Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989 17 þessa dags. Á áratugunum áður en Páll kom frá nami var farinn að aukast hraði á ýmsum hlutum í sveitum landsins og fólkinu hafði fækkað. Heyvinnu- vélar voru komnar á bæina, búfénu var að smáfjölga. Ekki þótti lengur fært að hafa beitarhús fjarri bæn- um, mannafla skorti til að halda fé til beitar og spara hey til hins ýtr- asta. Nú var líka farið að gefa kún- um fóðurbæti og kynbæta þær, nytin jókst um helming. Við þetta fóru sjúkdómarnir að gera usla. Taka varð 10-15% kindanna á horspítala þegar leið á veturinn vegna ormaveiki. Ormalyf Dungals og síðar fullkomnari ormalyf ger- breyttu þessu. Bráðapestin varð að skæðum faraldri þar til hún var stöðvuð með bólusetningu. í kjölfar hennar kom garnaeitrun, lamba- blóðsótt og lungnabólga, í rauninni flest eða allt landlægir sjúkdómar sem nú urðu illviðráðanlegir með nýjum tíma og nýjum búskapar- háttum. Doði, súrdoði og júgur- bólga óx hröðum skrefum í blessuð- um kúnum. Árið 1933 dundu svo ósköpin yfir. Inn voru fluttar karakúlhrútar með bestu heilbrigðisvottorðum sem fáanleg voru. Samt höfðu þeir með sér 4 illvíga sjúkdóma sem hefðu útrýmt íslenska sauðfjár- stofninum ef ekki hefði notið við manna með yfirburðaþekkingu, þrek og vilja. Fremstir í flokki þess- ara manna voru þeir Níel Dungal, Guðmundur Gíslason, Bjöm Sig- urðsson og Páll A. Pálsson. Ef til vill hefur Níels Dungal átt drýgstan þátt í því að koma því máli af stað að reist yrði rannsóknastofnun fyrir búfjársjúkdóma. Hann hafði annast rannsóknir á því sviði og þegar karakúlpestirnar voru orðnar stofn- un hans ofviða studdi hann rann- sóknirnar á þeim með ráðum og dáð og þá koma þeir Guðmundur Gíslason og Björn Sigurðsson fram á sjónarsviðið. Halldór Pálsson hafði barist fyrir því að Keldnaland yrði keypt undir rannsóknastöð og það féll í hiut Björns Sigurðssonar að koma tilraunastöðinni á Keldum á fót. Bjöm var sérstaklega laginn að velja sér samstarfsmenn. Hann réð til sín strax á fyrsta árinu á Keldum þá Pál A. Pálsson og Halldór Grímsson. í ársskýrslum Keldna sést hve hann fagnaði því að Guð- mundur Gíslason og Halldór Vig- fússon hófu störf á Keldum en þeir höfðu orðið starfsmenn sauðfjár- sjúkdómanefndar. Það er næsta ótrúlegt hvað þess- ir menn afrekuðu næsta áratuginn. Sauðfjárpestirnar vom rannsakað- ar.. Skipulag niðurskurðar hvíldi á Guðmundi Gíslasyni og hinir stóðu að baki honum sem klettur. Bólu- efni var framleitt gegn gamaveik- inni sem er náskyld berklum og hafði borist hingað með karkúlu- hrútunum. Þetta bóluefni var þraut- prófað á þúsundum fjár og Björn i)jó allt tilraunabóluefnið til með eigin höndum. Mæðiveikin var rannsökuð og eðli hennar uppgötv- að en það hafi ekki áður í heiminum verið vitað um veimsjúkdóm sem hafði jafnlangan meðgöngutíma. Þetta ötula lið vann með þeirri rann- sókn afrek sem er einstætt. Fyrir utan þetta var á Keldudal unnið að rannsóknum af fjölda annarra sjúk- dóma. Bændum var kennt að halda niðri lambablóðsótt, garnapest, lungnapest. Bóluefni var gert gegn þessum sjúkdómum sem og sermi með mótefnum til að sprauta í lömb. Of langt yrði upp að telja alla þá sjúkdóma af völdum veira, baktería og efnaskiptatmflana en telja má um fimmtíu verkefni sem unnið er að á Keldum fyrsta áratuginn. Er það næsta glæsileg mynd að líta þessa menn í huganum leggja nótt við dag vinnandi sem einn maður að því að koma búfjárrækt lands- manna á réttan kjöl. Það var mikið áfall þegar Björn Sigurðsson veikt- ist og dó árið 1959 og er það furða að ekki skyldi koma slagsíða á skút- una þegar hann hverfur úr þessum litla samhenta hóp. Þá höfðu ötulir starfsmenn bæst í hópinn en Páll tók við forystunni. Hann varð yfir- dýralæknir árið 1956 og var hvort tveggja í senn yfirdýralæknir og forstöðumaður til ársins 1968. Þessi stutta frásögn af fyrsta áratug Keldna sýnir við hvað er að etja þar sem heilsa búfjárins er annars vegar og væri það óskandi að annarra eins manna megi njóta við framvegis og þeirra Björns, Guðmundar og Páls A. Pálssonar og samstarfsmanna þeirra. Við Keldnamenn óskum Páli að hann megi sem lengst hafa starfsorku á eftirlaunaaldrinum. Þorsteinn Þorsteinsson NÝJUNG í BÍLAVIÐSKIPTUM! Við erum komnir í ▼•Kskap og bjóðum upp á nýj- ung í bílaviðskiptum á íslandi, nýjung sem við köll- um ▼•RSéLl. Undirtektir við ▼•Rsölunni hafa verið frábærar og greinilegt að fólk kann vel að meta ▼•Rafsláttinn og ▼•Rgreiðslukjörin. Við bjóðum þessa viku SKODA 120 L. árg. 1989. Sívinsæll og þrautreyndur við íslenskar aðstæður. Nú er rétta tækifærið að gera góð bílakaup fyrir sumarfríið. Lægsta verð á nýjum bíi í áraraðir. SKODA 120 L. 4 dyra, 4 gíra, 1174 cc, 52 DIN HÖ. Verð áður stgr. kr. 306.400.- VOR-verð stgr. kr. 276.400.- VORafsláttur 30.000.- VORgreiðsiukjör: 25% útborgun, eftirstöðvar á 18 mán. ATHUGIÐ! AÐEINS ÞESSA VIKU. Allir bílar á ▼•RtÖLI eru af árgerð 1989. JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600 Við tökum allar tegundir eldri bíla í skiptum en Skoda er sérstaklega velkominn í skiptum og þá getum við lán- að allan mismuninn í allt að átján mánuði. Líttu við og þú sannfærist!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.