Morgunblaðið - 01.03.1989, Side 27
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989
owoi vq & fai r q IDAniL'ivvan/ (H/rKmnM
MORGUNBLAÐIÍ) MIÐVlKUDAGUR 1. MARZ 1989
27
JlttYiQiiiiftfafrUÞ
Útgefandi
-ramkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Svelnsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst IngiJónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið.
1. mars 1989. Bjórsala leyfð á íslandi eftir 74 ára bann:
Prófsteinn
Attatíu ár eru liðin>síðan
íslendingar höfnuðu
áfengi í þjóðaratkvæði. Að-
flutningsbann áfengis gekk í
gildi 1912 ogsölubann 1915.
Bannárin, sem svo vóru
nefnd, urðu ekki mörg. Sala
Spánarvína var leyfð þegar
árið 1922 og sala sterkari
drykkja árið 1935.
Bannið hélt hinsvegar velli
gagnvart einni tegund áfeng-
is, bjómum. Það er ekki fyrr
en í dag, 1. marz 1989, u.þ.b.
áttatíu árum eftir að bannið
hlaut samþykki í þjóðarat-
kvæði, að íslendingar geta
keypt bjór löglega hér á landi.
Af þessu tilefni er ástæða
til að undirstrika, og það ræki-
lega, að bjór er áfengi, og það
þarf að umgangast hann sem
slíkan.
Bjór og bíll eiga til dæmis
aldrei samleið, nema í slys.
Erlend reynsla sýnir og ótví-
rætt, að vinnuslys sigla í kjöl-
far neyzlu bjórs á vinnustöð-
um, ef hún er liðin. Og það
er of seint að iðrast eftir á.
Slys verða ekki aftur tekin.
Það er því mjög mikilvægt að
móta þegar í upphafí þær
umgengnisreglur við bjórinn,
að sagan endurtaki sig ekki
að þessu leyti. Vítin eiga að
vera til að varast þau.
Það má til sanns vegar
færa að þeir, sem neyta tób-
aks og áfengis, hafi sjálfs-
ákvörðunarrétt til slíks gjöm-
ings. Þeir hafa hinsvegar
bæði siðferðilegar og lagaleg-
ar skyldur við umhverfí sitt
og samborgara. Frá því er
greint í Heilbrigðismálum,
tímariti Krabbameinsfélags
Islands, að einstaklingur, sem
reykir ekki, en vinnur þar sem
aðrir reykja, „reyki í raun eina
til fímm sígarettur þá daga
sem hann er í vinnunni". Þar
segir og að „bam sem á for-
eldra sem reykja, andi að sér
sem svarar reyk úr allt að 150
sígarettum á ári“.
Á sama hátt og óbeinar
reykingar valda því að meiri
hluti þeirra sem ekki reykja
er með nikótín í líkamanum,
komið frá reykingum annarra,
getur áfengisneyzla eins vald-
ið öðmm skaða, jafnvel dauða,
ef ekki er gætt siðferðilegra
og lagalegra kvaða, til dæmis
varðandi áfengi og akstur eða
bjór og vélar á vinnustað.
Það er ástæða til að minna
á þessar bláköldu staðreyndir
þegar bjórinn kemur á markað
í dag. Söluaðili bjórsins, ríkis-
valdið, hefði gjaman mátt og
raunar átt að koma fyrir-
byggjandi fræðslu ríkulegar á
framfæri áður en bjóraldan
skall yfir. En betra er seint
en aldrei, ef vel verður að
verki staðið í þessu efni sam-
hliða og í framhaldi af mark-
aðssetningu bjórsins. Bjórinn
er orðinn hluti af tekju- og
skattastefnu stjómvalda og
sú staðreynd leggur þeim sið-
ferðilegar skyldur á herðar.
Bjór hefur að vísu verið til-
tækur í landinu í einhveijum
mæli alla tíð, einkum hin
síðari árin. Meir en helmingur
landsmanna, sem utan fór á
ári hveiju, hafði heimild til
bjórkaupa. Sama máli gegndi
um farmenn og flugliða. Og
svartur bjórmarkaður var til
staðar. Lögleyfð sala bjórs í
útsölustöðum ÁTVR og á
vínveitingahúsum auðveldar
engu að síður aðgang að þess-
ari tegund áfengis, þótt breyt-
ingin verði máske ekki eins
mikil og margur hyggur. Þess
vegna er mikilvægt að halda
fyrirbyggjandi fræðslu og við-
vörunum að fólki.
