Morgunblaðið - 02.04.1989, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.04.1989, Blaðsíða 15
GPcMOÍtöliNKLAÖID (SUÍJNIÍDAOCR [21IÆRRÍDŒ989 Ml5 til 1947 að það var afhent ríkinu til eig-nar og umráða. Þetta náttúru- gripasafn var lengi vel rekið með myndarbrag, en nú er það að frnna í leiguhúsnæði Náttúrufræðistofnun- ar Islands við Hlemm. Þar hefur Náttúrufræðistofnun búið við þröng- an kost um áratugi, ekki síst varð- andi aðstöðu til sýninga fyrir al- menning. Nú er eftir að sjá hvort stjórnvöld reka af sér slyðruorðið í tilefni af aldarafmæli safnsins, en saga þess er tengd nöfnum margra mætra nátt- úrufræðinga fyrr og síðar. Hið íslenska náttúrufræðifélag heldur enn uppi merki, m.a. með útgáfu Náttúrufræðingsins. Á veg- um félagsins hafa verið settar fram margar framsæknar hugmyndir, m.a. flutti Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur vakningarerindi um nátt- úruvemd þegar félagið varð sextugt 1949. Varð það m.a. til þess að haf- inn var undirbúningur að fyrstu lög- um um náttúruvemd, sem sett vom 1956. Nú er í forustu í félaginu Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur. Miklar breytingar hafa orðið á starfsemi safna víða um heim á hald. Náttúmvemdarfélögin hafa lagt Náttúmvemdarráði til stofninn í náttúmminjaskrá með tillögum sínum og stuðlað að friðlýsingu margra úrvalssvæða. Landvernd hef- ur staðið að merku útgáfustarfi og áróðri fyrir bættri umgengni. Innan ferðafélaganna er ötull hópur fólks, sem er í stöðugum tengslum við landið sem leiðsögumenn og miðla öðrum af þekkingu sinni. Áhugi og starf þessarar stóm fylk- ingar áhugafólks gæti hins vegar komið að mun meira gagni, ef stjóm- völd stæðu betur að náttúruvemdar- og útivistarmálum. Þar ber hæst fomeskjulega stjómsýslu og vöntun á umhverfisráðuneyti, sem búið er að koma á fót fyrir löngu í flestum Evrópulöndum. Vanrækslan á sviði skipulagsmála og stefnuleysi í ferða- málum em syndir, sem bitna á landinu, að ekki sé minnst á það sem tengist gróðureyðingunni. Meðal almennings ríkir jákvætt hugarfar til umhverfísvemdar, ekki síst vegna starfa áhugamanna og stuðnings frá mörgum flölmiðlum í seinni tíð. Það gengur ekki lengur að tregðast sé við að laga stjóm- „Vor og sumar tengjast útivist, sem færir okkur nær landinu og umhverf i þess. Þar eigum vid sameiginlegan sjóð, sem miklu skiptir hvernig er ávaxtaður. Öll berum við hlýjan hug til landsins, tilf inningar sem mótast af uppeldi og áhugamálum hvers og eins“ síðustu áratugum. Gildi þeirra til stuðnings skólastarfi og til að miðla fræðslu til almennings er ótvírætt. Er ekki rétt að lyfta náttúmfræði- söfnum í landinu úr öskustó með ákvörðun um bættan aðbúnað á þessu afmælisári Hins íslenska nátt- úmfræðifélags? Framlag áhugamanna Á vegum áhugamanna um nátt- úmvemd og útivist er unnið mikið og fómfúst starf um allt land. Hér er um að ræða mörg félög með nokk- uð ólíkum markmiðum að stofni til, þar á meðal skógræktarfélög, ferða- félög og náttúruvemdarfélög í hveij- um landshluta, að ógleymdri Land- vemd með miðstöð í Reykjavík. Með þátttöku í starfi þessara fé- laga kemst íjöldi fólks í snertingu við landið og á hlut í viðleitni til að bæta umhvefíð. Mörg þessi félög halda uppi fræðslustarfi og veita ríki og sveitarstjómum stuðning og að- sýslu og lög í landinu að breyttum viðhorfum og að opinberir aðilar leggist á sveif með áhugafólki um bætt umhverfi og náttúruvemd. ísland býr yfir mikilli íjölbreytni og töfrum í náttúmnnar ríki. Enn emm við laus við sumt af því versta sem nú dynur yfir iðnvædd sam- félög. Þó megum við ekki gera of mikið úr sérstöðu okkar, því að loft- ið er ekki lengur jafn tært eða vatn- ið hreint eins og forðum. Kyrrðin er líka á hættulegu undanhaldi fyrir hávaða, sem menn em ekki lengur óhultir fyrir í óbyggðum, jafnvel á jöklum landsins. Nú þegar gróðumálin boðar vor- komu og snjótittlingurinn breytist í sólskríkju ættum við að strengja Í ess heit að nota sumarið til að gera sland byggilegra fyrir okkur sjálf og börnin okkar. Það gemm við best með því að huga að umhverfisvemd hver í sínum garði og saman í ferðum um landið. 0 Yogastöðin Heilsubót, Hátúni 6A, auglýsir Konur og karlor afhugió! Ný námskeið hefjast á morgun. Byrjendatímar. Mjög góðar alhliða æfingar sem byggðar eru á Hatha-yoga, til viðhalds þrótti, mýkt og andlegu jafnvægi. Ljósalampi og gufa. Yogaslööin Heilsuból, Hátúni 6A, sími 27710. SAMICK FLYGLAR Á UNDANFÖRNUM ÁRUM HAFA HLJÓÐFÆRI FRÁ S-KÓREU NOTIÐ SÍ- AUKINNA VINSÆLDA HÉR Á LANDI SEM ANNARSSTAÐAR í HEIMINUM. VIÐ SELJUM HLJÓÐFÆRI FRÁ SAMICKOG HYURDPll SEM HAFA SANNAÐ AÐ HÆGT ER AÐ SMÍÐA GÓÐ HLJÓÐFÆRI Á HAGSTÆÐU VERÐI. VIÐSKIPTAVINIR OKKAR ERU M.A.TÓNLISTARSKÓLAR, KIRKJUR, HLJÓÐVER, PÍANÓLEIKARAR, EINSTAKLINGAR OG NEMENDUR Á ÖLL- UM STIGUM. ÁRIÐ 1988 VORU FLUTTIR INN TIL ÍSLANDS 76 FLYGLAR, ÞAR AF 61 FRÁ S-KÓREU. VIÐ ERUM STOLT AF AÐ HAFA SELT 70% AF ÞEIM, EÐA 43 FLYGLA FRÁ SAMICKOG HYUnDRI HVAÐ SEGIR ÞAÐ ÞÉR? VORUM AÐ FÁ NÝJA SENDINGU MJÖG GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR KOMIÐ EÐA HRINGIÐ 0G FÁIÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR. LÍIFS H. MAGNÚSSONAR HRAUNTEIG114 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 91-688611 karel KATNAI)IK(.J AKAVORI R LAUGAVEGI 13 - S. 62 45 25 30-50% AFSLÁTTUR m Rýmingarsala á marimekkó fatnabi karel Stendur adeins í nokkra daga. disssssns

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.