Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 20
° 20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989 Fjármálaráðherra um fiind með forstjóra Olís: Algengt að forsvarsmenn fyrir- tækja vilji ræða sín málefhi ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið á föstudag að hann og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, hefðu fyrir nokkru átt fund með Óla Kr. Sigurðs- syni, forstjóra Ólís. Hann sagðist ekki vilja svara því hvort bankar- áð og bankastjórar Landsbankans hefðu setið þennan fund. Ólafur sagði að algengt væri að forsvarsmenn stærri fyrirtækja óskuðu eftir að ræða málefni þeirra við ráðherra. Þetta eru í sjálfu sér engin sagði hann það vera upp og ofan. tíðindi," sagði Ólafur Ragnar Grímsson. „Það gerist æði oft að menn sem reka fyrirtæki, sérstak- lega stærri fyrirtæki, vilja kynna ráðherrum sín mál. Ég hef átt fjölda slíkra funda með forsvarsmönnum fyrirtækja undanfama mánuði." Þegar fjármálaráðherra var spurður hvort venja væri að tveir ráðherrar mættu á þessa fundi, Það hefði stundum gerst að fleiri en _einn ráðherra hefðu mætt. Ólafur Ragnar sagði að aðeins hefði verið vikið að málefnum Olís og Landsbankans á þessum fundi en vildi hvorki játa né neita, að rætt hefði verið um áform til hjálp- ar Olís. Þetta hefði verið heildaiyfir- lit yfir stöðu fyrirtækisins og þróun þess. Það væri að hans mati sjálf- öflum á Alþingi og með ólíkar skoð- anir á hlutunum. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins hafa einstakir bankaráðsmenn gagnrýnt að bankar- áðið var ekki látið vita fyrirfram um beiðni um innsetningargerð í síðustu viku. Valur Amþórsson, bankastjóri og Biynjólf Helgason, aðstoðarbanka- stjóri, vildu ekki tjá sig um þetta mál né hvert yrði framhald málsins af hálfu bankans. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur sú skoðun komið fram innan Landsbankans, að með fóge- taúrskurðinum þar sem kröfu bank- ans var hafnað, sé komin upp sú staða, að ekki séu lengur til trygging- ar fyrir töluverðum hluta af skuldum Olís í bankanum og sé því brýnt fyr- ir bankann að huga að frekari að- gerðum. Keppt í fijáls- um dönsum íslandsmeistarakeppni unglinga í frjálsum dönsum verður haldin í Tónabæ lO.og 18. mars. Allir unglingar fæddir 1972—1975 geta tekið þátt. Keppt verður í tveimur flokk- um, einstaklings- og hópdöns- um. Hópur telst minnst þrír keppendur. Enginn hámarks- fjöldi er, en fleiri en 7 keppend- ur gætu dregið úr gæðum danssins vegna gólfstærðar. Úrslit verða í Tónabæ, laugar- daginn 18. mars. Skráning er hafin í Tónabæ og stendur til föstudagsins 3. mars. (Fréttatilkynmng) sögð og almenn regla, að þegar forystumenn í atvinnulífinu eða ein- stakir borgarar vildu ræða við ráð- herra um sín málefni þá væri fy'öl- miðlum ekki skýrt frá því hvað þeir hefðu verið að segja. Það væri almenn vinnuregla og ætti ekki bara við Olís. Davíð Oddsson borgarstjóri, Soffia Pálsdóttir forstöðumaður Fjörg- ynjar og Arnfinnur Jónsson skólastjóri Foldaskóla við vígslu Fjörg- ynjar, nýrrar félagsmiðstöðvar í Foldaskóla. Grafarvogur: Félagsmiðstöðin Fjörgyn vígð Málið stöðvast ekki með þessum dómi - segir formaður bankaráðs Landsbankans PÉTUR Sigurðsson formaður Landsbankans segir að mál Olis í bankanum stöðvist ekki með dómnum sem gekk í innsetningar- máli bankans gegn fyrirtækinu í sfðustu viku. Mun framhald þess verða rætt á fiindi bankaráðsins og bankastjóra Landsbankans i dag. