Morgunblaðið - 02.04.1989, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.04.1989, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLEIMT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1989 Stendur fast á sínu SJÖFN Sigurbjörnsdóttir, skólastjóri Ölduselsskóla, er umdeild kona, það hefur varla farið fram hjá neinum síðustu daga. Það eru ákaflega skiptar skoðanir um hana sem persónu, og menn voru mishrifnir af framgöngu hennar þegar hún stóð í pólitík. Ekki aðeins andstæðingarnir, heldur þótti samheijunum erfitt að eiga við hana lika. Um eitt ber þó öllum saman, sem þekkja hana; hún er eitilhörð í baráttunni, hefúr ákveðnar skoðanir og stendur fast á þeim. Sjálf segir Sjöfn í viðtali, sem Morgunblaðið átti við hana nýlega, að líklega megi segja að hún sé „frekar örgeðja". „Fyrr á árum var ég sjálfsagt nokkuð fljótfær. Mér hefiir þó lærzt með árunum, að kapp er bezt með for- sjá,“ segir hún í viðtalinu. Þar kemur einnig fram að þótt styrr hafi staðið í kring um hana, taki hún það ekki eins nærri sér og margir haldi, enda hafi hún herzt í pólitíkinni á sínum tíma. Og tal- andi um pólitík segist hún alltaf hafa fylgt eigin sannfæringu frek- ar en einhverri flokkslínu; þess vegna rekist illa í flokki. Björgvin Guðmundsson, sem var borgarfulltrúi Alþýðuflokks- ins um leið og Sjöfn, tekur að sumu leyti undir þessi orð hennar sjálfrar. „Hún er einörð og ákveð- in og fylgin sér, en samstarf okk- ar var ágætt, þótt ekki væri sam- komulag í öllum málum. Það tókst nú samt yfirleitt að ná málamiðl- unum, enda hefði meirihlutinn annars ekki staðið." Björgvin segir að hins vegar hafi ekki alltaf verið gott á milli Sjafnar og Alþýðubandalags- manna, enda sé hún í ýmsum grundvallaratriðum andstaeð Al- þýðubandalaginu. Þama munu margir Alþýðubandalagsmenn sammála Björgvini. „Ég verð að Svipmynd eflir Ólaf Þ. Stephensen játa það á mig, að ég hafði stund- um meira en blendnar tilfinningar í garð þessarar annars ágætu konu,“ segir Guðrún Helgadóttir, sem sat í borgarstjóm með Sjöfn. Sjöfn Sigur bjömsdóttir Starf: Skólastjóri Öldu- selsskóla. Fædd: 15. 10. 1936. Menntun: Stúdentspróf frá MA, fjögurra ára nám í Bandaríkjunum, skólastjóraréttindi. Fyrri störfi Starfaði hjá Menningarstofnun Bandaríkjanna, síðan við kennslu í Hagaskóla, Vogaskóla og Fjöl- brautaskólanum í Breið- holti. Borgarfulltrúi Al- þýðuflokks 1978-1982 og var þá formaður æskulýðsráðs og stjómar Kjarvalsstaða. ÁJiugamál: Sund og úti- vist, leikhúsferðir. Heimilishagir: Gift Braga Jónssyni. Þau picrtt svnina At.Ia Raldnr Morgunblaðið/Bjanii „Persónulega gekk mér ekkert illa að vinna með henni, en hún var ákaflega erfið í þessu meirihluta- samstarfi, einfaldlega vegna þess að það var henni þvert um geð, og hún hefði miklu frekar kosið að vera í meirihluta með Sjálf- stæðisflokknum, held ég. Þetta bitnaði auðvitað einkum á okkur Alþýðubandalagsmönnum, hún er enginn sérstakur vinur sósíalista, hún Sjöfn." Eins og aðrir segir Guðrún að Sjöfn sé ákveðin í skoðunum. „Hún er ekki beinlínis kona mála- miðlananna. Það er nú einu sinni undirstaða þess að samsteypu- stjómir geti starfað, að menn gefi eftir, en það var nánast stál í stál allan tímann milli Sjafnar og annarra í meirihlutanum," seg- ir Guðrún. „Hún er glaðlynd og hjálpsöm og gaman að vera með henni,“ segir Elín Torfadóttir, en þær Sjöfn hafa verið samkennarar í fimm ár, fyrst í FB og nú síðast í Ölduselsskóla. „Ég verð ekki vör við annað en að hún hafi geysileg- an áhuga fyrir sínu nýja starfi. Hún er ákveðin og með meitlaðar skoðanir, og það er ekkert mgl á henni. Þrátt fyrir það hlustar hún alltaf vel á það, sem aðrir hafa fram að færa.