Morgunblaðið - 28.01.1989, Qupperneq 47
(íti 1/U í'l fS i,
MORGUNBLAÐE)
ÍÞRÓTTIR
LAUGAEDAGUR 28. JANUAR 1989
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ
„Gerðumof
mörg mistök"
- sagði Þorgils Óttar Mathiesen fyrirliði
landsliðsins eftirtapfyrirTékkum
ÍSLENDINGAR töpuðu naum-
lega fyrir Tékkum í gœr f fjörug-
um leik í fþróttahúsinu f Haf n-
arfirði. íslenska liðið lék vel en
fór illa með góð fœri á lokamfn-
útunum og Tékkar sigruðu
23:22.
Hafnfírðingamir Þorgils og
Kristján gáfu tóninn. Þorgils
gerði fyrsta markið eftir glæsilega
línusendingu frá Kristjáni. Liðin
skiptust svo á að
LogiB. skora fram undir
Eiösson miðjan fyrri hálfleik.
skrífar Þá náðu íslendingar
þriggja marka for-
skoti og voru yfír í leikhléi, 12:10.
Tékkar bytjuðu vel í síðari hálf-
leik og gerðu fímm mörk gegn einu.
Þeir komust svo þremur mörkum
yfír, héldu þeim mun allt til leiks-
loka og gerðu út um leikinn tíu
sekúndum fyrir leikslok. Guðmund-
ur Guðmundsson náði þó að laga
stöðuna með marki á síðustu sek-
úndunum.
íslendingar léku á köflum mjög
vel; vömin sterk og sóknarleikurinn
fjölbreyttur. Tékkar tóku svo við
sér, færðu vömina framar og tóku
tvo leikmenn úr umferð. Við það
varð sóknarleikur íslendinga vand-
ræðalegur og Tékkar náðu undir-
tökunum. Undir lokin virtust íslend-
ingar eiga góða möguleika á að
jafna en stangar- og sláarskot
gerðu út um vonir þeirra.
Alfreð Gíslason átti mjög góðan
ieik og Kristján og Þorgils náðu
mjög vel saman. Guðmundur Guð-
mundsson stóð sig vel og Héðinn
og Sigurður Gunnarsson áttu góða
spretti.
„Við gerðum einfaldlega og mörg
mistök, bæði í vöm og sókn,“ sagði
Þorgils Óttar Mathiesen. „Við náð-
um ekki að stjóma hraðanum og
lentum í vandræðum þegar þeir
tóku tvo úr umferð. En það er
kannski gott að það komi fram
núna en ekki í B-keppninni,“ sagði
Þorgils.
Liðin mætast að nýju í Laugar-
dalshöllinni í dag kl. 17.
Island-Tékkóslóvakía 22 : 23
íþróttahúsið 1 Hafnarfirði, vináttulandsleikur t handknattleik, föstudaginn 27. janúar 1989.
Gangur leiksins: 1:0, 2:1, 8:3, 6:3, 6:6, 8:6, 8:8, 9:9, 11:9, 11:10, 12:10, 13:11, 13:16,
16:16, 16:17, 16:19, 17:20, 18:20, 19:22, 20:22, 21:22, 21:23, 22:28.
fsland: Alfreð Glslason 6/1, Þorgils Óttar Mathiesen 4, Kristján Arason 4/1, Guðmund-
ur Guðmundsson 3, Sigurður Gunnarsson 8/2, Héðinn Gilsson 2. Bjarki Sigurðsson,
Jakob Sigurðsson, Geir Sveinsson, Guðjón Árnason og Júlíus Jónasson.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 8/1, Guðmundur Hrafnkelsson 3.
Utan vallar: 2 minútur.
Tékkóslóvakfa: Miroslav Bajqar 6, Martin Liptak 6/3, Petr Baumruk 4, Martin Setlik
3, Libor Sovaclina 3, Jan Sedlack 2, Jan Novak 1. Milan Folta, Jiri Kotrc, Josef Toma,
Casaba Szucs.
Varin skot: Lubomir Svaljen 14/1, Dusan Bakara 1/1.
Utan vallar: 8 mtnútur.
Dómarar: Hans Thomas og Jiirgen Thomas frá V-Þýskalandi. Dæmdu þokkalega.
Áhorfendur: 1.000.
V GARY Gillespie og Jim Begl-
in em komnir á ný inn í hópinn
hjá Liverpool, en þeir hafa verið
lengi frá vegna meiðsla. Nigel
Spackman kemst
hins vegar ekki í lið-
ið og hefur QPR
boðið 500 þúsund
pund í kappann.
■ MARK Lawrenson er byijað-
ur að leika á ný, nú með Thame
United, sem er í Suður-Miðlanda-
deildinni. Lawrenson lék sinn
fyrsta leik í vikunni og mættu 450
áhorfendur, en venjulega eru um
50 manns á leikjum Thame.
Frá
Bob
Hennessy
i Englandi
■ JOHN Gregory, nýráðinn
stjóri Portsmouth, réð í gær Steve
Wicks sér til aðstoðar. Wicks
hefur að undanfömu þjálfað hjá
Tampa í Bandaríkjunum.
I SIMON Stainrod skrifar und-
ir sex mánaða samning við Strass-
borg í Frakklandi eftir helgi.
Stainrod hætti hjá Stoke fyrir
hálfum mánuði, en hann hefur einn-
ig leikið með Aston Villa,
Sheffield Wednesday, QPR, Old-
ham og Sheffield United.
■ GLYN Hodges er óánægður
hjá Watford og vill fara frá félag-
inu.