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun hafa verið ágreiningur um Olísmálið innan bankaráðsins. Pétur Sigurðsson vildi ekki tjá sig um það en sagði að í bankaráðinu væru fímm menn, kosnir af ólíkum Djúpið: Mjólkurbíll- inn tepptur Bæjum, SnæQalIaströnd. DJÚPVEGUR var mokaður í gær og var gert ráð fyrir að ekki yrði því verki lokið fyrr en seint síðustu nótt eða snemma i morg- un. í Hörgshlið í Mjóafirði bíða nú sex bilar og niu menn eftir að komast leiðina til ísafjarðar. Hafa þeir verið þar veðurtepptir síðan á föstudag. í þessum hópi er mjólkurbíllinn hér í Djúpinu, sem búinn var að taka í sig mjólkina. í gær var ætlun- in að dæla úr honum í mjólkurtanka sem Djúpbáturinn var sendur með í áætlunarferð sinni hér í Djúpið. Á mánudag sótti Djúpbáturinn mjólk á Vesturfirði, þ.e. Flateyri og Suð- ureyri. Mikill snjór er hér í Djúpi eftir feikna fannfergi siðustu sólar- hringa. Jens í Kaldalóni NÝ félagsmiðstöð i Foldaskóla i Grafarvogi var formlega tekin i notkun á föstudag og er henni ætlað að þjóna bæði skólanum og nemendum svo og íbúum hverfis- ins. Efiit var til hugmyndasam- keppni um nafii félagsmiðstöðvar- innar og varð Fjörgyn fyrir val- inu. í öðru sæti var nafnið Folda- fiör sem verður nafii á dagskrá hvers mánaðar og i þriðja sæti var nafiiið Foldaból. Félagsmiðstöðin er um 800 fermetrar að stærð og er á neðri hæð í öðrum bygging- aráfanga skólans. í Fjörgyn er skáli með fatahengi og snyrtingum, samkomusalur, setu- stofa, tómstundaherbergi og herbergi forstöðumanns, nemendaráðs og starfsmanna. Fullkomin hljómflutn- ingstæki verða í salnum auk sjón- varps og myndbands f setustofu. Morgunblaðið/Þorkell Unglingadansleikur var haldinn í Fjörgyn að kvöldi vigsludags. Daglegur rekstur er í höndum fþrótta- og tómstundaráðs Reykjavík- ur og stýrt af forstöðumanni. Hús- næðið er hinsvegar skólahúsnæði undir umsjón Skólamálaráðs Reykjavíkur og stjóm skólastjóra Foldaskóla. Er þetta í fyrsta sinn, sem samnýting skólahúsnæðis er með þessum hætti. Nafn félagsmiðstöðvarinnar, Fjörgyn, þýðir jörð en er einnig sér- nafn fyrir móður Þórs í goðafræð- inni. Orðið Fjörgyn er notað sem skáldskaparmál og finnst í Völuspá, Oddrúnarkviðu og ýmsum fomkvæð- um. Fjörgyn verður opin fyrir unglinga mánudaga, miðvikudaga og föstu- daga. Þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga verður hún leigð út til ýmissa félagasamtaka. Þar má halda húsfélagsfundi og fræðslufundi og getur fundarherbergið nýst fyrir smærri fundi. Á skólatíma fá eldri nemendur aðstöðu í félagsmiðstöð- inni, geta snætt þar nesti og hlustað á tónlist. Gjaldeyris- reikningar í hvaða mynt sem er í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær, þar sem getið er um nýja þjónustu Verzlunarbankans, Þar segir, að hann bjóði mönnum nú gjaldeyris- reikninga í yenum og svissneskum frönkum. Sagt er, að til þessa hafi fslenzku bankamir