Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989 27 Nýrri meðferð í læknisfræði beitt hérlendis í fyrsta sinn: Ræktun húðsýnis flýtti bata bams um sex vutur Þriggja ára gamalt stúlkubarn sem lagt var inn á Landakotsspít- ala milli heims og helju hefur fyrir tilstilli nýrrar meðferðar náð bata á tuttugu dögum þar sem 6 til 8 vikur hefðu fram til þessa þótt eðlilegur batatimi. Barnið fékk alvarlega heilahimnubólgu og í kjölfarið á henni drep í húðblæðingar, þannig að um 40% af líkama þess varð flakandi sár. í stað þess að græða á sárin húð af heilbrigð- um svæðum á barninu, var lítið sýni tekið og sent til Stokkhólms í ræktun. Sýnið var 6 fersentimetrar en til baka komu 2.700 fersenti- metrar. Sú húð var svo grædd á barnið. Þetta er í fyrsta skipti sem slík aðgerð er gerð á Islandi, en það eru aðeins tvö ár siðan farið var að rækta húð með þessum hætti á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, en aðferðin var fyrst reynd í Boston árið 1981. Jens Kjartansson lýtalæknir á ist nokkuð saman og þöktu um 30% St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði og Birgir Jakobsson barnalæknir á Landakotsspítala læknuðu stúlk- una ásamt hjúkrunarliði Landa- kots. Jens vann á Karolinska sjúkrahúsinu í fimm ár og hefur því reynslu í meðferð þessari. „Hraði skiptir miklu máli. Við tók- um húðsýni af baminu um miðja nótt á þriðja degi frá því það var lagt inn. Síðan var sýnið sent með hraði til Keflavíkur þar sem þota til Stokkhólms var að fara í loftið. Við græddum húð af móðurinni á sár barnsins til bráðabirgða. Móðirin lá hjá okkur í tíu daga vegna húðflutninganna, en vegna þeirra var barnið tilbúið til að með- taka ræktuðu húðina þegar hún kom að utan. Og hún kom ná- kvæmlega 20 dögum eftir að barn- ið var lagt inn. Sárin höfðu þá dreg- líkamans. En núna er bamið nán- ast alveg gróið sára sinna. Þetta var mjög vel heppnuð að- gerð og meðferð, sérstaklega ef litið er til þess hvað barnið var veikt og að aðbúnaður á Landakoti sé ekki sem bestur til slíkra verka. En það lögðust allir á eitt og starfs- fólk sjúkrahússins vann mikið þrekvirki," sagði Jens. Jens gat einnig um mikinn vel- vilja utanaðkomandi aðila. Karol- inska sjúkrahúsið hefði gefíð húð- sýnin og kunningjar hans á Karol- inska gefíð alla sína vinnu, auk þess sem tveir þeirra hefðu komið með húðina til landsins. Þá gáfu Flugleiðir flugfar fyrir sænsku læknana til og frá landinu. Morgunblaðið/Sverrir Þau hafa borið hitann og þungann af þvi að lækna litlu stúlkuna: F.v. Auður Ragnarsdóttir deildarstjóri á barnadeild Landakotsspít- ala, Jens Kjartansson lýtalæknir og Birgir Jakobsson barnalæknir. Birgir Jakobsson sagði að vel væri hugsanlegt að hefja slíka húð- ræktun hérlendis. Það þyrfti ein- ungis einn starfsmann og um það bil mánaðarlanga starfsþjálfun. Nú væri að hefjast tæknifijóvgun hér á landi og þar sem þar væru ná- skyld vinnubrögð á ferðinni væri upplagt að steypa þeirri starfsemi saman við húðræktunina. Þessi meðferð er hin sama og við bruna- sárum og sagði Birgir að þetta hlyti að vera framtíðin í meðferð slíkra áverka. „Þetta barn virtist ekki eiga mikla lífsmöguleika þegar það kom til okkar og það var nánast krafta- verk hvað þetta tókst vel. Bamið var í gjörgæslu og einangrun á ófullbúinni deild, en við Jens höfum ekki séð betri frammistöðu hjá hjúkrunarliði, skurðstofuliði og sjúkraþjálfuram, og höfum þó báð- ir unnið víða erlendis. Bamið léttist ekki einu sinni meðan á þessu stóð. Meðferðin hefur ekki verið notuð nema í tvö ár á Norðurlöndunum og það er þrekvirki að við skulum geta teygt okkur