Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989
Sanitas bruggar allan
sólarhringinn á Akureyri
UNNIÐ hefur verið á sólarhringsvöktum hjá Sanitas á Akureyri
síðan i janúarmánuði og eru forsvarsmenn fyrirtækisins ánægðir
með árangurinn. Eins og fram hefúr komið í Morgunblaðinu fór
Sanitas út í mikla stækkun á bjórverksmiðju sinni á Akureyri og
eru þar nú framleiddar þijár bjórtegundir, Pilsner 4,6%, Lageröl
5,6% og Löwenbráu 5,3%. Framleiðslan hefur gengið vel, að sögn
Baldvins Valdimarssonar, framkvæmdastjóra Sanitas.
„Okkur hefur ekki tekist að
ganga endanlega frá uppsetningu
bjórdælna í næstu nágrannabyggð-
um vegna veðurs um helgina. Sú
vinna er þó á lokastigi og verða
bjórdælumar komnar í notkun í
dag. Við settum okkur ákveðið
markmið um framleiðslu og nálg-
umst við það hægt og sígandi. Við
höfum reynt að undirbúa okkur
eftir bestu getu þrátt fyrir að mörg
atriði hefðu verið mjög óljós svo til
fram á síðasta dag," sagði Baldvin.
Hann sagði að pantanir færu allar
í gegnum ÁTVR, en Sanitas myndi
sjá um útkeyrslu á öli á kútum og
flöskum. ÁTVR sér um dreifingu á
dósunum. Samgöngur hafa hamlað
nokkuð dreifingu á bjómum, að
sögn Baldvins. Flutningurinn myndi
eflaust bjargast þar sem búið væri
að opna leiðina suður. Fimm flutn-
ingabílar með kútabjór hefðu verið
sendir suður í gær og meira er
væntanlegt. Baldvin sagði að unnið
yrði á sólarhringsvöktum eins lengi
og þörf væri. Bruggunin færi fram
allan sólarhringinn, en átöppunin
aðeins á daginn.
„Ég held að menn ofgeri svolítið
komu bjórsins. Hinsvegar er afar
forvitnilegt að fylgjast með því hvað
gerist og út frá markaðslegu sjónar-
miði er bjórkoman einstök. Nýr
neytendamarkaður, sem ekki var
áður til, opnast hér á einni nóttu.
Við vitum að eftirspumin er til stað-
ar, en þó ekki hversu mikil hún er.
Persónulega tel ég að íslendingar
komi ekki til með að nota bjórinn
sem svaladrykk vegna þess að hann
er seldur í sérstökum verslunum á
frekar dým verði og ég trúi því
ekki að menn fari að drekka bjórinn
í tíma og ótíma. Ég reikna alls
ekki með þeim hamagangi sem
menn vilja vera láta þó fyrstu da-
gamir verði eitthvað afbrigðilegir,"
sagði Baldvin að lokum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Starfsmenn ÁTVR á Akureyri höfðu í nógu að snúast í gær enda
barst þá fjöldi pantana í bjórinn, bæði frá veitingamönnum og frá
einstaklingum, sem ekki búa við áfengisútsölur. A myndinni má sjá
tvo af sex starfsmönnum ÁTVR á Akureyri, þá Hjört Herbertsson
og Smára Ólafsson.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ingibjörg Baldursdóttir og Þráinn Lárusson, forsvarsmenn Uppans
á Akureyri, auk starfsmannanna Óðins, Árna yfirþjóns og Jóhanns
á Bíóbamum á Akureyri.
