Morgunblaðið - 09.05.1989, Page 12

Morgunblaðið - 09.05.1989, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9'. MAÍ 1989 Fara liljumar að blómstra Undir lokin. Systkinin Gregor og Greta, Ellert Ingimundarson og Bryndis Petra Bragadóttir. Foreldrarnir Árni Pétur Guðjónsson og Margrét Arnadóttir bíða milli vonar og ótta. __________Leiklist_____________ Jóhanna Kristjónsdóttir Frú Emilía frumsýndi „Gregor“ byggt á skáldsögu Kafka, Ham- skiptunum í Skeifunni 3c Handrit: Hafliði Arngrímsson Leikmynd og búningar: Guðjón Ketilsson Aðstoð við leikmyndagerð: Hans Gústafsson Lýsing: Ágúst Pétursson Leikhljóð: Arnþór Jónsson Hárgreiðsla: Guðrún Þorvarðar- dóttir Leikstjóri: Guðjón Pedersen Gregor er hversdagslegur mað- ur, líf hans viðburðasnautt. Hann er sölumaður og á sífelldu flandri; hann verður að vinna myrkranna á milli fyrir kröfuharðri fjölskyldu, foreldrum sínum og systur. Einn morgun vaknar hann upp við það að hann er orðinn að ógeðslegu skordýri. Þar af leiðir tvennt strax: Hann getur ekki farið í vinnuna og fjölskyldan blygðast sín fyrir hann. En reiðist honum einnig vegna þess að þar með hefur hann brugðist í fyrirvinnuhlutverkinu. Aldraður faðir hans verður að fara að vinna í banka, þau taka leigjendur til að geta framfleytt sér. En inni í her- bergi sínu hírist Gregor í kvöl sinni og framan af sinnir systirin honum, og gefur honum mat. Það lítur út fyrir að móðirin muni reyna að af- neita honum ekki, en faðirinn hefur brugðist við fullur andstyggðar frá byrjun. Og síðan tekur steininn úr þegar Gregor hrekur leigjendurna tvo á brott. Þá hlýtur að koma til uppgjörsins. Jafnan hafa menn verið í vanda þegar að því kemur að túlka verk Franz Kafka og menn greinir á um hvað er kjarni málsins. Kafka sýnir vandvirkni í að draga upp einstök tilvik og atriði og látbragð persóna hans er þrungið merkingu, en okkur greinir sem sagt á hver hún er. Tákn — dæmisögur, duimál. Ein- hvers staðar sá ég það orðað svo að sá sem ætlaði að skrifa um Kafka yrði eins og persóna í sögu eftir hann: Gegn honum rísa geig- vænleg og óskiljanleg öfl, flækja hann myrkviði sínum, svo að hann missir tök á raunveruleikanum. Þar sem verk Kafka má túlka á marga vegu, finna endalaust nýjar lausnir, nýjar hugmyndir, eigra um völd- undarhús hans, er eins líklegt að hver komi út með jafnmargar niður- stöður — og þær gætu þess vegna verið út í bláinn. Og hver og ein gæti líka staðist á sinn hátt. Því er vart að undra þótt verk Kafka verði mönnum áleitið viðfangs- og umhugsunarefni. Leikhópurinn „Frú Emilía" hefur valið að vinna nýja leikgerð úr Hamskiptunum. Hafliði Amgríms- son er skrifaður fyrir henni, en í viðtali til kynningar sýningunni kom fram að allir aðstandnendur sýningarinnar hafa lagt þar hönd á plóginn. Leikverkið sem „Frú Emilía" sýn- ir hlýtur hver að mega túlka eftir sínu höfði. Við gætum hugsað okk- ur að allt sem fram fer sé draumur Gregors. Sem hann vaknar af í lok- in og mun þá reyna að slíta sig lausan. En einnig má benda á að í uppfærslu Guðjóns Pedersens er áherslan meiri á fjölskyldunni en pöddunni, það er viðbrögðin og illskan sem magnast í garð Greg- ors, sem hefur brugðist þeim sem fyrirvinna að þeirra dómi. Sýning „Frú Emilíu“ hvernig svo sem við kjósum að skilja hana, er í hvívetna mjög forvitnileg. Alls konar uppákomur sem ekki tengjast textanum beint, en geta verið kafkísk tákn ef vill, veita inn í hana frísklegum straumum, fyndnum og fáránlegum. Og verða til að undir- strika nöturleikann, vegna þess að leikstjóri hefur vald á sínu fólki og skilning á möguleikum sviðsins. Það er ekki á allra færi að ná slíku jafn- vægi en það hefur leikstjóra tekist. Ellert J. Ingimundarson fer með hlutverk Gregors af hófsemd og angist. Ég hef ekki fyrr séð leikar- ann sýna svo athygliverðan leik. Míkrófónninn var honum þó á stundum til truflunar. Árni Pétur Guðjónsson dregur upp föðurinn, átakanlegan í græðgi sinni og skiln- ingsleysi og Margrét Árnadóttir var móðirin sem lengi berst gegn við- bjóðstilfinningunni í garð sonar síns en verður að gefast upp að lokum. Bryndís Petra