Morgunblaðið - 09.05.1989, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI//ITVINNDLÍF ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989
31
Verslun
Styttist í endurgreiðslu áldósa
GENGIÐ hefur verið frá samningi við matvörumarkaðinn Bónus
um að þeir heQi endurgreiðslu á áldósum frá og með næstu mán-
aðarnótum. Viðræður eru í gangi við fleiri verslanir, að sögn Jóns
Garðars Ögmundssonar hjá heildversluninni A. Karlsson hf., sem
hefur umboð fyrir vélar, sem pressa dósir.
Stjórnarfrumvarp um ráðstaf-
anir gegn umhverfismengun af
völdum einnota umbúða fyrir
drykkjarvörur liggur nú fyrir Al-
þingi og bíður fyrstu umræðu í
Neðri deild. Þar til það hefur náð
að ganga í gegn munu verða
greiddar 1-2 krónur fyrir hveija
dós. Innan ríkisstjórnarinnar hefur
verið talað um 5—10 krónur fyrir
hveija dós. Þá hefur verið rætt
um að skilagjald hefði ekki áhrif
á verðlag, þar sem það verði end-
urgreitt þegar tómri dós er skilað.
Áfengisverslun ríkisins hefur
fest kaup á einni vél til að kanna
notkun vélarinnar, að sögn Hö-
skuldar Jónsson forstjóra ÁTVR.
Hann sagði jafnframt að sennilega
yrði opnað útibú á Höfn í Horna-
firði seinna á árinu og þá væri
spurning hvað ætti að gera við
tómu dósimar, hvort pressa ætti
þær á staðnum eða senda þær
ópressaðar til Reykjavíkur. Hann
tók jafnframt skýrt fram, að
ÁTVR væri ekki að hefja endur-
greiðslu á bjórdósum núna.
Jón Garðar Ögmundsson sagði
í samtali við Morgunblaðið, að
þeir hefðu í hyggju tveggja mán-
aða tilraun með endurgreiðslu og
útflutning á dósunum. Vélamar
sem hér um ræðir gleypa dósirn-
ar, prenta út strimil með þeirri
upphæð, sem viðskiptavinur á inni
CATEPILLAR
sýningunni.
Hekla kynnti m.a. nýja traktorsgröfu á
og hann fær síðan endurgreitt við
afgreiðslukassann. Vélamar
pressa dósimar, sem fara í sér-
stakan poka og verða fluttar út
til Svíþjóðar til endurvinnslu. Jón
Garðar sagði að þeir hefðu tekið
þá ákvörðun að endurgreiða ein-
ungis áldósir, því að plastdósir
væri það lítill hluti markaðarins
og þá þyrfti að standa öðra vísi
að flokkuninni.
Tveir eigenda hönnunar-og ráðgjafafyrirtækisins
Blátt áfram hf., frá vinstri: Ingólfur S. Margeirsson byggingatækni-
fræðingur og framkvæmdastjóri og Ragnar Gunnarsson skipulags-
fræðingur og arkitekt.
Fyrirtækl
Nýtt fyrirtæki, Bláttáfram hf.
Borgamesi.
Nýlega var stofnsett í Borgar-
nesi fyrirtækið Blátt áfram hf.
Meðal verkefna sem fyrirtækið sér-
hæfir sig í era, skipulagsgerð, húsa-
gerðarlist, tæknihönnun og ráðgjöf.
Mun þetta vera eina fyrirtækið á
Vesturlandi sem að býður upp á
þessa alhliða þjónustu.
Tveir eigendanna, sem jafnframt
starfa hjá fyrirtækinu, era þeir Ing-
ólfur S. Margeirsson bygginga-
tæknifræðingur sem er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og
Ragnar Jón Gunnarsson skipulags-
fræðingur og arkitekt. Hafa þeir
báðir reynslu í skipulagsgerð, hvort
tveggja við aðalskipulag og deili-
skipulag. Sögðu þeir Ingólfur og
Ragnar að fyrirtækið hefði þá sér-
stöðu að geta boðið upp á mjög
breitt þjónustusvið og tóku sem'
dæmi að þeir byðu upp á hönnun
margs konar bygginga, innanhúss-
hönnun ásamt burðarþolsteikning-
um og öllum lagnateikningum. Það
sama ætti við um skipulagsgerð og
tæknihönnun, þar væri boðið upp á
tæmandi þjónustu sem ætti að vera
Kynning
3 þús. manns á Catepillarsýningu
Á þriðja þúsund manns sótti sýn-
ingu véladeildar Heklu um helg-
ina, þar sem kynntar vom þunga-
vinnuvélar og skipavélar frá
Catepillar ásamt ýmsum öðmm
búnaði sem véladeildin selur.
