Morgunblaðið - 01.03.1989, Qupperneq 24
u
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989
Skoðanakönnun í Bretlandi:
Verkamannaflokk-
ur með meira fylgi
en Ihaldsflokkminn
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
TVÆR skoðanakannanir, sem
birtust um síðustu helgi, sýna,
að Verkamannaflokkurinn er nú
í fyrsta skipti í meira en tvö ár
vinsælli en íhaldsflokkurinn
meðal kjósenda. Ekkert lát er á
átökum miðjuflokkanna tveggja.
í könnun Harris-stofnunarinnar,
sem birtist { The Observer síðastlið-
inn sunnudag, naut Verkamanna-
flokkurinn fylgis 42% aðspurðra,
íhaldsflokkurinn 41%, Frjálslyndi
*
Israelar og Egyptar und-
irrita samning um Taba
Taba. Reuter.
ÍSRAELAR og Egyptar undirrituðu á sunnudag samning þar sem
gert er ráð fyrir því að Taba-svæðið tilheyri Egyptum og var þar
með endi bundinn á landamæradeilu, sem staðið hafði í sjö ár.
Samkvæmt samkomulaginu yfir- ríkjanna myndu batna eftir að
gefa ísraelar svæðið fyrir 15. mars.
Einnig er gert ráð fyrir því að
Egyptar greiði bætur fyrir lúxus-
hótel og baðströnd ísraela á svæð-
inu. Þá þurfí ísraelar ekki vega-
bréfsáritanir til að komast á svæðið
og ísraelski gjaldmiðillinn verður
áfram nothæfur þar.
ísraelska sjónvarpið hafði eftir
ísraelskum og egypskum embættis-
mönnum í Taba að samskipti
SZECHUAN
KÍJWERSK MATARGERb
Matargerð í Kína er talsvert ólík eftir héruðum.
Nefndar eru fjórar stefnur og er Szechuan ein þeirra.
Eitt aðaleinkenni þeirrar matargerðar er
litskrúðug samsetning, sætur ilmur, steiking á ýmsan máta,
sterkt bragð og frumleg uppsetning réttanna í formi, lögun og
litum. Frá Kína kemur sérstaklega matreiðslumeistarinn
Pang Shou Xiang og eldar Szechuan rétti næstu vikur.
TILBOÐS KVÖLDVERÐUR
SZECHUAN SÚPA
KJÚKLINGUR í RAUÐUM PIPAR
STEHCT SZECHUAN SVÍNARIF
YU YEE STEIKTUR SMOKKFISKUR
MA LAK/NAUTAKJÖT MEÐ TOFU
KAFFI/KÍNVERSKUR BÚÐINGUR
Verð pr. mann kr. 1050
Sérstakur stór Szechuan matseðill með fjölda rétta
ásamt hinum venjulega matseðli Sjanghæ.
Sjanghæ
Kínverska veitingahúsið
Laugavegi 28b • Sími 16513
(hj
landamæradeilan hefði verið leyst.
ísraelsk stjómin staðfesti samning-
inn á sunnudag og var Ariel Sharon
viðskiptaráðherra eini ráðherrann
sem var andvígur honum.
ísraelar létu Taba ekki af hendi
árið 1982 þegar þeir skiluðu Egypt-
um Sinai-eyðimörkina samkvæmt
friðarsamningnum sem undirritað-
ur var árið 1979.
lýðræðisflokkurinn 9% ogJafnaðar-
mannaflokkurinn 3%. í Gallup-
könnun, sem birtist í The Sunday
Telegraph, voru úrslitin svohljóð-
andi: Verkamannaflokkurinn 35%,
íhaldsflokkurinn 35%, Frjálslyndi
lýðræðisflokkurinn 10% og Jafnað-
armannaflokkurinn 4%. Oákveðnir
voru 10%.
