Morgunblaðið - 28.01.1989, Page 38
38
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989
Úa sýnir hæfiii sína í að klifra
stíga
hún hefur áhuga en svo fer hún
sína leið. Sjálfstæðislundin er sterk
í henni eins og öðrum íslendingum!"
En Ödu hefur tekist að þjálfa
Úu svo vel að hún ber af í björgun-
arprófum. Þær hafa nú unnið sam-
an í rúm tvö ár. Þær sækja tíma
'allan ársins hring og þjálfa með 35
öðrum hundum og eigendum þeirra.
Þrír þeirra unnu björgunarstörf í
Armeníu eftir jarðskjálftana þar en
hundamir eru einnig þjálfaðir sem
snjóflóðahundar. Úa er ekki full-
þroska enn. Ada hyggst taka þátt
í prófi með hana í maí en í síðasta
prófi var hún best. „Hún átti að
ieita í miklum rústum og var fyrst
á fundarstaðinn. Hún er einstaklega
fim, fljót og létt á sér. Hinir hund-
amir höfðu ekki við henni."
Ada er sérstaklega ánægð með
árangurinn af því að hún einsetti
sér að sanna að íslenski hundurinn
væri vel fallinn til björgunarstarfa.
„Félagar í Björgunarsveit íslands
létu í ljósi litla trú á hæfni íslenska
hundsins þegar ég hitti þá. En nú
höfum við sýnt að honum er ekki
alls vamað."
BJORGUNARSTORF
Ada og Ua sanna ágæti
íslenska hundsins
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir
Maissen hjónin með þau Úu og
Mats
Zttrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara
w
Ua, fyárhundur af íslensku kyni,
hefur sýnt og sannað í Sviss
að íslenskum hundum er ekki alls
vamað. Úa vann fegurðarsam-
keppni fyrir nokkmm ámm og er
vel á veg komin með að verða viður-
kennd sem björgunarhundur. Feg-
urðin er henni meðfædd en björgun-
arþjálfunina á hún Ödu Maissen,
konu á sjötugsaldri sem er búsett
í fjallabænum Laax, að þakka.
„Hún verður æ viðráðanlegri með
aldrinum og hæfari til björgunar-
starfa," sagði Ada. Það leyndi sér
ekki að þjálfun Úu krefðist þolin-
mæði. „Frelsi er íslenskum hundum
í blóð borið," sagði hún.
Marietta Maissen og Pétur Behr-
enz, sem búa á Höskuldsstöðum í
Breiðdalsvík, sendu föður Mariettu
Úu og hundinn Kappa í afmælisgjöf
fyrir nokkmm ámm. Ada, móðir
Maríettu, hafði margra ára reynslu
í að þjálfa stóra, þýska ijárhunda.
„Þegar Mats, hundurinn sem ég var
að þjálfa, veiktist, ákvað ég að sýna
hvað í hringrófu býr,“ sagði hún.
„Fyrst í stað þótti mér dálítið
óþægilegt að mæta með hana í
þjálfunartíma og próf af því að hún
er svo lítil i samanburði við aðra
hunda sem ég er vön að vinna
með. Hún vakti athygli og margir
efuðust um að svona lítið kríli gæti
gert gagn á björgunarsvæðinu. En
hún leynir á sér.“
Maissen hjónin losuðu sig við
Kappa, hann býr nú í nágrenni við
Zúrich, en Úa hefur félagsskap af
Mats, stómm og sterkum Scháffer-
hundi. Hún gelti vel og lengi þegar
mig bar að garði. „íslensku hund-
Morgunblaðsins.
amir em þekktir fyrir að gelta í
tíma og ótíma," sagði ída „og hún
á það til að gelta of mikið. En hún
hefur lagast og mestu máli skiptir
að hún geltir á réttum tíma á björg-
unaræfingum."
Þá kom í ljós að Úa situr og
stendur eins og húsbóndi hennar
skipar henni, en innan vissra tak-
marka þó. Hún stóð sig vel innan
dyra og var ekki lengi að finna mig
þar sem ég stóð falin í kolniða-
myrkri í kjallara húss Maissen hjón-
anna. Hún kom hlaupandi, hnusaði
og gelti eins og hún ætti lífið að
leysa þangað til Ada kom. Úti fyrir
hljóp hún léttfætt upp stiga og þef-
aði þangað til hún fann grafinn
bakpoka í snjónum. En þá var hún
líka búin að fá nóg og Mats varð
að hjálpa henni og grafa upp pok-
ann. „Hún leggur sig fram meðan
Hjá Ellingsen færðu
fisléttar og sterkar
snjóskóflur, sterkar
snjóýtur, klakasköfur
sem vinna á svellinu og
strákústa sem gera sitt
gagn.
Sýndu fyrirhyggju og
fáðu þér réttu
strax.
HAGSTÆTT VERÐ:
Snjóskóflur kr. 1543,-
Snjósköfur kr. 2149,-
Kiakasköfur kr. 1559,-
Strákústur m. skafti kr. 398,
SENDUM UM ALLT
Grandagarði 2, Rvík, sími 28855
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Jóhann Pétur Sveinsson formaður Landssambands fatlaðra og Sjálfsbjargar lengst tíl vinstri afhenti
Geir Sverrissyni, lengst til hægri, viðurkenningu fyrir frækilegan árangur í sundi á Ólympíuleikum
fatlaðra i Seoul, en þar hlaut Geir silfurverðlaun. Á miðri myndinni er Friðrik Magnússon varaformað-
ur Landssambands fatlaðra og formaður félagsins á Suðurnesjum.
SUÐURNES
Landssamband fatlaðra heiðraði Geir Sverrisson sundkappa
Geir Sverrisson nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja var nýlega heiðraður af Landssambandi fátl-
aðra og Sjálfsbjörgu fyrir frækilegan árangur á Ólympíuleikum fatlaðra í Seoul, en þar hlaut
Geir silfurverðlaun í sundi. Athöfiiin fór fram í sal Fjölbrautaskólans og afhentí Jóhann Pétur Sveins- .
son, lögfræðingur og formaður Landssambands fatlaðra og Sjálfsbjargar, Geir Sverrissyni viðurkenning-
una. Fjölmargir nemendur ásamt skólastjóra og kennurum voru við athöfiiina og var Geir Sverrisson
hylltur að henni lokinni. gg