Morgunblaðið - 28.01.1989, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989
Haftiabolti og kynlíf
Poirot í Palestínu
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn
Stefiiumót við dauðann -
Appoíntment With Death
Leikstjóri Michael Winner.
Handrít Anthony Shaffer og
Peter Buckman byggt á sögu
eftir Agöthu Christie. Kvik-
myndatökustjóri David Gurfink-
el. Tónlist Pino Donaggio. Aðal-
leikendur Peter Ustinov, Lauren
Bacall, Carrie Fisher, John
Gielgud, Piper Laurie, Hayley
Mills, Jenny Seagrove, David
Soul. Bandarísk. The Cannon
Group Inc. 1988.
Myndin hefst í New Jersey, þar
sem Boynton-Qölskyldan er saman-
komin. Tilefnið er fráfall heimilis-
föðurins. Undir lestri erfðaskrár-
innar kemur á meðlimina, seinni
eiginkonan, Laurie, er einkaerfíngi
og brögð í tafli. Hún heldur því
næst með hópinn í ferðalag um
Evrópu til Palestínu (mjmdin gerist
á fjórða áratug aldarinnar), og
bætist fleira fólk í hópinn. Fyrstan
skal frægan telja sjálfan leynilög-
reglusnillinginn Poirot (Ustinov),
lækninn Seagrove og Gielgud, höf-
uðsmann hans hátignar. Síðan
kemur að hinu óumflýjanlega
morði, er Poirot er annars vegar,
og fer hann nú að vinsa þá sak-
lausu frá hinum seka . . .
Þær eru orðnar margar Poirot-
myndimar með Ustinov í aðalhlut-
verkinu og eru þær flestar þokka-
legar til afþrejnngar. Svo er með
Stefnumót við dauðann. Bókin
flettist á tjaldið án umtalsverðra
tilþrifa að neinu leyti. Skelfíngar
ósköp átakalaus. En það hefur ver-
ið hlaðið á hana sómasamlegum
leikumm í aukahlutverkin og ekk-
ert hefur verið til sparað að hafa
rammann sem bestan, því myndin
er tekin víðsvegar í Evrópu og í
ísrael. Sviðsmynd og búningar með
þeim ágætum að endursköpun lið-
inna tíma hefur tekist prýðilega.
En andann og spennuna vantar.
Alls ekki leiðinleg, en heldur ekki
beint skemmtileg. Enda Winner við
stjómvölinn.
Háskólabíó
Bull Durham
Leikstjóri og handrítshöfundur
Ron Shelton. Kvikmyndatöku-
stjóri Bobby Byrne. TónUst
Michael Convertino. Aðalleik-
endur Kevin Costner, Susan
Sarandon, Tim Robbins, Trey
Wilson, Robert Wuhl.
Bandarísk. Orion 1988.
Að óséðu skilgreina menn
gjaman „Bull Durham" sem
„hafnaboltamynd", sem ,er, svo
vitnað sé í Walt Whitman, „HINN
ameríski leikur". Og satt best að
segja hef ég álíka þekkingu á
þessu fyrirbæri og hundurinn
minn á umferðarreglunum. Og
litlu nær eftir sýninguna. Enda,
er að var gáð, fjallar Bill Durham
ekkert frekar um hafnabolta en
margt annað. Fyrst og fremst
mannlífsmynd þar sem hressilegt
kynlíf kemur við sögu, mannleg
samskipti, töp, sigrar. Hafnabolt-
inn er þó oftast í bakgrunni en
þá er oftar verið að bregða ljósi
á viðskipti leikmannanna, eðli
þeirra og hvað heldur þeim gang-
andi. Maður þarf því ekki að hafa
hundsvit á hafnabolta til að hafa
gaman af mjmdinni, sem að auki
er bráðfyndin og frásögnin oftast
á léttu nótunum.