“ Élín segir að þótt þær Sjöfn hafí mismunandi skoð- anir, hafi aldrei komið fram hjá henni vijji til annars en að leysa málin, bæði í kennslunni og á vettvangi borgarmála, þar sem þær störfuðu saman áður. „Hún er mjög góður stjómandi og hugmyndaríkur kennari," segir Kristín Amalds, skólameistari FB. „Hjá okkur reyndist hún afar vel, og gegndi ýmsum trúnaðarstörf- um. Hún hélt góðum aga, fylgdist vel með nýjungum og kom oft með góðar hugmyndir." Um mála- miðlunarhæfileika Sjafnar tekur Kristin undir með Elínu. Þótt Sjöfn þyki hörð í hom að taka, ber mörgum saman um að hún hafi ákveðna persónutöfra eða „útgeislun", sem valdi því að jafnvel pólitískum andstæðingum falli vel við hana. Gamall bekkjar- bróðir, sr. Heimir Steinsson á Þingvöllum, segir að þótt kynni sín af Sjöfn hafi verið mest á skólaárunum í MA, hafí honum æ síðan þótt vænt um hana. „Hún hafði hæfileika til að koma góðum hlutum til leiðar, tvímælalaust í krafti persónutöfra sinna. Hún var bekkjarformaðurinn okkar og það þótti öllum vænt um hana. A seinni ámm hefur ekkert orðið til að breyta því hvað mig varðar." Erna Héðinsdóttir, glímukempa: Uppáhaldsbragðið er klofbragð með hægri Morgunblaðið/Árni Sæberg Forseta Islands aíhentrauð tjöður Forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, var á_ föstudaginn afhent rauð Qöður og bréfapressa frá Lionshreyfingunni á íslandi. Viðstödd af- hendinguna vom þau Jósef Þorgeirsson, formaður Rauðu flaðrar-nefndar flölumdæmis Lions á íslandi, Guðmundur Þorsteinsson, formaður fram- kvæmdanefndar Rauðu ijaðrarinnar 1989, Þómnn Gestsdóttir, kynningar- stjóri fjölumdæmisins, Halldór Svavarsson, fjölumdæmisstjóri Lions á ís- landi og Daníel Þórarinsson, umdæmisstjóri í umdæmi 109-A. Sala rauðu ijaðrarinnar fer fram um land allt dagana 7. 8. og 9. apríl næstkomandi, en ágóða af sölunni verður að þessu sinni varið til byggingar vistheimilis að Reykjalundi fyrir fjölfatlaða einstaklinga. Fiskeldismenn at- huga stofhun eig- in tryggingafélags FISKELDISMENN vi\ja fá fram breytingar á tryggingaskilmál- um fyrir fiskeldisstöðvar og kanna grundvöll fyrir stofiiun eigin tryggingafélags. Ályktun þessa efiiis var samþykkt sam- hljóða á aðalfúndi Landssam- bands fiskeldis- og hafbeitar- stöðva á föstudag. í frétt frá fyrirtækjum er annast trygging- ar í fískeldi kemur fram að tap hafi orðið á þessum tryggingum á síðasta ári. * Isamþykktinni er því beint til sljómar Landssambandsins að hún beiti sér fyrir gagngerri endur- skoðun tryggingaskilmála í fiskeldi. Jafnframt skal stjómin kanna grundvöll fyrir stofnun trygginga- félags í eigu fískeldisstöðva. í fréttatilkynningu sem tækni- nefnd Samsteypu íslenskra fiskeld- istrygginga sendi frá sér á föstu- daginn segir að markmið íslensku vátryggingarfélaganna varðandi fiskeldistryggingar sé að dreifa KORNUNG stúlka úr Mývatns- sveit, Erna Héðinsdóttir, hefúr vakið athygli að undanfömu fyrir þær sakir að hún æfir og keppir f glímu, en Glfmusamband íslands meinað henni um þátttöku f lands- mótinu í glimu. Eraa er að vonum Baráttuliindiir HÍK HIÐ íslenska kennarafélag heldur baráttufund á Hótel Borg á morgun, mánudag, og hefst hann klukkan 17. Ávörp á fúndinum flytja Wincie Jó- hannsdóttir, Sigurður Þ. Jóns- son og Bergljót Kristjánsdóttir. Nú stefnir í verkfall Banda- lags háskólamanna í ríkisþjón- ustu fimmtudaginn 6. apríl næstkomandi. Þann dag munu ellefu félög innan BHMR Ieggja niður störf ef samningar nást ekki fyrir þann tíma. ósátt við þennan úrskurð og hefúr hann verið kærður til Jafiiréttis- ráðs. Ema er 13 ára gömul síðan í jan- úar sl. og hefur æft glímu með góðum árangri það sem af er vetri. „Mér hefur gengið mjög vel,“ segir Ema, „ég vinn jafnaldrana að jafn- aði.