Morgunblaðið - 09.05.1989, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989
RÍKISÚTVARPIÐ
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir. Bæn, Ingólfur Guð-
mundsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Randveri Þorláks-
syni. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir
kl. 8.00 og veðurfr. kl. 8.15. Tilkynningar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn — „Sumar í sveit"
eftir Jennu og FlreiðarStefánsson, Þórunn
Hjartardóttir les áttunda lestur. (Einnig
útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra
Björnsdóttir.
9.30 i garðinum með Hafsteini Hafliða-
syni.
9.40 Landpósturinn — Frá Suöurnesjum.
Umsjón: Magnús Gíslason.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Flermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón: Flanna G. Sig-
urðardóttir. (Einnig útvarpað að loknum
fréttum á miðnætti.)
11.53 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 I dagsins önn — Florence Nightin-
gale. Umsjón: Steinunn Harðardóttir.
13.35 Miðdegissagan: „Brotið úr töfra-
speglinum" eftir Sigrid Undset. Arnheiður
Sigurðardóttir þýddi. Þórunn Magnea
Magnúsdóttir les (10).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Eftirlætislögin. Svanhildur Jakobs-
dóttir spjallar við Þorstein Hannesson
óperusöngvara, sem velur uppáhaldslög-
in sín. (Einnig útvarpað aðfaranótt sunnu-
dags að loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fréttir.
15.03 Glott framan í gleymskuna. Friðrik
Rafnsson fjallar um mið-evrópskar bók-
menntir. (Endurtekinn þriðji þáttur frá
fimmtudagskvöldi.)
16.00 Fréttir
16.03 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. „Ung skáld" Barnaút-
varpið hittir krakka sem skrifa sögur og
Ijóð og ræðir við þau um skáldskap og
fleira. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi — Stravinsky og -
Prokofiev.
— Fjórði þáttur úr ballettinum „Petrúsku"
eftir Igor Stravinsky. Fílharmóníusveitin í
Israel leikur; Leonard Bernstein stjórnar.
— Sinfónia Concertante Op. 125 eftir
Sergei Prokofiev. Mistislav Rostropovits
leikur með Konunglega Fílharmóníusveit-
inni í Lundúnum; Sir Malclolm Sargent
stjórnar. (Af hljómdiskum).
18.00 Fréttir.
18.03 Á vettvangi. Umsjón: Bjarni Sig-
tryggsson og Páll Heiðar Jónsson. Tón-
list. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá — „Söngvar Svantes". Fyrri
þáttur. Umsjón: Pétur Már Ólafsson.
(Einnig útvarpað á föstudagsmorgun kl.
9.30.)
20.00Litli barnatíminn. (Endurtekinn frá
morgni.)
20.15 Kirkjutónlist eftir Johann Sebastian
Bach.
— „Es ist genug", kórall. Þýska blásara-
sveitin leikur.
— „Jesu meine freude", mótetta. „Col-
legium Vocale" kórinn syngur með „La
Chapelle Royale" sveitinni.
— „Aus der Tiefen rufe ich Herr, su dir",
kantata. Ann Monoyois, sópran, Steven
Rickards, kontratenór, Edmund Brow-
nless, tenór og Jan opalach, bassi syngja
með Bach sveitinni; Joshua Rifkin stjórn-
ar.
21.00 Kveðja að austan. Úrval svæðisút-
varpsins á Austurlandi í liðinni viku. Um-
sjón: Haraldur Bjarnason. (Frá Egilsstöð-
um).
21.30 Útvarpssagan: „Löng er dauðans
leið" eftir Else Fischer. Ögmundur Helga-
son þýddi. Erla B. Skúladóttir les (7).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Leikrit vikunnar: „Draumaströndin"
eftir Andrés Indriöason. Leikstjóri: Stefán
Baldursson. Annar þáttur: Engan æsing.
Leikendur: Arnar Jónsson, Kristbjörg
Kjeld, Tinna Gunnlaugsdóttir, Steinunn
Jóhannesdóttir, Guðbjörg Þorbjarnardótt-
ir, Hjalti Rögnvaldsson, Axel Gomez, Þór
Túliníus, Jón Stefán Kristjánsson, Þór-
hallur Vilhjálmsson, Kristín bjarnadóttir,
Eiríkur Fljálmarsson og Erla Ruth Harðar-
dóttir. (Áður flutt 1984.)
23.10 Tónskáldatími. Guðmundur Emils-
son kynnir íslenska tónlist, í þetta sinn
verk eftir Skúla Halldórsson.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Hanna G. Sig-
uröardóttir. (Endurtekinn frá morgni).
1.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
RAS2 — FM 90,1
1.10 Vökulögin. Tónlist í næturútvarpi.
Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir
af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00
og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
4.30.
