Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989 Ráðuneytið verður að bjóða nemendum upp á sveigjanlegar lausnir - sagði mennta- málaráðherra á fiindi með stúd- entsefiium Menntamálaráðherra, Svavar Gestsson, segir augljóst að bjóða þurfí nemendum upp á einstakl- ingsbundnar, sveigjanlegar lausn- ir þegar verkfalli HÍK lýkur. Ekki væri mögulegt að beita neinum almennum reglustiku-aðferðum að afloknu kennaraverkfalli. Stað- an væri orðin það þröng að ráðu- neytið gæti sennilega ekki náð fram lausnum, sem gengju aðeins eftir einhverri einni braut. Mögu- leikarnir á því að leysa málið með almennum hætti minnkuðu sífellt með hverjum deginum, sem verk- fallið stæði yfír. Þetta kom fram í ávarpi ráðherra til stúdentsefna úr MR, MS og Versl- unarskólanum sem söfnuðust saman fyrir framan menntamálaráðuneytið laust upp úr hádegi í gær. Ráðherra sagði að þegar deilan Ieystist, yrði unnið öllum árum að því að nýta maí-mánuð 100%. Hinsvegar yrði ráðuneytið fyrir sitt leiti að bjóða upp nemendum upp á sveigjanlegar lausnir og sérstaklega yrði að ræða við Lánasjóð íslenskra námsmanna að svo miklu leiti sem hann kemur við sögu. „Okkur er það ljóst að fjöldi nem- enda hefur horfíð frá námi og til starfa og það er ekki tryggt að þetta fólk leiti til skólanna aftur jafnvel þó þeir verði opnaðir fljótlega. Þess vegna mun ég leggja það til við skóla- meistarana í landinu að þeir láti sér ekki nægja að taka á móti þeim, sem koma sjálfviljugir við þessar aðstæð- ur, heldur verði hinir leitaðir uppi og kannað til þrautar hvort þeir eru tilbúnir til að hefla störf,“ sagði ráð- herra. Þórir Auðólfsson, Inspector í Menntaskólanum í Reykjavík, talaði fyrir hönd stúdentsefna. Hann kvað nemendur vilja benda á leið til lausn- ar þeim mikla vanda, sem skapast hefði. Hún væri sú að reiknuð yrði einkunn á grundvelli fyrri misseris- prófa í þeim greinum, sem ekki tæ- kist að prófa í vegna tímaskorts. Þórir sagði að þeirri hugmynd hefði skotið upp hjá skólameisturum að þétta próftöflur nemenda þannig að prófín yrðu tekin á tveimur til þrem- ur vikum í stað fímm til sex. Hann sagði ljóst að slíkar ráðagerðir myndu hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér sem gerðu nemendum erfítt fyrir þegar sótt er um inn- göngu í erlenda háskóla eða þegar sótt er um atvinnu. „Við höfum beðið í algjörri óvissu. Við vitum ekki hvenær verkfallinu lýkur, ekki hvemig prófum verður háttað eða hvemig við útskrifumst. Þessi óvissa hefur gert það að verk- um að við höfum átt erfítt með að skipuleggja lestur okkar. Það var fyrir löngu ljóst að þetta verkfall myndi hafa alvarleg áhrif á stúdents- prófín. Þessi kjaradeila hefur komið í veg fyrir að við tökum stúdentspróf á hefðbundin hátt og nú er aðeins hægt að reyna að fínna lausn, sem gefur sem réttasta mynd af kunnáttu okkar. Það er alveg Ijóst að nemend- ur geta ekki verið í skóla langt fram á sumar. Flest höfum við ráðið okkur í vinnu, sem við treystum á og meg- um ekki missa. Sumir nemendur hafa sótt um inngöngu í erlenda háskóla og þurfa að senda stúdents- prófsskírteinin út í byijun júní,“ sagði Þórir. Menntamálaráðherra hefur boðað alla skólameistara framhaldsskól- anna I landinu til fundar á hádegi í dag. Á fundinum verður farið yfir stöðu mála í einstökum atriðum. Eftir þann fund hefur ráðherra ákveðið að boða fulltrúa Félags fram- haldsskólanema á sinn fund. Svavar sagði að í framhaldi af þeim fundi, yrðu þær ákvarðanir tilkynntar sem ráðuneytið teldi færar í stöðunni. VEÐURYFIRUT Á HÁDEGI í DAG ÞETTA kort er byggt á veðurlýsingu gærdagsins, sent frá Englandi í gegnum gervihnött og tekið af veðurkortarita hjá Radíómiðun, Grandagarði, Reykjavík. Vegna verkfalls Félags íslenzkra náttúru- fræðinga eru ekki gerðar veðurspár hjá Veðurstofu íslands og verða lesendur Morgunblaðsins því sjálfir að spá í veðrið, eins og þeim er lagið. