Morgunblaðið - 28.01.1989, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989
Minning:
Sigfínnur Pálsson
£rá Stórulág
Fæddur 16. apríl 1916
Dáinn 22. janúar 1989
Það hefur áreiðanlega ekki verið
fólkinu í Hoffelli undrunarefni á
sínum tíma þótt nýr heimilismaður
væri nokkuð órólegur fyrsta daginn
er hann dvaldist í Hoffelli. Hann var
kominn alla leið austur frá Norðfirði
og þá þegar orðið að mæta þungum
örlögum þótt hann væri aðeins fimm
ára.
Að morgni sunnudagsins 22. þ.m.,
þegar kalsastormur þeytti mjöllinni
um byggðir hér, kvaddi Sigfinnur í
Stórulág þennan heim. Drengurinn
sem tók sér heimilisfesti í Hoffelli
fyrir 68 árum hafði nú lokið hörðu
heljarstríði. Sú frétt kom engum á
óvart er til þekkti.
Sigfinnur var fæddur að Borgúm
í Norðfirði þann 18. apríl árið 1916,
sonur hjónanna Páls Amasonar og
Sigurlaugar Sigurðardóttur, en hún
átti ættir sínar hér í Homafirði.
Aðeins tveggja ára að aldri missti
Sigfinnur móður sína og varð því
að ráði árið 1921 að móðurbróðir
hans, Þorsteinn Sigurðsson póstur,
tæki Sigfínn tii sín. Þorsteinn var
þá heimilismaður í Hoffelli og mun
það hafa reynst Þorsteini auðvelt
að fá samþykki húsráðanda þar fyr-
ir þessari ráðstöfun.
Um 1930 flytjast svo Þorsteinn
og Sigfinnur að Amanesi og eru þar
í heimili hjá Sigríði Steingrímsdóttur
en Þorsteinn byggði yfir fénað sinn
og stundaði auk þess sjómennsku.
Sigfinnur hafði því oft á tímum
æmum störfum að sinna við fjár-
gæslu og sjósókn er hann reri með
þeim Ámanesmönnum á árabát til
fiskjar. Á þessum árum kynntist því
Sigfínnur sjósókn og hestamennsku
í Amanesi í ríkari mæli en verið
hafði í Hoffelli.
Árið 1934, eftir að þeir félagamir
em komnir á Móa, verður Sigfinnur
fyrir því mikla áfalli að fóstri hans,
Þorsteinn, drukknar er bátur, er
hann var þá á, fórst hér við Homa-
fjörð. Fluttist þá Sigfinnur aftur að
Hoffelli á heimili þeirra Valgerðar
og Guðmundar.
Á uppvaxtarárunum í Hoffelli
samdi Sigfinnur sig vel að heimilis-
siðum þar. Húsmæðumar, Halldóra
Bjömsdóttir og Valgerður Sigurðar-
dóttir, voru hans trausta athvarf
eftir komuna þangað auk frænda
hans, Þorsteins Sigurðssonar. Þrátt
fyrir að Sigfínni lægi jafnan gott
orð til fólksins í Hoffelli þá leyndist
ekki að sérstaklega var honum kær
minningin um Valgerði þar sem
hann sagðist jafnan hafa átt skiln-
ingi og umhyggju að mæta.