7.03 Morgunútvarpið. Leifur Hauksson og
Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn með
hlustendum. Fréttir kl. 8.00 og 9.00, veð-
urfregnir kl. 8.15 og leiðarar dagblaðannc
kl. 8.30.
9.03 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Alberts-
dóttur. Afmæliskveðjur kl. 10.30. Fréttir
kl. 10.00 og 11.00.
11.03 Stefnumót. Jóhanna Harðardóttir tek
ur fyrir það sem neytendur varðar.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Gesti
Einari Jónasyni. Fréttir kl. 14.
14.05 Milli mála, Óskar Páll á útkíkki.
Útkíkkið upp úr kl. 14 og Auður Haralds
talarfrá Róm. Fréttir kl. 15.00 og 16.00,
Hvað gera bændur nú?
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán
Jón Hafstein, Ævar Kjartansson og Sigríð-
ur Einarsdóttir. Kaffispjall og innlit upp
úr kl. 16.00. Hlustendaþjónustan kl.
16.45. Stórmál dagsins milli kl. 17 og
18. Fréttir kl. 17.00 og 18.00.
18.03 Þjóðarsálin.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram Island. Dægurlög með
íslenskum flytjendum.
20.00 Hátt og snjallt. Enskukennsla á veg-
um Fjarkennslunefndar og Málaskólans
Mímis. Sjötti þáttur endurtekinn frá
fimmtudagskvölcii.
20.30 Útvarp unga fólksins. Meðal efnis ,
munu nemendur á fjölmiðlasviði Mennta- j
skólans við Sund fjalla um aeyðingu
ósonlagsins.
21.30 Hátt og snjallt. Enskukennsla á veg-
um Fjarkennslunefndar og Málaskólans
Mímis. Ellefti þáttur. (Einnig útvarpað nk.
firnmtudag kl. 20.00.) Fréttir kl. 22.00.
22.07 Bláar nótur. Pétur Grétarsson kynnir
djass og blús. (Einnig útvarpað aðfara-
nótt fimmtudags kl. 2.00). Fréttir kl.
24.00.
1.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í
næturúvarpi til morguns. Að loknum frétt-
um kl. 2.00 verður endurtekinn frá föstu-
degi þátturinn „Ljúflingslög" í umsjá
Svanhildar Jakobsdóttur. Að loknum frétt-
um kl. 4.00 flutt brot úr dægurmálaút-
varpi þriðjudagsins. Fréttir kl. 2.00 og
4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og
flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veð-
urfr. frá Veðurstofu kl. 1.00 og 4.30.
BYLGJAN — FM 98,9
7.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson með rjiorgunþátt. Fréttir og
ýmsar upplýsingar fyrir hlustendur. Frétt-
ir kl. 8.00, 10.00.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Fréttayfirlit kl.
11.
12.00 Fréttir kl. 12.00 og 14.00. .
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson. Óska-
lögin, kveðjurnar, nýjustu lögin, gömlu
góðu lögin. Fréttayfirlit kl. 15.00 og
17.00. Fréttir kl. 16.00.
18.00 Fréttir.
18.10 Reykjavík síðdegi — hvað finnst þér?
Ómar Valdimarsson stýrir umræðunum.
19.00 FreymóðurT. Sigurðsson. Meiri tón-
list — minna mas.
20.00 Sigursteinn Másson.
24.00Næturdagskrá Bylgjunnar.
RÓT — FM 106,8
9.00 Rótartónar.
11.00 Ferill og „FAN". Tónlistarþáttur. E.
12.30 Rótartónar.
14.00 ( hreinskilni sagt. E.
15.00 Kakó. Tónlistarþáttur.
16.30 Frá verksfallsvakt BHMR. Þessi þátt-
ur verður meðan verkfallið stendur.
17.00 Laust.
17.30 Samtök græningja.
18.00 Hanagal. Umsjón: Félag áhugafólks
um franska tungu.
19.00 Opið. Valgeir Sævarsson.
20.00 FES. Unglingaþáttur.
22.00 Við við viðtækið. Tónlistarþáttur.
23.30 Rótardraugar.
24.00 Næturvakt.
STJARNAN — FM 102,2
7.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson með morgunþátt. Fréttir kl.
8.00 og 10.00, fréttayfirlit kl. 9.00.
10.00 Jón Axel Ólafsson leikur nýjustu lög-
in og kemur kveðjum og óskalögum hlust-
enda til skila. Fréttayfirlit kl. 11.00, fréttir
kl. 12.00 og 14.00.
14.00 Gunnlaugur Helgason tekur viðtöl við
hlustendur. Fréttayfirlit kl. 17.00, fréttir
kl. 18.
18.10 fslenskir tónar. Islensk lög leikin
ókynnt i eina klukkustund.
19.00 FreymóðurT. Sigurðsson. Meiri tón-
list — minna mas.
20.00 Sigursteinn Másson. Tónlist, kveðjur
og óskalög.