„Margt er manna bölið,
misjafnt dmkkið ölið,“ segir í
fornum hendingum. Og fyrst
og síðast verður hinn áfengi
bjór prófsteinn á íslendinga,
sem þjóð og einstaklinga.
Ástæða er því til að hvetja
fólk til að taka á móti bjómum
með varúð og hófsemd. Ef til
vill er hann beztur ódmkkinn.
En þeir sem vilja öl til vinar
drekka ættu að hafa í huga,
að bjór er áfengi og að um
hann gilda allar sömu reglur
og staðreyndir, siðferðilegar,
heilsufarslegar og lagalegar,
sem aðrar áfengistegundir.
Landsmenn mega og minn-
ast þess að fjölmiðla- og sjón-
varpsaugu umheimsins hvíla
á þeim þessa fyrstu bjórdaga
og vikur, eftir ölbann í u.þ.b.
þijá aldarfjórðunga. Við
hönnum sjálf þá auglýsingu
um land og þjóð — þá þjóðar-
kynningu —, sem send verður
um öll heimshom næstu daga.
Megi sú hönnun vel takast.
Meira máli skiptir þó að við
höldum virðingu okkar gagn-
vart okkur sjálfum.
Sauðárkrókur
STEFÁN Guðmundsson, út-
sölustjóri ÁTVR sagðist ekki
búast við stórum degi þó sala
bjórs hæfist. Nú þegar væru
5 tonn af bjór komin og önnur
5 kæmu 1. mars. Síðan mætti
sjá til hvert framliald yrði á.
„Við tökum þessu eins og
hverjum öðrum miðviku-
degi,“ sagði Stefán.
Ekki verða allar gerðir bjórs
til sölu á Sauðárkróki 1. mars,
aðeins íslenski bjórinn og Bud-
weiser en aðrar tegundir koma
síðar.
Bjöm Mikaelsson yfirlög-
regluþjónn sagðist ekki búast
við stórmerkjum þó sala hæfist
á áfengum bjór. Auðvitað mætti
búast við auknum ölvunarakstri
en hins vegar yrði ekki um
aukna löggæslu að ræða, því
yrði einfaldlega ekki við komið
vegna niðurskurðar og þeirra
spamaðarráðstafana sem nú
hefðu verið gerðar.
B.B.
Ólafsvík
„JÁ JÁ, það eru komin yfir 5
tonn af bjór í húsið,“ sagði,
Sigríður Þóra^ Eggertsdóttir,
útsölustjóri í Ólafsvík. 3 teg-
undir eru komnar og hinar
bætast við eftir mánaðamótin,
þær sem afgreiddar verða í
útsölum ÁTVR.
Við bættum við afgreiðslu-
rýmið og reiknað er með að
bæta við manni, að minnsta
kosti í hlutastarf því nú þegar
er mikið að gera fyrir tvo.
Það hefur mikið verið hringt
hingað og spurt hvort við yrðum
ekki með nægan bjór við opnun
á morgun. Veitingastaðir í
grenndinni sem hafa vínleyfí
hafa pantað og koma á morgun,
svo sem Ásakaffi í Grandar-
firði, og Hótel Stykkishólmur.
Hjá okkur verður allt til reiðu.
- Helgi.
Keflavík
ÞRJÁR tegundir af dósabjór
verða til sölu hjá ÁTVR í
Keflavík og sagði Birgir Ax-
elsson verslunarstjóri að hann
hefði á tilfinningunni að mik-
ið yrði að gera fram að helgi.
Bjórinn verður eingöngu seld-
ur í áfengisversluninni í
Hólmgarði sem verður opnuð
í dag og verður hún opinn í
2 tíma á dag, kl 14.00-16.00.
Tegundimar sem seldar verða
era Egils-gull, Sanitas-pilsner
og Löwenbráu. I Keflavík era
fjórir vínveitingarstaðir þar sem
hægt verður að kaupa bjór. Þar
verða væntanlega fleiri tegundir
í boði.
Karl Hermannsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn sagði að lög-
reglan óttaðist aukinn ölvunar-
akstur með tilkomu bjórsins og
yrði lögreglan með hert eftirlit
af þeim sökum. í Keflavík væra
engar bjórstofur og lögreglan
hefði ekki orðið vör við neina
sérstaka bjórstemmningu meðal
bæjarbúa ennþá.
