Morgunblaðið - 09.05.1989, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAI 1989
5
Könnun nemenda í Tjarnarskóla:
Færri nota götur
fyrir ruslafötur
Krakkarnir hreinsa umhverfi
skólans daglega
SAMKVÆMT niðurstöðum könn-
unar, sem nemendur Tjarníir-
skóla hafa gert á umgengni við-
skiptavina sex söluturna í mið-
borg Reykjavíkur, virðist þrifii-
aður hafa farið vaxandi, og fleiri
nýtt sér ruslaföturnar í ár en í
fyrra og hitteðfyrra. Fimmtung-
ur þeirra, sem á annað borð los-
uðu sig við rusl, kasta því á göt-
una, en í fyrra gerði þriðjungur
viðskiptavina sig sekan um slíkt
athæfi. Sjálfir leggja nemendur
Tjarnarskóla áherzlu á hreint
umhverfi og tína rusl í nágrenni
skólans daglega.
Framkvæmd könnunarinnar var
með þeim hætti að nemendur fylgd-
ust með söluturnunum sex í 20
mínútur á dag í nokkra daga. Skráð
var, hvort fólk, sem kom út úr sölu-
tumunum, henti frá sér rusli, og
hvert ruslið færi. Könnunin fór allt-
af fram í marzmánuði og ævinlega
á sama tíma, milli kl. 11.20 og
12.30.
Árið 1987 skráðu nemendurnir
523 viðskiptavini, sem hentu rusli.
Þar af fleygðu 175 því á götuna,
eða 33,5%. Hinir notuðu ruslafötur.
Árið 1988 voru það 586, sem los-
uðu sig við rusl, þar af notuðu 195
(33,3%) götuna. í ár virðist hafa
orðið breyting til batnaðar; af 416
sem hentu rusli fleygðu 84 því á
götuna, eða 20,1%.
Nemendurnir komust að þeirri
niðurstöðu að ástæður fyrir bættri
umgengni væru annars vegar áhrif
hreinsunarátaks Reykj avíkurborg-
ar, sem hófst síðastliðið haust, og
hins vegar fleiri sorpílát. Nemend-
ur, sem fylgdust með viðskiptavin-
um Texas við Hallærisplan í marz
síðastliðnum, tóku eftir því að þar
var langhæst hlutfall þeirra sem
fleygðu rusli á götuna, eða um 32%
miðað við 20% meðaltal. Enda kom-
Olíuinnflutning-
ur Olís:
Utvegsbank-
inn ábyrgist
Alþýðubanka
ÚTVEGSBANKINN hefur opnað
ábyrgð fyrir hönd Alþýðubank-
ans vegna olíuviðskipta Olís við
Sovétríkin. Sovétmenn höfðu
ekki viðurkennt ábyrgðir Al-
þýðubankans, en með þessari
aðgerð eru þau viðskipti tryggð,
sem ábyrgðirnar taka til. Guð-
mundur Hauksson bankasljóri
Utvegsbankans segist ekki hafa
trú á að framhald verði á þessum
ábyrgðum. Hann segist ekki
mega greina frá upphæð ábyrgð-
arinnar.
„Við veittum ábyrgð vegna Al-
þýðubankans," segir Guðmundur
Hauksson. „Það er stundum gert,
við sjáum um erlend viðskipti fyrir
nokkra banka og þá er ekkert óal-
gengt að við gerum þetta, annað
hvort að við opnum í eigin nafni
vegna slíks banka, fyrir hönd fyrir-
tækis, eða þá að við hreinlega skrif-
um upp á ábyrgðir viðkomandi
banka. Við opnum þessa ábyrgð
fyrir hönd Alþýðubankans vegna
Olís. Þetta byggist bara á því að
við höfumm átt samskipti við Al-
þýðubankann og við, sem banki,
skiptum okkur að sjálfsögðu ekki
af því fyrir hvaða viðskiptavini
bankans við erum að vinna hvetju
ust könnuðirnir einnig að því, að
við Texas væru engar sorpfötur í
sjónmáli.
Nemendur Tjarnarskóla hafa
tekið þátt í hreinsunarátaki
Reykjavíkurborgar og fékk hver
bekkur í skólanum 20.000 króna
verðlaun frá borginni fyrir. Ném-
endur tína einnig rusl í kring um
skólann og meðfram bökkum Tjarn-
Morgunblaðið/Sverrir
Tjarnarskólakrakkar hreinsa til á Tjarnarbakkanum. Aðspurð sögðu
þau að það væri engin kvöð að fara út að hreinsa, þeim þætti þetta
skemmtilegt og það væri ágætt að skjótast aðeins út í sólina.
arinnar á hvetjum degi. í ruslinu
eru sígarettustubbar áberandi og
nemendur segjast aldrei hafa orðið
vitni að því að reykingamaður drepi
í sígarettu og fleygi stubbnum síðan
i ruslafötu.
Krakkarnir hafa lagt fram tillög-
ur, sem stuðla eiga að hreinni höf-
uðborg. Þau vilja að borgin haldi
hreinsunarátaki sínu áfram, að sor-
pílátum verði fjölgað, og að gert
verði meira af því að hrósa ungling-
um fyrir góða umgengni. Þá vilja
þau hvetja reykingamenn til betri
umgengni og jafnvel að þeir hætti
að reykja. Þau vilja leggja skila-
gjald á gosdósir, og loks leggja þau
til að Reykjavíkurborg gefi upplýs-
ingar um það, hvað það kostar að
hreinsa borgina. Að dómi krakk-
anna í Tjarnarskóla væri skemmti-
legra að þurfa ekki að eyða þeim
peningum í ruslatínslu, heldur geta
notað þá til dæmis í gróðursetningu
og æskulýðsstarf.
lÍÉÍÍB
ÞRJAR
EINFALDAR LEIÐIR
HVERT Á LAND SEM ER
Við einföldum þér leitina að hagkvæmasta ferðamöguleikanum.
í hinni nýju sumaráætlun okkar eru allar ferðir merktar með
rauðum, grænum og bláum lit. Blár litur þýðir ferð á fullu
fargjaldi, grænn þýðir 20% afsláttur og rauður 40% afsláttur.
Sumaráætlunin 1989 fæst á öllum söluskrifstofum Flugleiða,
hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
Sumaráætlun Flugleiða - lykillinn
að ferðum þínum um landið.
FLUGLEIDIR
INNANLANDSFLUG