Lönd Hoffellsjarðarinnar efu bæði
víðfem og sérstæð. Sérstaklega á
þetta þó við um fjallendið sem er
víða stórbrotið. í innstu fjöllin, bæði
austan og vestan Hoffells, þurftu
gangnamenn áður fyrr að fara jökul-
veg til smalana. Slíkt umhverfi var
því fyrir áræðinn ungan mann mik-
ill töfraheimur sem veitti honum
bæði þrek og reynslu. Þetta kom sér
vel fyrir Sigfinn því að fljótlega varð
hann eftirsóttur leiðsögumaður á
erfiðum leiðum. Árið 1937, þá rúm-
lega tvítugur, réðst Sigfinnur ásamt
öðrum harðduglegum manni til ferð-
ar með Þorbergi, alþingismanni í
Hólum, norður að Snæfelli til að
sækja þangað enskan leiðangur. í
bókinni Jódynur, sem nýlega er kom-
in út, er birt frásögn af þessari ferð
eftir Hauk Þorleifsson. Þar segir
með skýrum hætti hversu mikil þrek-
raun ferðin var, enda var þetta
ferðalag umtalað á þeim tíma. Á
árunum 1937 og 1938 var Sigfinnur
aðstoðarmaður Sigurðar Þórarins-
sonar jarðfræðings við rannsóknir á
Vatnajökli í framhaldi af rannsókn-
um sænsk-íslenska Vatnajökulsleið-
angursins árið 1936. Þeir félagar
Sigurður og Sigfinnur lentu oft í
kröppum dansi við óvægin náttúru-
öfl á auðnum Vatnajökuls. Hefur
Sigurður farið miklum viðurkenn-
ingarorðum um harðfylgi og dugnað
Sigfinns í þessum ferðum.
Árið 1937 fór Sigfinnur til náms
að Laugarvatni og dvaldist þar tvo
næstu vetur. Þeirrar skólagöngu
naut hann í ríkum mæli og þá ekki
síst íþrótta- og leikfimiskennslu, sem
mikil áhersla var lögð á í þeim
skóla, og ekki er ólíklegt að hafi
ráðið nokkru um hvern skóla Sig-
fínnur valdi sér því að hann var
ágætur leikfimismaður.
Jafnframt þeim viðfangsefnum,
sem að framan eru greind, vann
Sigfinnur að ýmsum störfum er til
féllu. M.a. fór hann á vetrum til sjós,
eins og kallað var. Var hann þá í
skiprúmi á bátum sem gerðir voru
út frá Höfn og einn vetur var hann
á vertíð í Keflavík. Sigfinnur var
eftirsóttur sjómaður og eignaðist
hann góða kunningja og vini á þeim
vettvangi.
Þrátt fyrir tímabundna fjarveru
hafði Sigfinnur jafnan heimili í Hof-
felli, allt til ársins 1946, en þá verða
þáttaskil í lífí hans. Árið 1947 gift-
ist hann Sigurbjörgu Eiríksdóttur
frá Miðskeri en þau höfðu flust að
Stórulág árið áður og hafið þar bú-
skap í sambýli við Sigurð Þórarins-
son. Að honum látnum árið 1957
kaupir Sigfinnur jörðina og hafa þau
Sigfinnur og Sigurbjörg búið þar
síðan.
Sigfinni og Sigurbjörgu búnaðist
vel í Stórulág. Á fyrri búskaparárun-
um, meðan bústofninn var að
stækka, stunduðu þau kartöflu- og
gulrófnarækt og höfðu þau gott vald
á þeirri ræktun. Eins var raunar um
aðrar greinar búskaparins að þær
skiluðu jafnan góðum arði. Það sem
hæst ber þó í Stórulág var sú hrossa-
rækt sem þar var stunduð. Sigfínnur
var mikill hestamaður og áhugasam-
ur um ræktun hesta, enda átti hann
alla tíð afrekshross. Sigfinnur var
afbragðsreiðmaður og sem knapi á
kappreiðum vakti áseta hans sér-
staka eftirtekt. Eg hygg að mér sé
óhætt að fullyrða að enginn knapi
hafi tekið eins oft þátt í kappreiðum
hér eins og Sigfínnur, enda náði sá
ferill hans yfir 40 ár, og oftast var
hann með þeim fremstu þegar að
marki var komið. Það var því mjög
að verðugu þegar Skúmur frá Stóru-
lág hlaut bestan dóm alhliða gæð-
inga á landsmóti hestamanna á
Þingvöllum árið 1978 og auðvitað
var það bóndinn í Stórulág sem sat
Skúm í það sinn. Sigfinnur átti
marga úrvalshesta er hann sýndi á
hestamótum og reyndi á kappreið-
um. Er sá ferill viðburðaríkari en
svo að honum verði gerð skil hér.
