Morgunblaðið - 01.03.1989, Side 29

Morgunblaðið - 01.03.1989, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989 29 Sinfóníuhlíómsveit íslands: Sjötta sinfónía Beethov- ens og tvö nútímaverk TÍUNDU reglulegu áskriftartón- leikar Sinfóníuhljómsveitar ís- lands verða í Háskólabíói á morg- un, fimmtudag 2. mars, og hefl- ast kl. 20.30. Á efhisskrá verða þijú verk: 6. sinfónía Beethov- ens, „Sveitasinfónían", Canzona eftir Arne Nordheim og La Valse eftir Mauriee Ravel. Hljómsveit- arstjóri verður ítalinn Aldo Cecc- ato. Það eru sex ár síðan 6. sinfónían var síðast flutt hérlendis, en á nærri 40 ára starfsferli Sinfóníuhljóm- sveitarinnar hefur verkið verið flutt átta sinnum áður. Sjötta sinfónían var frumflutt í Vín 22. desember 1808, fyrir réttum 180 árum undir stjórn tónskáldsins. Á sömu tónleik- um var 5. sinfónían frumflutt ásamt 4. píanókonsert Beethovens. Á þessum árum, í byijun 19. aldar, var Beethoven á hátindi ferils síns og hvert stórvirkið af fætur öðru var til á nótnablöðunum. 6. sinfón- ían er kölluð Sveitasinfónían, því í henni er að fínna friðsæld sveitalífs- ins, kvak vorfuglanna og glaðværð fólksins vegna komu vorsins. Hin tvö verk tónleikanna eru af allt öðrum toga. Canzona eftir Ame Nordheim er fyrsta verk tónskálds- ins, sem ruddi honum braut sem tónskáldi á heimsmælikvaða. Nord- heim er fæddur í Larvik í Noregi 1931 og stundaði nám í Osló og síðar undir handleiðslu Holmboes í Aldo Ceccato, hljómsveitarstjóri. Kaupmannahöfn. Hann var um tíma tónlistargagnrýnandi Dag- bladet í Osló og hlaut tónskálda- verðlaun Norðurlandaráðs 1972. La Valse eftir Maurice Ravel var samið í anda Vínarvalsanna og frumflutt í París 1920. Það var upphaflega samið sem ballettverk, en hafnað. Á þessum tíma skrifaði Ravel verk, sem áttu sér greinilega skírskotun í verk eldri meistara. Maurice Ravel var fæddur í Pýr- ennafjöllunum 1875 og ungur að árum flutti hann með fjölskyldu sinni til Parísar. Hann hóf píanó- nám sjö ára að aldri og eftir nám í Tónlistarskóla Parísar hlaut hann verðlaun fyrir píanóleik. Ravel skrifaði óperur og mörg ballettverk Fiskverð á uppboðsmörkuðum 28. febrúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur(óst) 40,00 40,00 40,00 0,839 33.560 Ýsa 65,00 65,00 65,00 0,967 62.8 55 Steinbítur 20,00 20,00 20,00 0,201 4.C35 Samtals 50,03 2,007 100./ 50 Selt var úr Þóri SF og Frosta HF. f dag verða meðal annars seld 15 tonn af ýsu, 2,5 tonn af þorski og 0,5 tonn af steinbít úr Náttfara HF, 11 tonn af þorski, 1 tonn af ýsu og 1 tonn af keilu úr Stakkavík ÁR, 7 tonn af þorski frá Tanga hf., 10 tonn af óslaegðri ýsu úr Kristínu ÁR, 7 tonn af ufsa og óákveöið magn af þorski úr Oddeyrinni EÁ. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 39,00 34,50 38,76 36,016 1.395.810 Þorsk(ósl1-2n) 40,00 40,00 40,00 6,920 276.800 Ýsa 43,00 28,00 34,62 1,261 43.650 Ufsi 25,00 22,00 23,64 15,404 364.197 Karfi 23,00 15,00 22,98 8,941 205.475 Hlýri+steinb. 