Morgunblaðið - 01.03.1989, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989
Stigamennska 1
eftírSturlu
Friðriksson
Að undanfömu hefur aukist mjög
tillitssemi manna í umgengni við
umhverfið. Þannig er orðið til fyrir-
myndar hvemig rejmt er að graeða
upp ýtusár meðfram vegum. Við
lagningu á síma- og raflínum er
stundum farið að taka tillit til lands-
lags og landeigandi jafnvel hafður
með í ráðum. Almenningur vill að
vel sé gengið um landið og náttúr-
unni sé ekki spillt að óþörfu. Margt
jarðrask þykir til lýta og er þá reynt
að lagfæra það sem miður fer. Um
breytingar á rennsli árvatns hefur
minna verið hugsað frá umhverfis-
sjónarmiði. Þó marka tveir atburðir
á þeim vettvangi tímamót í sögu
umhverfisvemdar hér á landi, en
það er deilan um virkjun Laxár í
Þingeyjarsýslu og umræður um
gerð stfflulóns í Þjórsárverum.
Menn hefur greint á um hvort virkja
ætti eitt vatnsfall öðmm fremur,
en við stíflugerð breytist óhjá-
kvæmilega árfarvegur með flúðum
sínum og fossum. Sumir fossar
hafa þó öðlast einhveija friðhelgi
fyrir virkjunaraðgerðum, en raf-
væðing þykir samt vera sú þjóðar-
nauðsyn, að engin náttúrurómantík
fær spomað við þeim athöfnum,
sem nauðsynlegar eru til fram-
leiðslu á raforku. Við stórfelldar
virkjunaraðgerðir er oftast hætta á
að öllu landslagi árinnar sé raskað,
en atlaga er einnig gerð að fossum
úr nokkuð annarri átt, það er frá
þeim mönnum, sem vilja gera ár
laxgengar. Sú framkvæmd þykir
mörgum vera til bóta og aukningar
á landsins gæðum. Talið er að þau
auknu afnot, sem fást af ánni, rétt-
læti aðgerðir á fossum hennar.
Þetta er nú samt sem áður alls
ekki sjálfsagður hlutur og hér koma
önnur sjónarmið einnig til greina,
svo sem náttúruskoðun. Að vísu er
alltaf misjafnt mat manna á því
hvað sé fagurt, en það er hins veg-
ar ekki einhlýtt, að einkum sé fag-
Sturla Priðriksson
„Hér þarf að reyna að
fara bil beggja, til þess
að mæta á sem bestan
hátt öllum sjónarmið-
um. Að mínu mati er
það helst gert með því
að gera yfirbyggða
laxabraut undir
ábreiðu fossbununnar,
en að öðrum kosti með
því að leggja vel hulin
rör eða jarðgöng firam-
hjá fossinum.“
urt þegar vel veiðist, eins og haft
er eftir skynugum manni.
Hverjir taka ákvörðun um
að ge ra fiskvegi?
í mörgum ám hafa fossar hindr-
að laxagöngu. Sums staðar hagar
svo til að foss er niður við ósa og
hindrar alla laxagöngu í ána. Ann-
ars staðar eru fossar ofar í ánum
og hindra þá fískgöngu um misstór
svæði. Áreigendur ofan við foss
hafa oft ekki nytjar af veiði nema
fossinn sé gerður fiskgengur. Þeir
hafa helst hag af aðgerðum á foss-
inum. Veiðimenn eru einnig áhuga-
samir um þær framkvæmdir, vegna
þess, að með því lengist veiðisvæði
árinnar og skapast ný og fjölbreytt-
ari skilyrði til að renna fyrir fisk.
Sjónarmið þessara manna hafa af-
dráttarlaust verið tekin til greina
þegar ákvarðanir eru teknar um
það hvort sprengja eigi foss og
hafa fáir hreyft andmælum. Farið
var að sprengja fossa í þessum til-
gangi hér á landi fyrir rúmum
fimmtíu árum og er nú svo komið,
að búið er að setja fiskvegi í um
fjörutíu og sex fossa. Þessar að-
gerðir á fossum voru heimilaðar
með ákvæði í vatnalögum frá 1937,
þar sem veiðifélagi vatnasvæðis er
leyft að gera foss laxgengan. Um
þetta hefur landeigandi ekkert að
segja utan sitt eina atkvæði á fé-
lagsfundi. Að vísu á hann kröfu á
einhverri umbun fyrir ónæði við
framkvæmdir viðvílqandi byggingu
á fiskveginum. Meirihluti atkvæða
í veiðifélagi tekur ákvörðun og ræð-
ur því hvort ráðist er í að gera foss
laxgengan. Síðan skal bera þá ósk
áfram til veiðimálastjóra, sem gefur
sína umsögn og að lokum er málið
sent landbúnaðarráðherra, sem hef-
ur síðasta orðið um hvort leyfí til
aðgerða á fossi skuli veitt. Nú er
hins vegar kominn sá millileikur,
að bera þarf framkvæmdaáætlun
undir Náttúruvemdarráð, sem ætti
að vera þarfur umsagnaraðili, enda
þótt ráðið geti varla stöðvað fram-
gang málsins, ef fast er sótt. Senni-
lega þarf ekki að fara alla þessa
umsóknarleið, sé aðeins um lagfær-
ingu á eldri laxavegi að ræða. Hér
er það aðeins Náttúruvemdarráð,
sem á að gæta hinna fagurfræði-
legu sjónarmiða, fyrir hönd eiganda
og almennings.
