Morgunblaðið - 01.03.1989, Síða 1
56 SIÐUR B
50,tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Viðbrögð við verðhækkunum í Venezúela:
Mestu óeirð-
ir í þnátíu ár
Caracas. Reuter.
TALIÐ er að hátt í hundrað
manns hafi fallið og mörg hundr-
uð særst í miklum óeirðum í
Venezúela undanfarna tvo daga.
Mótmælin eru hin mestu í þrjátíu
ár en harkalegar efhahagsráð-
stafanir stjórnarinnar hrundu
þeim af stað. Carlos Andres
Perez, forseti Venezúela, til-
kynnti í gær að lýðréttindi yrðu
skert um sinn og útgöngubann
hefúr verið sett á frá kvöldi til
EB-EFTA:
Hugmynd-
ir um tolla-
bandalag
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara
Morgimblaðsins. Reuter.
Friverslunarbandalag Evrópu
(EFTA) og Evrópubandalagið
(EB) ættu að semja um frjáls við-
skipti á sviði vöru, þjónustu, fjár-
magns og vinnuafls. Einnig ætti
að koma á tollabandalagi banda-
laganna tveggja og stefiia ber
að samræmingu hvað snertir lög-
gjöf. Þetta eru nokkrar af niður-
stöðunum í tillögu að yfirlýsingu
væntanlegs fúndar forsætisráð-
herra EFTA-Ianda í Ósló dagana
14.-15. mars, að sögn norska
Dagblaðsins í gær.
Norðmenn eru í forsæti ráðherra-
nefndar EFTA fyrri hluta þessa árs
og móta því drög að tillögum fund-
arins í mars. Dagblaðið, sem með
einhveijum hætti komst yfir drögin,
telur að tillagan hafi að markmiði
að breyta EFTA í „lítið Evrópu-
bandalag", en Gro Harlem Brundt-
land, forsætisráðherra Noregs,
vísaði slíkum getgátum á bug í
gær. Af opinberri hálfu er jafnframt
sagt að umrædd tillaga sé aðeins
ein af mörgum sem unnið sé að og
orðalag sjálfrar yfirlýsingarinnar
geti orðið allt annað í reynd.
morguns í höfuðborginni.
Carlos Andres Pérez varð forseti
Venezúela eftir kosningar í desem-
ber. Hann lofaði að grynnka á
gríðarlegum erlendum skuldum
ríkisins. Ekki leið á löngu uns for-
setinn kynnti róttækari efnahags-
aðgerðir en landsmenn hafa kynnst
í áratugi. Talið er víst að þannig
hyggist hann undirbúa jarðveginn
fyrir lántöku hjá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum en í sex ára hafa stjórn-
völd í Venezúela reynt að komast
af án þess að ganga að skilyrðum
sjóðsins. Um helgina hækkaði far-
gjald strætisvagna um 30% svo
dæmi sé tekið og bensín um 90%.
Almenningur í Venezúela hefur
búið við bestu lífskjör í Suður-
Ameríku og hann lét sér verð-
hækkanimar ekki lynda. Víða kom
til átaka við lögreglu þar sem brot-
ist hafði verið inn í verslanir.
Reuter
Hálf milljón Serba að minnsta kosti kom saman á ráðhústorginu í Belgrað í gær til að mótmæla af-
sögn þriggja stjórnmálaforingja í Kosovo. Eins og sjá má klifú menn bronsfák sem stendur fyrir fram-
an þinghús borgariniiar. Fánum Júgóslavíu og Serbíu var veifað og menn sungu: „Við sleppum ekki
hendinni af Kosovo!“
Mótmæli hálfrar milljónar Serba í Belgrað:
Herinn í viðbragðsstöðu
er óeirðirnar breiðast út
Belgrað. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti hálf milljón manna af serbnesku bergi brot-
in hélt mótmælafúnd fyrir framan þinghúsið í Belgrað, höfúð-
borg Júgóslavíu, í gær. Mannfjöldinn mótmælti því að háttsettir
leiðtogar í héraðinu Kosovo höfðu verið neyddir til að segja af
sér með allsheijarverkfalli albanskra íbúa héraðsins. Stjórn-
málaieg upplausn er nú í Júgóslavíu og er ástandið hvað ótrygg-
ast í Kosovo. Júgóslavneski herinn er í viðbragðsstöðu hvar-
vetna í héraðinu. Hermenn eru á hveiju strái og orrustuþotur
sáust fljúga nokkrum sinnum yfír Pristínu, höfúðborg Kosovo,
í gær.