svo fljótt eftir slíku út fyrir landsteinana. Þetta sýnir að við verðum að halda tengslum við útlönd. Það er ekki nóg að sitja heima og lesa lækna- blöð," sagði Birgir að lokum. Eitt verka Bjarna Jónssonar. Astrid og Bjarni á Höfh ASTRID Ellingsen, prjónahönn- uður og Bjarni Jónsson, listmál- ari, sýna ptjónakjóla og málverk á Höih í Hornafírði um hvíta- sunnuna. Sýningin verður í Heppuskóla. Astrid sýnir handpijónaða kjóla úr íslensku eingirni. Hún gerði umn áraraðir uppskriftir fyrir Ála- foss og ýmis tímarit og hafði pijónanámskeið víða um land. Uppskriftir eftir hana hafa birst í norsku kvennablöðunum KK og Alles. Bjami Jónsson sækir myndefni sitt mikið í íslenska þjóðhætti. Hann teiknaði fyrir Ríkisútgáfu*- námsbóka um árabil og fyrir aðra útgefendur. Viðamesta verkefni hans til þessa er skýringarmyndir í ritverk Lúðvíks Kristjánssonar, Islenskir sjávarhættir. Sýning Astrid og Bjarna verður opnuð laugardaginn 13. maí klukk- an 14. Hún verður aðeins opin yfir hvítasunnuna, laugardag, sunnudag og mánudag, frá klukk- an 14-22 alla dagana. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 8. maí. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð(kr.) Þorskur 58,50 36,00 56,12 31,810 1.785.232 Þorskur(óst) 40,00 30,00 34,41 0,348 11.975 Þorskur(smár) 24,00 15,00 22,41 0,175 3.921 Ýsa 95,00 50,00 69,80 2,377 165.911 Karfi 30,50 27,00 29,88 28,542 852.903 Ufsi 27,50 27,50 27,50 1,049 28.846 Steinbítur 30,50 20,00 28,92 3,642 105.348 Koli 29,00 25,00 25,52 1,248 31.849 Samtals 42,90 70,689 3.032.465 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 58,00 30,00 41,13 2,360 97.056 Þorsk(ósl.l.bl.) 45,00 37,00 38,35 0,523 20.055 Þorsk(dbt) 30,00 30,00 30,00 0,211 6.330 Þorsk(ósl.1 n) 44,00 44,00 44,00 1,225 53.900 Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 0,053 1.060 Ýsa 80,00 38,00 67,22 0,310 20.837 Steinbítur 74,00 43,00 55,73 0,078 4.191 Lúða(millist.) 220,00 220,00 220,00 0,010 2.200 Samtals 43,11 4,770 205.629 Selt var úr bátum. í dag verður selt úr bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 44,00 38,00 41,46 7,642 316.975 Ýsa 61,00 35,00 59,16 1,614 95.490 Ýsa(óst) 62,00 36,00 52,84 40,127 2.120.417 Karfi 27,00 14,00 24,89 2,369 58.981 Ufsi 28,00 15,00 24,30 0,601 14.605 Ufsi(óst) 22,00 21,50 21,89 2,300 50.350 Langa 21,00 21,00 21,00 0,146 3.066 Skötuselur 114,00 114,00 114,00 0,026 2.964 Samtals 48,59 55,366 2.690.134 Selt var aðall. úr Happasæli KE, Hvalsnesi GK, Baldri KE oq Hraunsvík GK. I dag veröur m.a. seldur þorskur, ýsa, langa oq keila úr Eldeyjar-Boða GK. Selt úr dagróöra- og snurvoðarbátum. SKIPASÖLUR í Bretlandi 1. til 5. maí. Þorskur 70,90 330,835 23.454.632 Ýsa 92,67 37,225 3.449.546 Ufsi 32,55 52,385 1.705.004 Karfi 50,31 15,760 792.923 Koli 53,67 0,220 11.807 Blandað 46,34 8,345 386.698 Samtals 67,00 444,840 29.805.264 Selt var úr Þorra SU í Grimsby 2. maí, Otto Wathne NS í Grims- by 3. maí og Hoffelli SU í Hull 4. mai. GÁMASÖLUR í Bretlandi 1. til 5. maí. Þorskur 73,05 341,335 24.9?3.216 Ýsa 90,58 300.465 27.217.309 Ufsi 29,58 32,115 949.863 Karfi 34,07 37,375 1.273.357 Koli 44,63 339,175 15.136.620 Grálúða 44,97 124,045 5.578.743 Blandað 66,76 107,696 7.189.609 Samtals 64,17 1.282,2 82.278.699 SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 1 . til 5. maí. Þorskur 47,84 86,205 4.124.225 Ýsa 87,08 1,380 120.165 Ufsi 48,15 38,215 1.840.023 Karfi 63,20 265,640 16.788.557 Grálúða 55,29 164,312 9.084.011 Blandað 53,16 6,539 347.633 Samtals 57,45 562,291 32.304.613 Selt var úr Vigra RE í Bremerhaven 3. maí oq Kambaröst SU í Bremerhaven 