Ýmsar gerðir fiskvega
Hér hafa vatnsföll verið gerð
laxageng með því að sprengja foss.
Margir smærri fossar, sem áður
voru ein slétt bunubreiða (sjá fyrstu
mynd), vom hreinlega flarlægðir. í
öðmm var komið fyrir rennum, sem
hleyptu fram vatninu í rás, en skildu
mikinn hluta af gamla farveginum
eftir þurran, svo þar skein í nakta
klöppina (2. mynd). Við voldugri
fossa þurfti meiri aðgerðir. Þar
mátti koma fyrir mörgum þrepum,
en til þess að hindra of mikið vatns-
rennsli niður eftir stiganum, þurfti
að byggja vamargarða, sem vom
mikil mannvirki úr steinsteypu, er
gnæfðu upp fyrir fossbrúnina og
teygðu arma sína niður eftir
straumkasti fossins eins og handrið
meðfram stigaþrepum (3. mynd).
Við enn meiri vatnsföll hefur verið
reynt að sniðganga sjálfan fossinn
og leiða laxgenga rás framhjá
bjarginu, sem myndaði fallhæð
fossins. í þessar rásir hefur víða
verið komið fyrir miklu byggingar-
bákni úr jámbentri steinsteypu. Er
það oft um að ræða fyrirferðarmik-
ið og flókið mannvirki og iðulega í
það verk lagður mikill kostnaður
(4. mynd).
Hveijir eiga að hanna
fiskvegi?
Áhugamenn um stigagerð fengu
í upphafí þá sem kunnu að fara
með sprengiefni til þess að vinna á
hörðum klöppum farartálma laxins.
Síðan hafa kunnáttumeiri fagmenn
tekið að sér verkið. Veigameiri að-
gerðir hafa loks verið hannaðar af
verkfræðingum, sem em sérfróðir
í að gera steinvirki með nægum
jámbindingum, til að standa af sér
átök jakaburðar og klakaspreng-
inga. Er þar áreiðanlega oft um að
ræða tæknileg meistaraverk, en
ekki ættu þær smíðar að sjást í
námunda við fossa, vegna þess hve
steinsteypa er í eðli sínu annarlegt
aðkomuefni og fer illa við hina hvítu
blæju og hið tæra bergvatns foss-
ins. Hvemig er þá unnt að gera
fossa fiskgenga án mikilla
missmíða? Og hveijum er best trú-
andi til þess að framkvæma aðgerð-
ir á fossum lýtalaust? Listrænn
múrari gæti ef til vill hulið mestu
lýti á steinsteypugörðum og mótað
þá og skreytt með steinhleðslu úr
náttúrulegu gijóti. Landslagsarki-
tektar hafa kunnáttu til að hanna
fagra fossa í skrúðgörðum og láta
þá prýða þar umhverfið. Þeir
mundu síst allra leyfa sér að raska
með mannvirkjum útliti á náttúru-
legum fossi, þannig að þau væm í
grófri andstöðu við allt umhverfi
og til hrellingar fyrir þá sem vilja
njóta náttúmfegurðar. Þeim er
sennilega helst trúandi til þess að
leysa vandann við byggingu á fisk-
vegi í samráði við þá sem hafa þekk-
ingu á göngu laxa.
Mér hefur sjálfum dottið í hug,
að unnt sé að gera færa leið fyrir
fisk undir fossbunum með því að
gera þar jarðgöng, sem lax gétur
gengið um og em þá engin lýti
unnin á fossinum. Helstu mótbárar
við þessari hugmynd hef ég heyrt
vera þær, að lax vilji ekki ganga
inn í myrkur ganganna, en allir
^vita samt, að lax gengur um veg-
ræsið í Kollafirði inn í laxeldisstöð-
ina undir þjóðvegi nr. 1 og víða
erlendis er lax látinn fara um jarð-
göng framhjá flúðum. Hins vegar
mætti með þessu móti, ef vel heppn-
ast, halda útliti fossanna óbreyttu.