Bragadóttir gerði systurina áhrifamikla og hæg sinnaskipti hennar komust til skila. í túlkun allra hlutverkanna er mik- il áhersla á hreyfingumj svipbrigð- um og þar áttu þau Árni Pétur, Margrét og Bryndís Petra frábært kvöld og raunar hópurinn allur. Erla Skúladóttir var leigjandi og Einar Jón Briem fór með hlutverk fulltrúans og leigjanda tvö. Leigj- endatýpurnar voru prýðilega unnar. Gervi allra leikara var vandvirkn- islega unnið og leikmynd og lýsing eftirtektarverð og hugmyndarík. Aðstaða sú sem „Frú Emilía" hefur komið sér upp í Skeifunni 3c er harla góð en loftræsting mætti vera betri. Leikhúsið hefur nú fært upp fjögur verkefni og ég hygg það hafi sannað tilverurétt sinn svo að ekki verður um villst. Það gerir útslagið að verkefnaval hefur verið spennandi og kannski ekki síður nýstárleg og listræn leikstjórn á góðu listafólki. 16. maí leggjast dráttarvextír á lán með lánskjaravísítölu. 1. júní leggjast dráttarvextir á lán með byggingarvísitölu. Al HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900 Greíðsluseðlar fyrir 1. maí hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins. Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum. ÞÚ SKIPULEGGUR reksturinn á þínu heimili Þegar kemur að afborgunum lána er það í þínum höndum að borga á réttum tíma. mai var gjalddagi húsnæðíslána. Þar með sparar þú óþarfa útgjöld vegna dráttarvaxta, svo ekki sé minnst á ínnheímtukostnað. Glæsileg kirkju- listahátíð _______Tónlist________ Jón Ásgeirsson Sú menningarstarfsemi sem List- vinafélag Hallgrímskirkju hefur staðið að og á undanfömum árum hefur verið að mótast, miðast að því að ijúfa þá menningarlegu einangrun sem einkennt hefur um of kirkju- starf á íslandi. Á sviði bókmennta, myndlistar en þó sérstaklega tónlist- ar, á kristin kirkja í heild digra sjóði, sem í raun er fyrir lagt að ávaxta skuli. Á kirkjulistahátíðinni 1989 hefur Listvinafélagi Hallgrímskirkju tekist að gera kirkju sína að vett- vangi mannlegra umsvifa og á sviði tónlistar, með sérstökum glæsibrag, svo að nú verður kirkjan, sem stofn- un að leggja svo til með þeim sem að þessum málum vinna, að dugi um ókomna framtíð og marki upphaf lif- andi listar innan kirkjunnar. List er nátengd trú, því trú án hrifningar er aðeins bókstafurinn og siðgæði á fegurðar og fegurð án siðgæðis er eins og réttlæti án manngæsku. Til þess að predikunin verði meir en orð, þarf hún að vera gáedd lifandi tilfinningu fyrir því góða og fagra, kærleikanum, sem er kjaminn í boð- skap Krists. Á öðrum degi kirkjulistahátíðar- innar var flutt óratorían Elia, eftir Mendelssohn. Flytjendur vom; Silvia Herman, sópran, Ursula Kunz, alt, Aldo Baldin, tenor, Adreas Schmidt, bariton, Inga Backmann, sópran, Mótettukór Hallgrímskirkju og Sin- fóníuhljómsveit Islands undir stjóm Harðar Áskelssonar. Elia, er ásamt óratorium Handels er undirstaða þeirrar hefðar sem Englendingar hafa í hávegum haft og skapað hefur þeim nokkra sérstöðu í flutningi stórra kórverka, enda var Elia frum- fluttur í Birmingham 1846 og árið eftir fjórum sinnum í London við mikla hrifningu. Mendelssohn „trúði því að tónlist ætti að vera göfgandi og siðbætandi og hann sameinaði í verkum sínum rómantíska tilfinnigasemi og trú- hneigð". Þetta er mikilvægt, því í rómantíkinni hafði átt sér stað slík umturnun í gerð tónlistar, að fáum hafði tekist að samhæfa í tónmáli sínu hástemda tilfinningatúlkun og þá trúarlegu íhugun, er einkenndi tónmál eldri meistara. Flutningur Elia er mikill listasigur fyrir Hörð Áskelsson og Mótettukór Hallgrímskrikju, því kórinn var hreint frábær, sérstaklega í Bal- og regnkaflanum og þá ekki síður í 28. og 29. atriði (Hef augu þín til fjall- anna og Sjá hann blundar ei og sef- ur ei) sem bæði eru áhrifamikil og fá sérstaka merkingu í 32. atriði Skjótvirkur stíflueyóir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár • Dömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Shell- og Esso -stöðvar og helstu byggingavöru verslanir. Dreifing: Hringás hf. s. 77878,985-29797.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.