Costner, seigur og ákveðinn
leikmaður sem er að komast á
aldur, er fenginn til smábæjarliðs-
ins Bull Durham, sem spilar í
annarri deild. Hlutverk hans að
„temja" hinn unga og efnilega
Robbins, sem hefur allt vitið í
hægri handlegg og milli fóta sér.
Sannkölluð valkyija býr í bænum
(Sarandon), mikill hafnaboltaunn-
andi og ekki hefur hún minni
áhuga á spengjlegum leikmönn-
unum. Hefur það fyrir sið að velja
sér þann efnilegasta í liðinu við
upphaf hvers tímabils, sem bólfé-
laga meðan á því stendur. En hún
þræðir með þeim fleiri stigu en
unaðsbrautir amorsbragða, því
stúlkan hefur næmt auga fyrir
blæbrigðum boltaleiksins sem og
seiðmögnun fagurbókmennta,
sem piltarnir hennar fá að kjmn-
ast, hvort sem þeir vilja eða ekki.
En nú er Sarandon vandi á
höndum, getur ekki gert uppá
milli Robbins og Costners. En
gamli naglinn er ekki tilbúinn í
neina útsláttarkeppni og Robbins
dettur því í lukkupottinn. En und-
ir niðri geijast tilfinningarnar.
Það er unun að fylgjast með
aðalleikurunum þrem, ekki síst
Sarandon. Hún minnir á Sírenur
Homers, sem seiddu til sín menn
og tortímdu. Hún er stórglæsileg,
hæfíleikamir og kynþokkinn
geislar af henni. Það má mikið
vera ef hennar verður ekki getið
í næsta mánuði er greint verður
frá Óskarsverðlaunatilnefningum.
Hinn lítt kunni Tim Robbins
(Howard The Duck) fer á kostum
sem nýliðinn „með milljón dollara
handlegginn en frmm senta haus-
inn“, og Costner er traustur að
vanda. Aukaleikarar vel valdir.
Klipping og kvikmyndataka eru í
fyrsta gæðaflokki og þrátt fyrir
nokkrar brotalamir, einkum í
handriti, má það teljast lygilegt
að Bull Durham er byijunarverk
leikstjórans og handritshöfunds-
ins Sheltons.
Satt og logið í gömlu Hollywood
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Gáskafullir grallarar („Sunset").
Sýnd í Stjörnubíói.
Bandarisk. Leikstjóri: Blake Ed-
wards. Helstu hlutverk: Bruce
Willis, James Gamer, Mariel
Hemingway og Malcolm McDow-
eU.
Gáskafullir grallarar („Sunset")
er ein af þessum myndum sem hef-
ur allt með sér. Aðalleikaramir eru
Bruce Willis og James Gamer í hlut-
verkum sögufrægra persóna og
aukaleikaramir engir aukvisar
heldur. Leikstjóri er gamansmiður-
inn Blake Edwards, sögusviðið er
Holljrwood þöglu myndanna á ofan-
verðum þriðja áratugnum, sagan
er um morð og spillingu og berg-
málar af raunverulegum Holly-
wood-hneykslum sem skóku
draumaverksmiðjuna á sínum tíma
og komu illu orði á starfsfólk henn-
ar.
Allt er þetta verulega lokkandi,
frumlegt og frísklegt á pappímum
en myndin stendur sjaldnast undir
þeim væntingum sem efniviðurinn
gefur tilefni til og nýtir góða hug-
mynd illa.
Fyrst og fremst er um að kenna
bragðlitlu og dauflegu handriti, sem
situr fast einhvers staðar á milli
farsakennds gamans og dauðans
alvöru, og leikstjóm Edwards, sem
er fljótfæmisleg, yfírborðskennd og
tilgerðarleg þegar kemur að sam-
skiptum persónanna og lýsingu á
umhverfi þeirra. Hann virðist hafa
ósköp litla tilfinningu fyrir persón-
um sínum, staðnum sem þær búa
á og tímanum sem þær lifa í.