Fjórar bjórtegundir
seldar á Akureyri
— aðrar tegnndir komust ekki í tæka tíð vegna samgönguerfíðleika
„ÞAÐ hefur geysilega mikið verið um hringingar í dag. Veitinga-
menn og einstaklingar viða á Norðurlandi hafa verið að leita
upplýsinga um hvaða tegundir verði boðið upp á, afgreiðslutíma
og verðlag svo eitthvað sé nefiit, og síðan höfiim við tekið á
móti mikið af pöntunum frá fólki, sem ekki býr við áfengisútsöl-
ur,“ sagði Haukur Torfason, útibússtjóri Áfengis- ogtóbaksversl-
unar ríkisins á Akureyri, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Áfengisútsölur á Norðurlandi
eru aðeins á þremur stöðum, á
Akureyri, Sauðárkróki og á Siglu-
fírði. Ibúar á öðrum stöðum, svo
sem í sveitum og í öðrum þétt-
býliskjömum á Norðurlandi, verða
Bíóbarinn opnaður á Akureyri:
A von á að bjórinn bæti
drykkjumenningu Islendinga
- segir Þráinn Lárusson, veitingamaður
„ÉG Á sist von á því að bjórinn hafi í för með sér meiri ölvun en
tíðkast hefúr hingað til. Þvert á móti held ég að menn verði minna
fúllir af bjórnum en sterku drykkjunum og er ég viss um að bjórinn
komi til með að bæta drykkjumenningu Islendinga verulega þegar
fram í sækir,“ sagði Þráinn Lárusson, veitingamaður á Uppanum,
í samtali við Morgunblaðið í gær.
ur bjór seldur í Kjallaranum, Sjall-
anum, Bleika filnum, Hótel KEA,
Bautanum, Smiðjunni og nú standa
yfir miklar breytingar á Hótel Stef-
aníu, þar sem ætlunin er að opna
bar og matsal þann 9. mars. nk.
því að grípa til símans og panta
sér bjórinn í póstkröfu. Haukur
sagði að byijað hefði verið að taka
við bjórpöntunum í gær. Hann
yrði samt ekki afgreiddur fyrr en
í dag þar sem ÁTVR á Akureyri
hafði ekki borist verðskrá yfir
bjórinn í gær. „Flugsamgöngur
virðast komnar í lag svo ég á von
á verðskránni hvenær sem er og
þá getur þetta farið að ganga eðli-
lega fyrir sig hjá okkur. Við verð-
um nú á fyrsta degi með til sölu
Egils Gull og tegundimar þijár frá
Sanitas, Löwenbráu, Pilsner og
Lageröl. Við náðum hinsvegar
ekki fleiri tegundum inn í byijun
vegna samgönguerfiðleika undan-
farið."
Sjálfsafgreiðsla hefur nú verið
tekin upp í útsölu ÁTVR á Akur-
eyri og hafa breytingar staðið þar
yfir frá því í nóvember. Haukur
sagði að starfsmenn og viðskipta-
vinir væru mjög ánægðir með
þetta breytta fyrirkomulag. Auk
Uppinn á Akureyri hefur nýlega
staðið í miklum breytingum í tilefni
af bjórkomunni. Forsvarsmenn
Uppans tóku á leigu viðbótarrými
á Tyrstu hæð hússins þar sem inn-
réttuð hefur verið bjórstofa. Hún
hefur hlotið nafnið „Bíóbarinn".
Uppinn og Bíóbarinn er eitt og sama
fyrirtækið og er innangengt á milli.
Sætarými í húsinu, á báðum hæð-
um, eru fyrir um 120 manns. Á
fyrstu hæðinni, þar sem Bíóbarinn
er nú, var áður tískuvöruverslunin
Tipp Topp, sem varð gjaldþrota
fyrir skömmu. Þráinn sagðist verða
með nokkrar bjórtegundir á boðstól-
um svo sem þrenninguna frá Sanit-
as, það er Löwenbráu, Pilsner og
Lageröl, einnig Kaiser og ef til vill
Budweiser og líklega tvær tegundir
til viðbótar. „Ef maður er með of
margar tegundir, er ekki með
nokkru móti hægt að bjóða upp á
góðan bjór því hann verður verri
eftir því sem hann eldist meira.