25,00 25,00 25,00 0,093 2.325 Langa 15,00 15,00 15,00 0,135 2.025 Lúöa 225,00 205,00 214,17 0,133 28.485 Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,050 1.750 Keila 7,00 7,00 7,00 0,021 147 Undirmál Blandað Samtals 33,65 68,974 2.320.664 Selt var úr Þorláki ÁR og bátum. í dag verður selt úr Farsæli og bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur(ósl.) 58,50 41,00 51,10 21,868 1.117.536 Ýsa(ósl.) 83,00 35,00 66,99 4,371 292.816 Ufsi 21,00 15,00 19,71 3,885 76.603 Karfi 23,00 15,00 21,54 6,762 145.669 Steinbítur 24,00 15,00 16,95 0,055 941 Hlýri+steinb. 37,00 24,00 32,87 0,085 2.794 Langa 26,50 26,50 26,50 0,551 14.602 Skarkoli 55,00 55,00 55,00 0,028 1.540 Lúða 340,00 270,00 291,67 0,141 41.125 Blálanga 27,50 27,50 27,50 1,504 41.379 Skata 94,00 94,00 94,00 0,074 6.956 Skötuselur 410,00 160,00 199,94 0,360 71.980 Samtals 43,81 42,175 1.847.852 Selt var aðallega úr Aðalvík KE, Eldeyjar-Boöa GK og Hraunsvík GK. I dag verða meöal annars seldir 300 kassar af ufsa og karfa úr Hrafni Sveinbjarnarsyni GK. og kammertónlist. Hann sótti ákveðið eftir því að fá að þjóna föðurlandinu í fyrri heimsstyijöld, en vegna heilsuleysis var honum hafnað. Loks fékk hann þó starf sem sjúkraliði. 1916 var hann send- ur á sjúkrahús og lauk þar með þátttöku sinni í styrjöldinni. Á þriðja áratugnum flutti hann fyrir- lestra við ýmsa tónlistarskóla og leiðbeindi tónlistarmönnum sem síðar urðu frægir, s.s. Vaughan Williams. Ravel var gerður að heið- ursdoktor við Oxford-háskólann 1929 og lést 1937. Italski hljómsveitarstjórinn Aldo Ceccato stundaði tónlistamám í fæðingarborg sinni Mílanó og síðar í Tónlistarháskólanum í Berlín. Fyr- ir réttum 20 árum vann hann fyrstu verðlaun í hljómsveitarstjórakeppni ítalska útvarpsins og sama ár hóf hann störf við óperuna í Chicago í Bandaríkjunum. Síðan hefur hann verið hljómsveitarstjóri á heims- mælikvarða. Hann stjórnaði stórum og frægum hljómsveitum austan hafs og vestan og varð aðalhljóm- sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Detroit-borgar um fjögurra ára skeið, 1973-1977. Frá 1975 varð hann einnig aðalhljómsveitarstjóri Fílharmóníusveitar Hamborgar. Frá 1985 hefur Aldo Ceccato verið aðalhlómsveitarstjóri Fflharmóníu- sveitarinnar í Bergen, en þar tók hann við af Karsten Andersen. Ábendingar frá LÖGREGLUNNI: Úr lögreglusamþykkt í lögreglusamþykkt Reykjavíkur segir m.a.: „Þegar fjölmenni safnast saman á almannafæri við biðstöðvar almenningsvagna, miðasölur, skemmtistaði, verslanir og aðra afgreiðslustaði, skal fólk raða sér þannig að þeir, sem fyrstir koma, fái fyrstir af- greiðslu." Eða með öðrum orðum; það er ætlast til að fólk fari í röð og sýni með því almenna kurteisi og tillitssemi. Eitthvað virðist skorta á að fólk tileinki sér þetta ákvæði. Hér er um stóran uppeldisþátt að ræða og skiptir verulegu máli hvern- ig að honum er staðið svo vel megi til takast. Ætti það að vera foreldrum, skólayfírvöldum og öðrum uppalendum verðugt um- hugsunarefni. I lögreglusamþykktinni segir enn fremur. „Uppþot, áflog, óspekt- ir eða önnur háttsemi, sem raskar allsheijarreglu, má ekki eiga sér stað á almannafæri, og ekki mega menn þyrpast þar saman, ef það truflar umferð eða veldur vegfarendum öðrum óþægind- um.