Báðar þessar kannanir eru gerð-
ar fyrir aukakosningamar síðastlið-
inn fimmtudag, þar sem fhalds-
flokknum tókst með naumindum
að halda sæti sínu í Richmond. Þær
staðfesta dvínandi vinsældir Thatc-
her-stjómarinnar, sem menn hafa
átt von á um nokkurt skeið. Hækk-
andi vextir, óvinsælar breytingar á
heilbrigðiskerfínu og sala vatns-
veitna og rafveitna em augljósar
ástæður minnkandi vinsælda stjóm-
arinnar.
Þetta er í fyrsta skipti í rúmlega
tvö ár, sem yerkamannaflokkurinn
fer fram úr íhaldsflokknum í skoð-
anakönnunum. Svipað gerðist á
síðasta kjörtímabili, en þegar leið
að kosningum, seig íhaldsflokkur-
inn fram úr á ný.
Aukakosningar verða að líkind-
um í byijun maí í Glenn Morgan í
Wales, en þingmaður íhaldsflokks-
ins þar lést nýlega. Meirihluti
flokksins var ríflega 6000 atkvæði
í síðustu kosningum. Þar reynir á
vinsældir Verkamannaflokksins.
Hann verður að vinna kjördæmi á
við Glenn Morgan til að eiga mögu-
leika í næstu kosningum.
Reuter
Sögufrægt hótel
Raffles-hótel í Singapore er orðið 103 ára gamalt og nýlega var
ákveðið að gera þyrfti umfangsmiklar endurbætur á bygging-
unni. Á myndinni sést hótelið sem er í miðborginni, umlukið hrika-
legum skýjakljúfum, en það verður lokað í tvö ár. Meðal þeirra
sem oft heiðruðu Raffles með nærveru sinni voru Somerset Maug-
ham, Noel Coward og Rudyard Kipling.
Bandaríkin:
Lítill árangur
af alnæmisprófí
Economist
UM eins árs skeið hafa þau lög gilt í Illinois-ríki í Bandaríkjun-
um, að enginn megi ganga í hjónaband nema fyrst verði kannað
hvort viðkomandi hafí smitast af alnæmi. Árangur af þessari al-
næmisleit er hins vegar ekki meiri en svo, að liklega verður hætt
við hana.
Á síðasta ári voru alnæmispróf-
aðir í Ulinois 155.458 einstakling-
ar alls og af þeim reyndust aðeins
26 vera smitaðir. Það eru innan
við 0,2% og aðeins 3% þeirra, sem
greindust með alnæmissmit i
ríkinu í fyrra. Það kemur fáum á
óvart þótt ekki hafi fundist fleiri
með alnæmissmit við þessar rann-
sóknir. Fólk, sem hefur eðlilega
kynhneigð og hefur alist upp við
borgaralegt gildismat, er ekki í
þeim hópi, sem hættast er við al-
næmi. Af þeim sökum hafa þing-
menn í Illinois í huga að afnema
lögin en á síðasta ári var kostnað-
urinn við alnæmisprófíð 290 millj-
ónir ísl. kr. Það eru nærri 12,5
milljónir á hvem smitaðan.
Að deila uppbyggi-
lega skiptir oft sköp-
um fyrir hjónabandið
New York Times V fj'
STUNDUM getur það ráðið mestu um hamingjusamt þjónaband,
að hjónaerjumar séu árangursríkar og uppbyggilegar. Kemur þetta
fram í könnun, sem skýrt var frá í bandaríska timaritinu Journal
of Cunsulting and Clinical Paychology og þar segir ennfremur, að
fátt sé verra en að breiða yfir ágreininginn og láta sem ekkert sé.
Sálfræðingamir John Gottman
og Lowell Krokoff, sem stóðu að
þessari athugun, segja, að það sé
til mikilla bóta, að fólk segi hug
sinn allan svo framarlega sem það
gæti þess að láta ekki skapið
hlaupa með sig i gönur. Verst af
öllu er þegar annað hjónanna fínnst
það vera í vöm, fyllist þtjósku og
dregur sig í hlé.