BB
Staðarskáli
„ VIÐ ERUM nú ekki á neinum
harðahlaupum á eftir bjórn-
um,“ sagði Magnús Gíslason
veitingamaður í Staðarskála
í Hrútafirði. Hann kvaðst
gera ráð fyrir að bjóða fólki
að fá sér bjór með matnum
með tíð og tíma.
„Það er ekkert blik í augunum
á okkur, þetta gengur nú svona
fyrir sig héma í sveitinni. En,
ég reikna nú með að fólk fái
bjórinn hjá okkur þegar sól
hækkar á lofti. Það er varla
síðra en að hafa létta vínið, sem
við höfum nú þegar."
Hótel og veitingahús:
180-230 krónur algengt verð
HÓTELIN og veitingahúsin, sem
hafa haft vínveitingaleyfi, munu
bjóða gestum sínum upp á að
drekka bjór ekki síður en aðra
áfenga drykki. Morgunblaðið
kannaði hjá nokkrum þessara
aðila hvaða tegundir þeir hygð-
ust bjóða og á hvaða verði. Mjög
er misjafnt hve Qölbreytilegt
úrval verður í boði, en ekki virð-
ist vera mikill verðmunur hjá
þeim sem höfðu ákveðið verðið.
Ölgerðarbjór á Esjubergi
Á Esjubergi verða tvær tegundir
til að byija með, Egils Gull og Tu-
borg. Þær verða seldar á flöskum
og kosta 210 krónur flaskan.
Pizza Hut mun bjóða sömu teg-
undir og Löwenbráu að auki. Ekki
fengust upplýsingar um verð þar.
Sanitas á Loftleiðum
Bjór hússins verður Sanitas
Pilsner á Hótel Loftleiðum og verð-
ur seldur úr krana á 190 krónur
hvert 33 sentilítra glas. Þar verður
einnig Löwenbráu á 220 krónur
flaskan og 320 krónur 50 sentilítr-
ar. Þá mun Hótel Loftleiðir bjóða
Tuborg á 230 krónur og Budweiser
á 220 krónur.
Flöskubjór á Nausti
Egils Gull og Löwenbráu verða
á drykkjalista Naustsins til að byrja
með og verður tegundum ef til vill
íjölgað síðar. Allur bjór verður
framreiddur á flöskum.
í Geirsbúð verður ein tegund á
boðstólum, Löwenbráu úr krana.
Vínlaust á Borginni í kvöid
Hótel Borg mun engan áfengan
bjór selja í dag, þar sem húsið er
frátekið fyrir skemmtun án áfengis.
Ekki fengust upplýsingar um teg-
undir eða verð þeirra sem seldar
verða á Borginni í framtiðinni.
Innlent í Fjörunni
Fjaran í Hafnarfirði mun bjóða
allar innlendu tegundimar. Löwen-
bráu og Sanitas Lager koma úr
krönunum, hinar tegundimar á
flöskum eða dósum. Síðar er stefnt
að því að bjóða gestum Pjörannar
upp á Heineken og Tuborg.
Róleg byijun á Torfunni
Torfan býður innlendu tegund-
imar í byijun og allar á flöskum.
Síðar á að fjölga tegundum þegar
þær erlendu verða fáanlegar.
Ódýrast á Sögu
Hótel Saga býður ódýrasta bjór-
inn af þeim sem talað var við og
höfðu ákveðið verðið. Sanitas Pilsn-
er verður seldur úr krana á 180
krónur fyrir skammtinn. Löwen-
bráu úr krana kostar þar 210 krón-
ur, aðrar innlendar tegundir á flösk-
„Það þýðir ekkert að
æsa sig út af þessu“
- segir versluiiarstjóri ÁTVR að Stuðlahálsi
STARFSFÓLK í tveimur áfengis-
útsölum ÁTVR, Kringlunni og
Stuðlahálsi, sem Morgunblaðið
heimsótti í gær, tók hinni yfir-
vofandi bjórsölu með ró. Bjarni
Þorsteinsson, verslunarstjóri á
Stuðlahálsi, sagðist bara líta á
daginn i dag sem venjulegan
vinnudag — það þýddi ekkert að
æsa sig út af þessu. Verslunar-
stjórí Kringlunnar, Sævar
Skaptason, var iíka hvergi bang-
inn. Verslunin hefði lifað af
tvenn jól og ætti því að þola þetta
líka.
