Morgunblaðið - 01.03.1989, Side 5

Morgunblaðið - 01.03.1989, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989 5 K • Búnaðarþing: 33 mál hafa verið lögð fram ALLS höfðu 33 mál verið lögð fram á Búnaðarþingi í gær. Meðal þeirra er frumvarp til laga um Hagstofnun landbúnaðarins, sem ráðgert er að hafi aðsetur á Hvanneyri og vinni meðal annars heild- arupplýsingar um afkomu landbúnaðarins, nauðsynlegar upplýsingar vegna verðlagningar búvara og hafi frumkvæði að áætlanagerð við búrekstur, auk yfirumsjónar með hagrannsóknum í landbúnaði. Á máníidaginn voru meðal ann- stjómar Búnaðarfélags íslands um ars lögð fyrir Búnaðarþing erindi skipan leiðbeiningarþjónustunnar, Hæstiréttur um Hafskipsmál: Dómsformaður víki HÆSTIRÉTTUR hefúr úrskurð- að að Pétur Guðgeirsson saka- dómari skuli vikja sæti sem dóms- formaður í Hafskips- og Útvegs- Linares: Jóhann sigr- aði Sókólov JÓHANN Hjartarson vann bið- skák sína gegn Andrei Sókólov úr 4. umferð skákmótsins í Linar- es á Spáni, en biðskákir voru tefldar á mánudag. Vasilíj Ivant- sjúk, sem er 19 ára gamall, náði forustunni á mótinu, einnig með sigri yfir Sókólov í biðskák þeirra úr 7. umferð. Ivantsjúk var með 5 vinninga eft- ir 7 umferðir. Karpov var með jafn marga vinninga en á eftir yfirsetu. Ljubomir Ljubojevic var í 3. sæti með 4 vinninga, Artúr Júsupov var í 4. sæti með 3'/2 vinning, og Jó- hann, Timman og Short voru í 5.-7. sæti með 3 vinninga. Jóhann hefur tapað tveimur skák- um á mótinu, fyrst gegn Ljúbojevic og síðan gegn Karpov. bankamálum. Pétur óskaði eftir að vikja sæti og taldi hættu á að hann fengi ekki litið óhlutdrægt a málavexti að þvi er varðar þá þætti ákærunnar sem lúta að vi- skiptum eins ákærðu við tvo venslamenn Péturs. Venslamenn dómarans eru ekki meðal ákærðu. Gunnlaugur Briem yfirsakadóm- ari sagði í gær að ekki hefði ver- ið ákveðið hver tæki sæti Péturs Guðgeirssonar í dómnum. Yfírsakadómari hafiiaði beiðni Péturs Guðgeirssonar um að víkja sæti í málinu og í úrskurði þeim sem áfrýjað var til Hæstaréttar var Pétur borinn atkvæðum af samdómendum sínum, Ingibjörgu Benediktsdóttur og Amgrími ísberg. Sérstakur saksóknari, Jónatan Þórmundsson áfrýjaði þeim úrskurði til Hæstaréttar og benti sérstaklega á að vegna umfangs málsins væri mikilvægt að domendur teldust hæf- ir til að fara með það í heild sinni. Með tilváun til ákvæða réttarfar- slaga ákvað Hæstiréttur að heimila Pétri að víkja sæti í málinu. Hæstaréttardómaramir Þór Vil- hjálmsson og Hrafn Bragason dæmdu málið í Hæstarétti ásamt Amljóti Björnssyni settum hæsta- réttardómara. búreikningastofu og bókhaldsmál bænda, rýmkun lagaheimilda sveit- arfélaga til að takmarka lausa- göngu búfjár og gróðurverndarmál. Þá var lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um verðlagn- ingu og sölu á búvömm, erindi Búnaðarsambands Austurlands um auknar fjárveitingar til rannsókna á innlendri fóðurframleiðslu og nýt- ingu fóðurefna, tillaga til þings- ályktunar um kynbótastöð fyrir