boðið innlenda gjaldeyrisreikninga fyrir fjóra er- lenda gjaldmiðla, dollara, sterlings- pund, vestur-þýzk mörk og danskar krónur. Athugasemd hefur borizt frá Iðn- aðarbanka íslands við þessa frétt. Iðnaðarbankinn hefur, frá því er bankinn fékk leyfi til þess að verzla með erlendan gjaldeyri, gefið við- skiptavinum sínum kost á að geyma gjaldeyri í hvaða mynt sem er. Nú eru 5 ár síðan bankinn fékk leyfí til gjaldeyrisviðskipta og í dag eru gjaldeyrisreikningar í bankanum í alls 12 myntum. Morgunblaðið/RAX Sendiherra Finnlands, Anders Huldén, afhenti Theódóri Blöndal viðurkenningarbréf og óskaði honum velfarnaðar í starfi, sem kjör- ræðismanns Finnlands. Nýr kjörræðismaður Finnlands NÝR kjörræðismaður Finnlands á Austurlandi var útnefiidur, Theódór Blöndal, framkvæmda- stjóri með aðsetur á Seyðisfirði. Sendiherra Finnlands, Anders Huldén, afhenti í gær, mánudaginn 27. febrúar, Theódóri viðurkenning- arbréf og óskaði honum velfamaðar í starfi, sem kjörræðismanns Finn- lands. Theódór er framkvæmdastjóri Vélsmiðjunnar Stáls á Seyðisfirði og verksmiðjustjóri fiskimjölsverk- smiðjunnar Hafsíldar. Hann er kvæntur Björgu S. Blöndal. Finnland hefíir áður haft kjör- ræðismann á Seyðisfirði. Það var Theódór Blöndal, afi Theódórs. Eft- ir fráfall hans 1972 lagðist embætt- ið niður. Nú hefur Finnland ákveðið að opna aftur ræðismannsskrifstofu á Austurlandi. Finnland hefur eftirtaldar ræðis- mannsskrifstofur á íslandi; Reykjavík, Akureyri, Vestmanna- eyjum, Isafirði/Bolungarvík og Seyðisfirði. Leikfélag Hafiiarfiarðar á hátíð á Indlandi: Verðlaun fyrir leikrit og beztu leikkonuna LEIKFÉLAG HafiiarQarðar hlaut þriðju verðlaun fyrir sýningu sína á gamanleikritinu „ Allt í misgripum" eftir William Shakespe- are á alþjóðlegri leiklistarhátíð sem fram fór i borginni Shand- igahr á Indlandi. Þá hlaut Björk Jakobsdóttir viðurkenningu sem besta leikkonan. Á leiklistarhátíðinni komu fram átta leikhópar frá jafiunörgum löndum auk þriggja Ieikhópa frá Indlandi. Þetta er í fyrsta skipti sem Indveijar standa fyrir alþjóðlegri leiklistarhátíð af þessu tagi, og að sögn Hafnfirðinganna fór hún mjög vel fram, og var sýningu þeirra mjög vel tekið. Tvær sýn- ingar voru í Shandigahr þar sem hátíðin fór fram, og ein sýning var í borginni Ludiana, en báðar þessar borgir eru í Punjabhéraði. Að sögn leikstjórans,' Hávars Siguijónssonar, var greinilegt að Indveijamir lögðu sig alla fram um að leiklistarhátíðin tækist sem best, svo hún myndi festa sig í sessi sem ein af áhugaleiklistar- hátíðum f heiminum. Til marks um hve mikið var lagt upp úr hátíðinni sagði Hávar að farið hafi verið með alla leikhópana í sérstaka móttöku hjá forsætisráð- herranum, Rajiv Gandhi. Ffyrstu verðlaun á ieiklistarhátíðinni hlaut leikhópur frá V-Þýskalandi, en önnur verðlaun hlaut leikhópur frá Búlgaríu. Sýningar Leikfélags Hafnar- Qarðar á gamanleikritinu „Allt í misgripum" hefjast á nýjan leik í Bæjarbíói í Hafnarfírði 4. mars næstkomandi. Björk Jakobsdóttir hlaut viðurkenningu sem besta leikkonan á leiklistarhátíðinni sést hér ásamt Jaswar Singh, einum skipuleggj- enda hátíðarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.