Ný áfengisútsala ÁTVR opnar í
dag á Stuðlahálsi. Þar verður lögð
áhersla á bjór og er ætlunin að bjóða
í framtíðinni upp á fjölbreyttara
úrval bjórtegunda en í öðram
vínbúðum. í dag verða þó einungis
á boðstólum sömu tegundir og ann-
ars staðar. Auk þess að vera með
útsölu á þessum stað verður hús-
næðið notað sem lagerrými undir
allan innflutta bjórinn.
um kosta 220 krónur. Þetta á við
um Grillið og Skrúð. Ekki hafði
verið ákveðið í gærkvöldi með verð
eða tegundir í danssölunum, en
búist við að bjórinn verði eitthvað
dýrari þar. Þá verða sérpantaðar
tvær tegundir fyrir Hótel Sögu:
Beck’s og Bitsburger.
Fjölbreytt á Holti
Hótel Holt mun leitast við að bjóða
viðskiptavinum fjölbreytt úrval af
bjór. Því verða þar á boðstólum
allflestar þær tegundir sem hér
verða fáanlegar á flöskum. í byijun
verður boðið upp á Egils Gull og
Tuborg.
Eiríkur Hauksson á Hótel
Islandi
Hótel ísland býður ekki bjór í
dag. Þar verður rokkarinn Eiríkur
Hauksson og félagar með tónleika
í kvöld og verða ekki vínveitingar.
Á Broadway verður bjórsala haf-
in á föstudag, en þar er ekki opið
í kvöld. Bjór verður seldur á flöskum
til að byija með, Sanitas og Löwen-
bráu.
Tvær ölgerðir íslenzkar framleiða áfengt öl.
Olgerðin Egill Skallagrímsson hefúr sent frá
sér þúsundir kassa af „Egils gull“ bjór, sem
seldur verður í Áfengisverslun ríkisins í dag.
Að sögn Jóhannesar Tómassonar forstjóra,
Morgunblaðið/RAX
verður ekki hafin framleiðsla á fleiri tegundum
af áfengum bjór fyrr en reynsla er komin á
söluna. Hin ölgerðin er Sanitas og um hana
er fjallað á Akureyrarsiðu bls. 30
Bók um bjórinn
ALMENNA Bókafélagið hefur
gefið út Bókina um bjórinn.
í fréttilkynningu frá AB segir:
„Bókin um bjórinn byggist á líflegu
samtali bjóráhugamanns við bragg-
ara. Samtalið veitir lesandanum
upplýsingar um framleiðslu bjórs,
mismunandi bragð, glös, froðu,
bjórkrár og, síðast en ekki síst,
gefur yfirlit yfir allt það sem
bjórsnobbari þarf að vita!
I Bokinni um bjórinn eru að auki
fjöimargar uppskriftir þar sem bjór
er notaður við matseldina og fjallað
er um rétti sem ánægjulegt er að
drekka bjór með.
Bókin um bjórinn er 110 bls. að
stærð í stóru broti. Setningu og
umbrot annaðist Prentsmiðja Áma
Valdemarssonar hf. Prentun og
bókband: Prentstofa G. Benedikts-
sonar.
Borgþór S. Kjærnested íslenskaði
Bókina um bjórinn."
Leyfum flölgar mjög
Hvar fæst bjórinn?
ísafjöröur
Bjórinn verður víða falur. Nýir
veitingastaðir líta dagsins ljós og
þeir sem ekki hafa haft vínveit-
ingaleyfi, fá það nú til að selja
bjór. Sex leyfí til vínveitinga voru
afgreidd til embættis lögreglu-
sfjóra á fúndi borgarráðs í gær,
fjögur hafa verið veitt á síðustu
dögum og þrjú verða veitt í dag.
Borgarráð samþykkti að veita
leyfi fyrir léttu víni fram til kl. 23:30
í Kringlunni 4 og Skipholti 50. Al-
menn leyfi voru veitt fyrir Gerðu-
berg 1, Borgartún 6, Pósthússtræti
17 og Austurstræti 4.
Vínveitingaleyfi hafa síðustu daga
verið veitt Rauða Ljóninu, Pottinum
og pönnunni, Aski, Amerískum stíl
og Árbergi. í dag verða veitt leyfi
til Ölkjallarans, Kringlukráarinnar
og Kabaretts.
Auk þessa hefur verið rætt um
bjórknæpur í Reykjavík í Hafnar-
stræti 5, Hverfisgötu 12 og Þing-
holtsstræti 2-4.