eld- islax, fmmvarp til laga um sam- ræmda stjóm umhverfismála, erindi formannafundar búnaðarsambanda um vanefndir ríkisins á greiðslum lögbundinna framlaga og drög að frumvarpi til laga um innflutning dýra. Auk fmmvarps til laga um Hag- stofnun landbúnaðarins var í gær lagt fyrir Búnaðarþing fmmvarp til laga um skógvernd og skógrækt, fmmvarp til laga um breytingu á jarðræktarlögum og tillaga til þingsályktunar um umhverfismála- ráðuneyti. Þá var fmmvarp til laga um breytingu á lögum um fram- leiðslu, verðlagningu og sölu á bú- vömm tekið til fyrri umræðu. Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Vinnslusalurinn í Arnarvík þar sem karlloðnan er skilin frá kven- loðnunni. Konurnar hafa siðan vakandi auga með að enginn sleppi í gegn. Grindavík: Loðnufrystingu að ljúka Vonast eftir nýrri göngu Grindavík. LOÐNUFRY STINGU er nú að ljúka í Grindavík. Búið er að frysta rúmlega 100 tonn á tveimur stöðum. Fryst er í tveimur húsum, Arn- arvík og Hraðfrystihúsi Þórkötlu- staða. Loðnan er byijuð að hrygna og verður um leið ófrystingarhæf. Frystingin hefur verið góð búbót fyrir heimilin og veitir milli 40 og 50 manns atvinnu._______________ Halldór Sigurðsson, verkstjóri hjá Arnarvík, sagði í viðtali við Morgunblaðið að menn vonuðust til þess að önnur ganga af loðnu myndi ganga upp að landinu til þess að geta haldið frystingunni áfram. Hrognataka hefur venju- lega hafist um leið og loðnufryst- ingu lýkur en þau mál era nú í biðstöðu þar til fiskifræðingar skila niðurstöðum sínum. FÓ Grímsey: Sárvantar ískort í veðurfréttirnar - segir Jóhannes Henningsson sjómaður OKKUR sárvantar að sjá ískort i veðurfréttunum í sjónvarpinu. Það er mikil óvissa um það hérna hvernig ísinn er og við fáum litlar fréttir af honum, helst frá togur- um öðru hveiju. Ég trúi því ekki að það sé erfitt með allar þessar gervihnattamyndir sem þeir hafa á Veðurstofunni," sagði Jóhannes Henningsson sjómaður í Grímsey í samtali við Morgunblaðið. Jóhannes segir að á föstudag hefðu allir Grímseyjarbátar tekið upp netin vegna þess að spáð var norðanátt og því hætta á ís. „Það er mjög óþægilegt á svona stað að vita ekkert. Það kom til dæmis fyrir í fyrra að við vissum ekki fyrr en ísinn var alveg að koma og við rétt náðum upp netunum. Það er eins og þeir orði þetta aldrei fyrr en ísinn er kominn upp að landinu eðá sigl- ingaleið fyrir Hom er orðin varasöm. Okkur þykir illt að vera ekki með í myndinni hér austar." Níu bátar em gerðir út á net frá Grímsey og segir Jóhannes að auk þeirra séu allmargir bátar í sama vanda á þessum slóðum, þeir sem róa frá byggðunum við Eyjafjörðinn. FKTáSKÁPUR Kr.9.550,stgr furuiitur ..........;...................= hvítt/beyk'i bókaskáp, ^4-350.sf„ V skúftur I kr. 4.130, stgrl 5 skúffur \ Kr. 4.470, stgr l 6 skúffur Ikr. 6.640, stgr | 8 sVsítt'-ir 1 kr. 6.380, stgr \ plvítt, furuiitur.— Opið til kl. 19 í dag opið laugardag 10-16 SMIDJUVEGIS, KÓPAVOGI, S: 4SS70 • 44S44

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.