“ Áuk þess hefur hún æft með strákunum og keppt í knattspymu og fijálsum íþróttum í heimasveit sinni, og að eigin sögn, hefur hún aldrei verið látin líða fyrir kynferðið. Ema sagði í samtali við Morgun- blaðið að sér hefði gengið mjög vel við glímuæfingamar í vetur. „Uppá- haldsbragð mitt er klofbragð með hægra fæti,“ sagði Ema aðspurð og kvaðst hún mest nota það bragð, oftast með góðum árangri. „Mér finnst þessi úrskurður vera ömurleg- ur,“ sagði Ema um niðurstöðu Glímusambands íslands, þess efnis að hún fengi ekki að taka þátt í Eraa Héðinsdótt- ir glímukappi (til hægri) með Jó- hönnu Kristjáns- dóttur. mótinu. Hún sagðist hafa verið hvött til þess af einum stjómarmanna Glímu- sambandsins að skrá sig til þátttöku, eftir góða frammistöðu sína á grunn- skólamótinu, en síðan hefði sami maður lagst gegn þátttöku hennar þegar til úrskurðar Glímusambands- ins kom. Jón ívarsson. stjómarmaður í Glímusambandi íslands sagði í sam- tali við Morgunblaðið að á næsta ári yrði keppt í sérstökum stúlkna- og kvennaflokkum. Hann taldi rétt að Ema biði átekta þar til þessi háttur yrði á hjá Glímusambandinu. „í velf- lestum íþróttagreinum er bannað að kynin keppi innbyrðis," sagði Jón. „Það er alkunna að glíman hefur verið síðasta karlavígið í íþróttum, en við höfum sjálfír, án alls utanað- komandi þrýstings ákveðið að koma konum af stað í glímu. Þetta er spuming um vissa þróun, sem verður að fá að taka sinn tíma. Það er ekki tímabært núna að stúlkur fái að keppa,“ sagði Jón. Hjá Jafnréttisráði fengust þau svör að ráðið myndi íjalla um kæru móður Emu, í þessu máli. Elsa Þor- kelsdóttir hjá Jafnréttisráði sagði að ráðið myndi á næstunni skoða reglur íþróttahreyfingarinnar, því þetta væri annað málið á skömmum tíma. „Ráðið hefur minnt á ákvæði jafn- réttislaganna þar sem segir mjög skýrum stöfum að hvers kyns mis- munun eftir kynferði sé óheimil." áhættu. Þess vegna verði tjónlaus fyrirtæki að greiða hátt iðgjald þeg- ar um mikil verðmæti sé að ræða vegna þess að sú áhætta sem félög- in taki að sér að bera fyrir fiskeld- isstöðvamar sé mjög mikil. Á það er bent að afkoma í fiskeldi árin 1987 og 1988 hafi verið þannig að tryggingafélögin hafi fengið greidd iðgjöld að íjárhæð 12,6 milljónir norskra króna, en tjón hafi á sama tíma numið 12,7 milljónum norskra króna. Þá sé verulegur kostnaður samfara þessum rekstri, þannig að ljóst sé að talsvert tap hafi orðið á rekstri þessara trygginga. Leiðrétting Ferming í Bústaðakirkju sunnudaginn 2. apríl, í dag, kl. 13.30. Prestur sr. Ólafúr Skúla- son. Fermd verða: Anna Pála Stefánsdóttir, Giljalandi 29. Amdís Guðjónsdóttir, Brúnalandi 12. Ása Einarsdóttir, Langagerði 29. Bima Hafsteinsdóttir, Álfheimum 62. Fanný Sigurþórsdóttir, Rauðagerði 67. Ólína Kristín Jónsdóttir, Sogavegi 148. Soffía Lára Hafstein, Básenda 6. Svanfríður Ingjaldsdóttir, Logawfold 178. Tanya Lynn Willamsdóttir, Garðsenda 9. Þómý Tómasdóttir, Frankfurt, p.t. Steingerði 11. Bjarki Rafn Eiríksson, Réttarholtsvegi 55. Bjöm Hróbjartsson, Stóragerði 22. Garðar Hörður Garðarsson, Dalalandi 10. Sigurður Ríkharð Ámason, Kvistalandi 15. Fermingarbamið Ásta Salný Sig- urðardóttir, Hrísholti 8, er meðal fermingarbama í Garðakirlq'u í dag, kl. 14.00. Nafn hennar misritaðist hér í blaðinu í gær. Heimilisfang Þorsteins Hreiðars Ástráðssonar sem fermist í Selt- jamameskirkju, hefur misritast. Heimlisfangið er Hofgörðum 26 ekki 16.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.