Olkjallarinn opn-
aður með viðhöfii
„ÞETTA verður ölkrá í íslensk-
um kjallara eins og þeir voru um
síðustu aldamót, við reynum að
skapa íslenskan bjórkjallara og
látum innviðina halda sér svo
sem unnt er,“ safgði Bjarni Mar-
teinsson eigandi Olkjallarans við
Austurvöll, sem opnar með við-
höfn í dag, fyrsta daginn sem
leyft verður að selja bjór hér á
landi síðan 1915.
Bjami er eigandi hússins og byrj-
aði að innrétta kjallara þess fyrir
um fimm mánbuðum síðan. Húsið
er við Pósthússtræti 17 og var reist
af Jónassen landlækni árið 1907
eftir teikningum Einars Erlends-
sonar húsameistara. Bjarni segir
að því hafi lítið verið breytt frá
upphafi nema að settur hefur verið
kvistur á suðurhlið þess.
Fyrsta daginn sem bjórsala er
leyfð nú verður hátíðleg athöfn í
Ölkjallaranum. Boðsgestir koma
klukkan hálf tólf og á hádegi verða
ölkrúsir fylltar að lokinni klukkna-
hringingu.
Rekstur Ölkjallarans er í höndum
Svavars Siguijónssonar og Sigur-
bjargar Eiríksdóttur.
REYKJAVlK
Kringlan
Snorrabraut
Lindargata
Mjóddin
Stuölaháls | Keflavlk
Hvað kostar
hann?
6 dósir
24 dósir
Sanitas pilsner 93 560
Egils gull
Budweiser
Löwenbráu
::|fy|0pÍÍ
Kaiser
100
illli
105
108
110
600
620
630
lliiil
660
2.240 krónur
2.400 krónur
2.480 krónur
2.520 krónur
2.600 krónur
2.640 krónur
s
Sanitas lager 110 660
2.640 krónur
Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR:
Bjór frá allri Vest ur-Ewópu í júní
SALA ÁTVR mun líklega þrefald-
ast með tilkomu bjórsins í litrum
telið. Höskuldur Jónsson forstjóri
ÁTVR sagði þessa aukningu þó
ekki segja alla söguna, því bjórinn
yrði hafður á brettum og tæknin
nýtt til að auðvelda alla fram-
kvæmd. Eins og kunnugt er verð-
ur einungis boðið upp á þrjár
erlendar bjórtegundir auk inn-
lenda bjórsins til að byija með
en Höskuldur sagði að stefnt
væri að því að í júní yrði hægt
að fá bjór frá flestum löndum
Vestur-Evrópu í sérversluninni á
Stuðlahálsi.
Nokkuð erfiðlega hefur gengið að
koma útlendu bjórtegundunum
tímanlega til landsins og verður ein-
ungis Budweiser í verslunum ÁTVR
þegar opnað verður í dag. Höskuldur
sagði að örlítið væri til af Budweiser
og tveir gámar sem áttu að koma
til landsins í gær myndu tefjast fram
yfir helgi vegna veðurs. Þá væri von
á 15 gámum af Tuborg og einum
af Kaiser en óljóst hvort tækist að
ná þeim bjór í verslanir í dag.
Nóg er hins vegar til af innlendum
bjór og hefur ATVR þegar keypt
um 200 bretti frá Sanitas og um
100 bretti frá Ölgerðinni. 20 kassar
era á hveiju bretti. Óttaðist Hös-
kuldur því ekki að skortur yrði í
verslunum ÁTVR í dag. Um miðjan
mars ætti hins vegar allt að vera
komið í eðlilegan farveg.
í sérverslun ÁTVR á Stuðlahálsi,
sem opnar í dag, er ætlunin að bjóða
fleiri tegundir. Höskuldur sagði þó
að ekki yrði bætt þar við tegundum
fyrr en í lok apríl en þá yrði hafin
sala á dökkum bjór. í lok júní yrði
síðan hægt að fá bjór frá flestum
Vestur-Evrópulöndum á Stuðlahálsi.
Mörg veitingahús munu bjóða sér-
pantaðan bjór. í dag kemur líklega
til landsins gámur af Pripps og ann-
ar af Bitsburg og von er á gámi af
Beck’s í kringum 10. mars.
