Morgunblaðið - 28.01.1989, Side 45

Morgunblaðið - 28.01.1989, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS "VlÐ ÞURFUM LÍKR RÐ BREVTR LflNOSlÖGUM HÉR fl i^LflNPI R PflNN VB& R9 RÍKISTORSTJðRflR OG STOÓRNENOUR RlKISFVRlRTÆKJH SEM EKKI STflNOfl I STVKKINU VERfll HÐ FflRF? FRfl" -ÓRcs ó STjóRMMnuflPUNDl A BRORBVRI Þessir hringdu . . Hagsmunir sparifláreigenda hafðir að engu SpariQáreigandi hringdi: „Með kveðju til Stefáns Val- geirssonar, formanns bankaráðs Búnaðarbankans, leyfi ég mér að tilkynna honum að ég, sem hef verið sparifjáreigandi í Búnaðar- bankanum í 30 ár, tel mig til- neydda að slíta viðskipum við Búnaðarbankann, sem aldrei hef- ur heyrst orð frá til vamar sparifj- áreigendum, og færa þau yfir til hins skelega talsmanns okkar og skynseminnar, Sverris Hermanns- sonar. Eg er ein af þéim sem hef engin lífeyrisréttindi eins og margt af eldra fólki. Hef ég því lengi stefnt að því að skapa mér nokkurt öryggi í ellinni. Nýleg könnun leiddi í ljós að mikill meirihluti sparifjáreigenda hefur minna en meðaltekjur og takmörkuð lífeyrisréttindi. Þessi staðreynd hefur því miður ekki verið nægilega undirstrikuð í fjöl- miðlum. Félagshyggjubræðurnir, Steingrímur Hermannsson og Stefán Valgeirsson þurfa víst litl- ar áhyggjur að hafa af elliárunum, þeir hafa skammtað sér sjálfir margföld eftirlaun til daúðadags. Væri verðugra verkefni fyrir þá að breyta þeim ósóma í stað þess að hóta litla fólkinu eignaupptöku með handafli.“ Hreinsið dekkin Ökumaður. hringdi: „Þó Umferðarráð hafi oft hvatt ökumenn til að hreinsa dekk bif- reiða sinna þegar færðin er slæm hef ég til skamms tíma látið það undir höfuð leggjast. Fyrir nokkru ákvað ég að gera tilraun og varð alveg hissa hversu miklu það munaði. Fólk heldur sjálfsagt að þetta sé mikið verk og þurfi að skrúbba dekkin vel og vandlega. Ég setti einfaldlega „whitespirit“ á úðabrúsa og úðaði svo dekkin. Að því loknu lét ég bílinn standa smá stund en ók svo af stað. Það kom mér mjög á óvart hversu gripið var miklu betra. Nú hef ég reynt þetta á fleirum en einum bíl og er árangurinn alltaf jafn góður. Þetta er mjög einföld að- gerð sem skilar miklum árangri. Mér hefur jafnvel dottið í hug að bensínstöðvarnar gætu komið upp einhveijum rennum sem aka mætti eftir til að hreinsa dekkin. Það gæti komið í veg fyrir mörg slys.“ Gullarmband Gullarmband tapaðist fyrir ut- an Landakots spítala á gamlárs- kvöld. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 24621. Úr Kvenúr með svartri leðuról tap- aðist fyrir skömmu. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 14742. Eyrnalokkur Gulleyrnalokkur tapaðist 17. janúar, annað hvort við Skóla- vörðustíg eða Laugaveg. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja síma 36244. Hjartans þakkir fœri ég öllum œttingjum mínum og vinum sem heiÖruÖu mig og sýndu mér hlýhug og sóma meÖ heimsóknum, stór- gjöfum og vinarkveÖjum á 70 ára afmœli minu þann 15. janúar sl. Megi hamingja fylgja ykkur öllum. Hallgrímur Guðjónsson frá Hvammi. N Á M S K E I Ð SAIMSKIPTI FORELDRA OG BARNA Nú er að hefjast námskeið þar sem foreldrum gefst kostur á að kynnast og tileinka sér ákveðnar hugmyndir og aðferðir í samskiptum foreldra og barna. Þar verður m.a. fjallað um hvað foreldrar geta gert til að: • aðstoða börn sín við þeirra vandamál • leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi • byggja upp jákvæð samskipti innan fjöl skyldunnar Námskeiðin byggja á hugmyndum Dr. Thomas Gordons sálfræðings, höfund bókarinnar „Samskipti foreldra og barna.“ Leiðbeinendur hafi hlotið þjálfun til að halda þessi námskeið á íslandi. Námskeiðin verða 3 klst. í einu, í 8 skipti. Upplýsingar og skráning S: 82804 • 621132 Hugo Þórisson, sálfrœðingur. Wilhelm Norðfjörð, sálfrœðingur saMskipti FRÆDSLA QG RÁOGJÖF SF. Samskipti lorcldra og barna Samskipti unglinga. Samskipti á vinnustað Samskipti við viðskiptavini Samskipti kcnnara og ncmcnda Samskipti stjórncnda og starfsmanna Mannlcg samskipti/ákvcðniþjálfun bílasýning laugardag kl. 13-16, árgerð 1989 HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK, SÍMI 689900

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.