Vonandi verður sú saga rakin á öðr-
um vettvangi síðar.
Þau Sigurbjörg og Sigfinnur eign-
uðust fjóra syni í þessari aldursröð:
Eiríkur, kvæntur Guðrúnu Sveins-
dóttur, Valþór, ókvæntur, Sigurður,
kvæntur Jóhönnu Gísladóttur frá
Ártúni, og Páll ókvæntur.
Sigfinnur tók mikinn þátt í félags-
störfum í sveit sinni. í hreppsnefnd
Nesjahrepps átti hann sæti um 28
ára skeið. Hann var einn af stofnend-
um Hestamannafélagsins Homfírð-
ings árið 1935 og vann að endur-
reisn þess félags árið 1959. Sigfinn-
ur var ötull liðsmaður í Ungmenna-
félaginu Mána og traustur sjálfstæð-
ismaður var hann alla tíð. Sigfínnur
var mikill greiðamaður og fljótur á
vettvang þar sem hjálpar var þörf.
Um þetta getum við Dóra borið, því
að marga ferðina átti Sigfinnur
hingað — og raunar voru þau hjón
stundum bæði á ferð — á frumbýl-
ingsárum okkar þegar tími til að
ljúka nauðsynlegum verkum var
naumur. Þessa minnumst við og
þökkum eins og svo margt annað í
okkar samskiptum á lífsleiðinni.
Hið víðfema og fjölbreytta
lífshlaup Sigfinns, sem hér hefur
verið lýst, færði honum mikla
reynslu sem nærði stórbrotinn per-
sónuleika, enda var lífstíll Sigfinns
á margan hátt sérstæður. Það var
þvf ekki heiglum hent að fylgja hon-
um eftir. Þeim vanda reyndist hins
vegar eiginkonan, Sigurbjörg í
Stórulág, vaxin, og tæpast held ég
að ofmælt sé að síst hafi hennar
hlutur legið eftir þegar litið er til
þeirra viðfangsefna sem Stórulágar-
hjónin tóku sér fyrir hendur á
lífsleiðinni. Sérstaklega minnast nú
sveitungar og vinir Sigfinns í Stóru-
lág með aðdáun og þakklæti þeirrar
umhyggju sem Sigurbjörg veitti
sjúkum bónda sínum síðustu æviár-
in.
Það er stutt leið á milli bæjanna
Stórulágar og Hoffells þar sem Sig-
finnur átti heimili mestan hluta
ævinnar. Þessir bæir eru báðir á
Innbyggð sem er innsti hluti Nesja-
sveitar. í náttúru þeirrar byggðar
og gróðurfari eru miklar andstæður.
Þar ber þó hæst svipmikinn fjalla-
hring, prýddan hvössum og háum
tindum. Þó að svo virðist sem styrk-
ur þessa umhverfis sé ævarandi
finnst mér nú, þegar svipast er um
inn á byggð, að einn tindurinn þaðan
sé horfinn.
Egill Jónsson
Ein af mörgum vatnslitamyndum,
sem Ásgrímur Jónsson listmálari
gerði austur í Skaftafellssýslu árið
1911, er frá Stórulág í Nesjum. Eft-
irprentun af þessari mynd er í eigu
margra Islendinga. I forgrunni á
myndinni er nokkuð myndarlegur
sveitabær með útihúsum og kálgarði
fallega fyrirkomið í grænu túni. í
baksýn blikar á skyggð Hornafjarð-
arfljótin í hreinviðri og logni en
umgjörðina mynda fjallatindarnir og
skriðjöklamir. Svona málaði snilling-
urinn á þeirri tíð en þetta var ekki
bara landslagsmynd, hún er líka
t
Móðir okkar,
ELSA D. JÓHANNESDÓTTIR,
Bergstaðastræti 22,
Landspítalanum 26. janúar.
