Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989 19 málaráðherra staðfesti hann árið 1988 þegar aðalskipulag Reykjavíkur var staðfest. Þá var Fossvogsbraut tekin út af kortinu í landi Kópavogs. Á grundvelli alls þessa sem hér hefur verið rakið gerði bæjarstjórn samþykkt sína fyrir dijúgri viku. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá við afgreiðsluna en bókuðu eindregna andstöðu sína gegn lagn- ingu Fossvogsbrautar og þar með samstöðu um markmiðið. Þeir töldu hins vegar ekki rétt að gefa ein- hliða yfirlýsingu um að samkomu- lagið væri úr gildi fallið og vildu reyna tii þrautar að semja við Reykjavíkurborg. Það er vitanlega matsatriði og ekki undarlegt þótt menn greini á um hvenær samn- ingaleiðir hafa verið reyndar til þrautar, en þessi varð niðurstaðan. Undanfarna daga hafa ýmsir orðið til að undrast tóninn í sam- skiptum sveitarfélaganna tveggja, Kópavogs og Reykjavíkur. Skoðun allra stjórnmálaflokka í bæjarstjórn Kópavogs hefur þó eins og fram er komið verið skýr og ótvíræð undanfarinn áratug og vel það. Við samþykkjum ekki lagn- ingu Fossvogsbrautar. Við ætlum að gera Fossvogsdal að útivistar- svæði, öldnum og óbornum í Reykjavík og Kópavogi til yndis og undaðssemda. Þetta hefur bæjar- stjórn undirstrikað með því að út- hluta íþróttafélagi Kópavogs svæði hér í dalnum. Svo sem eðlilegt og sjálfsagt er hefur Skipulagsstjórn ríkisins bent á að ekki sé heimilt að hefja fram- kvæmdir fyrr en aðalskipulag hefur verið staðfest. Þetta er bæjarstjórn Kópavogs fulljóst en henni er líka ljóst að allar framkvæmdir þurfa langan undirbúningstíma. Nú er aðalskipulag Kópavogs í endurskoð- un. Bæjaryfirvöld í Kópavogi munu leggja allt kapp á að fá það frágeng- ið, samþykkt og staðfest sem allra fyrst. Þá verður ekkert til fyrirstöðu þeim framkvæmdum sem nauðsyn- legar eru til þess að hér verði blóm- leg miðstöð íþrótta fyrir almenning og keppnisfólk við hlið og í bland við hið notalega útivistarsvæði. Vitanlega hafa viðbrögð borgar- stjórans í Reykjavík og síðan borg- arráðs valdið okkur vonbrigðum. En sannarlega á hver rétt á sinni skoðun. Og auðvitað getur eitt sveitarfélag ákveðið þegar því þóknast að hætta að selja þjónustu á einu eða öðru sviði. Mér er ljúft að tilkynna það hér að við Kópa- vogsbúar höfum ekki hugsað okkur að láta grafast í sorpi. Við ætlum að bregðast við eins og nútímafólki sæmir. Þegar hefur sérfróðum mönnum verið falið að gera tillögur um hvernig standa mætti að flokk- un sorps eins og nú tíðkast þar sem menn hafa mesta hugsun á um- hverfismálum. Við munum tilkynna frekar á næstu vikum um úrlausn sorphirðunnar í Kópavogi. Megi allir vinir Fossvogsdals bera gæfu til að starfa saman að málum svo erfingjar okkar geti sagt með sanni: Hér var unnið að málum af framsýni. Fýrir það erum við þakk- lát. * Fegurðardrottning Islands 1989: Stífar æfingar fram að úrslitakvöldinu - segir Gróa Ásgeirsdóttir, framkvæmdastj óri keppninnar Fegurðardrottning Islands 1989 verður krýnd á Hótel Islandi næstkomandi mánudagskvöld, að kvöldi annars í hvítasunnu. Undir- búningur fyrir keppnina stendur nú sem hæst og eru allar stúlkum- ar komnar til Reykjavíkur til þjálfiinar og æfínga. Tíu stúlkur hafa verið valdar til þátttöku í keppninni og verður það Linda Pétursdóttir, Fegurðar- drottning íslands 1988 og Ungfrú Heimur, sem krýnir arftaka sinn. Stúlkurnar, sem þátt taka í keppn- inni eru: Elva Hrund Guttorms- dóttir Fegurðardrottning Suður- nesja, Guðbjörg Hilmarsdóttir Feg- urðardrottning Vestfjarða, Stein- unn Geirsdóttir Fegurðardrottning Norðurlands, Oddný Ragna Sigurð- ardóttir Fegurðardrottning Austur- lands, Guðrún Eyjólfsdóttir Fegurð- ardrottning Vesturlands, Hugrún Perla Heiðarsdóttir Fegurðar- drottning Suðurlands, Hugrún Linda Guðmundsdóttir Fegurðar- drottning Reykjavíkur, Linda Ólafs- dóttir Ljósmyndafyrirsæta Suður- nesja, Hildur Dungal Ljósmynda- fyrirsæta Reykjavíkur og Theódóra Sæmundsdóttir úr Reykjavík. Stúlkurnar eru við æfingar í World Class