Allsheijarverkfalli albanska
þjóðarbrotsins lauk í Kosovo í
fyrrakvöld. Þá urðu þrír flokks-
foringjar, hliðhollir Serbum, við
kröfum verkfallsmanna og sögðu
af sér. Þeir heita Rahman Morina,
formaður flokksdeildarinnar í
Kosovo, Husamedin Azemi, for-
maður flokksins í Pristínu, og Ali
Sukrija, félagi í miðstjórn júgó-
slavneska kommúnistaflokksins.
Verkfallið hafði staðið í viku en
námumenn fóru í fararbroddi með
hungurverkfalli. í gær sátu 8.000
námsmenn þó sem fastast á
íþróttaleikvangi í Pristínu.
Serbarnir, sem komu saman í
Belgrað í gær, lýstu yfir stuðningi
við leiðtoga sinn, Slobodan Mil-
osevic, en hann berst fyrir því að
sjálfstjórnarhéraðið Kosovo verði
innlimað í Serbíu. Milosevic ávarp-
aði fundinn og sagði að forsprökk-
um verkfallsins í Kosovo yrði refs-
að vægðarlaust. Aðrir ræðumenn
kröfðust þess að fijálslyndishreyf-
ingar í Slóveníu yrðu brotnar á
bak aftur.
Óeirðir breiddust út til Svart-
fjallalands og sjálfstjómarhéraðs-
ins Vojvodínu í gær. Svartfellingar
eru hlynntir áformum um aukin
ítök Serba í Kosovo. Forráðamenn
í Slóveníu og Króatíu saka hins
vegar Milosevic um að vilja stofna
nýtt ríki þar sem Serbar ráði lög-
um og lofum.
írak:
Olofs Palme
minnst
í gær voru þijú ár liðin síðan Olof
Palme, forsætisráðherra Sviþjóð-
ar, féll fyrir morðingjahendi á
götu í Stokkhólmi. Fimm norrænir
forsætisráðherrar, staddir á þingi
Norðurlandaráðs, fóru saman að
leiði Palme í gær og vottuðu hinum
látna virðingu sína. Þeir eru frá
vinstri talið: Steingrímur Her-
mannsson, Harri Holkeri frá Finn-
landi, Ingvar Carlsson frá Svíþjóð,
Poul Schlilter frá Danmörku og
Gro Harlem Brundtland frá Nor-
egi.
Sjá fréttir af þingi Norðurlanda-
ráðs í Stokkhólmi á bls. 21.
Pressens Bild
Dæmi þess að smá-
börn séu pyntuð
Lundúnum. Reuter.
BÖRN allt niður í fimm mánaða gömul eru pyntuð, fangelsuð og
tekin af lífi í írak, segir í skýrslu mannréttindasamtakanna Amn-
esty International. Þar segir að írösk yfirvöld bijóti gegn alþjóðalög-
um og eigin lögum með því að leggja blessun sína yfir misþyrming-
ar og morð á þúsundum barna.
Samkvæmt skýrslu Amnesty Int-
ernational, sem birt var í gær, hafa
stjórnvöld í Irak lagt börn pólitískra
andófsmanna í einelti undanfarin
ár. Markmiðið með þessum óhugn-
anlegu aðferðum er að fá foreldrana
til að koma úr felum eða knýja
börnin til sagna. Dæmi eru um að
skólabörn hafi verið tekin höndum,
látin stilla sér upp í röð og skotin
á opinberum vettvangi.
I skýrslunni er sagt frá handtöku
300 kúrdískra barna árið 1985 í
bænum Sulaimaniya í hefndarskyni
við stjórnmálaþátttöku ættingja
þeirra. Flest börnin eru horfir spor-
laust, talið er að þijú hafi látist af
völdum pyntinga og vitað er að 29
voru tekin af lífi í janúar árið 1987.
Maður sem handtekinn var um leið
og börnin segir að þau hafi sætt
barsmíðum, kynferðislegu ofbeldi
og þeim hafi verið gefið raflost.
Sagt er frá öðru dæmi um fimm
mánaða gamalt barn sem svelt var
til að knýja móðurina, sem var í
haldi í næsta klefa, til sagna.
Að sögn Amnesty International
hefur Saddam Hussein forseti Iraks
ekki brugðist á viðunandi hátt við
ítrekaðri beiðni samtakaqna um
úrbætur í mannréttindamálum.