“ Þá segir einnig: „Öllum ber að gæta þess að ganga vel um á almannafæri og skemma þar ekki hluti, sem ætlaðir eru til al- menningsnota eða prýði.“ Sektarheimild er fyrir brotum á lögreglusamþykkt og fer upphæð- in eftir eðli brota hveiju sinni. Snjall firá Gerðum seldur ásamt ellefu hrossum frá Skarði Kaupverðið um þrjár milljónir GÆÐINGURINN Snjall frá Gerð- um hefúr verið seldur og er hann metinn á um 600 þúsund. Kaup- endur að hestinum eru Aðalsteinn Aðalsteinsson, Unn Kroghen og Svíamir Göran og Peter Hagg- berg. Þá kaupa þau 8 önnur hross og 3 folöld og mun kaupverðið vera i kringum 3 milljónir króna. Reiknað er með að hesturinn fari í úrtökukeppni fyrir heimsmeistara- mótið í Danmörku um miðjan ágúst. Aðalsteinn mun sitja hestinn, en lengst af hefur norska stúlkan Olil Amble setið hestinn í keppnum. Snjall, sem var í eigu feðganna í Skarði í Landsveit, þeirra Kristins og föður hans, Guðna Kristinssonar, skaust upp á stjömuhimininn 1983 á íslandsmótinu á Faxaborg. Olil Amble sigraði í töltkeppninni á hon- um á íslandsmótinu á Víðivöllum 1986. Sama ár varð hann annar í B-flokki gæðinga á landsmótinu á Hellu. Auk þessa hefur Snjall óum- deilanlega verið einn besti fjórgangs- hestur landsins frá 1983. Snjall verð- ur sýndur í Reiðhöllinni laugardag- inn 11. mars þegar Suðurlandsdeild Félags hrossabænda verður með sýningu á söluhrossum og sunn- lenskum gæðingum. Meðal hrossa í hópnum sem seld voru frá Skarði er stóðhesturinn Atli 1016 frá Syðra-Skörðugili, en hann kom fram á fjórðungsmótinu í Reykjavík 1985 og hlaut þá 8,07 í einkunn og fyrstu verðlaun. MorgunblaðiðAT aldimar Kristinsson Snjall og Olil Amble hlaðin verðalaunum að loknu íslandsmóti á Víðivöllum 1986. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsh □ GUTNIR 5989317 I.O.O.F. 9 = 170318Vz = Káetukvöld. I.O.O.F. 7 = 170318'/z =. □ Helgafell 5989137 IV/V -2 Krossinn Auðbrekku 2, 200 Kópavogur Almenn samkoma í dag kl. 20.30. Róbert Hunt predikar og Ronnie Eades leikur á saxafón. Állir velkomnir. REGLA MUSTERISRIDDARA RMHekla 1.3. VS. MT. A. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma I kvöld kl. 20.00. Hvítasunnukirkjan Fíladeifía Almenn samkoma kl. 20.30. Anna Höskuldsdóttir segir frá ferð sinni til Kenýa og Swazi- lands. FERDAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SMAR11796 og 19533. Aðalfundur Ferðafélags íslands Aðalfundur Ferðafélags íslands verður haldinn fimmtudaginn 2. mars f Sóknarsalnum, Skipholti 50a. Fundurinn hefst stundvís- lega kl. 20.30. Venjuleg aðal- fundarstörf. Mætiö á aðalfundinn. Sýniö fé- lagi ykkar áhuga. Ath.: Félagar sýni skírteini frá árinu 1988 við innganginn. Stjórn Ferðafélags fslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.