5. maí. v Regnboginn sýn- ir „Glæfraför“ REGNBOGINN hefúr tekið til sýninga myndina „Glæfrafór". Með aðalhlutverk fara Louis Gossett Jr., Mark Humphrey og Sharon Brandon. Leikstjóri er Sidney Furie. „Chappy" hafði fyrir þremur árum lent í útistöðum við yfírmenn sína og þá verið settur yfirmaður við flug- minjasafn. Nú er hann aftur kallaður til starfa sem sveit- arforingi, mjög áríðandi og leynilegt verkefni, en „Chappy“ veit hvað það þýðir, — vandræði. Atriði úr myndinni „Glæfrafor" sem Regn- boginn hefúr tekið til sýninga. Bæring Elísson, Borg - Afmæliskveðja Sumarkoman er oft tíguleg við Breiðafjörð. í níutíu ár hefur vinur minn Bæring Elísson óðalsbóndi á Borg í Stykkishólmi breitt faðm sinn móti blessun þess. Samferða í þessari athöfn um sextíu og þriggja ára skeið hefur verið eiginkona hans, Árþóra Friðriksdóttir frá Rauðhálsi í Mýrdal, en frænka mín verður 85 ára 23. des. nk. Hjónin hafa andað að sér ilmi sumarkom- unnar, baðað sig í geislaflóðinu og hlýjað sér við ylinn. Á Borg er óvenjumikil og stór- felld náttúrufegurð, gullslitir og roði sólsetursins og geisladýrð dag- renningarinnar er ógleymanleg. Sjálfsagt hefir kærleiki Bærings á Borg til náttúrannar vaknað á bernskuheimilinu á Berserkseyri í faðmi ástríkra foreldra er voru Elís Guðnason og Gróa Herdís Hannes- dóttir, ásamt sex systkinum er voru Ástrós, síðar húsfreyja, átti Bjarna Sigurðsson bónda á Berserkseyri- ytri. Jóhanna, húsfreyja í Kolgröf- um, átti Magnús Jónsson bónda. Sigríður, húsfreyja í Skallabúðum, átti Guðjón Elísson bónda. Guðni Elísson, bóndi á Berserkseyri-innri. Hannes, skólaumsjónarmaður í Reykjavík. Ágúst, húsasmiður í Reykjavík. Á bernskuheimilinu hefur Bær- ing starað á iðni dýranna og náttúr- unnar og ánægju, jafnvel athugað áhrif sólskinsins á velli og gras- bakka. Heiðríkjan í lífi hjónanna á Borg hefur verið efst á baugi. Ver- öldin í augum þeirra hefir verið stórfelldur sjónleikur unaðar og fegurðar. Vinnugieði og vinnuáhugi Bær- ings á Borg hefur verið mikill, enda telur hann það eitt af hamingjunni, er sér hafi verið veitt. Árþóra og Bæring hafa eignast 5 glæsileg börn, auk 3 fósturbarna, sem era: Jón, verkstæðisformaður, á Bjarndísi Þorgrímsdóttur frá Miðhlíð á Barðaströnd. Högni, bif- reiðastjóri, á Sigurbjörgu Hansa Jónsdóttur úr Stykkishómi. Þor- bergur, húsasmíðameistari, á Sess- elju Pálsdóttur úr Stykkishólmi. María, húsfreyja, átti Ágúst Þórar- insson skipstjóra frá Bolungarvík. Gróa Herdís, húsfreyja í Reykjavík, átti Sigurbjörn Eiríksson veitinga- húsaeiganda. Þórður Haraldsson, skipsmiður á Húsavík, á Guðfinnu Júlíusdóttur. Svavar Jensson, bóndi á Hrappastöðum í Dalasýslu, á Al- vildu Þóru Elísdóttur frá Hrapp- stöðum. Guðný Jensdóttir, á Steinar Ragnarsson verkstjóra úr Stykkis- hólmi. Árþóra og Bæring hafa not- ið traustrar húsbóndavirðingar á Borg, en þar hefur Fjóla Jónsdóttir þjónað af stakri trúmennsku um áratugaskeið, ennfremur Jens Jens- son sem látinn er fyrir nokkrum árum. Bæring á Borg hefur ýmislegt það til að bera, sem gerði hann hér fyrr á árum vel til forystu fallinn, og hann var þá líka í mörgu tilliti forystumaður í sveitarfélaginu, ekki af því að hefði neinn metnað í þá átt, því að hann er að eðlisfari maður óframgjarn, menn bára traust til hans miklu mannkosta, vitsmuna og ráðhyggni, réttsýni og ósérplægni. Borg hafa þau hjón setið af stórkostlegum höfðings- skap og rausn, en nú dvelja þau á dvalarheimilinu umvafin ástúð af- komenda og vina. Ég sendi mínar einlægustu óskir um hamingjuríkan dag. Helgi Vigfússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.