Morgunblaðið - 28.01.1989, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Vog og BogmaÖur
Vog (23. sept.-22. okt.) og
Bogmaður (22. nóv.-21. des.)
eru að sumu leyti lík merki
og eiga því að geta náð ágæt-
lega saman. Einkennandi fyr-
ir samband þeirra er lifandi
félagslíf, ferðalög, fjölbreytni
og jákvæð viðhorf.
Vogin
Vogin þarf á fólki og hug-
myndalegri örvun að halda til
að endumýja lífsorku sína.
Hún þarf því að taka þátt í
félagsmálum eða starfa þar
sem margt fólk er í nánasta
umhverfi. Hún hefur ríka þörf
fyrir umræðu. Vogin er opin
og jákvæð og vill taka skyn-
samlega afstöðu til málefna,
vill vera yfirveguð í hegðun
og réttlát í allri framgöngu.
BogmaÖurinn
Bogmaðurinn þarf að fást við
lifandi og fjölbreytt viðfangs-
efni, stunda íþróttir eða ferð-
ast og vera á hreyfíngu í dag-
legu lífi. Hann þarf frelsi til
að víkka sjóndeildarhring sinn
og safna að sér nýrri þekk-
ingu, enda verður hann fljótt
leiður á vanabindingu og end-
urtekningum. Bogmaður inn
er jákvæður og hress í fasi
og að öllu jöfnu þægilegur,
friðsamur og umburðarlynd-
ur.
Óstööugleiki
Samband Vogar og Bog-
manns getur orðið óstöðugt
og þarf því ekki að vera lang-
varandi. Ástæðan er sú að
þörf fyrir félagslíf, nýjungar
og ferðalög kallar ekki
beinlínis á festu og það að
binda sig við eitt lífsform til
langframa. Ef Venus er í
íhaldssamari merkjum breyt-
ist þetta og sömuleiðis má
segja að íjölbreytniþörfin
verði ekki eyðileggjandi ef
hún fær jákvæða útrás, t.d. í
vinnu eða með ástundun
skemmtilegra áhugamála.
OfjákvceÖ
Annað atriði getur leitt til
vandkvæða. Það er að saman
spila merkin á léttari strengi
í persónuleikum hvors annars.
Því er hætta á yfirborðs-
mennsku fyrir hendi og það
að forðast að taka á neikvæð-
ari málum sem kunna að
koma upp í sambandinu.
Kurteisi ogfljótfœrni
Onnur möguleg skuggahlið
er sú að Vogin vill vera fáguð
og tillitssöm en Bogmaðurinn
á til að vera beinskeyttur,
fljótfær og opinskár. Fram-
koma þess síðamefnda getur
þvi auðveldlega hneykslað eða
angrað Vogina. Á hinn bóginn
getur Bogmanninum fundist
Vogin of tepruleg og óákveð-
in.
Frelsi ogfljótfœrni
Þó bæði merkin séu jákvæð
er Vogin rólegri og meira fyr-
ir samvinnu, en Bogmaðurinn
er ævintýragjamari og vill
fara eigin Ieiðir. Upp gæti
komið sú staða að Vogin vilji
að þau séu stöðugt saman en
Bogmaðurinn vilji aftur á
móti visst fijálsræði og að þau
séu ekki alltaf með nefið í
hvors annars málum
Ferðalög ogfélagslif
Til að vel gangi hjá Vog og
Bogmanni þurfa þau að lifa
skemmtilegu og tilbreytinga-
ríku lífí. Hvomgt þolir stöðn-
un eða einveru. Æskilegt er
að þau eigi stóran kunningja-
hóp og festi sig ekki í skulda-
súpu og einhæfu vinnu-
mynstri. Samband þeirra þarf
fyrst og fremst að taka mið
af mannlegum og félagsleg-
um þáttum. Þau þurfa að
ferðast reglulega og taka þátt
í menningarlífi. Æskilegt er
að þau gefí hvort öðru visst
frjálsræði og varist að hefta
hvort annað.
GARPUR
DnCIMUH OIHKK
J/EJA, HUAÞA \/ V/B E/KOA/ SA/HS/Ce/ EROÐ jAÐ U//DIR.0ÓA p/B E/.SKULEGU V EERB Þ/NA HONOE AÐ |l T/L eyjXE/NNfíK BRUG/5A ? AAEÐ, ÉGEEHEÞÞ) ' AND/ /' HEIM/ TRysG E/G/Nh OG T/syGGUR 1 l \ Ip' JLA Slvi VAST/ FKA/MBTÓB - FALLEG OG -OA/A OG FALLEGœ BLA DAFULL T/zO/f ipw TM lilífe' Wn OG /VÓ V/&TAL U/Ð FALLEGA 3LAÐAKONO SE/H LO/CS sesus sanna sögu uaa AAANFFE/D AtANLEy / ,1
UOSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
ACC0RPIN6 TO A RUMOR,'
THE 5UMMER OLYMPICS 15
60IN6 TO [JE MOVEP J
V HERE TO NEEPLE5.. J
° © 1988 United Feature Syndicate, Inc.
Það er altalað að Ólympíuleikarnir
í sumar verði fluttir í Möðrudal...
IT COULP BE JUST A
RUMOR, BUT l'P 8ETTER.
NOTTAKE ANV CHANCES..
Þetta gæti bara verið slúður, en það
er best að taka enga áhættu ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Almennt em spilarar of blind-
ir fyrir þeim ályktunum sem
hægt er að draga af ýtspilum.
Ná ekki að hugsa út fyrir litinn
sem spilað er út í.
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ Á5
♦ G73
♦ K1083
+ KD84 Austur
iiiii, *9964
▼ A1082
♦ D9642
♦ -
Suður
♦ K82
♦ D65
♦ Á7
♦ Á10732
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Útspil: spaðaþristur. Fjórða
hæsta.
Sagnir taka fljótt af, suður
opnar á veiku grandi (12—14)
og norður fer þá beint í eðlileg-
asta geimið.
Ef laufíð gefur fímm slagi er
spilið vandalaust. Sem það gerir
nema í 4—0 legu. Nú er hægt
að ráða við þá legu á báða vegu.
Vandinn er hins vegar að
ákvarða hvor andstæðingurinn
sé líklegri til að eiga fjórlitinn.
Og þar kemur útspilið til hjálpar.
Spaðaþristurinn bendir til að
vestur eigi aðeins fjórlit í spaða.
Og þar með er strax orðið ólík-
legt að hann eigi lengri lit —
þá hefði hann sennilega komið
þar útí Sé þetta rétt ályktað
getur vestur ekki verið með
minna en eitt lauf (skiptinguna
4-4-4-1).
Að þessu athuguðu er rökrétt
að spila fyrst litlu laufi að ásn-
um.
Vestur
♦ D1073
VK94
♦ G5
♦ G965
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Stara
Pazova í Júgóslavíu í haust kom
þessi staða upp í viðureign júgó-
slavnesku alþjóðameistaranna
Cabrila, sem hafði hvítt og átti
leik, og Kosanovic.
Með laglegri fléttu náði hvítur
að vinna peð og tryggja sér unna
stöðu.
20. Hxa6 - Rxa6 21. Rxe6 - Hb8
(svartur varð að gefa skiptamun-
inn til baka, því eftir 21. - fxe6
22. Hxe6 tapar hann drottning-
unni)
22. Rxf8 - KxfS 23. Bc4 - Rc7
24. Dd2 og hvítur vann um síðir
á umframpeðinu.