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Staöur hlti veður Staður hltl veður Akureyri kl.18 i snjóél Genf Reykjavík kl.18 4 léttskýjað Hamborg Bergen 7 rigning Kaíró Helsinki 12 heiðskfrt Kanarí Kaupmannah. London 16 léttskýjað Narssarssuaq Madrid Nuuk Malaga Osló Mallorca Stokkhólmur 14 léttskýjað Marseille Þórshöfn 9 skýjað Moskva 11 skúrir Aþena París 22 skýjað Amsterdam 11 alskýjað Prag 11 skýjað Berlín 13 hálfskýjað Róm Belgrad - Varsjá 19 skýjað Morgunblaðið/Sverrir Fjöldi stúdentsefna safnaðist saman fyrir framan menntamálaráðuneytið upp úr hádeginu í gær og krafði ráðherra svara um stöðu mála. Þórir Auðólfsson, Inspector MR, talaði fyrir hönd stúdentsefha að viðstöddum menntamálaráðherra, sem síðan tók til máls. Fjölmenni við útför Bjöms í Bæ Fjölmenni var við útfor Björn Jónssonar fyrrum bónda og hreppstjóra í Bæ á Höfðaströnd síðastliðinn laugardag. Útforin fór fram frá Sauðárkrókskirkju. Séra Hjálmar Jónsson prófastur jarðsöng, karlakórinn Heimir söng og Sigfús og Pétur Péturssynir sungu einsöng og tvísöng. Greftrun fór fram í heimagrafreit í Bæ. Myndin var tekin þegar nokkrir félagar í lionsklúbbnum Höfða báru kistu Bjöms í Bæ úr Sauðárkróks- kirkju en þeir eru: Jón Guðmunds- son á Óslandi, Stefán Gestsson á Arnarstöðum, Pálmi Rögnvaldsson á Hofsósi, Friðbjöm Þórhallsson á Hofsósi, Jón Kort Ólafsson í Haga- nesvík og Valberg Hannesson í Sólgörðum. BB Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson Guðmundur Jó- hannsson látinn GUÐMUNDUR Jóhannsson fé- lagsmálaráðunautur og stofn- andi AA-samtakanna er látinn. Guðmundur fæddist í Reykjavík 16. ágúst 1907, sonur hjónanna Sigríðar Guðmundsdóttur og Jó- hanns Þórðarsonar vekstjóra í Reykjavík. Guðmundur var blikk- smiður að mennt og var meðal stofnenda félags blikksmiða. Gengdi hann formennsku í félaginu um margra ára skeið. Guðmundur stofnaði AA-sam- tökin árið 1954 og varð frám- kvæmdastjóri Bláa bandsins, sem hann stofnaði ásamt öðrum árið 1955. Þá var hann stjómarformað- ur vistheimilisins í Víðinesi frá árinu 1973 og starfaði sem félagsmála- ráðunautur Flókadeildar frá 1977. Guðmundur var einn af stofnend- um Karlakórs iðnaðarmanna og stjórnandi Karlakórs Miðnesinga, Samkórs Verkalýðsfélagsins og Dýrfirðingakórsins, auk þess sem hann samdi mörg tónverk. Árið 1979 var Guðmundur sæmdur fálkaorðunni fyrir störf að félagsmálum. Eftirlifandi eiginkona Guðmund- ar er Gíslína Þórðardóttir og eiga þau þrjú uppkomin börn. Guðmundur Jóhannsson TheodórA. Jónsson forstöðumaður látinn Theodór A. Jónsson, forstöðu- maður Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfsbjargar, og fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra, er látinn. Hann var 49 ára er hann lést. Theodór fæddist þann 28. júní 1939 á Stað í Steingrímsfirði, son- ur hjónanna Helgu Tómasdóttur og Jóns Sæmundssonar, og ólst hann þar upp og síðar á Hólmavík. Hann lauk prófi frá Samvinnuskó- lanum að Bifröst árið 1961, og hóf að því loknu störf hjá Trygginga- stofnun ríkisins. Þar starfaði hann til ársins 1973, en þá varð hann forstöðumaður Vinnu- og dvalar- heimilis Sjálfsbjargar, og gegndi hann því starfi allt til dauðadags. Theodór varð formaður Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra, árið 1961 en því starfi gegndi hann til ársins 1988. Auk þess gegndi hann ijölda annarra trúnaðarstarfa fyrir landssamtök fatlaðra, og átti hann meðal annars sæti í stjórn Bandalags fatlaðra á Norðurlönd- um frá árinu 1961. Eftirlifandi eiginkona Theodórs er Elísabet Jónsdóttir fram- kvæmdastjóri. Theodór A. Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.