Morgunblaðið - 28.01.1989, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989
BOKAMARKAÐDR
ARNARogÖRLYGS zz
ALLT AÐ
90%
AFSLÁTTUR
í 14 DAGA
FRÁ 21.JAN~4.FEB
GLÆSILEGRI OG GIRNILEGRI BÆKUR
EN NOKKRU SINNI FYRR
Á hinum órlega bókamarkaði í forlagsverslun okkar að Síðumúla 1 1 verða ó boðstólum
mörg hundruð bókatitlar með allt að 90% afslætti. Af sumum titlanna eru aðeins til örfó
eintök og því ekki eftir neinu að bíða.
Svo er það sérstakt tímabundið af-
mælistilboð sem ekki verður endur-
tekið. Við veitum 25% afslátt á
takmörkuðu upplagi á nokkrum af
okkar helstu verkum.
Um þessar mundir eru liðin 25 ár síðan Ferðahandbókin 19ó4
kom út. Hún var í raun upphaf að útgáfu fyrirtækisins og mark-
aði á margan hátt stefnu þess og störf.
Við höfum ákveðið að minnast afmælisins með því að gefa fólki
kost á að kaupa nokkur okkar helstu verka með 25% afslætti.
Hér er þó um takarmað upplag að ræða eða 150 eintök af
hverju verki. —
LandiS þitt Island e. Þorstein Jósepsson og
Steindór Steindórsson sex bindi.
Ensk-ísl. orðabók eftir Sören Sörensen.
íslenskt þjóðlíf í 1000 ár e. Daniel Bruun tvö bindi.
Ferðabók Sveins Pálssonar tvö bindi.
íslenskir sögustaðir e. Kristian Kálund fjögur bindi.
Minningar Huldu Stefánsdóttir fjögur bindi.
íslandsmyndir Mayers e. Auguste Mayer tvö bindi.
Hornstrendingabók eftir Þórleif Bjarnason þrjú bindi.
íslenskar tónmenntir eftir Hallgrím Helgason.
Goð og hetjur eftir Anders Bæksted.
Ensk-íslensk skólaorðabók.
Um viðreisn Islands eftir Pál Vidalín og Jón Eiríksson.
Opið laugardaga frá kl. 10:00—16:00
Opið mánud.—föstud. kl. 9:00 — 18:00
ÖRLYGUR
Japönsk umhyggja
Reuter
Japanska flugfélagið JAL ætlar að bjóða farþegum á 1. farrými
í millilandaflugi afnot af nýrri tegund myndbandstækja á næst-
unni. Þessi nýja þjónusta verður reynd á flugleiðinni frá Tókíó
til London og New York í næsta mánuði. Tækin eru þeim eigin-
leikum búin að notandinn setur upp heymartæki; aðrir farþegar
verða þvi ekki fyrir neinu ónæði af sýningu myndarinnar.
Eftirhreytur ítalsks bankahneykslis:
Aðalbankastj óri
Ambrosiano var
myrtur í London
- segir dagblaðið La Stampa að
sé niðurstaða ítalskra dómara
Mílanó. Reuter.
DÓMARAR í Mílanó, sem fengu það verkefni að rannsaka dauða
bankastjórans Robertos Calvis, er fannst hengdur undir Blackfriars-
brúnni í London 1982, komust að þeirri niðurstöðu að hann hefði
verið myrtur. ítalska dagblaðið La Stampa skýrði frá þessu í gær
en skýrsla dómaranna um málið er væntanleg á næstunni. Breska
lögreglan taldi í fyrstu að Calvi hefði framið sjálfsvíg en úrskurð-
aði síðar að málið væri „óupplýst."
Calvi var auknefndur „Banka-
stjóri Guðs“ vegna þess að banki
hans, Banco Ambrosiano, hafði
mikil viðskipti við Páfagarð. Am-
brosiano var stærsti einkabanki á
Ítalíu en fór á hausinn og skorti
1,3 milljarða Bandaríkjadala til að
hann gæti staðið við skuldbindingar
sínar. Ríkissaksóknari á Ítalíu fór
í september síðastliðnum fram á
það að 41 einstaklingur yrði ákærð-
ur fyrir aðild að gjaldþroti Ambros-
ianos. Ekki var mælt með því að
bandaríski erkibiskupinn Paul
Marcinkus og tveir aðrir embættis-
menn Páfagarðs yrðu ákærðir þar
sem hæstiréttur landsins hefur úr-
skurðað að ítalskir dómstólar megi
ekki fjalla um mál þeirra.
Calvi fannst undir brúnni viku
eftir að hann hvarf frá Ítalíu en
þar beið hann eftir svari við áfrýjun
sinni vegna fangelsisdóms er hann
hlaut fyrir gjaldeyrissmygl. Dómar-
amir telja að Calvi hafi komið á
báti undir brúna að næturlagi en
hann geti ekki hafa verið einn á
ferð því að einn maður gæti ekki
stjómað bátnum í stríðum ár-
straumnum og jafnframt hengt sig
með því að bregða reipi um brúar-
bita. Bankastjórinn hafi sennilega
verið hengdur af samferðamanni
sínum og líkið síðan fest upp. Háls-
inn á líkinu hafi ekki skaddast á
þann hátt sem búast mætti við ef
Calvi hefði fest reipið um hálsinn
og stokkið síðan útbyrðis.
Ekkja Calvis fær nú sennilega
greidda líftryggingu bónda síns er
nemur um átta milljörðum líra (um
300 milljónum ísl kr.) en trygginga-
félagið getur þó áfrýjað til æðra
dómstigs.
Finnland:
Paasio til-
neftidur utan-
ríkisráðherra
Helsinki. Reuter.
MAUNO Koivisto, forseti Finn-
lands, tilnefndi i gær Pertti Pa-
asio sem utanríkisráðherra í stað
Kalevi Sorsa, sem lagði fram
afsagnarbréf á þriðjudag.
Paasio, sem er formaður Jafnað-
armannaflokksins, tekur við emb-
ættinu 1. febrúar. Talið er að Sorsa
verði frambjóðandi Jafnaðarmanna-
flokksins í forsetakosningunum árið
1992 gefi Koivisto ekki kost á sér.
Grænfriðung'ar stöðva
hvalveiðiskip Japana
ZUrich, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
SKIP Grænfriðunga, sem hefiir stundað athugunar- og mótmæla-
aðgerðir við suðurheimskautið síðan um áramót, sigldi fram á
japanskt verksmiðjuskip og þijá hvalveiðibáta undan ströndum
Suðurskautslandsins fyrr í vikunni. Japanarnir hættu strax veið-
um þegar Gondvanna, skip umhverfissinnanna, nálgaðist og höfðu
ekki hafíð þær aftur i gær.
„Skipið sigldi fram á Japanana í veg fyrir að þéir veiði fleiri.“
fyrir tilviljun," sagði talsmaður Japanska verksmiðjuskipið er
Grænfriðunga í Hamborg. „Þeir 23.000 tonn og síðasta skip sinnar
höfðu þegar veitt 40 hvaíi en tegundar sem fer á hvalveiðar.
áhöfn okkar mun reyna að koma