Suma eldri laxastiga mætti jafnvel
færa til betra horfs, með því að
leggja rör á milli þrepa og jafnvel
hylja þau þrep sem fyrir em, til
dæmis með þykkum gleijuðum hler-
um. Ætti fiskur þá greiða leið í
jafnrennsli um varin göng, en
megnið af vatninu flyti ofan á þessu
rörakerfi og hyldi mannvirkið. Foss-
inn gæti þess vegna að mestu hald-
ið sinni fyrri lögun.
Hagnýt sjónarmið eiga ekki
að vera allsráðandi
Rétt er að fossar geta hindrað-
eða raskað göngu físka. Þó ber á
hitt að líta, að í straumhörðum ám
með fossum og flúðum er talið að
valist hafi sérstakur stofn af stinn-
um, vöðvamiklum og rennilegum
laxi. Þetta náttúmval tapast við það
að fossar em gerðir of auðgengir.
Þá ber þess að geta, að sá við-
burður hefur verið taíinn sérstakt
augnayndi, þegar lax hefur sést
stökkva í fossi. Sú ánægja hverfur,
þegar lax fer að smjúga um mann-
gerð göng. Þá er sjálfur fossinn
náttúmprýði, sem fleiri en veiði-
menn hafa ánægju af að skoða, ef
látinn er óáreittur. Ferðalangur
gengur upp með ánni og spyr: „Átti
hér ekki að vera foss, þar sem nú
er aðeins sprengd rás í klöppina?"
eða „Hvaða steypuklumpar em
þetta í sjálfum Gljúfrabúa?" „Er
sem mér sýnist, að kominn sé rúllu-
stigi í Glæsifoss?" eða spyr þannig,
sem er öllu verra: „Em hér lagðar
steypugildmr pall af palli upp með
jaðri Silfurflúða? Hver ber ábyrgð
á öllum þessum náttúruspjöllum?"
Hér þarf að reyna að fara bil
beggja, til þess að mæta á sem
bestan hátt öllum sjónarmiðum. Að
mínu mati er það helst gert með
því að gera yfirbyggða laxabraut
undir ábreiðu fossbununnar, en að
öðmm kosti með því að leggja vel
hulin rör eða jarðgöng framhjá foss-
inum, þannig að enginn taki eftir,
að nokkuð jarðrask hafi verið fram-
ið og mannshöndin hafí hvergi skil-
ið eftir sig ör á hinni fögm ásjónu
náttúmnnar við fossinn.
Höfundur er náttúruírœðingur og
áhugamaður um umhverSsvemd.
Súlan E A
fékk á sig
brotsjó
LOÐNUSKIPIÐ Súlan EA fékk
á sig brotsjó 8 sjómílum suðaust-
ur af Langanesi um kvöldmatar-
leytið á sunnudaginn. Enginn
slasaðist en nótarenna á skipinu
bognaði, að sögn Bjaraa Bjarna-
sonar skipstjóra á Súlunni.
Brotsjórinn kom á skipið stjóm-
borðsmegin aftan til. „Það var
haugasjór þegar við fengum á okk-
ur þessa skvettu,“ sagði Bjami í
samtali við Morgunblaðið. Hann
sagði að Súlan hefði verið með full-
fermi af loðnu þegar hún fékk á
sig brotsjóinn. „Við lögðum ekki í
að fara inn á Raufarhöfn, eins og
við ætluðum að gera, og fómm til
Þórshafnar í staðinn," sagði Bjami.
U VEGUR TIL VELGENGNI
VEGUR TIL VELGENGNI
Meö vaxancii samkeppni á öllum sviðum viö-
skipta er nauðsynlegt að skoða vel þær baráttu-
aðferðir sem bjóðast.
Nám í viðskiptatækni er ætlað þeim sem vilja hafa
vakandi auga með öllum möguleikum sem gefast í
nútíma rekstri fyrirtækja og vilja auka snerpu sína í
harðnandi samkeppninni.
Viðskiptatækni er 128 klst. námskeið. Hnitmiðað
nám, sem byggt er á helstu viðskiptagreinum,
markaðs— og fjármálastjórnun —sniðið að þörfum
yfirmanna fýrirtækja, sölumanna og markaðsstjóra,
og þeirra er starfa að eigin rekstri.
Nokkur atriði námskeiðsins:
Grundvallaratriði í rekstrarhagfræði
Framlegðar og arðsemisútreikningar
Verðlagning vöru og þjónustu
Fjárhags— og rekstraráætlanir
islenski fjármagnsmarkaðurinn
Markaðsfærsla og sölustarfsemi
Auglýsingar
Bókhald sem stjómtæki
Gestafyrirlestur
Innritun og allar nánari upplýsingar
eru veittar í símum 68 75 90 & 68 67 90.
Hringið og við sendum upplýsinga-
bækling um hæl.
Tölvufræðslan
Stjómunar-
og viðskiptadeild
Borgartúni 28