Sálfræðingamir könnuðu hagi
hjóna, sem áttu við ýmsa erfíðleika
að etja í sambúðinni, og ræddu
síðan við þau aftur að þremur árum
liðnum til að sjá hvemig hefði
gengið.
„Það kom okkur á óvart, að
óánægjuefnin í sumum hjónaband-
anna urðu grundvöllur að auknum
skilningi milli hjónanna þegar
stundir liðu,“ sagði Gottman. „Á
því áttum við alls ekki von.
Uppbyggilegustu erjumar eru
þær þegar hjónin eru ekki hrædd
við að láta óánægjuna í ljós, fínnst
sem makinn sýni skilning og þegar
rifrildinu lýkur með einhvers konar
samkomulagi. Sagði Gottman, að
slíkar deilur styrktu fólk í þeirri
vissu, að það gæti sameiginlega
ráðið fram úr vandamálunum.
Það sem varast ber
Samt sem áður er það oft svo,
að hjónarifrildi einkennast af eftir-
töldu, sem sálfræðingamir segja,
að sé mjög skemmandi fyrir hjóna-
bandið:
• Annað hjónanna er í vöm og
reynir að afsaka sig í stað þess að
glíma við vandann.
® Annar makinn gerir hinum upp
hugsanir í sinn garð.
• Þvermóðska og þrjóska.
• Niðrandi athugasemdir og um-
mæli.
• Grátur og gnístran tanna.
Að vera sammála um að rífast
aldrei hefur einnig sínar slæmu
hliðar. Segir Gottman, að hjá slíku
fólki virðist allt í sómanum „svo
lengi sem því gengur allt í haginn,
eftialega og að öðru leyti“.
„Ef eitthvað ber verulega út af
ráða þau ekki við vandann. Hjón,
sem eru hreinskilin hvort við annað
þótt það kosti stundum hressilegan
gust, standa aftur á móti betur
saman þegar á reynir."
Að hafa taumhald á
tilfinningimum
Gottman segir, að yfírleitt séu
eiginkonumar fyrri til að biydda
upp á ágreiningsmálunum. „At-
huganir okkar benda til, að óán-
ægja konunnar geti verið af hinu
góða ef rétt er á haldið. Henni er
nauðsynlegt að fá útrás en hún
verður þó að gæta þess að ganga
ekki alveg fram af manninum og
koma honum í vöm,“ segir Gott-
man og bætir því við, að undir
þessum kringumstæðum eigi mað-
urinn að leggja eyrun við því, sem
konan er að segja, sýna skoðunum
hennar skilning og viðurkenna, að
við einhvem vanda sé að glíma.
Þá saki ekkert þótt hann hvessi sig
að sama marki og konan, finnist
honum ástæða til. Til að ljúka deilu
er best að draga saman það, sem
fram kemur, og leita síðan sam-
komulags.
„Fólk á fyrst og fremst að forð-
ast að gefa tilfinningunum alveg
lausan tauminn," segir Gottman.
„Mig granar, að í þeim hjónabönd-
um, sem hafa styrkst með árunum,
hafí konumar gætt þess að láta
rifrildið ekki ganga of lángt. Því
er þá alveg öfugt farið í þeim hjóna-
böndum, sem versna stöðugt."
Ekki eru allir sálfræðingar og
hjúskaparsérfræðingar sammála
þeim Gottman og Krokoff um að
hjónarifrildi geti stundum gert gott
eitt. Segir til dæmis Richard Sim-
on, ritstjóri tímaritsins The Family
Therapy Networker, að flestir hjú-
skaparsérfræðingar telji rifrildið
vera til marks um, að ekki sé allt
með felldu í hjónabandinu. Segja
þeir, að séu deilumar litnar mildum
augum verði það bara til að ýta
undir aðrar senur.