Sýningin hófst á fóstudag en stóð
laugardag og sunnudag, og segir
Valgeir Hallvarðsson, fram-
kvæmdastjóri véladeildarinnar,
að hana hafi sótt allir helstu
verktakar landsins og Qöldi út-
gerðarmanna.
Á sýningunni sem væri bæði utan
húss og innan í bækistöðvum Heklu
við Laugarveg, vora m.a. kynntar
jarðýtur, vegheflar, traktorsgröfur,
hjólagröfur og beltagröfur en einnig
skipavélar ásamt skrúfubúnaði og
gíram frá norska fyrirtækinu Ul-
stein, en Valgeir segir Heklu alla
jafnan selja Catepillar vélamar og
Ulstein-búnaðinn sem heildarlausn.
Meðal nýjunga á sýningunni var
ný gerð af traktorsgröfu og nýr
stýribúnaður fyrir jarðýtur en á
sýningunni var einnig afhent raf-
stöð af nýrri gerð til hitaveitunnar
á Dalvík.
Valgeir segir þátttökuna á sýn-
ingunni hafa farið fram úr björt-
ustu vonum, því að til opnunarinnar
var boðið um 300 manns en strax
að henni lokinni var stöðugur
straumur fólks til að skoða tækin,
svo að þegar henni lauk á sunnudag
höfðu um 3 þúsund manns komið
í bækistöðvar Heklu til að skoða
þessi sérhæfðu tæki og búnað sem
þama var til sýningar.
mikill kostur fyrir viðskiptavinina,
hvort sem þeir væra einstaklingar,
fyrirtæki, stofnanir eða sveitarfé-
lög. Þá sögðu þeir fyrirtækið Blátt
áfram hf. einnig bjóða upp á tölvu-
ráðgjöf, ritvinnslu, leisiprentun og
ljósritun. Fýrirtækið hefði yfir að
ráða miklum tölvubúnaði sem væri
tengjanlegur við stærri tölvukerfi.
Aðspurðir kváðust þeir félagar
steftia að því að þjóna sem stærstu
svæði og sem stæði væra þeir með
verkefni víða á Vesturlandi og í
Reykjavík. TKÞ
Aðalfundur
Hagnaður Sparisjóðs
vélsljóra 38 m.kr.
HAGNAÐUR af rekstri Sparisjóðs
vélsljóra nam tæplega 38 miHjón-
um króna á síðastliðnu ári eftir
reiknaða skatta samtals kr. 25,6
milljónir. Heildartekjur spari-
sjóðsins árið 1988 námu 454,8
milljónum króna og höfðu vaxið
frá fyrra ári um 54,3%. Heildar-
gjöld voru 391,3 miiyónir og
hækkuðu um 55,5%. Innlán voru
f árslok 1.190 mifijónir og höfðu
aukist um 18,3% en að meðtöldum
veðdeildarbréfum varð innláns-
aukning 23,6%. Heildarútlán
námu í árslok 1.167 milljónir og
jukust þau um 34,9% á árinu.
Heildareignir Sparisjóðs vélstjóra
voru í árslok 1.600,8 milljónir króna
og eigið fé 212 milljónir. Eiginfjár-
staða sparisjóðsins var í árslok 18,7%
en í árslok 1987 var hún 18,5% sam-
kvæmt skilgreiningu laga um við-
skiptabanka. í ársskýrslu Sparisjóðs
vélstjóra er greint frá því að f árs-
byijun 1989 hafi verið gerð maka-
skipti við meðeigendur á þriðju hæð
hússins að Borgartúni 18 og eignað-
ist sparisjóðurinn þá alla aðra hæð
hússins sem er liðlega 740 fermetrar
að stærð. Á næstunni verður lokið
nauðsynlegum* breytingum á hluta
hæðarinnar og flytur þá sparisjóðs-
stjóm og útlánadeild í húsnæðið.
Annað húsnæði á hæðinni verður
leigt út og er ætlað til að mæta
húsnæðisþörf sparisjóðsins í framtf-
ðinni.
Fjarskipti
Heimilistæki
með lægsta
farsímatilboð
LANDSSAMBAND iðnaðarmanna
stóð fyrir sameiginlegu útboði
aðildaríyrirtækja sinna á farsím-
um fyrir nokkru. Alls bárust nfu
tilboð og kom í ljós, að Heimils-
tæki hf. voru með lægsta tilboðið,
að sögn forráðamanna fyrirtækis-
ins, auk þess sem það bauð mesta
afsláttinn, 33% frá staðgreiðslu-
verði.
Heimilistæki buðu Philips ap fars-
ímann, sem er framleiddur í Dan-
mörku af dótturfyrirtæki hollensku
Philips samsteypunnar. Fengust
pantanir á 55 farsímum, en afsláttur-
inn miðaðist við að 50 símar yrðu
pantaðir.