líkamsræktarstöðinni þar sem þjálfari þeirra er Katrín Hafsteinsdóttir. Þá sér Birna Magn- úsdóttir danskennari um að þjálfa fegurðardísirnar í göngulagi og sviðsframkomu. Gróa Ásgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri keppninnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að vika væri síðan stúlkurnar hefðu allar komið til Reykjavíkur og yrðu stífar æfingar fram að úrslitakvöldinu. „Stúlkurnar eru ýmist í námi eða úti á vinnumarkaðnum. Vinnuveit- endur hafa allir sýnt skilning og verkfall kennara hefur vissulega hjálpað okkur þar sem skólastarf liggur niðri hjá þeim stúlkum sem stunda námið,“ sagði Gróa. Hún sagði að reynt yrði að hafa úrslitakvöldið sem glæsilegast og yrði sérstaklega lagt mikið í mat- seðil kvöldsins sem yrði fjórréttað- ur. Matreiðslumeistari hússins, Ólafur Reynisson, hefur haft veg og vanda að undirbúningnum. Auk þess verða ýmis önnur skemmtiat- riði svo sem söngur, dans, tískusýn- ing og hárgreiðslusýning. Stöð 2 mun sýna frá keppninni eins og í fyrra. Dómnefnd skipa sjö manns: Ólaf- ur Laufdál veitingamaður er form- aður nefndarinnar, en aðrir dóm- nefndarmenn eru: Sigtryggur Sig- tryggsson fréttastjóri, Friðþjófur Helgason Ijósmyndari, Erla Harald- sóttir danskennari, Sóley Jóhanns- dóttir danskennari, Anna Margrét Jónsdóttir Fegurðardrottning ís- lands 1987 og Ingi Björn Albertsson alþingismaður. Linda Pétursdóttir Fegurðar- drottning íslands 1988 og Ungfrú Heimur mun krýna arf- taka sinn á Hótel íslandi n.k. mánudagskvöld. Landsmót skólaskákar 1989; Héðinn Steingrímsson o g Helgi Ass Islandsmeistarar Ljóðakvöld á Hótel Borg BESTI vinur ljóðsins heldur ljóðakvöld á Hótel Borg í kvöld 8. maí. Þeir sem lesa upp í kvöld eru; Þorsteinn frá Hamri, en ný ljóðabók kemur út eftir hann í þessari viku, yilborg Dagbjartsdóttir, Ásta Ólafsdóttir, en hún skrifaði bókina „Þögnin sem stefndi í nýja átt“, Ragna Sigurðardóttir, hún hefur birt ljóð í tímaritum og gaf út ör- sagnasafnið „Stefnumót", Mike Pollock Ies sín ljóð — á ensku, Jón Gnarr,- sem áður hefur gefið út ljóðabók, les kafla úr skáldsögu, sem út kemur í haust, Sigfús Bjartmarsson, en hann verður á ferðinni með nýja ljóðabók í haust, Elísabet Jökulsdóttir, les úr fyrstu bók sinni, „Dans í lokuðu herbergi" og Illugi Jökulsson les eigið ljóð í tilefni útkomu þeirrar bókar. Sigrún Eiríksdóttir les þýðingar sínar á nokkrum ljóða Jorges Luis Borges, þá verður flutt tónverkið Tengsl, sem Hjálmar H. Ragnars- son samdi fyrir söngrödd og strengjakvartett. við ljóð eftir Stef- án Hörð Grímsson. Flytjendur verða söngkonan Jóhanna Þór- hallsdóttir og hljóðfæraleikararnin Helga Þórarinsdóttir, Hlíf Sigur- jónsdóttir, Sean Bradley og Nora LANDSMÓT skólaskákar 1989 fór fram i Laugaskóla í Dala- sýslu 4. til 7. maí síðastliðinn. Héðinn Steingrímsson, Haga- skóla, varð Islandsmeistari í eldri flokki (7. til 9. bekk) með 9 vinn- inga og Helgi Áss Grétarsson, Breiðholtsskóla, varð íslands- meistari í yngri flokki (1. til 6. bekk) með 8,5 vinninga. Níu umferðir voru tefldar á mótinu. í 2. sæti í eldri flokki varð Krist- ján Eðvarðsson, Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar, með 6 vinninga og í 3. sæti varð Þórleifur Karlsson, Gagnfræðaskóla Akureyrar, með 5 vinninga. í 2. sæti í yngri flokki varð Ingvar Jóhannesson, Lang- holtsskóla, með 7,5 vinninga og í 3. til 4. sæti urðu Hlíðar Þór Sveins- son, Kársnesskóla í Kópavogi, og Guðmundur Daðason, Grunnskóla Bolungarvíkur, með 7 vinninga. - Þorsteinn frá Hamri les upp á ljóðakvöldinu, en ný ljóðabók eftir hann er að koma út. Kornblueh. Stjórnandi er Hjálmar H. Ragnarsson. Kynnir Besta vinar ljóðsins verður Hrafn Jökulsson. Dagskráin hefst klukkan 9. HITACHI Sjónvarpstæki sein treystandi er á. 3ja ára ábyrgð J0*RÖNNING +//"// heimilistæki KRINGLUNNI OG NJÁLSGÖTU 49 SlMI 685868/10259 .HurDnDlNUiTJn MAR0I10 HAPPDRÆTTIDVALARHEIMIUS ALDRAÐRA SJÓMAHHA Eflum stuðning við aldraða. Miði á mann fyrír hvern aldraðan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.