Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 35
ftRCf ,WAM ,f J(T!aAt1fOrfV<5TM ': - M MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989 35 Bóthildur Jóns- dóttir - Kveðjuorð Fædd 18. október 1897 Dáin 31. janúar 1989 Mig langar að minnast í fáeinum línum góðrar vinkonu minnar Bót- hildar Jónsdóttur sem lést hinn 31. janúar s.l. Bóthilaur var fædd á Ragnheiðarstöðum í Flóa 18. okt. 1897 og var því liðlega 91 árs þegar hún lést. Árið 1923 giftist Bóthildur Sumarliða Gíslasyni frá Akranesi. Eignuðust þau hjón 9 böm en að auki ættleiddu þau einn dreng, eina dóttur hafði Bóthiidur eignast áður. Lengst af bjuggu þau hjónin á Hverf- isgötu 104A. Sumarliði var togara- sjómaður í tugi ára og var oft lang- dvölum að heiman og mæddi uppeldi þessa hóps mest á henni. Sumarliði lést 16. mars árið 1969. Ég man þegar Gíslína tengdamóðir mfn, dótt- ir Bóthildar og Sumarliða kynnti okkur fyrir 20 árum síðan. Þegar við tókumst f hendur fann ég að eitt- hvað sérstakt einkenndi þessa konu. Handtak hennar var hlýtt og það geislaði af henni einhver innri lífskraftur og æskuflör. Þessa eiginleika varð ég svo oft var þegar ég kynntist henni betur. Hún var svo ung í anda, og eldhress fram til hinstu stundar, að furðu sætti. Þetta kom t.d. skýrt í Ijós þegar hún, allir afkomendumir og við hin sem þar tengdust, vomm saman komin f veislum eða á ferða- lögum. Þá var gamla konan potturinn og pannan f öllu glensi og lét ýmis- legt flúka. Var það ekki síst í bundnu máli, því að hún var hagmælt mjög. Veittist henni það létt enda átti hún ekki langt að sækja skáldgáfuna enda faðir hennar Jón Arason skáld gott. Bóthildur sýndi fólki sýnu mikla ræktarsemi og heimsótti það oft. Ég og mín fjölskylda fómm ekki var- hluta af því. Bóthildur var tónelsk mjög og hafði á yngri ámm fengist við oigelleik. Við eigum orgel á heim- ilinu og hvert sinn er hún leit við þá krafðist hún þess að tekið yrði lagið og spilað, já, þannig var hún alltaf hreinskiptin og kát, og ávallt verð ég þakklátur fyrir að hafa kynnst þessari sfungu kjamakonu. Mættum við hin sem yngri emm en verðum alltof fljótt ellihmm til sálar og lfkama taka hana til fyrirmyndar. Megi hún eldhress vera þar sem hún dvelur núna. Með þökk fyrir allt. Einar Guðbjartsson ÚTSJI Allt að Z iLA 10% afsláttur 1 pilu ; gluggatjöld Sudurlandsbn *========= ut 6, Sími: 91 -8 32 15. ~~—r Pipeline húsgögnin eru vinsaei hjá unga fólkinu og skýringin er einföld: Pipeline húsgögnin eru byggð upp af einingum sem hver og einn setur saman eftir eigtnn smekk og þórfum. Form og efnl eru létt og nú- tímaleg og einingarnar fjöl- breyttar. Hægt er að fá skrifborð, hillur og skúffur af ýmsum gerðum og ýmislegt fleira, allt í þessum létta og fallega stíl. • 5% stað- greiðsiuafsláttur ef keypt er fyrir 10.000 kr. og meira. • Sendum húsgögnin heim um allt Stór-Reykjavikur- svæðið og einnig á vöruflutn- ingamiðstöðvamar viðskipta- vinum að kostnaðarlausu. Svart og krómað - sígilt og nútímalegt; kr. 24.650. Krómrör og hvitir fletir - bjart og glæsilegt; kr. 36.000, V: ■ r 1 0. TJARNARGÖTU 2 • 230 KEFLAVlK ■ P.O. BOX 195 • SlMI 92-13377 Kjöt- og fiskibollur Grófar, danskar kjötbollur, fyrir flóra Með kartöflum og ijómasósu V2 kg svínahakk, V2 kg nautahakk, 1 stór, smátt saxaður laukur, 1 dl fínt brauðrasp, 1 egg, 2-3 tesk. salt, V2 tesk. pipar, V2 tesk. „allrahanda" krydd, um 1 dl sterkt teningssoð, smjör og olía til steikingar. Blandið öllu saman og hnoðið með hreinum höndum. Látið standa í um hálftfma. Hnoðið svo betur, og þá jafnvel með meira teningssoði. Mótið bollur með hveiti-stráð- um höndum og steikið í smjöri og olíu til helminga. Bollumar eru bomar fram vel volgar með soðnum kartöflum, sem steinselju hefur verið stráð yfír, og ijómasósu, en hún er löguð á eftirfarandi hátt: Bakið upp 2-3 matsk. af smjöri með 2 matsk. hveiti, 4 dl mjólk og 1-2 dl ijóma. Bragð- bætið með salti. Alveg upplagður laugardags- kvöldverður, og ekki væri verra að bera með vel kældan bjór! (mynd nr. 2) Fiskibollu-gratín fyrir 3-4 Þetta er sérlega fljótlagaður og alveg afbragðs matur, úr fískibollum úr dós! 1 kíiódós fískibollur, 3 dl ijómi, 4 matek. kavíar, lVs dl rifínn ostur. Síið vökvann frá bollunum og látið þær í smurt, eldfast fat. Blandið kavíar út í ijómann og hellið yfír bollumar. Stráið rifna ostinum yfír (má nota meiri ost ef vill) og bakið í 200-220 gráðu heitum ofni (heldur minni hita í blástursofni) í 15-20 mínútur. Gott að bera fram með laus- soðnum hrísgijónum eða kart- öflumús. Verði ykkur að góðu, Jórunn. Skrifstofutækninám Betra verö - einn um tölvu Tölvuskóli íslands S: 67 14 66 V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.