24.00 Næturstjörnur.
ÚTRÁS — FM 104,8
12.00 MH 20.00 MH
14.00 MH 22.00 IR
16.00 FB 24.00 MS
18.00 FG
ÚTVARP ALFA — FM 102,9
14.00 Orð guðs til þín. Þáttur frá Orði
Lífsins. UmsjónarmaðurerJódís Konráðs-
dóttir.
15.00 Blessandi boðskapur í margvíslegum
tónum.
24.00 Dagskrárlok.
ÚTVARP HAFNARFJÖRÐUR
FM 91,7
18.00 Halló, Hafnarfjörður. Fréttir úr Firð-
inum, viðtöl og tónlist.
19.00 Dagskrárlok.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07— 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03—19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
O-klúbburinn
Arthúr Björgvin Bollason hinn
málsnjalli Evróvísíon-kynnir
var bara hress er þeir útvarpsmenn
hringdu í hann til Lausanne í Sviss
og inntu eftir sálarástandi 0-hóps-
ins. Arthúr Björgvin: íslendingarnir
eru bara sæmilega hressir. — ís-
lendingar og Júgóslavar eru einu
þjóðirnar sem blaðamenn hafa
áhuga á hér að lokinni keppninni.
— Þekktasti útvarpsmaður Þýska-
lands kom að máli við Valgeir og
hyggst spila nokkur laga hans í
léttum spjallþætti. — Þetta verður
að teljast frábær kynning fyrir
Valgeir sem tónlistarmann. — Það
kom héma blaðamaður frá Noregi
og bauð okkur velkomna í 0-klúbb-
inn — sagði þetta úrvalsklúbb er
héldi vel saman og minnti á að
ekki væri hægt ánnað en gera bet-
ur næst.
Fundað stíft
Viðbrögð Sveins Einarssonar
yfírmanns innlendrar dagskrár-
gerðar ríkissjónvarpsins er ber höf-
uðábyrgð á Evróvísíon-keppninni
hér heima voru líka fremur hlut-
laus. Sveinn: Það verður haldinn
fundur um keppnina eins og gert
var í fyrra. Af svari dagskrárstjór-
ans var ekki hægt að ráða hvort
hann hygðist leggjast gegn áfram-
haldandi þátttöku íslendinga í
keppninni eða blása í herlúðra. Að
mati þess er hér ritar er reyndar
ekki um annað að ræða en blása í
herlúðra og þeysa enn á ný fram á
þennan litfagra burtreiðavöll Evr-
ópu. Enn tæmast götur þegar ridd-
ararnir og skjaldmeyjarnar þeysa
fram á sviðið með burtstöngina
reidda og því ber okkur að halda
áfram keppni. En hvernig getum
við styrkt herklæðin og baráttuþrek
riddara og skjaldmeyja?
Stefið
í fyrsta lagi lætur íslenskan
ókunnuglega í eyrum íbúa megin-
landsins. Júgóslavar leystu þetta
vandamál með því að skjóta inn
stefi á ensku en án þessa stefs
hefði lag þeirra sennilega horfið í
svelginn. Það er svo önnur og dap-
urlegri saga er júgóslavneska sveit-
in fagnaði sigrinum með því að
syngja sigurlagið á ensku. Kannski
endar Evrópa líkt og Bandaríki
Norður-Evrópu sem enskumælandi
stórveldi??
Hvalamálið
Gæti hugsast að þjóðir Evrópu
hafi ómeðvitað viljað hegna okkur
fyrir hvalveiðistefnuna með því að
hunsa lag Valgeirs? Með öðrum
orðum verður ekki nóg að kunna
ensku til að teljast fullgildur Evr-
ópubúi heldur verða menn að lúta
vilja náttúruvemdarsamtaka álf-
unnar.
Ný stefna
En ef til vill dugir bara ekki að
beygja sig undir staðlaða for-
heimskunarstefnu hinnar nýju Evr-
ópu? íslenskir tónlistarmenn em
varla nógu þjálfaðir í næturklúbba-
söng og kunna ekki til hlítar hina
alþjóðlegu, sviplausu og hressu
sviðsframkomu er dugði svo vel
Júgóslövunum. Og því legg ég til
að íslendingar taki hér upp alveg
nýja stefnu í samræmi við efna-
hagsstefnuna það er að segja
0-stefnu. Auðvitað eigum við að
stefna á neðsta sætið á Evróvísíon.
Þannig komumst við í heimspress-
una og getum selt fisk, svala og
tölvuvogir án þess að leggja í feiki-
dýrar auglýsingaherferðir. Við
sendum Lindu Pétursdóttur næst
sem klappstýru og Jón Pál til að
beija húðir og svo syngur Diddú
rammíslenskt lag sem væri byggt
á stefi eftir Jón Leifs. Það er lítið
varið í að lenda í 16. sætinu eftir
að menn eru komnir í O-klúbbinn.
Ólafur M.
Jóhannesson