Hann er sem sagt bestur við átöpp-
un.“
Þráinn sagðist hafa þann háttinn
á að panta bjórinn daglega úr ríkinu
og hefði pöntunin fyrir fyrsta dag-
inn hljóðað upp á 900 lítra. „Eflaust
endist það eitthvað fram á fimmtu-
dag, en ég vil bara ekki komast í
þá aðstöðu að verða allt í einu uppis-
kroppa með bjórinn. Ég á von á því
að staðurinn fyllist fljótt enda er
Iangt síðan búið var að ráðstafa
flestum borðanna þetta kvöld. Við
erum löngu hættir að taka við fleiri
borðapöntunum þó við eigum enn
óráðstafað nokkrum borðum. Dixie-
landband Akureyrar leikur á Upp-
anum frá kl. 18.00 og síðan tekur
írskur bjórmúsíkmaður við þegar
líður á kvöldið," sagði Þráinn. Hann
bjóst við að aldurstakmark yrði
fært upp í tvítugt á næstu dögum,
en hingað til hefur það verið miðað
við 18 ára aldur. Auk Uppans verð-
Fundur um atvinnu-
líf á Norðurlandi
Stjórnunarfélag Norðurlands,
Norðurlandsdeild Félags við-
skipta- og hagfræðinga og Iðn-
þróunarfélag EyjaQarðar gang-
ast fyrir fúndi nk. fostudag þar
sem umræðuefiiið verður at-
vinnulíf á Norðurlandi.
Frummælendur verða Valdimar
Bragason, framkvæmdastjóri, sem
ræða mun um sjávarútveg, Jóhann-
es Geir Sigurgeirsson, bóndi, sem
ræða mun um landbúnað, og Jón
Sigurðarson, forstjóri, sem ræða
mun'um iðnað. Þá mun Þorleifur
Þór Jónsson, atvinnumálafulltrúi
Akureyrarbæjar, ræða um þjón-
ustugreinar og Lilja Steinþórsdótt-
ir, endurskoðandi, ræða um stöðu
fyrirtækja. Sérstakur gestur fund-
arins verður Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands Islands. Hann mun
flytja erindi um stöðu íslensks at-
vinnulífs.
Fundarstjóri verður Sigfús Jóns-
son, bæjarstjóri á Akureyri. Funá-
urinn fer fram á Hótel KEA og
hefst hann klukkan 14.00. Allt
áhugafólk um íslenskt efnahags-
og atvinnulíf er velkomið á fundinn.
nýju sjálfsafgreiðslunnar hefur
útsalan á Akureyri verið tölvuv-
ædd og breytti það miklu í sam-
bandi við bókhald og uppgjör.
Aukið eftir-
lit með ölv-
unarakstri
„VIÐ reiknum fastlega með því
að menn hagp sér eins og siðaðir
menn og að dagurinn verði eins
og hver annar miðvikudagur.
Efiaust slæðist einn og einn inn
í rikið í dag til að kaupa sér bjór
svona til að hafa með sér heim
úr vinnunni, en ég get varla
ímyndað mér að meira verði að
gera hjá okkur í lögreglunni nú
en endranær. Auðvitað munum
við samt fylgjast grannt með
gangi mála,“ sagði Gunnar Rand-
versson, varðstjóri hjá lögregl-
unni á Akureyri.
Gunnar sagði að hefðbundin vakt
yrði hjá lögreglunni í dag og næstu
daga, um það bil tíu manns í það
heila, en búast mætti við að eftirlit
með ölvuðum ökumönnum yrði hert.
Engum aukamannskap yrði bætt
við í tilefni af komu bjórsins, en ef
í óefni færi yrði mannaflinn vissu-
lega aukinn. „Lögreglumenn hér á
vaktinni hafa ekkert verið að ræða
um bjórkomuna. Þó geri ég fastlega
ráð fyrir að sumum þeirra finnist
bjórinn góður. Ég er að minnsta
kosti mikill bjóraðdáandi þó ég ætli
mér ekkert í ríkið svona fyrsta dag-
inn,“ sagði Gunnar.
„Maður hefur heyrt að bjór sé
hafður um hönd víða á vinnustöðum
erlendis. Ég hef ekki trú á að sú
verði raunin á íslandi þar sem bjór-
inn er hér tiltölulega dýr og auðvit-
að geta vinnuveitendur sett ákveðn-
ar reglur. Bjórinn er veikasta teg-
und alkóhóls, en ég held samt að
enginn verði bijálaður af einum
bjór,“ sagði varðstjórinn að lokum.