Gáskafullir grallarar, sem sýnd
er í Stjömubíói, segir frá því þegar
þjóðsagnapersónan Wyatt Earp
(James Gamer) kemur til Holly-
wood til að vera ráðgjafí við gerð
þögullar kúrekamyndar byggð á
löggæslustörfum hans í Tombstone.
Earp er langskemmtilegasta per-
sóna myndarinnar, þökk sé einstak-
lega aðlaðandi leik og jrfirveguðu
stórstjömufasi Gamers. Hann er
ein af lífseigustu Holljrwood-stjöm-
unum og einn af þessum sem mað-
ur nýtur þess að horfa á hvað sem
hann leikur á sinn rólyndislega,
eðlilega hátt, fullkomlega laus við
sýndarmennsku. Sú skæra stjama
Tom Mix (Bruce Willis), vestrahetja
þöglu myndanna í jólaskrautlegum
kúrekafötum — sem gera hann tals-
vert hlægilegan hvort sem Edwards
hafi ætlað það eða ekki (líklega
ekki) — leikur Earp í myndinni sem
verið er að gera og er lítið annað
en sýndarmennskan. Það er ekki
burðarmikið hlutverk frekar en
önnur í myndinni en gefur svölum
og töffaralegum Willis tækifæri til
að spóka sig í skrautklæðnaðinum.
Bæði Earp og Tom Mix, sem var
einn fremsti kúrekaleikari þöglu
myndanna, voru til í raunveruleik-
anum en hneykslis- og morðmálið
sem þeir lenda í og leysa í mynd-
inni er tilbúningur — það munar
einni lygi eða svo eins og þeir
segja. Því tengist sadistalegur Mal-
colm MacDowell í hlutverki kvik-
myndaframleiðanda með slæma
samvisku ef hann hefur þá ein-
hveija, Mariel Hemingway, sem
leikur unga mellumömmu og elsk-
una hans Gamers, spilltur lögreglu-
foringi og gangster frá Síkakó.
Gáskafullir grallarar er stundar-
skemmtun sem vantar hold á bein-
in. Það getur verið gaman að fylgj-
ast með stjömunum en það nægir
ekki eitt sér þótt James Gamer
komist nokkuð langt með það.
BORGARTÚNI 32 - SÍMI 35355
{jgcÆÉa.//- -úety
Cubaóskar Bíóhöllinni til hamingju með frumsýningu á
toppmyndinni Coctail. Af því tilefni sýnum við valin skot
úr myndinni á risaskjánum, leikum lögin og gefum heppnum
gestum boðsmiða.
Opið í kvöld kl. 23-03 Kr. 600,-
Ný tónlist - Suðrænt andrúmsloft
Gömlu dansarnir
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar
og söngkonan Pálína Vagnsdóttir.
Aðgöngumiðar í síma 685520 frá kl. 18.00.
Allirvelkomnir.
Næsta ball verður 11. febrúar.
Eldridansaklúbburinn Elding.
QLÆSIBÆ
ÁIFHEWMJM74. SáM686220.'\
LAUGARDAGUR:
Alltupppantaðímat.
SUNNUDAGUR:
Gömludansarnir. Hljómsveit
Jóns Sigurðssonar leikur gömlu
dansana frá kl. 21.00 til 01.00.
Snyrtilegur klæðnaður.
Rúllugjald kr. 600,-
OPIÐ í KVÖLD
Lágmarksaldur 20 ór Kr. 600,-
KOSS
KODBDLÖDRKOmiWm
32. sýn. í kvöld kl. 20.30.
33. sýn. sunnud. 29/1 kl. 16.00.
Nzst síðasta sýnhelgi!
Sýningar ern i kjallara Hlaðvarp-
ans, Vesturgötu 3. Miðapantanir
x síma 15185 allan sólarhringinn.
Miðasala í Hlaðvarpanum 14.00-
14.00 virka daga og 2 tímum fyrir
sýningn.
GUÐMUNDUR
HAUKUR
Leikur í kvöld
QHOTELO
mtCtlKM ^VNOIII
Fntl inntynrW 21 00
Aðgangseynr kj 3M tí U 21 00