 jörðu. lÍlp V ■ £ Rúmlega árs hlé var gert á geimferðum Ar- iane-flaugarinn- ar snemma árs éÉ|| 1986 vegna bil- « r á unar. Ferðir hennar hófust að JHf| nýju í september 1987 og var lllp geimskotið í «■ fyrrinótt hið 4-4 . tíunda í röðinni frá þeim tíma. Hafa þau öll heppnazt. Fýrirhugað er að skjóta níu Ariane-flaugum á loft á árinu. Með því móti hyggst Evrópska geimvísinda- stofnunin (ESA) Reuter Ariane-2 flaug- in á skotpallin- um í geim- ferðamiðstöð Frakka skömmu fyrir geimskotið i fyrrinótt. halda hlutdeild sinni í flutningi gervitungla á braut um jörðu, en hún nemur 50%. Ariane-2 flaugin er 50 metra há og 220 tonn. í haust leysir stærri og afkastameiri flaug, Ariane-4, hana af hólmi. Mun hún geta flutt Barátta grænfriðunga: Hættíð hvalveiðum eins og ég að selja skjaldbökusúpu - segir vestur-þýskur matvælaframleiðandi við íslendinga ZOrich. Frá önnu Bjamadóttur, firéttaritara Morgunblaðsins. KUNNUR vestur-þýskur framkvæmdastjóri matvælafyrirtækja, Helmut Stöhr, fagnaði þvi i ræðu fyrir skömmu að vísindahvalveið- um íslendinga lyki væntanlega i ár og hvatti forráðamenn fyrirtæk- isins Iceland Crown, sem Þróunarfélag fslands og Iðnlánasjóður eiga hlut í, til að beijast gegn frekari hvalveiðum lslendinga. Kom þetta fram í stuttri ræðu sem hann hélt í kynningarmóttöku Ice- land Crown fyrir erlenda blaðamenn og viðskiptaaðila í Hamborg í siðustu viku. Kristinn V. Blöndal, framkvæmdastjóri Iceland Crown, bað Stöhr að flytja ræðu við þetta tækifieri. „Hann er baráttumaður gegn mengun i hafi og ég vissi að hann myndi koma inn á hvalveiðimál- ið,“ sagði Kristinn. „Ég vildi að það yrði minnst á hvalveiðarnar hér, þær eiga ekki að vera neitt feimnismál." Hellmut Stöhr er 42 ára fram- kvæmdastjóri fyrirtækjanna Eugen Lacroix, sem sérhæfír sig í niður- soðnum sælkeramat, og Beeck- Feinkost, sem hefur ferskar sæl- keravörur á boðstóiunum. Lacroix fór illa út úr baráttu náttúravemd- arsinna gegn skjaldbökudrápi fyrir nokkram áram. „Lacroix var sam- heiti fyrir skjaldbökusúpur," sagði Stöhr í samtali við Morgunblaðið. „Barátta grænfriðunga og náttúra- vemdarsamtaka hófst á áttunda áratugnum og við urðum síðan að hætta að nýta skjaldbökuafurðir árið 1984. Við reyndum að benda fólki á að það væri ekki starfsemi okkar sem stofhaði skjaldböku- stofnum í hættu heldur aukinn ferðamannastraumur á sólríkar strendur. Skjaldbökur klekja út eggjum á sólarströndum og vist- kerfi þeirra hefur breyst. En allt kom fyrir ekki. Við ákváðum að hætta að bjóða upp á skjaldbökusúpur. Við höfðum samband við grænfriðunga og héld- um sameiginlegan blaðamanna- fund með þeim til að tilkynna ákvörðun okkar. Eftir það vora Risaskjaldbaka. Ekki er ljóst hvort súpur Eugen Lacroix voru soðnar af svona stæðilegu dýri en nú hefiir fyrirtækið lagt slika framleiðslu á hilluna. þeir mjög jákvæðir í garð fyrirtæk- isins og hafa veitt okkur stuðning. Stöhr sagði að það þýddi ekki fyrir íslendinga að reyna að út- skýra fyrir fólki að hvalastofnamir sem þeir veiða séu ekki í hættu eða að fara út í alþjóðlegan lagabók- staf. „Hvalur er hvalur og hvalir era í hættu. Þar við situr." Kristinn sagðist hafa beðið Stöhr um að segja nokkur orð á kynning- unni til að minna á mikilvægi hreins sjávar og til að koma inn á hvalamálið. „Hreint haf er grunn- urinn að lífsafkomu okkar," sagði hann. „Iceland Crown er því hlynnt og mun styðja_ baráttu fyrir um- hverfísvemd. Ég hef skilning á báðum hliðum í hvalveiðimálinu. Ég skil baráttu grænfriðunga fyrir friðun hvala og einnig ákvörðun íslenskra stjómvalda að hlaupa ekki upp til handa og fóta í augna- bliks æsingi og hætta við vísinda- veiðamar." Talsmaður grænfrið- unga sagði Morgunblaðinu í símtali að barátta samtakanna fyrir kaup- banni á íslenskum vöram næði jafnt til fískafurða frá Iceland Crown og annarra.„En við getum auðvitað ekki höfðað til neytenda nema vör- umar séu í verslunum," sagði hann. Iceland Crown ætlar að forðast afleiðingamar af áróðri gegn vör- um þeirra í Vestur-Þýskalandi með því að bíða með fulla markaðssetn- ingu þangað til íslendingar hafa lokið vísindahvalveiðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.