Edda Márusdóttir,
Kristín Márusdóttir.
lést
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR JAKOBSDÓTTIR
frá Galtafelli,
Lönguhlið 3,
Reykjavik,
andaðist í Landspítalanum 25. janúar.
Jakob Albertsson, Elfn Guðmundsdóttir,
Guðmundur Jakobsson, Anna Lilja Guðmundsdóttir,
Sigriður Jakobsdóttlr, Albert Jakobsson,
Stefán Jökull Jakobsson.
t
Sambýlismaður minn og faðir okkar,
EGGERTLOFTSSON,
Kleppsvegi 6,
vistmaður á Elli- og hjúkrunarheimilínu Grund,
lóst 27. janúar.
Málfriður Sigfúsdóttir,
Matthías Eggertsson,
Guðbjörg Eggertsdóttir.
t
Maöurinn minn, faðir okkar, fósturfaðir og afi,
ÖGMUNDUR ELEMUNDARSON
frá Hellissandi,
Stigahlfð 24,
er látinn.
Karlotta Friðriksdóttlr,
Ólafur Ögmundsson, Gunnhildur Höskuldsdóttir,
Ingileif Ögmundsdóttir, Bragi Beinteinsson,
Ásta Maria Ólafsdóttir, Gunnar Ingimundarson,
Ögmundur Matthiasson
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
SVAVAR EINARSSON,
varð bráðkvaddurá heimili sínu í Gautaborg, laugardaginn 7. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð
og hluttekningu.
Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna og systkina hins látna.
Halldóra Lára Svavarsdóttir,
Ellert Svavarsson.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
ÓLAFUR MAGNÚSSON,
Boðahlein 14,
Garðabæ,
er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafólag íslands.
Sigþrúður Jónsdóttir,
Jónína M. Ólafsdóttir, Sigvaldi Ragnarsson,
Magnús Ólafsson, Elfn Helga Njálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför mannsins míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR ÁRNASONAR
frá Heiðarseli,
Hverahlið 12,
Hveragerði,
sem lést 18. janúar síöastliðinn, hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Innilegar þakkir til starfsfólks Ljósheima, Selfossi, og til ættingja
og vina fyrir auðsýnda samúö og vináttu.
Anna Guðjónsdóttir,
Guðbjörg Jóna Sigurðardóttir, Valdimar Ingvason,
Björgvln Heiðarr Arnason, Steinunn Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúö við andlát og jarðarför
ÁKA ÞORSTEINSSONAR,
Brimnesvegi 10,
Ólafsflrði
Gfsli Ákason,
Bjarney Ingólfsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóöur, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
MATTHILDAR HERBORGAR BENEDIKTSDÓTTUR
frá Reykjarfirði,
Grunnavikurhreppi.
Jóhanna Jakobsdóttir,
Guðfinnur Jakobsson,
Jóhannes Jakobsson,
Sigriður Jakobsdóttir,
Guðrún Jakobsdóttir,
Benedikt Jakobsson,
Ragnar Jakobsson,
Magnús Jakobsson,
Valgerður Jakobsdóttir,
Guðmundur Jakobsson,
Kristján Guðjónsson,
Guðríður Júliusdóttir,
Valgeir lllugason,
Nielsfna Þorvaldsdóttir,
Sjöfn Guðmundsdóttir,
Bjarnveig Samúelsdóttir,
Haukur Danfelsson,
Guðfinna Magnúsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og bamabarnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og
útför bróður okkar,
SIGURÐAR HELGASONAR.
Valgerður Helgadóttir,
Katrfn Helgadóttir,
Torfhildur Helgadóttir,
Ingibjörg Helgadóttir,
Jóhanna Helgadóttir,
Magnús Helgason.