Morgunblaðið - 09.05.1989, Page 13
MORGUNBLAÐE) ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989
13
(Sá, sem staðfastur er til enda) en
til samans eru þessir kaflar með feg-
urstu þáttum verksins.
Elia var sundinn af Andreas
Schmidt og var söngur hans há-
punktur verksins og trúlega fáir sem
geta flutt hlutverk Elia af jafn sterkri
innlifun og listfengi og þessi ungi
söngsnillingur, hvort sem hann túlk-
aði þrumandi reiðilestur spámanns-
ins, eins og í fyrri hluta verksins eða
innilega auðmýkt hans gagnvart
Guði og traust á almætti hans.
Silvia Hermann og Ursula Kunz
sungu mjög vel og einnig Inga J.
Backmann, sem fór með hlutverk
drengsins í 19. atriði. Tenorsöngvari
sá sem tilgreindur er i efnisskrá for-
fallaðist á síðustu stundu en í hans
stað kom Aldo Baldin og söng, án
þess að fá nokkra æfingu með hljóm-
sveitinni, aldeilis frábærlega vel. All-
ir einsöngvaramir voru einstaklega.
góðir og ekki oft sem getur að heyra
svona samstæðan og góðan hóp ein-
söngvara, þrátt fyrir að samvinnan
við undirbúninginn væri í styttra lagi.
Sinfóníuhljómsveit íslands lék
ágætlega þó málmblásarar og sér-
staklega túban, mættu leika aðeins
veikar, þar sem hljómsvar kirkjunn-
ar, er einum of hagstætt fyrir þá. í
heild voru tónleikamir frábærir og
eins og fyrr segir, mikill sigur fyrir
orgelleikara kirkjunnar, Hörð
Áskelsson og kór hans, Mótettukór
Hallgrímskirkju, svo og Listvinafélag
kirkjunnar, sem trúlega mun með
starfi sínu örva kirkjuyfirvöld til að
sinna listastarfi innan kirkjunnar,
meir en verið hefur og kosta þar til
einhveijum fjármunum og eins og
Ambrósius kirkjufaðir sagði, „laða
að unga sem aldna“, bæði til að vinna
við og njóta góðrar listar.
Stálgrindahúsin frá Héðni eru þekkt fyrir hag-
kvæmni og traust. Þau má sjá víða um land og
þjóna þarfjölbreyttri atvinnustarfsemi svo sem:
FISKVERKUN, IÐNAÐI, LAGER,
FISKELDI.LOÐDÝRARÆKT, einnig sem
GRIPAHÚS ogHLÖÐUR.
Burðarammar úr sandblásnu og ryðvörðu
gæðastáli eru afgreiddir í stöðluðum breiddum
en lengdir eftir þörfum.
Húsin eru klædd með GARÐASTÁLI sem
fæst í mismunandi prófílum og fjölbreyttum lit-
um. Einnig er hægt að velja mismunandi
hurðir.
Greinagóðar teikningar og upplýsingar um
boltasetningu ofl. fylgja húsunum. Auðveldar
það alla uppsetningu og frágang.
Starfsmenn sölu- og tæknideildar eru ávallt
reiðubúnir að veita ráðgjöf og skila kostnaðar-
áætlun eða tilboði ef óskað er
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐAB/E
SlMAR 52000 OG 54230 (beint innval)
BYGGD
ÁHAGKVÆMNI!
SUMARBOD
OPUS
20 TOMMU
LITSJÓNVARP
OG
FULLKOMIÐ
VHSHQ
MYNDBANDS-
TÆKI FYRIR
AÐEINS
59.900 STGR.
ÓTRÚLEGT EN SATT ÞETTA ER TILBOÐ SEM
EKKERT SLÆR ÚT. LÁTUM HENDUR STANDA
FRAM ÚR ERMUM, TAKMARKAÐ MAGN.