■ CHRIS NichoII situr í heitu
sæti hjá Southampton og er senni-
legt að skipt verði um stjóra á
næstunni.
■ UPPSELT er á bikarleik Mill-
wall og Liverpool, sem verður
sjónvarpað beint í Englandi á
sunnudag. 24.500 miðar hafa verið
seldir.
Hvað sögðu þeir?
„Gaman að koma
aftur heim“
- sagði Kristján Arason
ÞAÐ var mjög gaman að koma
aftur helm ífjörðlnn en að
samaskapi lelðinlegt aðtapa,"
sagði Kristján Arason, eftir
leikinn gegn Tókkum en það
var fyrsti leikur hans í Haf nar-
firði í fimm ár.
Við fórum illa með góð færi og
það vom of mikil læti í okkur
og taugaspenna. Það vantaði
kannski svolitla yfírvegun. Okkur
fór að ganga illa þegar þeir komu
út á móti og trufluðu okkur í sókn-
inni.
Tékkar em alltaf sterkir en ég
hef trú á að við sigmm þá á morg-
un [í dag],“ sagði Kristján.
„Verðum að nýta fasrin"
„Þetta var ekki nógu góður leik-
ur og við verðum að nýta dauðafær-
in, vítaköstin og þegar menn em
komnir einir í gegn. Annars vinnum
við ekki þjóðir á borð við Tékka,"
sagði Bogdan Kowalczyk, þjálfari
íslenska landsliðsins. „Það vantaði
einbeitingu og meiri baráttu í síðari
hálfleik.
Ég lofa því að leikurinn á morg-
un [í dag] verður mun betri,“ sagði
Bogdan Kowalczyk.
KNATTSPYRNA / BELGIA
Amór með að nýju
Amór Guðjohnsen, landsliðsÞ-
40— maður í knattspymu,
leikur sinn fyrsta deildarleik í þrjá
mánuði á morgun - þegar
Anderlecht leikur
Frá Bjama gegn RC Mecelen.
Markússon „Það er erfítt fyrir
iBeigíu menn að gera sér
grein fyrir því
hvað það er fyrir knattspymu-
mann að snerta ekki knött í
hundrað daga. Það er hrein mar-
tröð," sagði Arnór Guðjohnsen í
viðtali við belgíska blaðið La
Derniére Heure í gær.
Anderlecht á ekki að eiga í
vandræðum með RC Mecelen, sem
er ekki eins sterkt og Evrópu-
meistaralið KV Mecelen. „Það er
enginn útileikur auðveldur. Það
er beðið eftir okkur bak við hvert
hom,“ sagði Amór. „Ég ekki orð-
inn 100% góður, en er allur að
koma til.“
KNATTSPYRNA
Hreinsanir hjá
A-Þjóðverium
AUSTUR—ÞJÓÐVERJAR, sem
leika meö íslendingum í riðli
íheimsmeistarakeppnlnni í
knattspyrnu, hafa gert rót-
tækar breytingar á liði sínu.
Sjö leikmenn hafa verið tekn-
ir úr liðinu og fleirl breytingar
hafa verið boðaðar af yffir-
stjóm austur-þýskra knatt-
spyrnumála.
Wolfgang Spitzer, aðalritari
a-þýska knattspymusam-
bandsins, sagði að þessar breyt-
ingar væm fyrst og fremst gerðar
til að koma liðinu í lokakeppnina
á Ítalíu á næsta ári og til að lag-
færa ýmislegt í a-þýskum knatt-
spymumálum.
Sjö leikmenn hafa fengið að
taka pokann sinn eftir tap lands-
liðsins fyrir Tyrkjum, 1:3. Miðju-
maðurinn Rainer Emst frá Dyn-
amo Berlin er ekki lengur í lands-
liðshópnum og heldur ekki Ralf
Minge frá Dynamo Dresden. Þetta
eru tveir af bestu mönnum liðsins
en missa sæti sín vegna meiðsla
eða slakrar frammistöðu.
Manfred Zapf hefur tekið við
þjálfarastöðunni af Bemd Stange.
Hann mun þó ekki einn axla
ábyrgðina af liðinu því a-þýska
knattspymu9ambandið hefur
skipað tvo aðstoðarþjálfara, Heinz
Wemer og Frank Engel. Þre-
menningamir em allir lærðir
íþróttakennarar.
Spitzer sagði að tíu leikmenn
yrðu valdir til reynslu í stað þeirra
sjö sem missa sæti sín. Einn þeirra
er markvörðurinn Rene Muller frá
Lokamotiv Leipzig en hann á að
taka við fyrirliðastöðunni.
Spitzer sagði að fleiri breyting-
ar myndu fylgja í kjölfarið til þess
að gera veg knattspymunnar sem
mestan í A-Þýskalandi.
A-Þjóðverjar mæta íslending-
um á Laugardalsvellinum 6. sept-
ember en áður mæta þeir Tyrkj-
um, Sovétmönnum og Austurrík-
ismönnum.
KORFUBOLTI
Valsmenn hætta við
Draga kæruna til baka
Valsmenn hafa ákveðið að draga
kæm sína á hendur KR-ingum
til baka. Þeir sendu inn kæm til
KKÍ eftir leik liðanna í úrvalsdeild-
inni ( körfuknattleik á fímmtudag-
inn og vildu meina að KR-ingar
mættu ekki nota Guðna Guðnason
sem er nýkominn frá Bandaríkjun-
um.
Valsmenn hafa nú dregið kæmna
til baka. Þeir höfðu samband við
lögfróða menn og komust að því
að ekki væri gmndvöllur fyrir kær-
unni.