Bjórinn hefur í fö_r með sér nokkr-
ar breytingar fyrir ÁTVR. Má nefna
sem dæmi að sala fyrirtækisins mun
þrefaldast, miðað við spár um bjór-
sölu, úr 3,5 milljónum lítra af áfengi
á ári í 10,5 milljónir lítra. Starfs-
mönnum ÁTVR hefur verið fjölgað
um 7 vegna bjórsins og er þar með
talið starfsfólk í verslunum. Miklar
breytingar hafa einnig verið gerðar
á verslunum ÁTVR og tekin upp
sjálfsafgreiðsla á Akranesi, ísafirði,
Selfossi og Akurevri.
Bolungarvík
„ÍSSKÁPARNIR verða ekki
stækkaðir og salernum verð-
ur ekki fíölgað hér í Bolung-
arvík, þó bjórbanni hafi verið
aflétt á íslandi," sagði Ólafúr
Kristjánsson, bæjarstjóri í
Bolungarvík,“ um viðbrögð
bæjaryfirvalda við komu
bjórsins.
„Það verður heldur ekki betur
séð en Bolvíkingar haldi full-
komlega ró sinni og lífið gangi
sinn vanagang," sagði Ólafur. í
sama streng tóku aðrir þeir sem
rætt var við.
Veitingahúsið Skálavík er eini
staðurinn hér í Bolungarvík þar
sem bjór verður fáanlegur og
verður hann þar fyrst á boðstól-
um næstkomandi laugardag. Þá
verður opið frá klukkan 20 til
03. Boðið verður upp á ítalskar
flatbökur og írskur vísnasöngv-
ari mun leika og syngja. Hljóm-
sveitin Dolby leikur fyrir dansi
frá klukkan 11.
Gunnar
SeyðisQörður
Hér er sölubúð ÁTVR sem
hefúr í mörg ár þjónað öllu
Austurlandi þar til opnuð var
söiubúð á Neskaupstað í
haust. Stór hluti af því áfengi,
sem ÁTVR á Seyðisfirði sel-
ur, er sendur í póstkröfú til
neytenda og þannig verður
það einnig méð bjórinn.
Brynjar Júlíusson, útibús-
stjóri ATVR segir að trúlega
verði meira að gera fyrst í stað.
„Einnig verða póstkröfusendin-
garnar sennilega fyrirferðar-
meiri til að byija með. En ég
geri ráð fyrir að þetta jafni sig
fljótlega og verði svipað og ver-
ið hefur. Við geram ekki ráð
fyrir að fjölga starfsfólki með
tilkomu bjórsins."
Fyrst um sinn verða þijár
tegundir á boðstólum hjá ÁTVR
á Seyðisfirði, allar innlendar.
Sigrún Ólafsdóttir hótelstjóri
á Hótel Snæfelli segist munu
selja bjór. „Við höfum auðvitað
opið hér 1. mars og verðum með
bjór á boðstólum.“
Garðar Rúnar.
Egilsstaðir
Á Egilsstöðum ríkir það
undarlega ástand í bjórmál-
um, að þar er nægur bjór, en
hann er í flutningabíl á leið
til ÁTVR á Seyðisfirði og
þangað verður hann að kom-
ast til að hægt verði að af-
greiða hann til Egilsstaða.
Fjarðarheiði var rudd í gær,
en búist var við að hún lokaðist
strax aftur, þannig að Egils-
staðir gætu orðið bjórlaus bær
í dag.
Bæði vínveitingahúsin á Hér-
aði, Hotel Valaskjálf og Sam-
kvæmispáfinn, verða með sér-
stakar uppákomur næsta föstu-
dag í tilefni af bjómum.
Starfsfólk pósthússins á Eg-
ilsstöðum gerir ráð fyrir að
þurfa að handfjatla bjór mikið
á næstunni og lögreglan er með
sérstakan viðbúnað gegn ölv-
unarakstri.
Björn
Húsavík
Á Húsavík er lítið talað um
bjórinn, það gengur fram af
mörgum hvað mikið er um
hann rætt í fjölmiðlum.
Hér er engin áfengisútsala,
en þrívegis hefur verið greitt
atkvæði um það, hvort setja
skuli á stofn útsölu og verið
fellt, en alltaf með minnkandi
meirihluta.
Mikið af áfengi hefur verið
flutt hingað á vegum póstþjón-
ustunnar og hafa þeir fyrstu
velt vöngum yfir því hvort póst-
urinn sé undirbúinn að afgreiða
bjórinn.
- Silli