A MARKAÐI
Kennarar í eins konar sóttkví!
eftir Bjarna Sigtryggsson
Vandamál kennarastéttarinnar
er markaðsfræðilegs eðils. Það er
of lftil eftirspurn eftir þjónustu
þeirra og þeir hafa ekki skapað
starfi sínu þá ásýnd sem því ber.
Ekki er þó hægt að segja að það
sé offramboð á kennuram og þar
af leiðandi hægt að halda launum
þeirra niðri. Þegar kennurum fjölg-
ar umfram auglýsta ráðningar-
samninga leita þeir f önnur störf.
Þess vegna bitnar markaðurinn
ekki hart á þeim. En það skortir
eftirspum eftir þjónustu þeirra. Það
er að hluta til vegna þess að foreldr-
ar og nemendur þurfa ekki að
greiða sjálfir beint framlag til launa
þeirra. Þar af leiðandi gætir ekki
við mótun kennarastarfsins nægj-
anlegra þarfa hinna raunverulegu
neytenda.
Það eru fulltrúar ríkisvaldsins
sem ákveða þarfirnar og semja við
stéttarfélög kennara. Neytandinn
er hafður út undan og þar af leið-
andi þróast ekki eðlilegur markað-
ur. Kennararnir era vemdaðir frá
markaðnum (og markaðurinn frá
þeim) lík og væru þeir í sóttkví.
Byltingin í Rochester
í borginni Rochester í New York
fylki í Bandaríkjunum var gerð til-
raun til byltingar á þessu sviði fyr-
ir tveimur áram. Þá voru gerðir
samningar af nýju tagi við 2.500
kennara borgarinnar sem höfðu í
för með sér meiri launahækkanir
en þekkjast í sögu kennarastéttar-
innar í Bandaríkjunum. Nú fá þeir
allt að jafnvirði 250 þúsund króna
í mánaðarlaun, en verksvið þeirra
er lfka gerbreytt frá því sem var.
Hvergi í Bandaríkjunum fá kennara
svo há laun, nema í Alaska, þar sem
sérsamningar gilda.
Tímamótasamningar f Rochester
vora grundvallaðir á því að kröfur
foreldra og heimila til kennara og
skóla hefði aukist og breyst, en
. . . Hér hefur
orðið til mennt-
unarmarkaður
án virkar þátt-
töku neytenda,
sem minnir á
hinn sérkenni-
lega markað
með landbún-
aðarafurðir hér
á landi . . .
þjónusta skólanna hefði ekki þróast
í takt við tfmann. Til að réttlæta
launahækkanir yrði að lengja
vinnutíma kennara og víkka starf-
svið þeirra. Kennarar þurfa nú að
vinna allt árið og fá aðeins svipað
sumarfrí og venjulegir launþegar
og þeir vinna fullan vinnudag. En
vaxandi hluti af starfi þeirra er í
því fólginn að starfa utan kennslu-
stunda með nemendum með sér-
þarfir og við það að heimsækja
heimilið, þar sem vandamál virðast
halda bömum og unglingum frá
eðlilegu námi. Verksvið kennara er
með öðrum orðum orðið sambland
af kennslu og félagsráðgjöf.
Þetta gerir starfíð erfiðara og
veldur mörgum kennuram aukinnar
streitu, einkum hinum eldri, sem
kvarta nú undan því að hafa aldrei
hlotið þjálfun í félagsráðgjöf. Hins
vegar kunna flestir yngri kennarar
Nýtt starf með nýjar kröfiir
þessu vegar vel; fagna launahækk-
un og finnast þeir fá meiru komið
til leiðar. En þeir telja að kennarar
verði að fá umfangsmeiri og undir-
stöðubetri menntun og þjálfun fyrir
hið nýja kennarastarf.
Ekki er hægt að draga þá álykt-
un af viðbrögðum almennings í
símatímum útvarps að kennarar í
verkfalli i\jóti almennrar samúðar
hér á landi. Sem er því miður, því
ekki fer á milli mála að með vax-
andi samanlögðum vinnutíma for-
eldra utan heimilis er skólunum
fengið æ stærri sneið af uppeldis-
kökunni. Kennarar gera sitt besta,
en þá skortir lifandi samband við
hina uppalenduma. Þeir láta sér
hins vegar nægja að greiða 37,74%
af uppgefnum launum til ríkisfóstr-
unnar, sem á að semja við kennara
og greiða þeim svo laun.
Deyjandi fyrirkomulag
Fyrir bragðið sitja forráðamenn
næstu kynslóðar uppi með mennt-
unarmarkað án virkrar þátttöku
neytenda. Það minnir á hinn sér-
kennilega markað með landbúnað-
arafurðir hér á landi, sem lengi
hefur valdið neytendum ómældu
ijóni og er á góðri leið með að grafa
undan hagsmunum þeirra sem viija
byggja allt landið.